Morgunblaðið - 04.01.2000, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Laun opinberra starfsmanna og tryggingabætur hækka
Utgjaldaauki ríkisins
2,7 milljarðar kr.
Óvíst hvort Lím
tré hf. eignast
Vírnet hf.
RÍKISSTARFSMENN í félögum
sem gerðu kjarasamninga fram á
haust fengu að jafnaði nálægt 3%
launahækkun um áramótin. Einnig
hækkuðu bætur almannatrygginga-
kerfisins um 3,6% 1. janúar. Heildar-
útgjaldaauki ríkisins vegna hærri
launa- og bótagreiðslna er nálægt 3
milljarðar króna.
Framlengdu samninga
Laun starfsmanna sveitarfélaga
og annarra starfshópa sem gerðu
Veraleg loft-
mengun af
flugeldum á
nýársnótt
LOFTMENGUN fór langt fram úr
viðmiðunarmörkum skömmu eftir
miðnætti á gamlárskvöld. Um var
að ræða mengun frá flugeldum og
blysum og segir Jón Benjamínsson
hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
að mengunin hafi mælst óvenju
mikil á þessu ári.
Mælingar Heilbrigðiseftirlitsins
eru framkvæmdar á hálftíma fresti
og segir Jón að loftmengunin hafi
tekið að aukast strax eftir miðnætti
og hafi náð hámarki um eittleytið.
Um klukkan tvö á nýársnótt var
ástandið orðið að mestu eðlilegt að
nýju, en mikil úrkoma á nýársnótt
hefur flýtt verulega fyrir hreinsun í
andrúmsloftinu.
Að sögn Jóns fór mengunin upp í
600 míkrógrömm/m3 þegar mest
var, en meðaltai á venjulegum degi
er 25 míkrógrömm/m1 og hættu-
mörk miðast við 100 míkrógr/m3.
Hann segir að þetta sé svokallað
svifryk, eða það sem menn geta
TALSVERÐAR skemmdir hlutust af
þegar eldur kviknaði í Selásskóla
skömmu eftir klukkan 21 á sunnudag-
skvöldið.
Eldurinn kviknaði út frá skoteldi
sem settur hafði verið í loftræstiop
skólans og braust út talsverður eldur í
einu rými byggingarinnar. Talið er að
fyrrum nemendur skólans hafi verið
að verki og kveikt í af óvitaskap sín-
um, að sögn Önnu Guðrúnar Jósefs-
dóttur aðstoðarskólastjóra.
samninga sem renna út í haust eða
næsta vetur hækkuðu einnig nú um
áramótin.
Ríkið gerði fyrir áramót samning
við verk- og tæknifræðinga, lögfræð-
inga og samflot bæjarstarfsmanna
um að framlengja núgildandi samn-
inga til loka október. Fyrir það fá
þessir aðilar 2,85% hækkun um ára-
mótin. Alls er þama um 1.000 starfs-
menn að ræða.
Stærstur hluti félaga á hinum al-
menna vinnumarkaði er með kjara-
andað ofan í sig, og á nýársnótt sé
þetta bara púðurreykur.
Þó að mælingar hafi sýnt meng-
un langt yfir hættumörkum í stutt-
an tíma segir Jón að mönnum eigi
Reykkafarar úr Slökkviliði Reykja-
víkur fóru inn í skólann og luku
slökkvistarfi á rúmum 20 mínútum.
Aðgerðum slökkviliðsins lauk að fúllu
nokkru seinna eða laust fyrir klukkan
23 en unnið var við reykræstingu eftir
að slökkvistarfi lauk.
Setur skólastarf nokkuð
úr skorðum
Skólastarf hefst í dag, þriðjudag, í
Selásskóla og í gær var ljóst að atvikið
samninga sem renna út um miðjan
febrúar. Samningarnir gera ekki ráð
fyrir launahækkun um áramót. Búið
er að skila viðræðuáætlunum í flest-
um tilvikum og birta á kröfugerðir í
vikunni 17.-21. janúar.
Verkamannasambandið átti í við-
ræðum fyrir áramót um að fram-
lengja núverandi samninga út þetta
ár, en ekki náðust samningar á þeim
nótum. Samningsdrögin gerðu ráð
fyrir að laun hækkuðu nú um ára-
mótin.
að öllu jöfnu ekki að vera hætta
búin, þó að ástandið geti ekki talist
æskilegt. Hættumörkin eru miðuð
við 24 tfma ástand. Að sögn Jóns
var mengunin núna með öðrum
frá því á sunnudag myndi setja skóla-
starf nokkuð úr skorðum, sérstaklega
smíðakennslu, enda er smíðakennslu-
stofan talin ónýt eftir brunann. Að
sögn Önnu Guðrúnar Jósefsdóttur
verður ekki unnt að kenna smíðar
næsta mánuðinn eða svo.
