Morgunblaðið - 26.01.2000, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
A1 Gore og George W. Bush sigruðu báðir örugglega í forkosningum í Iowa
Úrslitin í New Hampshire
á þriðjudag miklu tvísýnni
Des Moines, Manchester. AP, AFP, Reuters.
AL GORE, varaforseti Bandankj-
anna, sigraði með yfirburðum í for-
kosningum demókrata í Iowa í fyrra-
dag og George W. Bush, ríkisstjóri í
Texas, vann sannfærandi sigur hjá
repúblikönum. Vonast þeir til, að
þessi afgerandi úrslit tryggi þeim
sigur í forkosningunum í New
Hampshire nk. þriðjudag. Þar verð-
ur baráttan þó miklu harðari enda
áherslurnar að mörgu leyti aðrar.
Segja má, að Gore hafi rótburstað
andstæðing sinn, Bill Bradley, fyrr-
verandi öldungadeildarþingmann
fyrir New Jersey. Fékk hann 63%
atkvæða en Bradley 35%. Vonast
Gore til, að þessi niðurstaða hjálpi til
við að tryggja honum sigur í New
Hampshire en þar hefur oft verið
mikið jafnræði með þeim Bradley í
skoðanakönnunum. Auk þess hafa
óháðir kjósendur mikil áhrif í New
Hampshire ólíkt því, sem er í Iowa
en þar kjósa aðallega flokksbundnir
menn.
Með sigri Bush í Iowa má næstum
segja, að repúblikanar hafi slegið því
föstu, að hann verði frambjóðandi
þeirra í forsetakosningunum á
hausti komanda. Fékk hann 41% at-
kvæða og hefur enginn náð svo langt
fyrr í forkosningum repúblikana í
ríkinu. Er sigurinn enn glæsilegri
fyrir það, að frambjóðendumir voru
alls sex.
Útgefandinn Steve Forbes var ör-
uggur í öðru sæti með 30% atkvæða
en það, sem kom kannski hvað mest
á óvart, var, að Alan Keyes, ofsa-
fenginn andstæðingur fóstureyð-
inga, skyldi verða í þriðja sæti með
14%.
John McCain, öldungadeildar-
þingmaður fyrir Arizona, helsti and-
stæðingur Bush í New Hampshire
og raunar í forkosningunum al-
mennt, beitti sér h'tið í Iowa og varð í
fimmta sæti með aðeins 5%. Talið er,
að tveir frambjóðendur í forkosning-
um repúblikana í Iowa, þeir Gary
Bauer, sem fékk 9%, og Orrin G.
Hatch, öldungadeildai-þingmaður
fyrir Utah, sem fékk 1%, muni nú
draga sig í hlé.
Sótt að Bush
frá hægri og vinstri
Frammistaða Forbes, sem var
miklu betri en skoðanakannanir
höfðu sýnt, eykur verulega á óviss-
una í New Hampshire og þar munu
nú sækja að Bush tveir sterkir
menn, McCain frá vinstri og Forbes
frá hægri. Þá þarf Bush hugsanlega
einnig að hafa nokkrar áhyggjur af
Keyes, þáttastjórnanda í sjónvarpi
og mesta ræðuskörungi allra sem
voru í kjöri hjá flokkunum sl. mánu-
dag. Boðskapur hans er, að siðferði-
leg hrörnun sé undirrót alls vanda í
samfélaginu og þar séu fóstureyð-
ingar upphaf og endir alls ills. Keyes,
sem er fyrrverandi sendiherra, var
eini blökkumaðurinn sem bauð sig
fram hjá flokkunum.
Bush var að sjálfsögðu sigri hrós-
andi með sigurinn þótt skoðana-
kannanir hefðu raunar bent til, að
hann yrði enn stærri. Sagði hann, að
úrslitin boðuðu „upphafið að enda-
lokum Clinton-tímans“.
Forbes bar sig ekki síður vel og
sagði, að í New Hampshire myndu
takast á einn íhaldsmaður, hann
sjálfur, og tveir frjálslyndir. McCain,
sem segist telja það hafi verið rétt
mat hjá sér að láta kosningamar í
Iowa eiga sig, er líka sigurviss fyrir
kosningamar í New Hampshire og
segir, að nk. þriðjudag verði skráður
nýr kafli í bandarískri stjómmála-
sögu.
