Morgunblaðið - 18.02.2000, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
EINA SEM ÞARF AÐ GERA ER AÐ SVARA LÉTTUM SPURNINGUM Á mbl.ÍS
Vinningar
50.000 kr. inneign fyrir heppinn
Eurocard-korthafa
Ferð fyrir tvo til Rimini á Ítalíu í boði
Samvinnuferða-Landsýn
Máltíð fyrir tvo á Hard Rock Café
Playstation-leikjatölva frá Skífunni
Miðar fyrir tvo á kvikmyndina Herra
Ripley (The Talented Mr. Ripley)
Samvinnuferðir
* Landsýn
5 OSKARSVERÐLAUNA!
Herra Ripley (The Talented Mr. Ripley) er nýjasta stórmynd Óskarsverðlaunaleikstjórans Anthony
Minghella, sem gerði Óskarsverðlaunamyndina The English Patient. Með aðalhlutverk í myndinni fara
Matt Damon (Good Will Hunting) og Gwyneth Paltrow (fékk Óskarinn sem besta leikkonan fyrir
Shakespeare in Love), Jude Law, Kate Blanchett og Philip Seymour Hoffman. Myndin fjallar um
mann sem
gerir allt'til þess að lifa sem annar maður með ófyrirséðum afleiðingum!
HERRA
RIPLEY
á mbl.is!
I tilefni af frumsýningu kvikmyndarinnar
Herra Ripley (The Talented Mr. Ripley)
bjóða mbl.is og Skífan þér að taka þátt í
skemmtilegum leik á mbl.is.
Glæsilegir vinningar í boði.
MasierCard
LANDIÐ
# Í 1 • Í' ' '
1" ?>
* * •
m w m|J
30.
Morgunblaðið/Magnús H. Magnússon
Frá undirritun samningsins á Hólmavík. Frá vinstri: Magnús Sigurðs-
son, Benedikt Grímsson, Þór Orn Jónsson, Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðisráðherra, Matthías Lvðsson og Guðmundur B. Magnússon.
Byggt við Hjúkrun-
ar- og dvalarheim-
ilið á Hólmavrk
Hólmavík - Samstarfssamningur
milli Héraðsnefndar Strandasýslu
og heilbrigðisráðuneytisins um við-
byggingu við Hjúkrunar- og Dvai-
arheimilis Hólmavík var undirrit-
aður nýverið. Það var Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra
sem undirritaði samninginn f.h.
ráðuneytisins og fulltrúar héraðs-
nefndar f.h. heimamanna.
I ávarpi heilbrigðisráðherra við
þetta tækifæri kom fram að um er
að ræða viðbyggingu á þremur
hæðum, samtals um 425 fermetrar,
auk endumýjunar á gamla sjúkra-
húsinu sem að sögn ráðherra var
löngu orðið tímabært, bæði hvað
varðar aðstöðu starfsfólks og sjúk-
linga. Fjármögnun skiptist þannig ,
að Héraðsnefnd Srandasýslu greið-
ir 22,02%, Framkvæmdasjóður
aldraðra greiðir 37,85% og Ríkis-
sjóður greiðir 40,13%. Fyrirhugað
er að bjóða verkið út með vorinu og
er áætlað að framkvæmdum ljúki
árið 2002. Áætlaður byggingar-
kostnaður er 92,2 milljónir króna,
Birna Richardsdóttir oddviti
Hólmavíkurhrepps, þakkaði ráð-
herra og starfsmönnum ráðuneyt-
isins, f.h. heimamanna, þeirra þátt
í gerð samningisins. Að því loknu
bauð Héraðsnefnd Strandasýslu
öllum viðstöddum til kaffisamsætis
á Café Riis,til að fagna samningn-
um.
8. bekkur Víkur-
skóla verðlaunaður
Fagradal - Áttundi bekkur
Grunnskóla Mýrdalshrepps hlaut
verðlaun frá Tóbaksvarnanefnd í
aukaútdrætti í Evrópusamkeppni
meðal reyklausra 7. og 8. bekkja.
Alls hlutu 13 bekkir af 321 bekk
sem keppa á íslandi verðlaun að
þessu sinni.Um er að ræða merkta
boii handa nemendum og kenn-
ara.
AIIs taka 14 Evrópulönd þátt í
samkeppninni. Markmiðið er að
hvetja nemendur til að vera
fijálsir, reyklausir og byrja ekki
við að fikta við reykingar, einnig
að sýna fram á óæskilegar og lífs-
hættulegar afleiðingar reykinga.
Stærstu vinningarnir ferð fyrir
allan bekkin til Berlínar og ferðir
innanlands verða dregnir út í maí.
Sveitarsljórn
Norður-Héraðs
Lýsir yfír stuðn-
ingi við Hellis-
heiðargöng
Vaðbrekku, Jökuldal - Sveitar-
stjórn Norður-Héraðs lýsir heils-
hugar stuðningi við jarðgangagerð
undir Hellisheiði milli Vopnafjarð-
ar og Héraðs og telur það einu
færu leiðina til að gera Vopnafjörð
og Mið-Austurland að einu at-
vinnusvæði. Tillagan var samþykkt
samhljóða í sveitarstjórn.
Arnór Benediktsson oddviti bað
um að fá að gera grein fyrir at-
kvæði sínu. „Sú umræða sem orðið
hefur um jarðgöng undir Hellis-
heiði má á engan hátt verða til að
fresta vegtengingu um Hofsárdal
til Vopnafjarðar svo íbúar norðan
heiðar fái heils árs tengingu norð-
ur og austur um Hárekstaðaleið.“
s
5
E
NettoL^
ELDHÚS - BAÐ - FATASKAPAR
Þegar þlg vantar
innréttingu
Frí teiknivinna og tilbobsgerb
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
Séra Óskar flytur fyrstu predik-
unina i Ólafsvíkurkirkju.
Settur í emb-
ætti á Ólafsvík
Ólafsvík - Fjölmenni var við guðs-
þjónustu í Ólafsvíkurkirkju sl.
sunnudag þegar sr. Ingiberg J.
Hannesson, prófastur í Snæfells-
ness- og Dalaumdæmi, setti ný-
skipaðan sóknarprest, sr. Óskar
Hafstein Óskarsson, í embætti í Ól-
afsvíkurprestakalli.
Fyrstu embættisverk hins unga
prests var svo að skíra barn áður
en hann sté í stól og flutti predik-
un. Aðalinntak ræðunnar var bæn-
in og gildi hennar. Lagði sr. Óskar
áherslu á að beðið væri af auðmýkt.
Hann kvaðst hlakka til að ganga
mót nýrri öld með söfnuði sínum.
Ólafsvíkingar bjóða sr. Óskar
Hafstein velkominn til starfa.