Morgunblaðið - 04.01.2000, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lokað
vegna vöru-
talningar
ALLMARGAR verslanir voru lok-
aðar í gær, fyrsta virka daginn á
nýju ári.
Það var þó ekki vegna þess að
starfsfólkið væri að hvíla lúin bein
eftir annasama tíð, heldur var það
önnum kafið við að telja og skrá
vörur. Þetta verkefni er nauðsyn-
legur hluti af bókhaldslegu upp-
gjöri verslana um áramót. Meðal
þeirra sem voru við vörutalningu í
gær voru starfsmenn herrafata-
verslunarinnar GK á Laugavegi
sem sjást hér einbeittir við taln-
inguna.
Mikið var að gera í þeim mat-
vöruverslunum sem voru opnar í
gær og á nýársdag, en það voru
einkum smærri verslanir. Sum-
staðar gekk verulega á vörubirgð-
ir í hillum og voru dæmi um að
nauðsynjavörur eins og brauð
væru uppseldar. Kaupmaðurinn á
horninu áttu því allgóða daga í
upphafi árs.
Morgunblaðið/Sverrir
Strokufang-
inn fundinn
LÖGREGLAN í Reykjavík hand-
tók í gær fangann sem slapp úr
haldi lögreglunnar 29. desember sl.
þegar verið var að leiða hann út úr
Héraðsdómi Reykjavíkur. Á flótta
undan lögreglunni hljóp hann inn í
Landssímahúsið og hvarf þaðan.
Maðurinn er 18 ára og hefur ver-
ið að afplána átta mánaða dóm. A
afbrotaferli sínum hefur hann ver-
ið dæmdur fyrir líkamsárás, þjófn-
aði, nytjastuld, akstur án ökurétt-
inda, eignaspjöll, fíkniefnabrot og
skjalafals.
♦ ♦ ♦
Blys í loft-
ræstistokk
GLÓANDI blys fundust í loftræsti-
stokk í Kársnesskóla í Kópavogi í
gærkvöldi. Að sögn Slökkviliðsins í
Reykjavík urðu smávægilegar
skemmdir á inntaki stokksins, því um
leið og reykur barst inn í húsið fór að-
vörunarkerfið í gang og var hægt að
bjarga kjallara hússins frá reyk-
skemmdum með því að reykræsta.
Skýrsla erlendra sérfræðinga um áhrif námavinnslu í Mývatni
Niðurstöðurnar túlkaðar
á afar mismunandi vegu
Framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar við
Mývatn og stjórnarformaður Náttúrurann-
sóknastöðvarinnar við Mývatn túlka
niðurstöður skýrslu erlendra sérfræðinga
um frekari kísilgúrnámavinnslu í
vatninu með afar ólíkum hætti.
AFAR skiptar skoðanir eru um nýja
skýrslu þriggja erlendra sérfræð-
inga um áhrif kísilgúrvinnslu í Mý-
vatni sem greint var frá í Morgun-
blaðinu á föstudag. Gunnar Örn
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Kísiliðjunnar, segir skýrsluna stað-
festa það sem fyrirtækið og flestir
Mývetningar hafi ávallt sagt, að ein-
hveijar sveiflur í lífríki Mývatns séu
ekki Kísiliðjunni að kenna, og að
ekkert sé því til fyrirstöðu að hafm
verði námavinnsla í Syðriflóa. Gisli
Már Gíslason, prófessor í vatnalíf-
fræði og stjómarformaður Náttúru-
rannsóknastöðvarinnar við Mývatn,
segir hins vegar að því fari fjarri að
þessa skýrslu megi túlka sem grænt
ljós fyrir frekara kísilgúmámi í
Mývatni.
„Þessi skýrsla er gríðarlega mikil-
væg fyrir þetta fyrirtæki, og fyrir
allt fólkið hérna við Mývatn,“ sagði
Gunnar Örn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar, en
skýrsluna unnu tveir Norðmenn og
einn Svíi sem sérhæfðfr em í vatna-
líffræði. Jafnframt var hollenskur
sérfræðingur í setlagaflutningum
álitsgjafi við vinnslu hennar.
