Morgunblaðið - 26.01.2000, Page 25

Morgunblaðið - 26.01.2000, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 25 LISTIR Panodil fyrir tvo frumsýnt í Loftkastalanum í kvöld Fullt af kjöti fyrir fólk að kjamsa á Gamanleikritið Panodil fyrir tvo verður frumsýnt í Loftkastalanum í kvöld. Margrét Sveinbjörnsdótt- ir ræddi við leikstjórann, Hall Helgason, og einn af leikurunum, Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur. AÐALPERSÓNA leikritsins, Al- freð Felix, er taugaveiklaður kvik- myndagagnrýnandi sem stendur í skilnaði. Besti vinur hans, Diddi, og eiginkona hans, Linda, reyna að hugga hann og styðja í erfiðleikum hans, en tilraunir þeirra, og þá sér- staklega Lindu, til að koma honum saman við nýja konu hafa ófyrirsjá- anlegar afleiðingar í för með sér. Með hlutverk Alfreðs fer Jón Gnarr, Lindu leikur Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Þorsteinn Guð- mundsson leikur Didda, mann hennar. Ingibjörg Stefánsdóttir fer með hlutverk Nönnu, fyrrverandi eiginkonu Alfreðs, og bregður sér einnig í gervi nokkurra annarra kvenna í lífi hans í vöku jafnt sem draumi. Jón Atli Jónasson leikur kvikmyndahetjuna Humphrey Bog- art, sem er yfir og allt um kring í verkinu, og þá kveikja þeir væntan- lega á perunni sem hafa séð kvik- myndina Play it again Sam eftir Woody Allen. Kvikmyndin sú var frumsýnd 1972 en leikritið hafði Woody Allen skrifað árið 1969. Þýðingin sem sett er á svið í Loftkastalanum er unnin upp úr hvoru tveggja, leikritinu og kvikmyndinni, en heiðurinn af þýð- ingunni á Jón Gnarr og hefur hann einnig staðfært verkið. „Lestu þetta“ „Jón Gnarr gaukaði að mér þess- ari þýðingu fyrir bráðum tveimur árum,“ segir Hallur Helgason leik- stjóri og bætir við að eiginlega hafi það verið með mjög litlum formála. „Hann sagði bara: „Lestu þetta.“ Eg var mjög upptekinn við önnur störf og þetta lá ólesið inni á tölvu- póstinum hjá mér í nokkra mánuði, enda yfir hundrað síður. Síðasthðið vor, þegar ég var kominn upp í Loftkastala, fór ég svo að skima í kringum mig eftir verkefnum og las þá þetta auk fjölda annarra hand- rita. Þetta handrit var bara svo skemmtilegt, vel þýtt og staðfært, fyrir utan það að vera vel skrifað í upphafi. Þannig að ég sá að við gæt- um gert úr þessu mjög skemmti- lega sýningu - það var nú ekki flóknara en svo,“ segir Hallur. En hvemig skyldi þetta merka verk svo hafa elst? „Þegar maður horfir á bíómyndina eru fyrstu við- brögðin þau að þetta sé nú orðið svolítið gamalt, en það liggur aðal- lega í hinu ytra, fötum, hárgreiðslu og slíku. En umfjöllunarefnið er sí- Leikarar og listrænir stjórnendur PANODIL fyrir tvo eftir Woody Allen í þýðingu og stað- færslu Jóns Gnarrs. Leikarar: Jón Gnarr, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Þor- steinn Guðmundsson, Ingi- björg Stefánsdóttir og Jón Atli Jónasson. Leikstjóri: Hallur Helgason. Leikmynd: Úlfur K. Grön- vold. Búningar: María Valsdóttir. Lýsing: Sigurvald Helgason. Hljóðmynd: Ivar Ragnar- sson. Förðun og gervi: Kristín Thors. gilt,“ segir Hallur og Katla tekur undir það. „í þessari staðfærslu og þýðingu sér maður að kjarninn í verkinu snýst ekkert um hús eða föt eða hvaða árgerð bílarnir á göt- unum eru, heldur ósköp einfaldlega um samskipti og tilfinningar, sem eru alveg jafn gildar á íslandi árið Frönsk- íslensk stutt- mynd forsýnd FORSÝNING á stuttmyndinni Cit- izen Cam, fransk-íslenskri kvikmynd eftir leikstjórann Jerome Scemla verður í kvöld kl. 20.30 í Alliance Francaise, Austurstræti 3. Fram- leiðandi er Dominique Barneaud/ Kalamazoo International í samvinnu með Agnes Johansen/Saga film Is- landi. Aðstoðarleikstjóri og tengihð- ur á Islandi er Jakob Halldórsson. Leikarar eru Egill Ólafsson, Júlía Hannam, Þórunn Clausen, Hermann Guðmundsson, Siggeir Baldursson, Anna Halldórsdóttir og Ami Sævarr. Myndin fjahar um Jakob Eldricht- son, lögreglustjóra í Reykjavík, kall- aður Citizen Cam af samlöndum sín- um, hefur stofnað Humani TV, sjónvarpsstöð með gagnsæi að leið- arljósi. Þessi sjónvarpsstöð gefur ís- lendingum færi á að fylgjast hver með öðrum, hafa samskipti, tjá sig... og njósna hver um annan. Kysstu mig Kata í Borgar- leikhusinu FYRSTI samlestur á söngleiknum Kysstu mig Kata eftir Cole Porter fór fram í Borgarleikhúsinu á mánudag en fyrirhugað er að frumsýna verkið á Stóra sviðinu 25. mars næstkomandi. í söngleik þessum er lýst vand- ræðum sem skapast þegar storma- samt einkalíf aðstandenda upp- setningar á Snegla tamin eftir Shakespeare hrærir upp í fram- gangi sýningarinnar og ástarflækj- ur, sviðsskrekkur og handrukkarar þvælast inn i leikritið. Með aðalhlutverk í sýningunni fara Egill Ólafsson og Jóhanna Vig- dís Arnardóttir en auk þeirra koma fram fjölmargir leikarar og ís- Morgunblaðið/Þorkell „Þetta er svona lítill kristalsgrís. Hann gerir ekkert, hann bara er.