Afgerandi
sigur hjá Gore
Hjá demókrötum vom úrslitin
meira afgerandi enda frambjóðend-
urnir aðeins tveir, þeir Gore og
Bradley. Fóm þeir lofsamlegum orð-
um hvor um annan að kosningunum
AP
George W. Bush fagnar sigrinum í Iowa ásamt Lauru, konu sinni.
AP
A1 Gore horfist hér í augu við Tipper, eiginkonu sína, á sigurhátíð með
stuðningsmönnum sínum eftir forkosningarnar í Iowa.
loknum en Bradley kvaðst trúa því
enn, að hann gæti sigrað.
Fyrir Gore er sigurinn enn sætari
fyrir það, að allt síðastliðið ár hömr-
uðu fjölmiðlar á veikleikum hans
sem frambjóðanda og svo virtist sem
Bradley væri stöðugt að styrkja
stöðu sína, þar á meðal í Iowa. Sagt
er, að það hafi einkum verið tvennt,
sem sneri þeirri þróun við.
Það fyrra er ræða, sem Gore flutti
í október sl., en þá gagnrýndi hann
Bradley harðlega fyrir að hafa neit-
að að „vera um kyrrt og berjast“ við
meirihluta repúblikana á þingi.
Bradley sagði af sér þingmennsku
1996. Það síðara er kappræður
þehTa í Des Moines 8. janúar sl. Þá
lenti Bradley strax í mikilli vörn í
landbúnaðarmálunum og hefur verið
það síðan.
Ef þátttakendur í forkosningum
demókrata í Iowa eru flokkaðir niður
kemur í Ijós, að Gore sigraði jafnt
meðal karla sem kvenna, frjáls-
lyndra, hægfara og hægrimanna.
Bradley fékk einungis fleiri atkvæði
meðal þeirra, sem hafa meira en
75.000 dollara, 5,4 millj. ísl. kr., í árs-
laun.
Var þetta einnig niðurstaðan hjá
Bush, sem fékk flest atkvæði hjá
næstum öllum kjósendahópunum.
Lýkur baráttunni 7. mars?
Kjósendur í New Hampshire eru
frægir fyrir að koma nokkuð á óvart
eða að minnsta kosti að taka annan
pól í hæðina en kjósendur í Iowa.
Þess vegna er það, að sá, sem sigrar í
forkosningum flokkanna í Iowa, nær
yfirleitt ekki að endurtaka það í New
Hampshire. Það hefur engum tekist
síðan Jimmy Carter sigraði Edward
M. Kennedy í báðum ríkjunum 1976.
Ekki síst þess vegna er slagurinn í
New Hampshire harðari en í öðrum
ríkjum yfirleitt.
Talsmenn þeirra Gores og Bush
eru sammála um, að með tilliti til
þessa sé sigur í New Hampshire
mjög afgerandi fyrir framhaldið,
jafnvel þótt hann verði mjög tæpur.
Repúblikanar verða með forkosn-
ingar í níu ríkjum og demókratar
einu fram til 7. mars nk. en þá verða
forkosningar í 16 ríkjum, aðallega
hjá demókrötum. Líklegt er, að að
þeim loknum verði orðið fulljóst
hverjir muni takast á í forsetakosn-
ingunum í haust.
Hubble
betri en
nokkru
sinni
Washington. Reuters, Daily Telegraph.
EFTIR tveggja mánaða hlé eru
myndir aftur farnar að berast frá
Hubble-sjónaukanum, þar á meðal
af deyjandi stjörnu og fjarlægum
vetrarbrautum.
Slökkt var á Hubble í nóvember
sl. þegar einn af snúðunum sex,
sem halda stefnunni óbreyttri
hveiju sinni, bilaði en við bilunina
var gert í geimfeijuferð í síðasta
mánuði. Segja stjarnfræðingar,
að Hubble sé nú betri en nokkru
sinni fyrr og eiga vart orð til að
lýsa hrifningu sinni yfir nýju
myndunum.
