Morgunblaðið - 04.01.2000, Side 61
MOEGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 61í
MINNINGAR
I
I
+ Bjarni Indriða-
son fæddist á
Æsustöðum í Mos-
fellsdal 2. nóvember
1948. Hann varð
bráðkvaddur á heim-
ili sínu í Byggðar-
holti ld í Mosfellsbæ
27. desember si'ðast-
liðinn. Foreldrar
hans: Indriði Jón
Gunnlaugsson, f.
16.1. 1915, d. 2.7.
1972, og Svava Elías-
dóttir, f. 20.1. 1922.
Bjarni var þeirra
þriðja barn, hin eru:
Hrefna, f. 21.10. 1942, gift Ragn-
ari Jónssyni, á hún þrjú börn; Ás-
geir, f. 27.6. 1945, kvæntur Sig-
rúnu Gunnarsdóttur og eiga þau
ljögur börn; Jens, f. 10.5. 1954, á
hann fjögur börn, og Guðrún, f.
8.2. 1956, sem gift er Jóni Eyjólfs-
syni og eigaþau einn son.
Bjami kvæntist 31.12. 1969 Að-
alheiði Valgerði Steingrímsdótt-
ur, f. 6.4. 1948, frá Kroppi, Eyja-
fjarðarsveit. Foreldrar hennar
Elsku pabbi!
Það er svo margs að minnast. Þú
hefur alltaf verið til staðar fyrir okk-
ur, í blíðu og stríðu. Við bræðumir
vorum uppátækjasamir og þó þú
hefðir kannski ekki tekið öllum hug-
myndum vel í fyrstu þá breyttist
skoðunin oft þegar á leið. Þú fékkst
áhuga á áhugamálunum okkar,
hvort sem það var mótorsport eða
fótbolti. Ef okkur vantaði aðstoð
þína þá var hún fengin um leið.
Kærleikur þinn fór svo sannarlega
ekki á milli mála, hann kom fram í
hverju verki.Við þökkum kærlega
fyrir að hafa átt þessi síðustu jól
með þér og við vitum að þú fagnaðir
áramótunum með okkur.
Við munum sakna þín sárt, því þú
hefur verið svo stór hluti af lífí okk-
ar alla tíð. Besta leiðin til að minnast
þín er að halda í heiðri bestu kosti
þína, kímnigáfuna og hjálpsemina.
Við munum aldrei gleyma þér, þú
varst frábær. Takk fyrir allt.
Steingrímur,
Gunnlaugur og Eyþór.
Elskulegi tengdafaðir!
Lífíð er svo sannarlega fljótt að
breytast. Þú varst svo sæll og glað-
ur um jólin og svo ertu allt í einu
kominn yfír móðuna miklu og eftir-
sjáin af þér er mikil.
Þú varst alltaf kátur og glaður og
mjög stutt í glens og grín. Þú tókst
alltaf vel á móti okkur á heimili ykk-
ar Heiðu. Alltaf varstu reiðubúinn
til að veita aðstoð þína í stóru sem
smáu. Þannig sýndir þú kærleik
þinn í verki þó að þú orðaðir hann
ekki oft.
Ef þú bara vissir hversu sárt við
söknum þín, elsku Bjarni. Við þökk-
um þér fyrir þann tíma sem við átt-
um með þér þó við hefðum kosið að
hafa hann lengri.
Við munum annast Heiðu, konu
þína, eins vel og þú gerðir.
Við munum ávallt minnast þín og
þú munt ávallt vera í hjarta okkar.
Sofðu rótt, elsku Bjarni okkar.
Við söknum þín.
Jóhanna, Katrín og Ásta.
voru Steingrímur
Guðjónsson, f. 2.9.
1910, d. 27.12. 1988,
og Elín Björg Pálma-
dóttir, f. 4.6. 1917, d.
12.10. 1979, eignuð-
ust þau átta börn.
Bjarni og Aðal-
heiður eignuðust
þijá syni. Þeir eru: 1)
Steingrímur, f. 11.8.
