Morgunblaðið - 26.01.2000, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Tíu gíslatökumenn vegnir í áhlaupi taflenska hersins
Allir gíslarnir kom-
ust af heilir á húfi
Ratchaburi, Taflandi. AP, AFP.
TAÍLENSKIR hermenn gerðu fyr-
ir sólarupprás í gær árás á sjúkra-
hús nálægt landamærum Taílands
og Burma þar sem skæruliðar héldu
hundruðum manna í gíslingu.
Fréttamenn heyrðu vélbyssuskot-
hríð og síðan sást hvar þyrla birtist
uppi yfir sjúkrahúsinu og beindi
sterkum ljósgeisla niður til jarðar
meðan hermenn réðust til inngöngu.
Eftir stuttan skotbardaga lágu níu
gíslatökumenn í valnum og allir gísl-
arnir voru frelsaðir, heilir á húfi.
Tíundi gíslatökumaðurinn var skot-
inn til bana skömmu síðar þegar
hann reyndi að komast undan á
flótta.
Gíslatökumenn tóku sjúkrahúsið
herskildi á mánudag og héldu
starfsfólki og sjúklingum í gíslingu í
alls 24 klukkustundir. Þeir tilheyrðu
skæruliðasamtökum sem berjast
gegn herforingjastjórninni í Burma
og hafa bækistöðvar í frumskógi á
landamærum ríkjanna. Mennirnir
höfðu krafist þess að fá afhentar
þyrlur og höfðu í hyggju að nema á
brott með sér 10 starfsmenn sjúkra-
hússins til bækistöðva sinna. Þar
munu skæruliðamir hafa ætlað
læknum og hjúkrunarliði af sjúkra-
húsinu að hlúa að særðum félögum.
I fyrstu var talið að skæruliða-
hópur sem kallar sig her guðs hefði
staðið að gíslatökunni en í gær kom í
ljós að námsmannasamtök sem
einnig eru andvíg herstjórninni í
Burma báru hita og þunga af henni.
í hópi gíslatökumanna voru tveir
leiðtogar samtakanna sem í haust
tóku þátt í töku sendiráðs Burma í
Bangkok, höfuðborg Taílands.
Námsmannasamtökin hafa barist
við hlið hers guðs á landamærum
Burma og Taílands og er talið að
umtalsvert manntjón hafi orðið í
röðum beggja að undanförnu í
árásum thaílenska hersins á búðir
þeirra.
Tvíburar ekki í hópi
gíslatökumanna
Fréttamönnum voru síðar um
daginn sýnd lík gíslatökumannanna
Reuters
Lík 10 gíslatökumanna, vafin inn í hvítt lín, voru sýnd fréttamönnum gær.
líkt og til að koma í veg fyrir vanga-
veltur um hvernig dauða þeirra
hefði borið að. Lögregla í Taílandi
hefur verið sökuð um að hafa drepið
glæpamenn sem verið hefðu í haldi
hennar. Líkin voru að sögn frétta-
manns AP-fréttastofunnar vafin inn
í hvítt lín og sagðist hann ekki hafa
getað staðfest að mennirnir hefðu
verið vegnir í átökum.
Tveir tólf ára gamlir tvíbura-
drengir sem hermt er að séu leiðtog-
ar hers guðs voru ekki í hópi gísla-
tökumanna svo vitað væri. Her guðs
berst fyrir réttindum Karen, þjóð-
ernishóps sem býr innan Burma.
Skæruliðar Karen hafa í áratugi
barist fyrir aðskilnaði frá Burma og
vilja stofna sjálfstætt ríki.
Herstjórnin í Burma gagnrýndi í
haust stjórnvöld í Taflandi fyrir
framgöngu hennar í tengslum við-
sendiráðstökuna í Bankok. Náms-
mennirnir komust þá undan á þyrlu
sem taflensk stjórnvöld höfðu látið
þeim í té.
Hert barátta gegn
skæruliðum?
Aðförin að gíslatökumönnum í
sjúkrahúsinu í gær er talin vera til
marks um að stjómvöld vilji nú taka
mun harðar á málum. Linnulausar
árásir taflenska hersins á búðir
skæruliða að undanförnu eru taldar
benda til hins sama.
Ennfremur var tilkynnt í Bang-
kok í gær að heimili fyrir landflótta
námsmenn frá Burma, sem starf-
rækt er í Taflandi, yrði lokað til að
fyrirbyggja frekari ofbeldisverk.
Mannréttindasamtök í Taílandi
mótmæltu þegar ákvörðuninni og
sögðu hana bitna á fjölda náms-
manna sem ekkert hefðu til saka
unnið.
