Morgunblaðið - 18.02.2000, Síða 2

Morgunblaðið - 18.02.2000, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samningafundur Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins Viðræðum um sérmál er að mestu lokið SAMNINGANEFNDIR verkalýðs- félaganna fjögurra sem mynda Flóa- bandalagið og Samtaka atvinnulífs- ins luku í gær að mestu yfirferð yfir væntanlega sérkjarasamninga og ætla að hefja viðræður um megin- markmið aðalkjarasamninga næst- komandi mánudag. Halldór Bjömsson, formaður Efl- ingar, segir að staðan í þessum mál- um sé vel viðunandi. Samkomulag sé um sum sérmál, önnur séu í burðar- liðnum en lítil hreyfing sé hins vegar komin á nokkur önnur sérmál sem til umræðu hafa verið. Samið til 12 mánaða ef ekki nást haldbærar tryggingar Á næsta fundi ætla samninga- nefndimar að snúa sér að megin- kröfum Flóabandalagsfélaganna í kjaraviðræðunum. „Ef við náum ekki einhverjum haldbæmm trygg- ingum í samningum, miðað við þá tímalengd samninga sem við höfum lagt fram hugmyndir um, sé ég ekki að við getum gert samning til lengri tíma en tólf mánaða," segir Halldór. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, sagði eftir fundinn með forystu- mönnum Flóabandalagsins í gær, að viðræðum um sérkröfur þess væri að mestu leyti lokið. „Það er komið að því að málið í heild komi til um- ræðu,“ sagði hann. Lítill sem enginn árangur hefur orðið af viðræðum vinnuveitenda og Verkamannasambandsins, sem hef- ur sett á fót sérstakan aðgerðahóp sem er ætlað að gera tillögur um að- gerðir ef ekki næst samkomulag við atvinnurekendur. Ari Edwald sagði að Samtök at- vinnulífsins hefðu áhuga á að gera tilraun til að Ijúka viðræðum við Verkamannasambandið um sérmál eins og kostur væri með svipuðum hætti og gert hefði verið við Flóa- bandalagið, þrátt fyrir að afar mikið bæri í milli varðandi launaþáttinn. I gær beindu VMSI og Lands- samband iðnverkafólks þeim tilmæl- um til aðildarfélaganna að þegar þau taki upp samninga sína við sveitar- félögin, athugi þau alvarlega að gera ekki eða framlengja kjarasamning við þau til lengri tíma en eins árs. Minnt er á að samböndin gerðu til- raun í haust til að koma á kjara- samningi til eins árs, sem atvinnu- rekendur höfnuðu. Nú hafi hins vegar ýmis félög og hópar framlengt eða gert samninga tii næstu ára- móta. RSÍ ræðir gerð skammtíma- samnings við Reykjavíkurborg Á heimasíðu Rafiðnaðarsam- bandsins kom fram í gær að rafiðn- aðarmenn hafi, á samningafundi með Reykjavíkurborg, farið yfir hugsan- legar breytingar á launakerfinu og hugmyndir um að gera samning til skamms tíma. „Nú yrði gengið frá sérmálum en þar sem það væri mjög viðamikið mál að búa til nýtt launa- kerfi og raða starfsmönnum inn í það væri eðlilegt að semja til skamms tíma og nýta hann til þess,“ segir í samningafréttum á heimasíðu RSÍ. Grundartangi Ljós- leiðari slitnaði LJÓSLEIÐARINN á milli Grundartanga og Akraness slitnaði um klukkan ellefu í gærmorgun, en viðgerð lauk klukkan fjögur síðdegis. Þetta kom fram í samtali Morgun- blaðsins við Ólaf Þ. Stephen- sen, forstöðumann upplýsinga- og kynningarmála Landssím- ans. Bilunin olli því að símasam- bandslaust varð m.a. hjá Norð- uráli um tíma, en Jón Þorvalds- son, upplýsingafulltrúi fyrir- tækisins, sagði að það hefði haft óveruleg áhrif á rekstur- inn. Hann sagði að menn hefðu notast við farsíma og þá hefði Landssíminn brugðist skjótt og vel við biluninni. Áform um aukinn lífeyrissparnað landsmanna Ekki ákveðið hversu mikið skattfrelsi verður aukið EKKI liggur fyrir enn sem komið er hversu mikið skattfrelsi lífeyris- spamaðar verður aukið frá því sem nú er, en unnið er að undirbúningi