1967, maki Jóhanna
Hólmfríður Guð-
mundsdóttir, f. 28.3.
1974. 2) Gunnlaugur
Indriði, f. 22.9. 1970,
maki Ásta Guðjóns-
dóttir og á hún Solveigu Rut Sig-
urðardóttur, f. 28.6. 1988, og
Bjarna Marel Gunnlaugsson, f.
4.9.1998. 3) Eyþór Már, f.
9.4.1974, maki hans er Katrín
Björk Baldvinsdóttir, f. 4.10.1975.
Bjarni ólst upp í Víðigerði í
Mosfellsdal. Hann starfaði við
ullariðnað frá 16 ára aldri.
Útför Bjarna fer fram frá Lága-
fellskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
eiga ekki eftir að sjá þig framar. Ég
á eftir að sakna þín mikið því þú
varst mér frábær félagi og afi. Þú
tókst alltaf vel á móti mér og þú
leyfðir mömmu og pabba varla að fá
mig á meðan ég var í heimsókn hjá
þér. Ég sem hélt að við ættum miklu
fleiri ár saman, en vegir Guðs eru
órannsakanlegir og þér hefur verið
ætlað stærra verk að handan. En
mamma og pabbi munu hjálpa mér
að muna eftir þér eins og þú varst
þegar ég verð stór.
Afi minn, ég elska þig og mér
þykir vænt um þig. Kyss og knús til
þín, afi minn.
Þitt bamabarn,
Bjarni Marel.
Elsku Bjarni minn!
Það er allt svo tómlegt eftir að þú
ert farinn og óþægilegt að vita að ég
sjái þig ekki aftur. Um leið og ég
kom inn í fjölskylduna fannst mér að
ég hefði alltaf þekkt þig og þú hafir
alltaf verið afi minn. Þú komst fram
við mig eins og ég væri barnabarnið
þitt og ég sárvorkenni Bjama Marel
að kynnast þér ekki betur og eiga
þig ekki að þegar hann verður eldri.
Ég veit að ég mun aldrei gleyma
því hvað þú varst góður við mig og
ég gleymi því aldrei hvernig þú leist
út því ég geymi mynd af þér í hjarta
mínu.
Þín
Solveig Rut.
Kveðja frá starfsfólki ístex
Skarð hefur verið höggvið í fá-
mennan og samstæðan hóp á vinnu-
félaga við fráfall Bjarna Indriðason-
ar, fráfall sem kom í opna skjöldu
ofan í jólahátíðina, hátíð friðarins.
Þegar leiðir skildu fyrir jólaleyfi
benti ekkert til annars en leiðir allra
lægju saman á ný á íyrsta vinnudegi
milli jóla og nýárs. Því miður varð
raunin ekki sú þegar á hólminn var
komið, þögn sló á hópinn.
í dag kveðjum við með trega
vinnufélaga okkar en eigum eftir
minningarnar um ljúfmenni sem var
hvers manns hugljúfi. Bjarni hóf
störf hjá Álafossi 1964 og starfaði
þar óslitið meðan fyrirtækið hélt
velli og síðar hjá ístexi þegar það
tók upp einn þeirra þráða sem féllu
niður við gjaldþrot Álafoss. Á Ála-
fossi kynntist hann eiginkonu sinni,
Aðalheiði Steingn'msdóttur, sem
einnig er starfsmaður Istex.
Bjarni var alla tíð virkur í félags-
starfi Starfsmannafélagsins og sat
oft í stjórn þess. Þá gegndi hann
einnig starfi trúnaðarmanns starfs-
fólks í verksmiðjunni um nokkurt
skeið. Öll störf sín rækti hann af
samviskusemi og var ævinlega boð-
inn og búinn að rétta hjálparhönd
gerðist þess þörf. Bjarni var dag-
farsprúður og hafði einstaklega
þægilega skapgerð. Það var gott að
vinna við hlið hans, dugnaður var
honum í blóð borinn og samstarfs-
menn vissu ævinlega hvar þeir
höfðu hann þótt ekki væri alltaf fyr-
irferðinni fyrir að fara. Vildu menn
karpa þurfti að leita á önnur mið en
til Bjarna.