“ Alfreð (Jón Gnarr) útskýrir afmælisgjöfina sem hann gefur Lindu (Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur). Humphrey Bogart er hetja kvikmyndagagnrýnandans Alfreðs og gefur honum gjarnan ráð í sambandi við konur. 2000 og á Manhattan 1969,“ heldur Hallur áfram. Taugasjúklingur eins og hann Linda er sem áður sagði gift æskuvini Alfreðs, Didda, sem er að sögn Kötlu mjög upptekinn og sjálfhverfur bissnessmaður. „Hann er svona hlutabréfadrengur." Linda og Alfreð laðast hvort að öðru. „Diddi hefur hvort eð er aldrei tíma fyrir hana. Hún er ósköp ljúf og góð og Alli kann að meta hana. Þau eru bæði svolítið vanrækt," segir Katla. ,jllfreð sér alla kosti góðrar konu í Lindu. Hún er falleg, gáfuð og til- finninganæm - og svo er hennar höfuðkostur auðvitað sá að hún er taugasjúklingur eins og hann,“ seg- ir Hallur og Katla er sammála: „Þar ná þau algjörlega saman.“ Hvað fyrrverandi eiginkonu Al- freðs, Nönnu, varðar segist Hallur hafa á tilfinningunni að hún hafi svolítið verið að notfæra sér Alfreð. í rauninni hafi hún aldrei verið beinlínis ástfangin af honum en það hafi hentað henni að búa með hon- um þar sem hann átti íbúð og hún var að læra. „Þau sváfu ekkert mik- ið saman. Hún hefur farið svolítið illa með strákgreyið," segir hann. Bogart eins og lítill púki á öxlinni Alfreð á sér eina stóra fyrirmynd af hvíta tjaldinu. „Hann speglar sig í kvikmyndahetjunni Bogart og það hentar honum eiginlega ekkert rosalega vel. Bogart er eins og lítill púki á öxlinni á honum, sem kemur og gefur honum ráð þegar hann rat- ar í erfiðar aðstæður, t.d. í sam- bandi við konur. Hann reynir að fylgja leiðbeiningum þessa auka- sjálfs og stundum kemur eitthvað út úr því en stundum mistekst það líka hrapallega," segir Hallur. „Hugmyndir hans eru oft mjög óraunsæjar," segir Katla. í fljótu bragði virðist Panodil fyr- ir tvo ekki liggja beint við sem þýð- ing á titlinum Play it again Sam en þau Hallur og Katla segja að Leiktu það aftur Sámur hafi heldur ekki komið svo vel út á íslensku. „I leikritinu er svolítið komið inn á panodil, þar sem þau eru að fá sér verkjalyf. Það er nú reyndar aspir- ín hjá Woody Allen, en þar sem við notum svo lítið aspirín á íslandi breyttum við því bara í panodil. Svo komst Jón að því þegar hann var að glugga í heimildir um Allen að hann hafði upphaflega ætlað að láta þetta leikrit heita Aspirins for two en breytti því svo seinna í Play it again Sam,“ segir Hallur. Leikritið er kynnt sem gaman- leikrit en hefur þó alvarlega undir- öldu. „Það virðist vera einhver land- lægur misskilningur að gamanleik- rit séu alltaf innantóm en það er bá- bilja sem þarf að reka út eins og illan anda. Gamansemi er fyrst og síðast hæfileiki til að setja veröld- ina og hlutina í kringum okkur í annað samhengi en er augljósast til þess að skoða þá frá annarri hlið og kryfja þá til mergjar. Og þar er gamansemin eitthvert öflugasta tæki sem við eigum til. Menn eins og t.d. Woody Allen og Jón Gnarr notfæra sér gamansemina til þess að skoða hluti og taka þá til um- ræðu en ekki alltaf endilega til þess að kalla fram einhver ódýr hlátra- sköll. Það er heilmikil undiralda í þessu verki og fullt af kjöti fyrir fólk til að kjamsa á,“ segir Hallur. Morgunblaðið/Kristinn Aðalleikendurnir, Egill Ólafsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir, hlýða á mál leikstjóra síns, Þórhildar Þorleifsdóttur, á fyrsta samlestri söng- leiksins Kysstu mig Kata. lenski dansflokkurinn leggur sitt af mörkum. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs- dóttir, tónlistarsljóri Óskar Einars- son, danshöfundur Michéle Hardy, búninga gerir David Blight, leik- mynd er eftir Stíg Steinþórsson, lýsingu gerir Lárus Björnsson og Baldur Már Arngrímsson sér um hljóð. Síðasta sýningar- helgi NÚ FER í hönd síðasta sýning- arhelgi á verkum Særúnar Ste- fánsdóttur í galleri@hlemmur- .is, Þverholti 5, Reykjavík. Særún sýnir innsetningu sem ber nafnið hér og video- verk, Lollypop sem unnin voru frá 1998-1999 við mastersnám í Glasgow auk annarra smá- verka. Þessi síðasta sýningar- helgi verður þó með örlítið frá- brugðnu sniði þar sem listamaðurinn mun ætla sér að „klára“ verkið og verða leifar verksins til sýnis þessa síðustu sýningarhelgi. I tilefni þessa verður haldið lokahóf föstudag- skvöldið 28. janúar kl. 20. galleri@hlemmur.is er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.