Morgunblaðið - 04.01.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 11
FRÉTTIR
Opnaður verður aðgangur
að ættfræðigagnagrunni
FRIÐRIK Skúlason tölvufræðing-
ur og fyrirtækið Islensk erfðagrein-
ing hafa ákveðið að opna aðgang á
Netinu að ættfræðigagnagrunni,
sem byggður hefur verið upp á und-
anförnum árum. Nú eru um 620
þúsund nöfn íslendinga í grunnin-
um og er markmiðið að þar verði
upplýsingar um ættir allra íslend-
inga sem heimildir eru til um. Ekki
er ákveðið hvenær netsíða verður
opnuð en það verður síðar á þessu
ári.
Friðrik Skúlason og Kári Stef-
ánsson, forstjóri ÍE, boðuðu til
blaðamannafundar á nýársdag þar
sem þessi ákvörðun var kynnt.
Friðrik hefur frá árinu 1988 unnið
að því að safna ættfræðiupplýsing-
um og koma þeim á tölvutækt form
en síðustu árin hafa IE og fyrirtæki
Friðriks, Frisk Software, unnið að
því sameiginlegá að auka við þessi
gögn og gera þau aðgengilegri fyrir
notendur. Fimmtán manns hafa að
jafnaði verið að störfum við ætt-
fræðigrunninn frá því samstarf fyr-
irtækjanna hófst árið 1997.
Kári Stefánsson sagði á blaða-
mannafundinum að segja mætti að
verið væri að boða fjórðu bylting-
una í aðgengi að ættfræðiupplýs-
ingum Islendinga. Sú fyrsta hefði
orðið fyrir 1100 árum þegar söfnun
ættfræðiupplýsinga hófst. Önnur
byltingin hefði orðið þegar farið var
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Friðrik Skúlason útskýrir hér notkun á ættfræðigagnagrunninum þeg-
ar hann var kynntur á nýársdag.
að skrá þessar upplýsingar á skipu-
lagðan hátt. Sú þriðja hefði hafist
fyrir 10-11 árum þegar farið var að
skrá upplýsingarnar á tölvutækt
form og sú fjórða væri að gera
þessar upplýsingar aðgengilegar á
Netinu.
Þar til vefsíður Islendingabókar,
eins og ættfræðigrunnurinn er
nefndur, verða opnaðar, geta menn
leitað upplýsinga um framættir sín-
ar með því að senda skriflega beiðni
(íslendingabók, pósthólf 7180, 127
Reykjavík) og geta nafns síns, fæð-
ingardags og heimilisfangs. Mun
starfsfólk þá senda viðkomandi
þessar upplýsingar úr Islendinga-
bók eins og þær liggja fyrir.
Uppboð á 30 íbúðum á Patreksfírði
Skuldir helmingi
hærri en mark-
aðsverð íbúðanna
FYRIRHUGUÐ uppboð á 30 hús-
eignum í eigu Vesturbyggðar voru
auglýst í Morgunblaðinu 29. desem-
ber sl. Jón Gunnar Stefánsson, bæj-
arstjóri í Vesturbyggð, segir þetta
árvissan atburð að uppboð á hús-
eignunum, sem eru í félagslega íbúð-
arkerfinu, sé auglýst en aldrei verði
af uppboðinu. Helstu kröfuhafar eru
Byggingarsjóður verkamanna og
íbúðalánasjóður. Hann segir að
unnið sé að lausn þessara mála og
felist hún í afskriftum á skuldum
þannig að íbúðirnar verði nær mark-
aðsverði en nú sé. Meðan ekki finn-
ist lausn á þessu máli njóti Vestur-
byggð þess vafasama heiðurs að
verða áberandi með þessum hætti í
auglýsingum í Morgunblaðinu.
Alls á Vesturbyggð 70-80 íbúðir í
félagslega kerfinu. Vanskil eru
vegna íbúðanna. „Húsin voru byggð
hér í góðæri og hafa ekki fengist af-
skrifuð. Þetta eru íbúðir sem eru
með áhvílandi skuldir sem eru helm-
ingi hærri en það sem fengist fyrir
þær. Hér hefur íbúum fækkað og
ekki eins mikil eftirspurn eftir hús-
næði og ella hefði orðið,“ segir Jón
Gunnar Stefánsson bæjarstjóri.
