Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 37
ÁRAMÓT
Islendingar vilja ekki skefjalausan
og frumstæðan gelgjukapítalisma
á borð við þann sem spratt upp í
Rússlandi eftir fall félagshyggj-
unnar. Markaðskerfið á að vera
mannúðlegt kerfi, þar sem ein-
staklingurinn fær að græða á hug-
viti sínu og atorku en er gert að
gæta hófs og neyta ekki alltaf afls-
munar.
Meginröksemdin fyrir frelsi at-
hafnamanna er sú, að það sé að
lokum öllum til góðs. En taki at-
hafnamenn að brjóta skráðar eða
óskráðar reglur í samskiptum
fólks getur sú röksemd fallið um
sjálfa sig.
Verkefni gærdagsins á Islandi
var fyrst og síðast að auka at-
vinnufrelsi og því verki er vissu-
lega ekki lokið. En verið getur að
eitt aðalverkefni morgundagsins
sé að efla siðferðilega festu í at-
vinnulífinu án þess að þrengja að
því. Það verk þarf að vinna án
óþarfa reglugerðafargans og ann-
arra valdboða.
Samskipti Islands við umheim-
inn hafa stóraukist á öldinni sem
er að kveðja og verið einn lykillinn
að velgengni hennar. Jón forseti
sagði árið 1842: „Þá hefir mennt-
unin verið mest, þegar mestar
hafa verið utanferðir og íslending-
ar átt mest viðskipti við önnur
lönd“, en hann bætir við: „Þó ekki
við eitt land, heldur mörg.“ I mín-
um huga skipta þessi viðbótarorð
Jóns mestu fyrir hagsmuni Islands
nú. „Þó ekki við eitt land, heldur
mörg.“
A sama hátt og okkur var óhollt
að sækja allt til Danmerkur eigum
við ekki að sækja allt okkar nú eða
síðar meir til hins nýja sambands-
ríkis Evrópu, sem virðist vera í
mótun, þótt áríðandi sé að við eig-
um við það nána og góða sam-
vinnu. Við Islendingar ráðum nú
villidýr. Við stöndum nú hjartaköld,
bölsýn og trúlaus á tæpustu nöf,
fangar eigin græðgi og sjálfselsku,
viðskila við okkur sjálf, skeytingar-
laus um lífið, náungann, og Guð.
Förunautur
til framtíðar
Hann sem fæddist í Betlehem og
hlaut nafnið Jesús, hann er frelsari
heimsins. Hann birtir Guð á jörð.
Mátturinn æðsti hefur andlit, róm.
Jesús. Hann er orðið sem varð hold.
Hann kom ekki með nýja kenningu,
ný fræði um líf og heim heldur nýtt
samfélag, ný tengsl. Orðið varð
hold, maður, manneskja eins og þú,
ekki bókstafur meitlaður í stein, rit-
verk gyllt í sniðum, heldur lifandi
persóna sem mætir þér. Hann gekk
um kring meðal fólks og kenndi,
læknaði, leiðbeindi, lagði smyrsl á
lífsins sár. Þau sem honum mættu
og opnuðu hjörtu sín fyrir honum
höndluðu lífið. Sakkeus sá allt í einu
að velsæld hans var á kostnað hinna
snauðu, og skilaði aftur gróða sín-
um. Konan við brunninn hlaut djörf-
ung til að horfast í augu við sjálfa sig
og annað fólk á ný, í gleði og lífs-
þrótti. Dauðadæmdur brotamaður
fékk að heyra af vörum Jesú: I dag
skaltu vera með mér í Paradís.
Sama orð, sama auglit, lækning, líf
mætir okkur enn í dag. I orðinu
helga og bæninni, í okkar minnstu
bræðrum og systrum, við helga
skírnarlaug og máltíð altarisins.
Jesús Kristur, sem er í gær og í dag
hinn sami og um aldir. Böl og þján-
ing veraldar hefur hann borið, jafn-
vel fjarvist Guðs og dýpstu heljar-
nauðir. Og því er líkn og von,
tilgangur og merking í hverri raun
og tári jarðarbarna. Og trúin á hann
sér vonarbjarma við sjóndeildar-
hring, þess dags er ríki hans kemur
og vilji hans verður. Viðjar leysast,
læknast mein, þorna tár.