Síðasta samverustund okkar með
Bjarna var hin árvissa jólamáltíð
Istex sem að þessu sinni var daginn
fyrir Þorláksmessu, en máltíðin
markar upphaf jólahátíðarinnar hjá
mörgum okkar. Gleði skein úr hópn-
um enda hátíð fyrir höndum. Eftir
að hafa snætt saman, skipst á gjöf-
um og óskum um gleðileg jól fór
hver til síns heima til að leggja síð-
ustu hönd á undirbúning jólanna.
Engan renndi í grun að næst þegar
hópurinn kæmi saman væri hann
einum manni fátækari, en sagt er að
enginn ráði sínum næturstað og
sannast það nú sem áður.
Elsku Heiða, börn, tengdabörn og
afabörn. Við færum ykkur innilegar
samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur
styrk í söknuði ykkar. Minningin
um góðan félaga verður okkur ávallt
kær.
Fyirir hönd starfsfólks ístex,
Jóhanna Sigrún Thorarensen.
Blónwttstofa
Friðfinns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
+
Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir og mágur,
BALDUR JÓSEF JÓSEFSSON,
Holtsgötu 14,
Y-Njarðvík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 7. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Kirkjuvogskirkju eða líknarstofnanir.
Sveina Baldursdóttir,
Guðjón Jósef Baldursson,
Lúlla Kristín Nilulásdóttir,
Elín Sigríður Jósefsdóttir, Snæbjörn Guðbjörnsson,
Ketill Guðjón Jósefsson, Karen Valdimarsdóttir,
Jenný Þuríður Jósefsdóttir, Alan Matcke.
BJARNI
INDRIÐASON
Elsku afi minn!
Það er skrítið að hugsa til þess að
jjti i iiii xi iiimii;
Erfisdiykkjur
P E R L A N
Sími 562 0200
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
BJARTMAR EYÞÓRSSON
matsveinn,
Öldugötu 46,
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítala að kvöldi nýársdags.
Lilja Gunnarsdóttir,
Gunnar Bjartmarsson, Guðrún Guðnadóttir,
Guðbjartur Smári Gunnarsson,
Lilja Vilborg Gunnarsdóttir.
+
Okkar ástkæra móðir, sambýliskona, dóttir og
systir,
ANNA MARÍA HÉÐINSDÓTTIR,
Brúnagerði 3,
Húsavfk,
lést föstudaginn 31. desember.
Lilja Björg Jónsdóttir,
Snæbjöm Ragnarsson,
Sigríður Aðalgeirsdóttir,
Héðinn Helgason,
Helgi Héðinsson.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RAGNHEIÐUR VALGERÐUR SVEINSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu annan jóladag.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju í dag,
þriðjudaginn 4. janúar, kl. 15.00.
Böðvar Bragason,
Sigtryggur Bragason,
Jóhann Bragason,
og fjölskyldur.
t'
+
Elskulegur faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR SIGURJÓNSSON,
Ljósheimum 4,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 2. janúar.
Birgir Guðmundsson, Nanna Sigríður Baldursdóttir,
Bjarni Birgisson,
Guðmundur Birgisson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSTA GEIRSDÓTTIR,
Fífumóa 1D,
áður á Borgarvegi 3,
Njarðvfk,
lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja fimmtudaginn
16. desember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Guðrún G. Árnadóttir, Einar S. Svavarsson,
Sigurbjörg J. Árnadóttir,
Björg G. Árnadóttir,
Árni G. Árnason, Ásdís M. Sigurðardóttir.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, áfi og langafi,
HELGIBJARNASON
áður bifreiðarstjóri á BSR,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn
2. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Bjarni Helgason, Lea Kristín Þórhallsdóttir,
Júlíana Helgadóttir, Óskar Sigurðsson,
Ingibjörg S. Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.