Ártalið 2000 leiddi ekki til vandræða í tölvukerfum hér á landi
Oll kerfí
2000-hæf
ENGIN teljandi vandamál komu
upp í tölvukerfum landsins er árið
2000 gekk í garð og segir Haukur
Ingibergsson, formaður 2000-
nefndarinnar, að þau markmið sem
stefnt var að hafi náðst. „Það gerð-
ist það sem stefnt var að, öll kerfi
voru 2000-liæf. Að því miðaðist
starf nefndarinnar og það hefur
gengið ágætlega.“
Haukur segir að þegar komið var
í ljós að engin teljandi vandamál
komu upp er árið 2000 gekk í garð í
iðnvæddum ríkjum, Ástralíu, Japan
og víðar hafi menn andað léttar hér
á landi.
„Þetta gekk allt mjög vel. Fyrsta
skrefið var um áramótin þegar
reyndi á stóru landskerfin, eins og
símann og orkukerfi. Síðan voru
næststærstu kerfin prófuð um
helgina. Nú í vikunni mun koma í
ljós hvernig gengur í litlum og með-
alstórum fyrirtækjum. Þar verða
sjálfsagt einhveijar smærri truflan-
ir en það er mikill viðbúnaður í
gangi til að taka á því.“
Haukur segir að þrátt fyrir að
ekkert stórvægilegt hafi komið upp
hérlendis sem erlendis fari því
fjarri að 2000-vandinn hafi verið of-
metinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á Landssímanum stóðu menn 2000 vakt á nýársnótt og gekk hún snurðulaust fýrir sig.
„Við verðum að hafa í huga að
það voru framkvæmdasljórar og
forstöðumenn fyrirtækja og stofn-
ana sem mátu vandann ásamt sín-
um tölvumönnum sem sjá um að
reka kerfin. Þessir aðilar vinna
samkvæmt tveimur römmum, fjár-
hagsramma og öryggisramma. Það
var gert allt sem til þurfti til að ör-
yggisramminn stæðist og það tókst
vel til. Auðvitað hefðu menn viljað
verja fjármunuin í annað en það er
alls ekki hægt að ætla að vandinn
hafi verið ofmetinn, menn vissu
hvað var í húfi.“
2000-nefndin fundar í dag og fer
yfir stöðuna og svo aftur á föstu-
dag. Að sögn Hauks verður þá met-
ið hvort störfum nefndarinnar er
lokið eða hvort þörf er á að hún
starfi áfram.
Hann segir að nú sé unnið að því
að finna lausn á þessu máli og koma
því í þann farveg að unnt verði að
finna kaupendur að íbúðunum á því
verði sem markaðurinn segir fyrir
um. En það gerist ekki nema skuld-
irnar verði afskrifaðar. „Það verður
að finna fjánnuni til þess að gera
það því hér eru 70-80 íbúðir á þess-
um grundvelli í Vesturbyggð. Það er
allsendis óviðráðanlegt verkefni fyr-
ir sveitarfélagið að gi'eiða þennan
mismun," segir Jón Gunnar.
Verðþrðun á bensíni með
fullri þjónustu frá des. 1998
j|f'M;A;M[J|j A'S 0 N':D J|F|MÍAÍMl3j
1999 2000
Bensín
hækkaði
um 1,20 kr.
um áramót
VERÐ á bensíni og dísilolíu hækkaði
hjá olíufélögunum um áramótin
vegna hækkana á heimsmark-
aðsverði. Hækkaði verð á 95 okt.
bensínlítra með fullri þjónustu um
1.20 kr. og kostar lítrinn nú 87,50 kr
hjá Skeljungi, Olíufélaginu og Olís.
Breytingar hafa orðið á bensínverði
um hver mánaðamót á síðari hluta
ársins og á einu ári hefur verð á bens-
ínlítranum hækkað um ríflega sautj-
án krónur.
Verð á lítra af 98. okt. bensíni
hækkaði einnig um 1,20 kr. og er nú
92.20 kr. Verð á gasolíu hækkaði einn-
ig um áramótin og kostar lítrinn nú 38
krónur - hækkaði um hálfa fjórðu
krónu eða sem nemur ríflega 10%.
Thomas Möller, forstöðumaður
markaðssviðs Olíuverslunai' Islands
hf., sagði hækkunina nú mega rekja
til breytinga á heimsmarkaðsverði,
bæði hvað varðar bensín og gasolíu.
Að auki hafi um áramótin gengið í
gildi nýir gæðastaðlar Evi'ópusam-
bandsins sem feli í sér hertai' reglur
um brennisteinsinnihald.
LOKAÐ í DAG
ÚTSALAN HEFST Á MORGUN, 5. JANÚAR KL. 8.00
OÓuntu
tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi