Morgunblaðið - 04.01.2000, Page 30

Morgunblaðið - 04.01.2000, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 4. JA.NÚAR 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Fjármálahneyksli Kristilegra demókrata í Þýzkalandi vindur æ meir upp á sig Sakarannsókn hafín á þætti Helmuts Kohls Berlín, Bonn. Reuters, AFP, AP. AP Helmut Kohl, t.v., og Wolfgang Schauble, arftaki Kohls í leiðtogasæti CDU, sitja hér saman á flokksþingi árið 1996. Talsmenn ríkisstjórnar- flokkanna telja Scháuble tengjast a.m.k. einum anga fjármálahneykslis- ins, sem mest hefur snúið að Kohl fram að þessu. Skæð inflúensa í Noregi MÖRG sjúkrahús í Noregi eru yfírfull vegna flensufaralds í landinu en sýking á borð við lungnabólgu er oft fylgifiskur flensunnar. Um helmingi fleiri sjúklingar liggja nú á sumum deildum sjúkrahúsanna en pláss er fyrir og er það aðallega eldra fólk sem sýkst hefur að sögn norskra lækna. Dole til liðs við Bush TALIÐ er, að Elizabeth Dole muni lýsa yfir stuðningi við George W. Bush sem forseta- frambjóðanda bandarískra repúblikana en sjálf dró hún sig í hlé sökum fjárskorts. Hefur hún verið hvött til að leggja honum lið og auka þannig líkur á því að verða fyrir valinu sem varaforsetaefni. Stuðningur Dole myndi auðvelda Bush að ná til kvenkjósenda. Jólí Betlehem BORIS Jeltsín, fyrrverandi Rússlandsforseti, og leiðtogar sex Austur-Evrópuríkja munu fagna jólum samkvæmt sið- venju grísku rétttrúnaðarkirkj- unnar í Betlehem síðar í vik- unni. Leiðtogamir verða þá gestir Yasser Arafats og segja Palestínumenn heimsóknina stuðning við sjálfstæðiskröfur þeirra. Auk Jeltsíns eru gest- imir frá Ukraínu, Hvíta-Rúss- landi, Georgíu, Grikklandi, Rúmeníu og Búlgaríu. Þeir verða við miðnæturmessu í Betlehem á fimmtudag en áður munu þeir snæða kvöldverð með Arafat. „Þeir eru gestir Palestínu og forseta hennar," sagði Nabil Amr, ráðgjafi Araf- ats. Gríska rétttrúnaðarkirkjan fer eftir júlíanska tímatalinu, en samkvæmt því em jólin haldin dagana 6. og 7. janúar. Sprengjutil- ræði í Kasmír KRAFTMIKIL sprenging varð í borginni Srinagar í Kasmír í gær með þeim afleið- ingum að 14 óbreyttir borgarar og þrír indverskir öryggisverð- ir létust. 20 aðrir slösuðust í sprengingunni. Enn hefur eng- inn lýst yfir ábyrgð á henni en að sögn lögreglu er talið að hóp- ur múslima, sem berst gegn yf- irráðum Indverja í Kasmír, hafi staðið að tilræðinu. Cézanne- verki stolið ÞJÓFNAÐUR á Cézanne- málverki í Ashmolean-safninu í Oxford ber öll merki þess að at- vinnumaður hafi verið þar á ferð því minnstu smáatriði vora nákvæmlega skipulögð að sögn lögreglu. Það var stuttu eftir miðnætti á gamlárskvöld að þjófurinn lét sig siga niður um þakglugga á safninu og hafði á brott með sér málverkið sem metið er á um 240 milljónir ísl. kr. Talið er að þjófnaðurinn hafi ekki tekið nema tíu mínútur i framkvæmd og segir lögregla þjófinn hafa sýnt mikla kænsku, en málverkinu hafi lík- lega verið stolið eftir pöntun. SAKARANNSOKN hófst í gær á því, hvort Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlari Þýzkalands, braut lög með því að þiggja Ieynileg fjárframlög til flokks síns, Kristilegra demókrata (CDU), á valdatíma sínum. Hneykslismál þetta upphófst fyrir rúmum mánuði, þegar Kohl viður- kenndi opinberlega að hafa tekið við allt að tveimur miHjónum marka, andvirði 76 milljóna króna, í framlög sem geymd hefðu verið á leynilegum bankareikningum flokksins. Hefur málið rýrt orðstír Kohls, sem var kanzlari um 16 ára skeið og formaður CDU í 26 ár, og spillt fyrir flokknum, sem nú er forystuafl stjórnarand- stöðunnar gegn ríkisstjóm jafnaðar- manna og græningja. Núverandi forystumenn CDU hafa reynt að takmarka skaðann með því að þrýsta sjálfir á Kohl að upp- lýsa málið undanbragðalaust, en hann hefur staðfastlega neitað að gefa upp hverjir gáfu féð, jafnvel þótt hann bijóti einnig með því gegn gild- andi lögum. Vísar hann til þess að hann hafi heitið gefendunum nafn- leynd og það heiti muni hann ekki rjúfa. Að sögn talsmanns saksóknarans í Bonn byggist rannsóknin til að byrja með á því, hvort Kohl hafi gerzt sek- ur um sviksemi í skilningi laganna. Mun rannsóknin, sem gæti tekið mánuði, fara fram samhliða rann- sókn á vegum þýzka þingsins á því hvort tilteknar leynilegar greiðslur til CDU á valdatíma Kohls hafí haft áhrif á pólitískar ákvarðanir stjómar hans. Hildegard Hamm-Brúcher, þing- maður ftjálslyndra demókrata, FDP, varpaði fram þeirri spurningu, hvort þögn Kohls um þá sem að baki hinum leynilegu greiðslum stóðu, tengist á einhvem hátt pólitískum ákvörðun- um. Svissneska dagblaðið Neue Zurcher Zeitung hefur eftir Wolfg- angvon Stetten, þingmanni CDU, að það sé von margra í flokknum að málið leysist með því að hinir leyni- legu greiðendur gefi sig sjálfir fram. Kohl hefur forðast sviðsljósið und- anfamar vikur og neitað að svara spumingum fréttamanna um málið. Dagblaðið Bild am Sonntag náði þó að hafa eftir honum eina setningu um helgina. „Eg veit hvernig ég get gleymt öllum áhyggjum og slappað af,“ sagði hann í svari við spumingu blaðamanns í nýárshófi þingsins. Hannalore, eiginkona Kohls, átti beinskeyttara svar á reiðum hönd- TVEIR létust og 73 slösuðust, þar af 20 alvarlega, þegar árekstur varð á sunnudag á báðum aksturs- leiðum A7-hraðbrautarinnar í nánd við bæinn Schweinfurt í Norður-Bæjaralandi. Ástæða fyrri árekstursins er að sögn lögreglu talin sú að ökumað- ur hafi ekið of hratt miðað við að- stæður en skyggni var mjög lítið um: „Við hjónin höfum staðið af okk- ur anzi margt um ævina og við mun- um lifa þetta af líka.“ Kohl, sem nú er 69 ára, gegnir enn þingmennsku og er jafnframt heið- ursformaður CDU. Þingið þarf ekld að taka afstöðu til þess hvort svipta beri hann þinghelgi nema saksóknari ákveði að bera fram formlega ákæra á hendur honum. Sumir fréttaskýrendur telja, að takist CDU, þrátt fyrir að málið sé neyðarlegt fyrir flokkinn, að segja skilið við „Kohl-kerfið“ svokallaða, sem var sniðið að hans persónu og mótaði flokksstarfið mjög, gæti það hleypt nýju lífi í hægrivæng þýzkra stjómmála til lengri tíma litið. Schauble flæktur í málið? En CDU gæti átt á hættu að bíða frekari kosningaósigra ef arftaki Kohls í flokksleiðtogasætinu, Wolf- gang Schauble, flækist alvarlega í vegna þoku. Það olli því, að tutt- ugu bílar rákust saman og öku- menn á leið í hina áttina hægðu sfðan á sér til að geta betur fylgst með slysinu. Það hafði þær afleið- ingar að 60 bflar lentu saman í einni kös. Að sögn lögreglunnar eru um áttatiu bílar mikið skemmdir eða únýtir eftir áreksturinn. hneykslismálin. Upplýst hefur verið að á árinu 1997, á meðan Scháuble var þingflokksformaður CDU og Kohl var enn á kanzlarastólnum, var 1,16 milljónum marka, um 44 milljón- um króna, sem tilheyrði þingflokkn- um komið yfir á aðra reikninga flokksins. Frammámenn í ríkis- stjómarliðinu halda því fram að Scháuble hafi vitað um þessar ólög- legu millifærslur. Rezzo Schlauch, þingflokksformaður græningja, sagði Kohl-hneykslið nú vera að víkka út og ná einnig til Scháubles. „Þama var skjalataska fyllt reiðufé," sagði Schlauch um helgina. „Slíkt lyktar af ólöglegu athæfi.