Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Forystukreppa Kristilegra demókrata í Þýzkalandi eftir afsögn Scháubles
Flokksmenn hvattir til
að fara að enffu óðsleara
Bcrlín. AFP, Rcutcrs, AP. V.^
KRISTILEGIR demókratar í
Þýzkalandi (CDU) hófu í gær að
leita logandi ljósi að mögulegum
arftaka Wolfgangs Scháuble, sem í
fyrradag sá sig knúinn til að lýsa yfir
afsögn sinni sem leiðtogi flokksins
og þingflokksformaður. Ahrifamenn
í herbúðum þýzkra íhaldsmanna
hvöttu þó til þess í gær að flokks-
menn rösuðu ekki um ráð fram held-
ur gæfu sér þann tíma sem til þyrfti
til að leysa forystuvandann. Scháu-
ble víkur ekki formlega úr flokks-
leiðtogasætinu fyrr en á næsta
flokksþingi, sem áformað er að halda
í apnl.
Edmund Stoiber, leiðtogi CSU,
systurflokks CDU í Bæjarlandi,
hvatti til þess að „gæði yrðu látin
ganga fyrir hraða“ við val á eftir-
manni Scháuble.
Stoiber, sem er forsætisráðherra
Bæjaralands og harður íhaldsmað-
ur, er talinn gera sér vonir um að
verða kanzlaraefni CDU og CSU í
næstu Sambandsþingkosningum.
Fjármálahneykslið, sem skekið
hefur CDU undanfarna mánuði - frá
því Helmut Kohl, fv. kanzlari og leið-
togi flokksins til 25 ára, viðurkenndi
í lok nóvember að hann hefði haldið
úti kerfi leynilegra bankareikninga
til fjármögnunar flokksstarfsins -
hefur ekki aðeins rúið þennan
áhrifamesta stjórnmálaflokk í sögu
Þýzkalands eftir stríð trausti og
svipt hann möguleikanum á sigri í
Wolfgang Angela
SchSuble Merkel
mikilvægum héraðsþingkosningum
sem framundan eru, heldur einnig
grafið undan áhrifum flokksins sem
forystuafls stjórnarandstöðunnar.
Flokkstj órnarfundur
í gærkvöldi
Scháuble kallaði flokksstjórnina
saman í gærkvöldi til að ræða hvort
útnefna skyldi arftaka hans í emb-
ætti þingflokksformanns strax nk.
þriðjudag eins og áformað hefur ver-
ið, eða hvort bíða ætti fram yfir
kosningar til þings Slésvíkur Holt-
setalands, sem fara fram 27. febrúar.
Almennt er álitið að Friedrich
Merz, fjárlagasérfræðingur þing-
flokksins, eigi stuðning meirihluta
hans vísan til að taka við þingflokks-
formennskunni en hann virðist með
metnaði sínum og meintri hvatvísi
hafa fyrirgert stuðningi nokkurra
þingmanna, einkum í hópi liðsmanna
CSU, sem myndar sameiginlegan
Edmund Friedrich
Stoiber Merz
þingflokk með CDU á Sambands-
þinginu í Berlín. Með því að slá kjöri
nýrrar þingflokksforystu á frest
myndi jafnframt vera haldið opnu
embætti fyrir Volker Ruhe, sem var
varnarmálaráðherra í síðustu ríkis-
stjóm Kohls og er nú í forystu fyrir
kosningabaráttu CDU í Slésvík-
Holtsetalandi. Búizt er við að hann
tapi þessum kosningum.
Þótt liðsmenn CSU hafi formlega
ekkert að segja um það hver velst í
leiðtogasæti CDU, munu þeir þurfa
að eiga náið samstarf við hann, hver
sem það verður sem flokksþingið í
apríl velur til að gegna embættinu.
Hvatning Stoibers til að ígrunda
valið vel endurspeglar takmarkaða
hrifningu hinna kaþólsku íhalds-
manna í Suður-Þýzkalandi af Angelu
Merkel, núverandi framkvæmda-
stjóra CDU, sem eins og stendur þyk-
ir eiga einna bezta möguleika á að
hreppa flokksleiðtogasætið, en hún er
Volker Kurt
Riihe Biedenkopf
frjálslyndur austur-þýzkur mótmæl-
andi, 45 ára að aldri.