tillagna í þessum efnum, eins og kom fram í máli forsætisráðherra á Viðskiptaþingi á miðvikudag. Samkvæmt núgildandi tilhögun geta launamenn lagt til hliðar 2% af launum til viðbótar 10% lögbundnu framlagi í lífeyrissjóði og á móti leggur ríkið fram 0,2% geri fólk samning um viðbótarlífeyrissparn- að. Geir H. Haarde fjármálaráðherra sagði að hugmyndirnar gengju út á að auka við þennan tvö prósent spamað og hlutfallslegt framlag rík- isins í sama mæli en hversu mikið það yrði lægi ekki fyrir ennþá. Hins vegar væri þetta ekki flókið í fram- kvæmd, þar sem allir launagreið- endur væm búnir að koma sér upp launakerfum sem gerði þeim kleift að halda utan um skil í þessu kerfi. Geir sagði að færri hefðu hagnýtt sér þessa sparnaðarleið en vonast hefði verið til í upphafi. Útgjöld rík- isins vegna þessa væm þess vegna minni en ráð hefði verið gert fyrir í upphafi og því væri svigrúm fyrir hendi til að auka möguleikana á þessum sparnaði. Geir sagðist eiga von á að tillögur í þessum efnum litu dagsins ljós fyrr en síðar, en lagabreytingu þyrfti til. Snjó- mokstur VÍÐA á höfuðborgarsvæðinu má enn sjá bifreiðir á kafi í snjó- sköflum eftir illviðrið um helgina. Þeir Sigurður og Rögnvaldur unnu af kappi við að moka út bíl systur Sigurðar þegar ljósmynd- ari Morgunblaðsins átti leið hjá. Skóflurnar sem þeir félagar not- uðu voru hvorki stórar né öflug- ar, en þeir létu það ekki á sig fá og luku verkinu eins og til var ætlast. Haldi áfram að snjóa kann þó að reynast nauðsynlegt að fjárfesta í betri skóflum. Þokka- legt veðurútlit er suðvestanlands næstu daga. Varað við stryknín- blönduðum e-töflum Ríkislögreglustjórinn hefur gert embætti landlæknis, öll- um lögreglustjórum og lög- regluskóla ríkisins viðvart vegna gmns um að e-töflur með hinu banvæna eitri strykníni í kunni að vera í umferð hér á landi. Á lögregluvefnum police.is kemur fram að í tilkynningu sem alþjóðaskrifstofu ríkis- lögreglustjórans hafi borist, sé varað við afbrigði af e- töflunni, sem lögreglan í Hol- landi hefur lagt hald á, og blandað er eiturefninu strykn- íni. Ekki greinst hér á landi Eins og kunnugt er af frétt- um hefur lögreglan hér á landi lagt hald á mikið magn af e-töflum á undanförnum ár- um og í flestum tilfellum vom þær fluttar inn frá Hollandi. Stryknín er lífshættulegt efni og notað meðal annars til að vinna á rottum. Af þessu tilefni er sérstök ástæða til að vara við notkun ííkniefnisins sem kann að vera í umferð á íslandi. Lögreglan hefur hins vegar ekki vitneskju um að svo sé. Lögregluyfirvöld ann- arra landa hafa sent frá sér viðvörun þessa efnis, m.a. til heilbrigðisstofnana en einnig til fíkniefnaneytenda eftir því sem hægt er. Samkomu- lagum löggæslu í Grindavík BÆJARSTJÓRN Grindavíkur og sýslumaðurinn í Keflavík hafa náð sameiginlegri niðurstöðu um lög- gæslu í sveitarfélaginu. Sam- kvæmt því er sameiginlegur skiln- ingur beggja að það sé til mikilla bóta að komið verði á sólarhrings- vakt í öllu umdæminu. Báðir aðilar taka undir mikilvægi grenndarlög- gæslu. I fréttatilkynningu segir að lög- reglan muni nýta staðarþekkingu lögreglumanna frá Grindavík sem best og jafnframt geti Grindvík- ingar búist við því að sjá ný andlit og nýjar hugmyndir um löggæslu. Einar Njálsson, bæjarstjóri í Grindavík, sagði í samtali við Morgunblaðið að lögreglustöðin í Grindavík yrði áfram miðstöð lög- gæslu í bænum og þar yrðu tveir menn með bfl til umráða allan sól- arhringinn og sæju þeir einnig um löggæslu í Vogunum. Breytingarn- ar taka gildi 1. mars. jSérblöð í dag_____JEfltiyuWtfoWfo —II JftergttnblaMb BÍÓBLAÐIÐ Á FÖSTUDÖGUM Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.