„Hún segir einfaldlega það, sem
flestir Mývetningar og Kísiliðjan
hafa haldið fram í mörg ár, að söku-
dólginn fyrir einhverjum sveiflum í
lífríki Mývatns er ekki að finna hjá
fyrirtækinu, heldur einhvers staðar
allt annars staðar. í öðru lagi að það
sé þvl ekkert til fyrii-stöðu að fara
yfir í Syðriflóa og halda áfram þar
vinnslu.“
Segir Gunnar Örn að þessar tvær
meginniðurstöður séu afdráttarlaus-
ar og jafnframt að fái Kísiliðjan leyfí
til að fara yfir í Syðriílóa þá sé búið
að stíga fyrsta skrefið til að tryggja
rekstrargrundvöll hennar.
Segir Kísiliðjuna hafa áhrif
Gísli Már Gíslason prófessor túlk-
ar skýrsluna hins vegar með allt öðr-
um hætti og segir sérfræðingana
þrjá hafa komist að mjög svipaðri
niðurstöðu og forsvarsmenn Nátt-
úrarannsóknastöðvarinnar við Mý-
vatn hefðu alla tíð haldið á lofti.
„Sveiflurnar hafa aldrei skipt
neinu máli varðandi Kísiliðjuna,"
segir Gísli Már. „Ekki öðruvísi en
þannig að þær gera okkur erfiðara
fyrir að sjá hvaða áhrif Kísiliðjan
hefur á vatnið."
Gísli Már bendir í þessu sambandi
á að erlendu sérfræðingarnir komist
þannig að orði að þeir geti ekki tengt
sveiflur í lífríki vatnsins á afgerandi
hátt við Kísiliðjuna. Hitt komi hins
vegar fram að vissulega hafi Kísiliðj-
an áhrif á lífríki vatnsins.
Þetta hafi eldri rannsóknfr auk
þess sýnt fram á, t.d. sérfræðinga-
nefndarskýrsla sem lögð var fram
1991 og skýrsla verkefnishóps 1993.
Jafnframt hafi þetta verið gert í
mati á umhverfisáhrifum sem var
lagt fram í september vegna um-
sóknar Kísiliðjunnar um nýtt náma-
leyfi, stækkun námasvæðisins í Ytr-
ifióa og til vinnslu á nýju svæði í
Syðriflóa.
Loks bendfr Gísli Már á að sér-
fræðingarnir leggi tii frekari rann-
sóknir, verði ákveðið að fara út í
frekara kísilgúrnám, rannsóknir
sem eríltt sé að sjá annað en myndu
kosta a.m.k. 15-20 milljónir á ári.
Heimamenn þrýstu á um
frekari vinnslu í Ytriflóa
Gunnar Örn neitar því að skýrslan
frá 1991 sé slæm fyrir Kísiliðjuna.
„Hins vegar var gerð framhalds-
rannsókn og aðallega þá varðandi
setflutninga, og sú skýrsla kom út
1993. Sú skýrsla hefur verið notuð
ákaflega mikið á móti þessu fyrir-
tæki, aigerlega að ósekju, því hún
hefur ekki þá burði til þess að vera
notuð sem slík.“
Segir Gunnar Örn þá skýrslu í
raun merkilega enda sýni hún betur
en margt annað hversu gi’undvöllur
fyrfr því að vera á móti kísiliðju í
Mývatni sé á veikum grunni byggð-
ur. Þar sé í aðra röndina komist að
þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að
segja til um áhrif á lífríkið í Mývatni
vegna setflutninga, þar sem ekki
liggi fyrir rannsóknir í því efni, en í
kjölfarið séu hafðar á lofti getgátur
um að langvarandi vinnsla hefði í för
með sér veralegar breytingar á lífs-
skilyrðum í Mývatni.
Gísli Már vísar hins vegar til þess
að erlendu sérfræðingarnir séu sam-
mála mati Náttúrurannsóknastöðv-
arinnar við Mývatn að vatnið sé
mjög einstakt á norðurhveli jarðar.
Þeir bendi aukinheldur á það í
skýrslu sinni að á þessi mál megi
horfa frá tvenns konar sjónarmið-
um, annars vegar út frá „prinsippi“
og hins vegar út frá reynslu. Fram
komi skýrt að það sé mat þeirra að í
„prinsippi" eigi ekki að vera með
iðnrekstur í svona einstöku vatni.
Vegna ýmissa samfélagsþátta geti
engu að síður verið nauðsynlegt að
gera það.