Mörgum eru enn í fersku minni
ítrekuð skemmdarverk í Hagaskóla í
upphafi síðasta árs og því ekki að
ástæðulausu sem menn leiða hugann
að því hvort í uppsiglingu sé svipuð
EKKI var skrifað undir samninga
um kaup Límtrés hf. á Flúðum á
meirihluta hlutafjár Kaupfélags
Borgfirðinga í Vírneti hf. í Borgar-
nesi fyrir áramót eins og stefnt
hafði verið að. Forsvarsmenn fyr-
irtækjanna höfðu skrifað undir
viljayfirlýsingu um kaupin fyrir
jól, en forsvarsmenn Límtrés töldu
sig ekki geta gengið frá málinu
fyrir áramót, báðu um vikufrest en
því var hafnað af hálfu KB. Er nú
alls óvíst hvort og hvenær af
samningum verður.
hætti en í fyrra og hittifyrra og
mældist óvenju mikil í stuttan tíma.
Siðustu ár stóð mengunin yfir í
lengri tíma en toppurinn var mun
lægri.
atburðarás nú. Aðspurð um þetta seg-
ir Anna Guðrún ekki vera sterk teikn
á lofti í þá veru enda sé talið víst
hverjir voru að verki og að íkveikjan
hafi verið framin af hreinum óvita-
skap frekar en af ásetningi.
Lögreglan í Reykjavík hefur tekið
atvikið til rannsóknar og hyggst enn-
fremur eiga samstarf við skólayfir-
völd við að upplýsa málið og tryggja
sem best að ekki verði áframhald á
slíkum skemmdarverkum.
Kaupfélag Borgfirðinga hugðist
selja meirihluta hlutafjár í Vírneti
til að fjármagna fyrirhugaða
nýbyggingu sína í Borgarnesi, en
að sögn Guðsteins Einarssonar,
kaupfélagsstjóra KB, er málið nú
aftur komið á upphafsreit. „Við
höfum í raun engar skýringar
fengið á því hvers vegna Límtré
vildi skyndilega fresta málunum.
Við vorum alls ekki tilbúnir til
þess, samningaviðræður voru mið-
aðar við ákveðnar forsendur og nú
þegar þær hafa breyst þykir okkur
rétt að líta aftur yfir sviðið. Það
hafa fleiri aðilar lýst yf'ir áhuga á
þessum bréfum og þau mál hljót-
um við nú að skoða,“ sagði Guð-
steinn. Hann tók þó fram að alls
ekki væri útilokað að af samning-
um yrði við Límtré, en forsendur
væru nú aðrar en áður.
Límtré hefur enn áhuga
Guðmundur Ósvaldsson hjá
Límtré hf. sagði við Morgunblaðið
í gær að af hálfu síns fyrirtækis
væri enn unnið eftir viljayfirlýs-
ingunni frá því fyrir jól. „Það hef-
ur ekkert breyst af okkar hálfu,
enda þótt ekki hafi gefist tími til
að ljúka þessum málum fyrir ára-
mót eins og stefnt var að í upp-
hafi,“ sagði hann.
Viljayfirlýsingin kveður á um
sölu á 50,1% hlut í Vírneti hf. sem
að nafnverði nemur um 38 milljón-
um króna. Gengi bréfa í fyrirhug-
uðum samningum hefur ekki feng-
ist gefið upp. Vírnet framleiðir
stærstan hluta af nöglum á land-
inu en einnig er þar framleitt þak-
járn og utanhússklæðningar. Ekki
voru fyrirhugaðar breytingar á
rekstri fyrirtækisins þrátt fyrir
breytingar á eignarhaldi.
Lést í
bflslysi
MAÐURINN, sem lést í bílslysi á
Grindavíkurvegi síðastliðinn
fimmtudag, hét Baldur Jósef Jósefs-
son, til heimilis á Holtsgötu 14, Ytri-
Njarðvík. Hann var fæddur 27. maí
árið 1963 og lætur eftir sig sex ára
gamlan son.
Talsverðar skemmdir í smíðastofu Selásskóla vegna bruna af völdum skotelds
Ekki unnt að kenna smíðar
í skólanum næsta mánuðinn
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Tíðindi ársins í knatt-
spyrnunni á Ítalíu / B2
Engar breytingar á toppn-
um á Englandi / B4
MED Morgunblaðinu í
dag er dreift blaði frá
Heilsuhúsinu,
„Góð heilsa í þínum
höndum - alla ævi“.
MEÐ Morgunblaðinu i
dag er dreift blaði frá
Baðhúsinu, „Gleðilegt
ár Baðhúskonur!11.
Blaðinu er dreift á
höfuðborgarsvæðinu.