“ Ný fjárreiðuskýrsla Matthias Wissmann, núverandi fjármálastjóri CDU, lagði á gamlárs- dag fram endurskoðaða bókhalds- skýrslu flokksins fyrir tímabilið 1993-1998. Þar kemur fram að vitað BRESKA innanríkisráðuneytið hefur vísað Konrad Kalejs úr landi, að því er yfirvöld greindu frá í gær. Hann er grunaður er um að hafa framið stríðsglæpi í síðari heims- styrjöld. Áður en Kalejs fluttist til Bret- lands bjó hann í Ástralíu, en þaðan kom hann frá Bandaríkjunum og Kanada, þar sem honum hafði ver- ið vísað brott vegna gruns um aðild að stríðsglæpum nasista í Lett- landi. Er hann sagður hafa tekið þátt í morðum á yfir 30 þúsund manns, flestum gyðingum. Kalejs hefur neitað öllum ásökunum. Innanríkisráðuneytið breska getur vísað fólki úr landi en ekki látið handtaka það. Efraim Zuroff, framkvæmdastjóri Simon Wiesen- thal-miðstöðvarinnar í Jerúsalem, hafði krafist þess við innanrikis- ráðherra Bretlands, Jack Straw, að sé um 2,43 milljónir marka, sem ekki sé vitað hvaðan hafi borizt í sjóði flokksins á nefndu tímabili. Vegna þessa hefur ílokkurinn lagt 7,3 mil- Ijónir marka, þrefalda þessa upphæð, til hliðar í því skyni að geta staðið skil á endurgreiðslum sem flokkurinn verður hugsanlega krafinn um vegna brota á reglum um fjármögnun stjórnmálaflokka. Þessar reglur kveða meðal annars á um, að verði flokkur uppvís að því að taka á móti ólöglegum greiðslum eða gefa fram- lög ekki upp eins og lög gerðu ráð fyrir, er hægt að gera viðkomandi flokki að greiða tvöfalda upphæðina í eins konar sekt í sjóð þann, úr hveij- um flokkunum era skömmtuð opin- ber framlög í samræmi við fjölda at- kvæða sem þeir fá í kosningum. Að auki verða þeir að endurgreiða upp- ranalegu upphæð hinnar ólöglegu greiðslu. Með því að taka við ólög- legu framlagi tekur þýzkur stjórn- málflokkur því þá áhættu, að þurfa að borga upphæðina þrefalt til baka. Sagði Wissman í Suddeutsche Zeitung (SZ) að þessar 7,3 milljónir marka væri hæsta hugsanlega upp- hæðin sem hægt yrði að krefja flokk- inn um, og í því að féð hefði verið lagt til hliðar fælist engin viðurkenning á því að reglur hefðu verið brotnar. Sumir sérfræðingar í gildandi reglum um fjármögnun flokkanna halda því hins vegar fram að CDU gæti lent í því að þurfa að endur- greiða miklu hærri upphæðir. SZ hefur eftii- Hans Herbert von Arnim, einum slíkum sérfræðingi, að fyrir árið 1997 eitt sé hugsanlegt að hægt sé að krefja flokkinn um endur- greiðslur að upphæð jafnvel 40 millj- óna marka, andvirði um 1,5 milljarða króna. Scháuble er sagður hafa nefnt, að núverandi flokksforysta hafi „erft“ leynilega bankareikninga frá Kohl- timanum og á þeim væri um þriggja milljóna marka innistæða. Vantrúaður á ákæru í viðtali við Welt am Sonntag um helgina sagðist Schauble sannfærður um að ekkert yrði úr því að Kohl yrði ákærður. En hann sagði ekkert um hvort hann hefði sjálfur verið upp- lýstur um reiðufjármillifærslurnar, sem nefndai' vora hér að ofan. Sagði Scháuble að langtímaímynd Kohls myndi ekki bíða varanlegan hnekki af þessum málum öllum. „Eftir þrjá- tíu ár munu hundrað torga og gatna bera nafn Helmuts Kohls,“ sagði hann. Kalejs yrði handtekinn, því hætt væri við því að hann slyppi við refs- ingu fyrir meinta glæpi ef hann fengi að fara aftur til Ástralíu. Fulltrúi ráð- gær að lögregla hefði engar forsendur til að hand- taka Kalejs, en ráðuneytið hefði völd til að vísa fólki úr landi á þeim forsendum að það væri „í almanna- þágu“ að því væri bannað að dvelja í Bretlandi. Haft var eftir Kalejs á sunnudag að hann hygðist yfirgefa Bretland eins fljótt og auðið væri. „Eg hef verið hundeltur um heim- inn í fimmtán ár og ég vil fá að vera í friði.“ Stórárekstur í Þýskalandi Bretar vísa Konrad Kalejs úr landi London. AP. Kalejs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.