„Og í kjölfar þess leggja þeir til að
núverandi námavinnslu í Ytriflóa
verði hætt á stundinni, en ef það er
nauðsynlegt að halda henni áft’am
þar þá fari hún ekki út fyrir núver-
andi mörk á námavinnslusvæðinu,
sem vora ákveðin 1993. í annan stað
þá benda þeir á varúðarregluna og
þeir segja að ef sú ákvörðun verði
tekin, að námagröftur haldi áfram,
að þá geti þefr hugsanlega mælt með
svæði 1 í Syðriflóa, en að þeim líði
verr að mæla með að fara niður á
tveggja metra dýpi á svæði 2 í Syðr-
iflóa.“
í þessu sambandi segir Gunnar
Örn að eina ástæða þess að Kísilið-
jan fór fram á það í mati á umhverf-
isáhrifum að þeir fengju að vinna
fleiri svæði á Ytriflóa hafi verið
þrýstingur heimamanna, allir sem
búi við Ytriflóa vilji að þeir dæli
meira. „En málið er það að kísilgúr-
lögin era alltaf að þynnast í Ytriflóa,
við erum búnir að taka megnið af
góðu svæðunum út, og það er meira
eftir af svæðum sem gefa minna af
sér. Þannig að það er alveg ljóst,
eins og þeir benda á, að út frá varúð-
arsjónarmiðum þá er miklu skynsa-
mlegra að fara yfir í Syðriflóa."
Réttlætir skýrslan
nýtt námaleyfi?
Klsiliðjan í Mývatnssveit starfar
nú samkvæmt námaleyfi, sem gefið
var út af iðnaðarráðherra hinn 7-
apríl 1993 en um leið og það var gef-
ið út var greint frá samkomulagi iðn-
aðarráðuneytis, umhverfisráðuneyt-
is og Náttúraverndarráðs (nú
Náttúruverndar ríkisins) þar sem
fram kom að skilningur allra sem að
því stóðu væri sá að með útgáfu leyf-
isins væri aðeins verið að gefa svig-
ram til að hætta kísilgúrtöku úr Mý-
vatni. Málefni Kísiliðjunnar komust
hins vegar í hámæh á nýjan leik í
baráttunni fyrir Alþingiskosning-
arnar síðastliðið vor, ekki síst eftir
að fyrirtækið sótti um nýtt náma-
leyfi, stækkun námasvæðisins í Ytri-
flóa Mývatns og til vinnslu á nýju
svæði í Syðriflóa.
Gunnar Örn kveðst á þeirri skoð-
un að skýrsla erlendu sérfræðing-
anna núna styrki málstað Kísiliðj-
unnar og sýni að ekki var á miklu
byggtvið skýrslugerðina 1993. Segir
hann engan vafa á að Kísiliðjan muni
nota skýrsluna þegar hún bregst við
óskum skipulagsstjóra ríkisins um
frekari gögn og frekari rannsóknir á
umhvei’fisáhrifum vegna aukinnar
vinnslu í Mývatni. „Annað væri
óeðlilegt enda báðu þeir nánast um
það.“
Gísli Már segir aftur á móti að það
komi ítrekað fram í skýrslu erlendu
sérfræðinganna að þeir vilji ekki
blanda sér í þær pólitísku deilur sem
um þessi mál standa á íslandi. Sam-
komulagið frá 1993 liggi hins vegar
fyrir og erfitt sé að túlka skýrslu er-
lendu sérfræðinganna sem tillögu
um að það verði tekið upp að nýju.
Vönduð skýrsla að
mati ráðherra
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, fékk skýrsl-
una fyrst í hendur í gærog sagði að
sér hefði ekki gefist mikill tími til að
fara yfir hana. „Mér sýnist að hún sé
mjög vel unnin. Ríkisstjórnin tók þá
ákvörðun í vor að fá erlenda sérf-
ræðinga til þess að koma að málinu
vegna þess að það hefur alltaf verið
ágreiningur um það hvort okkar vís-
indamenn eru að vinna faglega eða
ekki. Að því leyti til er mjög mikil-
vægt að fá þessa skýrslu," sagði Val-
gerður.
Ráðheraann sagði ennfremur að
skýrslan yrði meðal þeirra gagna
sem stjórnvöld styddust við þegar
ákvarðanir um framhald málsins
verða teknar.