Morgunblaðið - 30.01.2000, Page 18

Morgunblaðið - 30.01.2000, Page 18
18 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Golli í tilefni af dagskráropnun menningarborgarinnar brá forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sér í Strætó, þar sem hann fylgdist með fjöllistahópi nemenda úr iistaskólum landsins leika listir sínar. Ekki verður annað séð en forsetinn hafi kunnað að meta tilburðina sem hafðir voru í frammi. Menningar- borgin vaknar Morgunblaðið/Arni Sæberg Björn Bjarnason menntamálaráðherra opnar Islandsvef Tónskáldafé- lags íslands. Á vefnum er að finna upplýsingar um íslensk tónverk ásamt margskonar umfjöllun og útskýringum á tónlistinni. Einnig er unnt að tengjast öðrum gagnagrunnum. Vefslóðin er: www.listir.is/ tonis. Morgunblaðið/Jim Smart Dagskrá Reykjavíkur - menn- ingarborgar Evrópu 2000, um- fangsmestu listahátíðar sem _____________um getur hér á landi, var_______ hleypt af stokkunum í gærmorgun. Teygði hátíðin anga sína um víðan völl en á annað hundrað viðburðir voru fyrirhugaðir. Opið hús var á um áttatíu stöðum. Morgunblaðið fylgdist með fyrstu viðburðum. Morgunblaðið/Jim Smart Auður Laxness og Guðrún Ágústsdóttir, fyrrverandi forseti borgar- stjórnar Reykjavíkur, við mynd af eiginmanni Auðar, Halldóri heitnum Laxness. Myndin er á sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur listmál- ara sem stendur fram á þriðjudag í Galleríi Fold. Sjá dóm Braga Ás- geirssonar um sýninguna á bls 20 í blaðinu í dag. Morgunblaðið/Ami Sæberg m Morgunblaðið/Jón Svavarsson Rýmislistaverk Italans Claudio Parmiggianis, fslandsvitinn, vígt á Sandskeiði. Með lista- manninum á myndinni er Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri en hún kveikti á vitanum. Hallveig Thorlacius leikkona og Brúðuleikhúsið forsýna leikritið Sögusvuntuna fyrir bömin á barnadeild Landspítalans. Morgunblaðið/Golli Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, opnar Vísindavefinn við at- höfn í Odda. Páll Skúlason, rektor Háskóla íslands, og Þorsteinn Vil- hjálmsson prófessor, sem átti hugmyndina, fylgjast með. Vefurinn er á ábyrgð Háskóla íslands og þar er almenningi heimilt að spyrja um hvað eina sem varðar vfsindi og fræði og starfsmenn háskólans geta svarað. Vefurinn verður opinn út árið og slóðin er: www.opinnhaskoli2000.hi.is. Morgunblaðið/Arni Sæberg Ólöf Ingólfsdóttir vatnamey spókar sig á Laugardalslauginni. Sýningin er eftir Finnann Reijo Kela og nefnist Kela 2000 - Vatnameyjar. Biskupinn yfir íslandi, herra Karl Sigurbjörnsson, bergir á vatni úr vatnspóstinum Nykri að viðstöddum gest- um við vígslu útilistaverks eftir myndlistarmanninn Þórð Hall á Hallgrímstorgi við Hallgrímskirkju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.