Auk Merkel hafa tveir eldri herra-
menn verið nefndir til sögunnar í
þessu sambandi. Bernhard Vogel, 67
ára gamall forsætisráðherra Þyr-
ingjalands, og Kurt Biedenkopf,
sjötugur héraðsleiðtogi Saxlands,
hafa þótt koma til greina til að veita
flokknum forystu í stuttan tíma, eða
þar til honum hefur tekizt að hreinsa
sig af afleiðingum fjármálahneyksl-
isins og byggja upp trúverðugleika
og traust á ný. Einnig hefur Ruhe
ekki verið afskrifaður sem mögulegt
leiðtogaefni, og svipað á við um Jur-
gen Ruttgers, héraðsleiðtoga CDU í
Nordrhein-Westfalen, hinu fjöl-
mennasta þýzku sambandslandanna
16, en hann þarf einnig að sanna sig í
kosningum í maí nk., auk þess sem
hann er fyrrverandi skjólstæðingur
Kohls, sem eins og sakir standa er
honum ekki endilega til framdráttar.
j9usaojsi|@s»oj3i| :|ieuia
iau'saojsq'MMM
t8Z9<60Z 00 •uoi6u|q8BM
18Z96 XOS O d
aoitsnr hoj saavMaa
Bin Laden á
eldspýtna-
stokk
ELDSPÝTNASTOKKUM með
auglýsingu á máli Urdúmanna með
mynd af skæruliðanum Osama bin
Laden hefur verið dreift í borginni
Pesháwar við landamæri Afganist-
ans.
Á cldspýtnastokkunum kemur
fram að 500.000 dollara verðlaun,
eða um 35 milljónir króna, eru í
boði fyrir hvern þann sem vísar á
bin Laden. Það er bandaríska send-
iráðið í Pesháwar sem keypti
auglýsinguna og er fullum trúnaði
heitið. Sú fjárhæð sem þar er í boði
fyrir handtöku bin Laden er þó
mun lægri en þær fimm milljónir
dollara sem ríkisstjórn Banda-
rikjanna tilkynnti að væru settar til
höfuðs skæruliðanum.
Rfkisstjorn Rúmeníu gengst við ábyrgð
Viðurkennir umfang
mengunarinnar
Wallström, sem sór um umhverfismál framkvæmdastjórnar ESB, ásamt
umhverfisráðherra Ungverjalands við komuna til Baia Mare í gær.
Baia Mare, Búkarest. AFP, AP.
MARGOT Wallström, sem fer með
umhverfismál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins (ESB), sagði í
gær samstöðu ríkja um að sá sem
bæri ábyrgð á blásýrumengun í
Dóná, Tisza og Szamosá skyldi bera
þann kostnað er hlytist af mengun-
inni. Wallström gaf þó einnig í skyn
að ESB myndi veita fjárhagslega
aðstoð við hreinsun ánna en yfirvöld
í Rúmeníu hafa nú í fyrsta skipti
viðurkennt umfang mengunarslyss-
ins sem varð þegar blásýrublandað
vatn frá gullnámu blandaðist vatni
Szamos-ár.
„Rúmenar vilja hvorki hylja né
draga úr umfangi slyssins," sagði
Romica Tomescu, umhverfisráð-
hen-a Rúmeníu, og sagði það mat
ríkisins að sá sem skaðanum ylli
skyldi bera ábyrgð. Blásýrumeng-
unin hefur valdið miklum skaða á
lífríki í Rúmeníu, Ungverjalandi og
Júgóslavíu.
Wallström kynnti sér aðstæður
við árnar Tisza og Baia Mare og við
staðinn þar sem blásýrublandað
vatnið flæddi frá stíflu gullnám-
unnar út í Szamosá, til að gera sér
grein fyrir umfangi slyssins og
meta þá aðstoð sem ESB geti veitt.
Hún sagðist strax hefjast handa við
að mynda alþjóðlega verkefnisnefnd
til að meta skaðann og draga úr
áhrifum mengunarinnar. Þá gagn-
rýndi hún viðhorf ástralska náma-
fyrirtækisins Esmeralda Explor-
ations Ltd. sem á hlut í námunni, en
fyrirtækið hefur dregið ábyrgð sína
í efa. „Þeir verða að vera mjög var-
kárir í yfirlýsingum sínum... Þetta
er alvarlegt mengunarslys. Fyrir þá
sem reiða sig á árvatnið er það
harmleikur," sagði Wallström og
kvað áhrif slyssins þó e.t.v. ekki að
fullu ljós fyrr en eftir 20-50 ár.
Eigendur gullnámunnar geta átt
von á fjölda málsókna í kjölfar
mengunarslyssins. Náman er í eigu
fjögurra rúmenskra ríkisfyrirtækja
og Esmeralda Exploration Ltd. sem
dregur í efa að blásýrublandað
vatnið sé ástæða mengunarslyssins
og hefur því sent sína eigin sérfræð-
inga á staðinn til að kanna orsakir.