Þær eru meðal annars af Eski-
móaþokunni, deyjandi stjörnu eða
sól svipaðri okkar. Er hún í 5.000
ljósára fjarlægð eða bara rétt í
túnfætinum ef svo má segja.
Willial Herschel kom fyrst auga á
hana 1787.
Onnur mynd sýnir Abell 2218,
gffurlega vetrarbrautaþyrpingu,
sem er í tveggja milljarða Ijósára
fjarlægð. Virkar þyrpingin eins
og nokkurs konar linsa því að að-
dráttarafl hennar magnar ljósið
frá enn fjarlægari vetrarbrautum.
AP
Eskimóaþokan, Ieifar deyjandi sijörnu eins og þær birtast á Hubble-
myndinni. Fékk þokan þetta nafn á sínum tíma vegna þess, að þegar hún
er skoðuð í sjónaukum á jörðu niðri, likist hún andliti með loðkraga utan
um. Hún minnti á eskimóa en það gerir Hubble-myndin ekki enda eru
gæðin allt önnur og meiri.
Vilja þvinga
Kohl til sagna
Bcrlfn. Reuters, AFP.
EKKI er útilokað að Kristilegh■
demókratar í Þýzkalandi (CDU)
grípi til einhverra ráða sem dóm-
skerfið býður upp á til að þvinga Hel-
mut Kohl, fyrrverandi kanzlara og
flokksleiðtoga til 25 ára, til að hjálpa
til við að upplýsa fjármálahneykslið
sem skekur flokkinn um þessar
mundir.
Frá þessu greindi í gær Heiner
Geissler, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri CDU, þingmaður og meðlimur
í flokksstjórninni, en í fyrradag sagði
Wolfgang Schauble, núverandi
flokksleiðtogi, eftir fund flokks-
stjómarinnar að fallið hefði verið frá
því að stefna Kohl til að fá hann til að
greina frá nöfnum greiðenda
meintra ólöglegra greiðslna í leyni-
sjóði flokksins. Málaferli milli flokks-
ins og Kohls myndi ekki leiða til
neins annars en klofnings í röðum
flokksmanna og stefna pólitískum
stöðugleika í landinu í hættu.
En Geissler sagði í útvarpsviðtali
að þetta þýddi ekki að Kohl væri laus
allra mála í huga núverandi forystu-
manna CDU, sem í augnablikinu
væri mjög umhugað um að grípa til
ráðstafana sem dugað gætu til að
stöðva síaukið fylgistap flokksins og
hefðu snúizt gegn Kohl.
„Það er rétt að við erum eins og er
ekki að áforma að draga Kohl fyrir
rétt. En það er ákvörðun sem gildir
núna í bili,“ sagði Geissler. „Ekki er
hægt að útiloka málaferli ef við náum
ekki árangri í að uppræta hneykslið."
Sagði Geissler auk þess erfitt að
ímynda sér að Kohl tæki sæti sitt á
þingi á ný. Hann hefur haldið sig til
hlés vikum saman og forðast að
mæta í þingið. Hann sagði af sér sem
heiðursformaður CDU í síðustu viku.
Saksóknarar í Bonn sögðu í gær að
þeir myndu ekki taka til við að rann-
saka ásakanir sem fram komu um
helgina um að háar fjárhæðir hefðu
að tilstuðlan Francois Mitterrands
Frakklandsforseta runnið í kosn-
ingasjóð Kohls árið 1994, í tengslum
við kaup franska ríkisolíufélagsins
Elf-Aquitaine á austur-þýzkri olíu-
hreinsunarstöð. Málið væri fyrnt.
I þingi sambandslandsins Hessen
var í gær felld, með 56 atkvæðum
meirihluta CDU og FDP gegn 54 at-
kvæðum SPD og græningja, tillaga
jafnaðarmanna og græningja um að
þingið verði leyst upp og kosningam-
ar frá í haust endurteknar. Tilefni til-
lögunnar var að komið hefur í ljós að
kosningabarátta CDU var fjármögn-
uð að hluta með fé af ólöglegum
leynisjóðum í Sviss og Liechtenstein.
Telur minnihlutinn þetta jafngilda
kosningasvikum, en í kosningunum
töpuðu SPD og græningjar naum-
lega þingmeirihluta sem þeir höfðu
haft um árabil.