Hann hlaut nafnið Jesús. Tvö þús-
und ár eru talin frá komu hans í
heim. Og hann er hér á jörð oss nær,
lifandi máttur á daglegri för. Föru-
nautur sem réttir þér hönd sína við
dyr ársins nýja: „Fylg þú mér!“
Segir hann: „Trúðu á Guð og trúðu á
mig.“ „Vertu ekki hræddur, vertu
ekki hrædd. Trúðu aðeins!"
Dýrð sé Guði, föður, syni og hei-
lögum anda. Svo sem var í upphafi
er og verður um aldir alda. Amen.
yfir sjö hundruð þúsund ferkíló-
metra hafsvæði og nýtum auðlegð
þess skynsamlega svo að aðrar
þjóðir mega af okkur læra. Það
kostaði mikla baráttu og fjögur
landhelgisstríð að ná því forræði.
Til hvers var barist ef nú á að
færa það forræði í annarra hend-
ur? Til eru þeir svartsýnismenn
sem segja að Islendingar breytist í
útkjálkaþjóð fari þeir of hægt í að
sameinast stærri þjóðum. En at-
huganir merkra hagfræðinga sýna
einmitt hið gagnstæða að smáþjóð-
um vegnar oftast betur í efnahags-
málum en stórþjóðunum. Þetta
þarf ekki að koma neinum á óvart.
Allar stærðir eru viðráðanlegri,
hagkerfið er gegnsærra, stjórn-
endur hafa betri yfirsýn yfir
verksvið sitt, fólkið er nær for-
ystumönnunum og vandi er hæg-
lega leystur um leið og hann kem-
ur í ljós. Arangur okkar á
tuttugustu öldinni sýnir betur en
allt annað að speki svartsýnis-
manna hentaði okkur ekki. Sú
speki yrði einnig versta veganestið
sem menn geta haft inn í tuttug-
ustu og fyrstu öldina. Hyggjuvit
og framsýni þeirra Jóns Sigurðs-
sonar og Hannesar Hafsteins er á
hinn bóginn jafnóbrigðult og áður.
Með það í farteskinu skulum við
halda á vit nýrrar aldar og leggja
vegi sem aldrei fyrr. Takist okkur
það leyfi ég mér að spá því hér í
ykkar viðurvist að tuttugasta og
fyrsta öldin verði aldarbetrungur.
Sú tuttugasta hefur skilað okkur
vel fram en ef við höldum skyn-
samlega á verður hún eins og
reykurinn af réttunum sem okkar
bíða á þeirri næstu.
Góðir Islendingar.
Ég þakka ykkur samfylgdina á
liðnu ári og bið Guð að blessa ykk-
ur á því aldamótaári sem senn
gengur í garð.
Verkbókhald
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
58
r Frábærir
Isamkvæmiskjólar
og dragtir
til sölu eða leigu,
í öllum stærðum.
Ath! eitt í nr.
Fataleiga
Garðabæjar
Sími 565 6680
Opið 9-16, lau. 10-12
ÚTSALAN ER HAFIN
ouiiarion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147
, Sunddeild
Armanns
Hin sívinsælu sundnámskeið
eru að hefjast
• Ungbarnasund • Fyrir vatnshrædda
• Framhald ungbarnasunds • Fullorðinskennsla
• Börn 2-3 ára (með foreldrum)
• Börn 4-6 ára (með foreldrum)
Innritun virka daga frá kl. 16.30 og um helgar frá kl. 13.00 í síma 557-6616 (Stella).
Bamadansar • llnqlinqadansar • Samkvæmisdansar • Tiskndansar • IVIambó • Tjútt
Taktu á móti nýrri öld t réttum takti. í lnnritun oq upplýsinqar
DansskólaJónsPétursoqKöruqeturþú 6645 OQ 568 5045
lært alla hetstu dansana oq farid inn í ”
nýtt ár med sveiflu. alladaqa kl. 12-19.
Systkinaafstáitur DANSSKÓII Tjölskylduafstáttur
Jóns Péturs og Itöru