Morgunblaðið - 26.01.2000, Side 1
21 TBL. 88. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þúsundir manna
flýja ófriðinn
í Tsjetsjníu
Genf, Moskvu. AP, Reuters.
STRAUMUR flóttamanna frá
Tsjetsjníu hefur aukist verulega
síðustu daga vegna harðra árása
rússneskra hersveita, að sögn
Flóttamannastofnunar Sameinuðu
þjóðanna í gær.
Kris Janowski, talsmaður stofn-
unarinnar, sagði að hartnær 10.000
Tsjetsjenar hefðu flúið til ná-
grannahéraðsins Ingúsetíu á síð-
ustu fjórum dögum og þetta væri
mesti flóttamannastraumur frá
Tsjetsjníu í langan tíma. „Mjög fáir
þeirra koma frá Grosní,“ bætti hann
við.
Um 250.000 manns hafa flúið
ófriðinn í Tsjetsjníu frá því árásir
Rússa hófust og um 180.000 þeirra
eru enn í Ingúsetíu. Flóttamanna-
stofnunin óttast að skæðar farsótt-
ir, meðal annars berklar, brjótist út
á meðal fióttafólksins.
A.m.k. 20.000 íbúar Grosní, höf-
uðstaðar Tsjetsjníu, eru enn í borg-
inni þrátt fyrir linnulausar árásir
Rússa. Margir þeirra eru aldraðir
og veikburða og dvelja við hörmu-
legar aðstæður í kjöllurum og neð-
anjarðarbyrgjum.
Sókn rússnesku hersveitanna inn
í miðborg Grosní hefur miðað hægt
síðustu daga. Talið er að um 2.500
skæruliðar séu enn í borginni og
þeir veita hersveitunum harða mót-
spyrnu á Minutka-torgi í miðborg-
inni. Algengt er að hermenn fari á
kvöldin úr byggingum, sem þeir
hertaka á daginn, af ótta við að
skæruliðar sitji um þá.
Tæplega 1.200
hermenn fallnir
Rússneska fréttastofan Interfax
hafði í gær eftir háttsettum mönn-
um í rússneska hernum að 1.173
hermenn hefðu fallið í átökunum í
Tsjetsjníu og nágrannahéraðinu
Dagestan, þar sem þau hófust fyrir
tæpu hálfu ári. 53 hermanna til við-
bótar er saknað og 3.487 hafa særst.
Þessar tölur eru mun hærri en
þær sem rússnesk stjórnvöld hafa
gefið upp og virðast staðfesta frétt-
ir nokkuira rússneskra fjölmiðla
um að herinn hafi gert of lítið úr
mannfallinu.
Reuters
Víkingahá-
tíð í Leirvík
VÍKINGAHÁTÍÐ var haldin í Leir-
vfk á Iijaltlandi í gær og náði há-
marki þegar farið var í kyndil-
göngu að höfninni. Þar var kveikt í
eflirlíkingu af langskipi og gestun-
um var síðan boðið til mikillar
veislu. Víkingahátíðin er haldin ár-
lega síðasta þriðjudaginn í janúar.
Nokkrir gestanna koma hér á há-
tiðina í víkingaklæðum.
MORGUNBLAÐIÐ 26. JANUAR 2000
5 690900 090000
AP
Vetrarhret í
Washington
LOKA þurfti mörgum opinberum
skrifstofum, skólum og flugvöllum í
austurhluta Bandaríkjanna ( gær
þegar óvænt kafaldshríð skall þar
á. Bandari'ska veðurstofan sagði að
þetta væri „fyrsta stórhríðin á
svæðinu í nokkur ár“.
Loka varð opinberum stofnunum
og skólum í Washington og starfs-
mönnum margra fyrirtækja var
ráðlagt að taka sér frí vegna óveð-
ursins. Innanlandsflugvöllunum 1
Washington, New York, Boston,
Ffladelfíu og Baltimore var iokað.
Tafír urðu einnig á millilandaflugi
frá alþjóðaflugvöllunum í New
York og Washington.
Samgöngur lágu ennfremur niðri
í Norður-Karólínu vegna snjó-
þyngsla og þjóðvarðliðar voru kall-
aðir út til að aðstoða ökumenn sem
festu bfla sína.
Snjó er hér mokað af veginum að
þinghúsinu í Washington.
Ósæmilegl tilboð
í sjónvarpi
Berlín. AFP.
ÞÝSKA sjónvarpsstöðin RTL
hyggst sýna þátt þar sem skuld-
ugur Þjóðverji býður nótt með
konu sinni fyrir milljón marka,
andvirði 37 milljóna króna.
Þjóðverjinn er atvinnulaus og
skuldar andvirði 2,5 milljóna
króna. Hann sagði að þau hjónin
hefðu fengið hugmyndina eftir að
hafa horft á bandarísku kvik-
myndina „Ósæmilegt tilboð“, þar
sem auðkýfingur býður hjónum
milljón dali fyrir að fá að sofa hjá
eiginkonunni.
