Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 27
Kofí Annan skoðar eyðilegginguna í a-tímorskum bæjum
Lofar aðstoð við að end-
urreisa Austur-Tímor
Dili, Liquisa. AP, AFP.
Reuters
Kofi Annan, frarakvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hughreystir fjöl-
skyldu sem missti ættingja í fjöldamorðum vígasveita í bænum Liquisa.
KOFI Annan, framkvæmdastjon
Sameinuðu þjóðanna, fór í gær í
sólarhringsheimsókn til Austur-
Tímor og sagði að samtökin væru
staðráðin í að gera allt sem í valdi
þeirra stæði til að aðstoða við end-
urreisn landsins. Annan hélt til-
finningaþrungna ræðu í bænum
Liquica þar sem hann minntist
fórnarlamba vígasveita stuðnings-
manna Indónesíustjórnar sem
frömdu fjöldamorð á Austur-Tímor
á síðasta ári.
Vígasveitirnar myrtu allt að 50
óvopnaða flóttamenn í kirkju í
Liquica í apríl og árásin var undan-
fari enn meiri blóðsúthellinga eftir
að Austur-Tímorar samþykktu
sjálfstæði með miklum meirihluta í
þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst.
„Mér finnst það sérlega átakan-
legt að guðshús skuli hafa verið
vanhelgað með þessum hætti,“
sagði Annan við um 5.000 íbúa
Liquica sem tóku á móti honum.
„Ég vildi geta sagt ykkur það sjálf-
ur að Sameinuðu þjóðirnar eru
hérna til að hjálpa ykkur að endur-
reisa landið. Við viijum hjálpa ykk-
ur að jafna ykkur á þessu hörmu-
lega tímabili í sögu ykkar.“
Annan bætti við að þjáningum
Austur-Tímora væri ekki lokið,
margir ættu enn um sárt að binda
og landsmenn yrðu að vera þolin-
móðir því endurreisnarstarfið tæki
langan tíma.
Friðargæslusveitir Sameinuðu
þjóðanna búa sig nú undir að taka
við öryggisgæslunni í allri Austur-
Tímor í lok mánaðarins, fimm mán-
uðum eftir að fjölþjóðlegt herlið
undir stjórn Ástrala náði landinu á
sitt vald. Herliðið er þegar farið
frá austur- og miðhluta landsins.
Sameinuðu þjóðirnar fá tvö til
þrjú ár til að búa Austur-Tímor
undir sjálfstæði. Samtökin eiga
gríðarmikið verk fyrir höndum því
endurreisa þarf landið því sem
næst frá grunni vegna mikillar
eyðileggingar af völdum vígasveita,
sem voru andvígar því að Austur-
Tímor fengi sjálfstæði.
Uppbygging geti
hafíst fyrir alvöru
„Peningamir eru farnir að
streyma inn þannig að hægt verður
að hefja uppbyggingarstarfið fyrir
alvöru og skapa ný störf,“ sagði
Annan. Hann fór einnig lofsamleg-
um orðum um starfsmenn Samein-
uðu þjóðanna á Austur-Tímor og
vísaði á bug ásökunum um að sam-
tökin hefðu dregið úr hömlu að
hefja uppbyggingarstarfið. Hann
skoraði ennfremur á um 100.000
austur-tímorska flóttamenn í Vest-
ur-Tímor, sem tilheyrir Indónesíu,
að snúa aftur til Austur-Tímor.
Indónesar hernámu Austur-Tímor,
sem var portúgölsk nýlenda, árið
1975 og talið er að um 100.000
manns - eða sjötti hver íbúi lands-
ins - hafi látið lífið í kjölfar innrás-
arinnar. Yfirráðum Indónesíu yfir
landinu lauk formlega í október.
Æðsti embættismaður Samein-
uðu þjóðanna á Austur-Tímor,
Sergio Vieira de Mello, og leiðtogi
austur-tímorskra aðskilnaðarsinna,
Jose Alexandre Gusmao, tóku á
móti Annan á flugvellinum í Dili.
Hann skoðaði einnig rústir húsa,
sem eyðilögðust í íkveikjum víga-
sveitanna í Dili.
Daginn áður hafði Annan rætt
við ráðamenn í Indónesíu og lagt
áherslu á að það væri hlutverk þar-
lendra yfirvalda að refsa þeim sem
bæru ábyrgð á blóðsúthellingunum
og eyðileggingunni á Austur-Tím-
or. Engin þörf væri á því að draga
þá fyrir alþjóðlegan dómstól ef
stjórnin í Jakarta stæði við loforð
sín um að sækja þá til saka í Ind-
ónesíu.
Prakkarastrik
tölvusérfræðings
„Clinton“
vildi meira
netklám
CHRISTOPHER Petro, sem er sér-
fræðingur í tölvuöryggismálum,
tókst nýlega að komast inn í viðtal
sem fréttamiðillinn CNN.com tók á
Netinu við Bill Clinton forseta, að
sögn BBC. Petro þóttist vera for-
setinn og hvatti til að klám á Netinu
yrði aukið.
Fréttastöðin segir að ekki hafi
fyrr verið tekið viðtal við starfandi
forseta og það sent út beint á Netið.
Sérfræðingurinn sagði að enginn
vandi hefði verið að komast í gegn.
„Þetta var algerlega óundirbúið.
Ég var bara að fylgjast með viðtal-
inu eins og aðrir ...Ég var beðinn
um gælunafn."
Notendur urðu því vitni að því aö
forsetinn sagði: „Sjálfur get ég sagt
að ég vildi að meira væri um klám á
Netinu.“ Petro segir þetta hafa ver-
ið það fyrsta sem sér datt í hug og
hann hafi alls ekki beitt aðferðum
tölvuþrjóta til að komast inn í við-
talið. „Ég vona að þetta græsku-
lausa prakkararstrik hafi haft þau
áhrif að liðsmenn CNN átti sig á því
að kerfið er ekki öruggt og það
verði að laga áður en einhver valdi
þeim eða gestum stöðvarinnar
raunverulegu tjóni.“
Fulltrúi CNN sagði að ekki væri
ætlunin að cndurskoða kerfið sem
notað væri. Allt bendi til að Petro
hafi getað notað gælunafnið Clinton
vegna þess að kerfið þoldi ekki
álagið og brast. Joe Lockhart, tals-
maður forsetans, sagði Clinton ekki
munu hætta að veita viðtöl á Netinu.
50% aukaafsláttur
AF ÚTSÖLUVÖRUM
Frá föstudegi til sunnudags er 50% aukaafsláttur af útsöluvörum í Nanoq,
fimmtíu prósenta aukaafsláttur af útsöluvörum. Ekki missa af þessu
tækifæri til að krækja í vandaða flík á enn betra verði. Kíktu í Nanoq
og vertu til!
^4
NANOQ+
Kringlunni 4-12 • Sími 575 5100
www.nanoq.is