Herforingjastjómin í Burma lof-
aði í gær aukna hörku taílenskra
stjórnvalda í baráttunni gegn
hryðjuverkamönnum.
„Þeir voru kurteisir“
Áður en hermenn gerðu áhlaup á
sjúkrahúsið í gærmorgun höfðu
gíslatökumenn sleppt 100 gíslum,
þeirra á meðal átta ára gömlum
dreng sem hafði nýlega gengist und-
ir heilauppskurð. Gíslar sögðu við
fréttamenn í gær að þeir hefðu sætt
góðri meðferð af hálfu skærulið-
anna. „Gíslatökumennirnir sáu vel
um okkur. Þeir meiddu okkur ekki
eða hótuðu. Þeir vom kurteisir. Eg
var alls ekki hrædd því ég vissi að ég
mundi lifa af,“ sagði hjúkranarkona
úr hópi gíslanna í gær.
Skýrsla nefndar um skipan nýrrar efri deildar breska þingsins
Breytingar á þingræðinu
virðast vera út úr myndinni
London. Morgunblaðið.
SKÝRSLA nefndar, sem kennd er við formanninn
Wakeham lávarð, um tillögur að skipan nýrrar efri
deildar, sem leysa á lávarðadeildina af hólmi, hef-
ur fengið blendnar móttökur og mest dræmar.
Hún er helzt gagnrýnd fyrir að taka ekki nægilega
af skarið og ganga of skammt í lýðræðisátt, en til
tekna er henni talið að fela óháðri nefnd að til-
nefna meirihlutann og taka það skipunarvald úr
höndum forsætisráðherra.
Stjórn Verkamannaflokksins settist að völdum
með háleit markmið um að breyta kosningafyrir-
komulaginu í Bretlandi; auka hlutfallskosningar
og frelsa lávarðadeildina úr höndum erfðaaða-
lsins. Nú þykir mörgum fuglinn hafa lækkað flug-
ið, eftir kosningarnar í Skotlandi og Wales virðist
hlutfallskosningum í Englandi hafa verið stungið
undir stól og eftir þá fækkun erfðasæta í lávarða-
deildinni, sem samkomulag tókst um á síðasta ári,
virðist ríkisstjórnin hafa misst áhugann á frekari
breytingum þar á bæ.
Þingmönnum greitt eftir mætingu
Wakeham-nefndin leggur til að nýja deildin,
sem hún gerir engar tillögur um nafn á, verði skip-
uð 550 manns í stað 1.213, sem nú era þar. Nefndin
hafnar alfarið þeim hugmyndum, að allir meðlimir
nýju deildarinnar verði kjörnir í almennum kosn-
ingum. Hún klofnaði hins vegar um þann fjölda,
sem kjósa ætti, og lagði fram þrjár tillögur um 65,
87 eða 195 sæti. Meirihlutann á sjálfstæð átta
manna nefnd að tilnefna, en nú er það forsætis-
ráðherrann, sem tilnefnir menn til lávarðadeildar-
innar. Tæpur þriðjungur þingmanna skal vera
konur, gert er ráð fyrir sérstökum hlut minni-
hlutahópa og 26 sæti eru ætluð trúfélögum, þar af
fær enska kirkjan 16. Þingmönnum verði greitt
eftir mætingu og kjörtímabilið er 15 ár. Nefndin
vill að þeir meðlimir lávarðadeildarinnar, sem þar
eiga ævirétt, fái sæti í nýju deildinni, en þeir 92,
sem sitja í erfðasætum í lávarðadeildinni, fái ekki
rétt til setu i nýju þingdeildinni. Nefndin leggur
ekki til að nýju þingdeildinni verði fengin aukin
völd frá því sem lávarðadeildin hefur nú, heldur
þvert á móti, en lávarðadeildin getur m.a. hafnað
lagaframvörpum, eins og hún gerði í síðustu viku,
þegar hún felldi framvarp Jack Straw, innanríkis-
ráðherra um fækkun mála með kviðdómi. Ríkis-
stjórnin verður nú að leggja það mál fyrir þingið
aftur og þóttu úrslitin í lávarðadeildinni mikið áfall
fyrir ríkisstjórnina. Kannski þau hafi ýtt við for-
ystu Verkamannaflokksins til að halda breyting-
um á lávarðadeildinni áfram.
í umræðum hafa komið fram hugmyndir um
kjörna efri þingdeild og þar m.a. rætt um 100
manna öldungadeild að bandarískri fyrii-mynd.