„Hvað er ein nótt?“ sagði eigin-
kona Þjóðverjans. „Þetta gæti
jafnvel orðið góð tilbreyting.“
RTL ætlaði að sýna þáttinn í
beinni útsendingu en ákvað síðan
að taka samtalið upp og sýna það
síðar til að lögfræðingar gætu
fullvissað sig um að tilboðið gengi
ekki í berhögg við lög. I Þýska-
landi varðar það fimm ára fangelsi
að bjóða líkama konu fyrir pen-
inga og sjónvarpsstöðin kann að
verða sótt til saka fyrir að vera
samsek um framkvæmd lögbrots.
Viðræður hafnar um myndun hægristjórnar í Austurríki
Haider og SchUssel
boða trausta stjórn
Vín. AFP.
FRELSISFLOKKUR hægrimanns-
ins Jörgs Haiders og Þjóðarflokkur
austurrískra íhaldsmanna vilja binda
enda á pattstöðuna í austurrískum
stjómmálum og mynda saman nýja
ríkisstjóm.
Wolfgang Schússel, leiðtogi Þjóð-
arflokksins, sagði eftir fund með
Thomas Klestil forseta í Vín í gær að
stjómarmyndunarviðræður flokk-
anna myndu hefjast strax, jafnvel
þótt formlegt stjómarmyndunarum-
boð væri að svo komnu máh ekki í
höndum þeirra Haiders. Hygðust
flokkamir ganga frá stjómarsáttmála
fyrir lok næstu viku.
Á föstudag, þegar endanlega var
slitnað upp úr tilraunum Viktors
Klima, kanzlara og leiðtoga jafnaðar-
manna, til að endumýja stjómar-
samstarfið við Þjóðarflokkinn, fól
Klestil forseti honum að halda stjóm-
armyndunammboðinu og reyna að
mynda minnihlutastjóm. Klima til-
kynnti í gærkvöld að hann myndi
hætta tilraunum sínum til að mynda
slíka stjóm þar sem ljóst væri að hún
fengi ekki nægan stuðning á þinginu.
Eingöngu hinn 14 manna þingflokkur
græningja hafði lýst sig reiðubúinn að
styðja hugsanlega minnihlutastjóm
jafnaðarmanna.
Ákvörðun Klestils var mjög mis-
jafnlega tekið í Austurríki, enda eng-
in hefð fyrir minnihlutastjómum í
landinu og ekki hægt að horfa fram-
hjá þeirri staðreynd, að Þjóðarflokk-
urinn og Frelsisflokkurinn hafa sam-
Jörg
Haider
Woifgang
Schiissel
tals 104 af 183 fulltrúum á austurríska
þinginu, þ.e. þægilegan meirihluta.
Strax á mánudagskvöld höfðu bæði
Haider og Schússel tilkynnt, að þeh’
gætu „á nokkram dögum“ myndað
trausta meirihlutastjórn, sem tryggt
gæti stöðugleika í stjóm landsins og
bægt frá hættunni á því að boða þyrfti
til nýrra kosninga, sem annars yrði
ekld umflúið.
Frelsisflokkurinn fékk næstflest
atkvæði á eftir Jafnaðarmanna-
flokknum í kosningunum 3. október
og ef marka má skoðanakannanir
myndi hann hagnast mest á vand-
ræðagangi hinna flokkanna og jafnvel
verða stærsti flokkurinn ef kosið yrði
nú.
Haider áfram
í Kamten
Haider tók af öll tvímæli um það í
gær, að hann sæktist ekki eftir því að
setjast sjálfur í kanzlarastólinn og
kysi hann sjálfur helzt að vera áfram
fylkisstjóri í Kamten.
ísraelsstjóm brást strax í gær við
fréttinni af því að horfúr væra á að
Frelsisflokkur Haiders kæmist í
stjóm með því að hóta að kalla sendi-
herra sinn í Vín heim. ísraelar telja
Haider óalandi og ófeijandi vegna
skoðana sem hann hefur látið í ljósi á
stjómmálaferli sínum og þeir telja
hægriöfgasinnaðar.
Banda-
ríkin
skuldlaus
árið 2013?
Washington. AFP.
BILL Clinton Bandaríkjafor-
seti skýrði frá því í gærkvöld
að samkvæmt frumvarpi sínu
til fjárlaga næsta árs gætu
Bandaríkin lokið við að greiða
niður skuldir sínar árið 2013,
eða tveimur árum áður en gert
hafði verið ráð fyrir.
Forsetinn sagði að þetta yrði
í fyrsta sinn frá árinu 1835 sem
bandaríska ríkið yrði skuld-
laust. Skuldir þess nema nú 3,6
billjónum dala, andvirði 260
billjóna króna, og forsetinn
sagði að Bandaríkin hefðu
greitt niður skuldir að andvirði
140 milljarða dala á síðustu
tveim árum.
Clinton benti ennfremur á
að þegar hann tók við forseta-
embættinu fyrir sjö árum nam
fjárlagahallinn í Bandaríkjun-
um 290 milljörðum dala á ári
og skuldirnar höfðu þá fjór-
faldast á tólf áram.