„Það sem hefur forgang hjá okkur
núna er að komast að hinu sanna,“
sagði Brett Montgomery, stjórnar-
formaður fyrirtækisins.
Ungverjaland er án efa það það
ríki sem varð fyrir einna mestu
tjóni og segja Ungverjar að um 100
tonn af fiski hafa drepist í kjölfar
mengunarinnar. Þeir hafa hótað
málsókn og sagði Janos Martonyi,
utanríkisráðherra Ungverjalands,
ábyrgð Rúmeníu augljósa, yfirlýs-
ingar annars efnis væru óábyrgar.
Hann sagðist jafnframt harma að
óþekktir árásarmenn hefðu kastað
dauðum fiskum á sendiráð Rúmena
í Ungverjalandi í gær.
Petre Marinescu, forstjóri Rúm-
ensku vatnsveitunnar, sagði hins
vegar í viðtali við AFP-fréttastof-
una að klór en ekki blásýra hefði
drepið hundruð tonna af fiski í
Dóná. Of mikið klór hafi verið notað
af yfirvöldum til að eyða áhrifum
blásýrunnar. „Fiskarnir sem veidd-
ir hafa verið sýna einkenni sem
benda til að eitrunin sé ekki af völd-
um blásýru,“ sagði Marinescu og
sagði Ungverja verða að sanna úr
hverju fiskurinn hefði drepist.
Milosevic
endur-
kjörinn
flokks-
leiðtogi
SLOBODAN Milosevic, forseti
Júgóslavíu, var endurkjörinn
formaður serbneska sósíalista-
flokksins, á landsfundi flokksins
í Belgradí gær. Hann var einn í
framboði. Engar breytingar
voru gerðar á æðstu forystu
flokksins eða helstu stefnumið-
um. í ræðu, sem Milosevic flutti
hinum á að giska 2000 flokks-
þingsfulltrúum, sagði hann að
serbneski herinn hefði sigrað í
Kosovo og nú væri „nafn Serbíu
órjúfanlega tengt baráttunni
fyrir frelsi og sjálfstæði um all-
an heim“. Krafðist Milosevic að
alþjóðlegu friðargæslusveitirn-
ar í Kosovo, KFOR, og fulltrúar
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) yfir-
gæfu sjálfsstjómarhéraðið.
Staðhæfði hann að sveitimar
hefðu orðið til einskis gagns.
Sjálfur er Milosevic á lista yfir
stríðsglæpamenn hjá Alþjóða-
glæpadómstólnum í Haag. Að-
eins útvaldir blaðamenn fengu
að vera viðstaddir flokksþingið.
Klima víkur
ALFRED Gusenbauer var í
gær útnefndur formaður aust-
urríska Jafnaðarmannaflokks-
ins en Viktor Klima, fyrrver-
andi kanslari, sagði af sér
formennskunni eftir að viðræð-
ur hans við Þjóðarflokkinn fóm
út um þúfur. Þjóðarflokkurinn
tók síðar saman við hinn hægri-
sinnaða Frelsisflokk Jörgs
Haiders. Gusenbauer stendur á
fertugu og er yngsti formaður-
inn í sögu austurríska Jafnaðar-
mannaflokksins. Skammt er
síðan hann gekk til liðs við
flokkinn. Verður útnefning
hans staðfest á þingi flokksins í
apríl.
Viðræðum
um bætur
frestað
VIÐRÆÐUM um bætur til
þeirra, sem voru í þrælkunar-
vinnu í Þýskalandi á stríðsárun-
um, var frestað í Berlín í gær og
stefnt að næstu lotu í Washing-
ton 7. og 8. mars. Er um það
rætt hvernig skipta skuli bótun-
um, um 372 milljörðum ísl. kr.,
en það, sem kom í veg fyrir
samkomulag í Berlín, var sú
krafa fimm Austur-Evrópur-
íkja, Rússlands, Hvíta Rúss-
lands, Tékklands, Póllands og
Úkraínu, að bætur, sem renna
skulu til einstaklinga, verði
hækkaðar.
Norska
stjórnin í
hættu?
FLOKKARNIR tveir sem ráða
meirihluta þingsæta á norska
Stórþinginu, Hægriflokkurinn
og Verkamannaflokkurinn,
kynntu í gær áform um að láta
fara fram atkvæðagreiðslu um
umdeilt mál, það er hvort reisa
eigi gasorkuver í Noregi. Verði
af atkvæðagreiðslunni þarf
minnihlutastjórn Kjells Magne
Bondeviks annað hvort að
breyta afstöðu sinni til málsins
eða segja af sér.
I