Ihaldsmenn hafa lagt fram tillögur um öfluga efri
deild og William Hague hefur sagt, að tillögur
Wakeham-nefndarinnar um fjölda kjörinna full-
trúa gangi alltof skammt. Verkamannaflokkurinn
hefur hins vegar varað við því að stofnað verði til
annarrar kjörinnar þingdeildar, sem gæti kostað
árekstra og beinlínis dregið úr völdum þess þings,
sem fyrir er.
Tony Blair forsætisráðherra hefur gefið í skyn,
að ekkert verði úr þjóðaratkvæðagreiðslu um
breytt kosningafyrirkomulag til þingsins í London
á þessu kjörtímabili og allar hugmyndir um hlut-
fallskosningar séu jafnvel úr sögunni. Hann hefur
hins vegar sagt, að Wakeham-skýrslunni verði
ekki stungið undir stól, en fæstir búast við stór-
vægilegum breytingum undir hans forystu. Það
virðist því mega reikna með því, að átakapunktur-
inn í þingræðisumræðunni á Englandi á því herr-
ans ári 2000 verði, hversu skammt verði gengið að
þessu sinni.
Forsetakosn-
ingar í Krdatíu
Snúið
baki við
þjóðernis-
stefnu
Tudjmans
Zagreb, Króatíu. AFP.
ÚRSLIT fyrsta hluta forseta-
kosninganna í Króatíu virðast
að sögn þarlendra blaða benda
til þess að Króatar hafi snúið
baki við þjóðemisstefnu Franjo
Tudjmans, fyrrverandi forseta
landsins, sem lést í desember á
sl. ári. Flest atkvæði, 41,11%,
hlaut Stipe Mesic, síðasti for-
seti gömlu Júgóslavíu, sem lof-
að hefur að snúa baki við hinni
stífu þjóðemisstefnu verði hann
fyrir valinu.
Drazen Budisa, frambjóð-
andi frjálslyndra, kom næstur
með 27,71% og Mate Granic,
fyrrverandi utanrfldsráðhen'a
Króatíu, var í þriðja sæti með
22,46% atkvæða. Mesic og Bud-
isa munu því beijast um for-
setaembættið í öðram hluta
kosninganna sem fara fram
hinn 7. febrúar. „Við brjótum
blað í sögu lýðræðis í Króatíu,"
sagði Mesic eftir að úrslit kosn-
inganna lágu íyrir. „Og okkar
markmið er að verða hluti af
Evrópusambandinu og NATO.“
Það var mat margra króat-
ískra dagblaða að úrslit kosn-
inganna væru til vitnis um dvín-
andi áhrif Lýðræðisbandalags-
ins (HDZ), sem var flokkur
Tudjmans. „HDZ er ekki leng-
ur til sem skipulagt bandalag
sem ber að taka alvarlega,"
sagði hið óháða Jutarnji List,
en Granic sem nýlega dró sig í
hlé frá störfum á vegum HDZ
var talinn líklegasti sigurvegari
kosninganna þar til flokkurinn
beið afhroð í þingkosningum nú
í upphafi árs.
„Eg býst við miklum breyt-
ingum,“ sagði Granic um starf
HDZ eftir kosningamar í gær,
„annars get ég ekki haldið
áfram að starfa hjá flokki þar
sem skortir á lýðræðisstaðla."
Granic kvað niðurstöður-
kosninganna annars vera nokk-
uð góðar með tilliti til aðstæðna.
En slæmt efnahagsástand, þar
sem 20% íbúa era atvinnulausir
og 50% teljast undir fátæktar-
mörkum, hefur af mörgum ver-
ið talinn helsta arfleifð stjórnar
Tudjmans.
Reyna að
hindra lausn
Pinochets
London. Reuters.
STJÓRNVÖLD í Belgíu og sex
mannréttindasamtök, þar á
meðal Amnesty International,
hófu í gær tilraunir til að koma í
veg fyrir, að breska stjórnin
léti Augusto Pinochet, fyrrver-
andi einræðisherra í Chile,
lausan af heilsufarsástæðum.
Belgíustjórn hefur farið fram
á það við breska dómstóla, að
Pinochet verði ekki sleppt fyrr
en belgískir læknar hafi kannað
heilsufar hans og fengið að
kynna sér skýrslur breskra
lækna um hann. Jack Straw,
innanríkisráðherra Bretlands,
hefur neitað öðrum um aðgang
að skýrslunum og lögfræðingar
Pinochets segja, að þær séu
trúnaðarmál hans og lækn-
anna. Ekki er ljós hvernig
bresku dómstólarnir munu
taka á þessari málaleitan en
hafni þeir henni, er málið aftur
komið undir ákvörðunum
Straws.