Morgunblaðið - 26.01.2000, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 47
FRÉTTIR
Námskeið fyrir fatlaða og
aðstandendur þeirra
Ritlistar-
hópur Kópa-
vogs hefur
5. starfsárið
UPPLESTRAR á vegum Rit-
listarhóps Kópavogs hefjast á
ný flmmtudaginn 27. janúar kl.
17. Fyrstur til að ríða á vaðið að
þessu sinni er Hrafn Gunn-
laugsson, ljóðskáld og kvik-
myndaleikstjóri með meiru, en
hann mun lesa úr Grafaranum
með fæðingartengurnar og
óbirt ljóð.
Þetta er flmmta starfsár
hópsins og hafa fjölmörg skáld
og rithöfundar lesið úr verkum
sínum og annarra.
Upplesturinn er ávallt í kaffi-
stofu Listasafns Kópavogs,
Gerðarsafni milli kl. 17 og 18 á
fimmtudögum.
Auk þess að standa fyrir
upplestri hvern fimmtudag hef-
ur Ritlistarhópur Kópavogs
þegar gefið út tvær ljóðabæk-
ur, Glugga árið 1996 (sú bók er
alveg uppseld) og Ljósmál árið
1997 í samvinnu við ljósmynd-
ara úr Kópavogi.
Allir eru ávallt velkomnir.
Á DÖGUNUM stóðu Morgunblaðið á
Netinu, Sambíóin, BT og Hard Rock
fyrh’ leik á mbl.is í tilefni frumsýning-
ar á spennumyndinni Endadægur.
Þátttakan var góð enda veglegir
vinningar í boði en auk miða á mynd-
ina áttu vinningshafar möguleika á að
vinna máltíð íyrir tvo frá Hard Rock.
Stærsti vinningurinn var Canon
STJÓRN Starfsmannafélags Hafn-
arfjarðar boðar til almenns fundar
miðvikudaginn 26. janúar kl. 16 í
Álfafelli, íþróttahúsinu við Strand-
götu, um starfsmannakönnun STH.
Leitast verður við að svara spurn-
ingum á borð við: „Er viðunandi að
búa við léleg laun og aðbúnað ef
manni þykir starfið skemmtilegt?
Getur verið að launamunur karla og
myndbandsupptökuvél ásamt auka-
hlutapakka: tösku, rafhlöðum og
myndbandsspólu frá BT.
Öllum vinningshöfum hefur verið
sendur tölvupóstur en stóra vinning-
inn vann Anna María J. Moestrup,
fyrir miðju, sem á myndinni tekur við
vinningunum frá verslunarstjóra BT
og framkvæmdastjóra Hard Rock.
kvenna í sambærilegum störfum geti
numið allt að 50.000? Er þjónusta
STH við sína félagsmenn viðunandi?
Hvað finnst félagsmönnum um þjón-
ustu lífeyrissjóðsins? Er launastefna
Hafnarfjarðarbæjar sanngjörn?"
Hreinn Hreinsson félagsráðgjafi
og Árni Guðmundsson, formaður
STH, kynna helstu niðurstöður.
Allt áhugafólk er velkomið.
FFA - FRÆÐSLA fyrir fatlaða og
aðstandendur stendur fyrir nám-
skeiðinu „Að flytja að heiman“ fyrir
fatlaða og aðstandendur þeirra í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi,
laugardaginn 29. janúar nk. kl. 9-15.
Magnús Þorgrímsson fram-
kvæmdastjóri Svæðisskrifstofu
Vesturlands fjallar um breytingar í
lífi manns þegar einstaklingur flyt-
ur að heiman og María Jónsdóttir
félagsráðgjafi Styrktarfélags van-
gefinna kynnir muninn á sjálfstæðri
búsetu og sambýli. Þá fjallar Mar-
grét Jónsdóttir félagsráðgjafi
Tryggingastofnunar ríkisins um
tryggingabætur, Sigríður Kristj-
ánsdóttir forstöðumaður Svæðis-
skrifstofu Reykjaness fjallar um
heimilisbókhald og Anna Karlsdótt-
ir þjónustufulltrúi í íslandsbanka
kynnir þjónustu bankanna. María
Haraldsdóttir foreldri segir frá
reynslu sinni þegar hennar barn
flutti að heiman og John Doak, Guð-
mundur Stefán Guðmundsson og
Gústaf Hinrik Ingvarsson segja frá
sinni reynslu af að flytja að heiman.
Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi
Svæðisskrifstofu Reykjavíkur
kynnir stoðþjónustu við búsetu og
Ingibjörg Harðardóttir sálfræðing-
ur fjallar um hvaða áhrif það hefur á
fjölskylduna og hinn fatlaða sjálfan
þegar hann flytur að heiman.
Góður tími gefst til umræðna og
spurninga og ef þörf er á verður
samantekt á auðskildu máli eftir
hvert erindi. Þátttökugjald er 1.000
kr. og er innifalið í því kaffi og há-
degisverður. Skráning þátttöku er
hjá Landssamtökunum Þroskahjálp
fyrir 27. janúar.
-----------------
Spjall um gríska
goðafræði
FYRSTI fundur Grikklandsvinafé-
lagsins á árinu 2000 verður haldinn
í Kornhlöðunni við Bankastræti
fimmtudaginn 27. janúar kl. 20.30.
Á fundinum mun Guðmundur J.
Guðmundsson, sagnfræðingur,
flytja erindi sem hann nefnir
Spjall um gríska goðafræði og
rekja þar nýjar og gamlar kenn-
ingar um uppgruna, hlutverk og
margþætt eðli hinna grísku guða.
Jafnframt mun hann kynna ein-
staka guði og bregða upp lit-
skyggnum af líknesjum þeirra og
hofum.
Fundur um launamál STH
116 HESTOFL
ELANTRA ER KRAFTMESTI BÍLLINN í SÍNUM FL0KKI
VERÐ FRÁ KR.
1.335.000
BEINSKIPTUR
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1280
Hyundai Elantra er með 116 hestafla 16v vél sem þýðir að enginn bíll í sama stærðarflokki
er jafn kraftmikill. Þarað auki er enginn á jafn góðu verði. Staöalbúnaöur: ABS hemlalæsivörn,
2 loftpúðar, útvarp/kassettutæki m/4 hátölurum, samlæsingar, vökva- og veltistýri, rafknúnar
rúður, bensínlok opnanlegt innanfrá, litað gler, samlitir stuðarar, stafræn klukka, tvöfaldir
styrktarbitar í hurðum, snúningshraðamælir, haldari fyrir drykkjarmál, krumpusvæði, barnalæsingar,
hæðarstillanleg öryggisbelti og margt fleira.
HYURDni
meÍ1föHu