Morgunblaðið - 18.02.2000, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 29
ERLENT
I eiiiangrun
á Netinu
Stanford. AP.
ÞVÍ meiri tími, sem fer í Netið, því
minni tími fer í hið daglega líf inni á
heimilinu eða utan þess. Er þetta nið-
urstaða rannsóknar, sem greint var
frá í fyrradag.
Fólk, sem er á Netinu fimm
klukkustundir á viku eða lengur, hef-
ur minni tíma en annars væri til að
vera með fjölskyldu sinni og vinum og
horfir raunar einnig minna á sjón-
varp. „Því lengur, sem það er á Net-
inu, því minni tíma hefur það fyrir
raunverulegt fólk,“ sagði Norman
Nie, stjórnmálafræðingur við Stan-
ford-háskóla í Kalifomíu, en hann
vann að rannsókninni ásamt Lutz
Erbring, prófessor við Frjálsa há-
skólann í Berlín.
Rannsóknin náði til 4.113 Banda-
ríkjamanna á 2.689 heimilum. Kvaðst
þriðjungurinn vera lengur en fimm
klukkustundir á Netinu á viku og 13%
þeirra sögðust hafa minni tíma aflögu
fyrir fjölskylduna. 8% þeirra kváðust
taka minni þátt í félagslífinu en áður.
Næstum 60% sögðust horfa minna
á sjónvarp en áður og munaði nokk-
um veginn sama tíma og fólk ver í
Netið. I ljós kom einnig, að því leng-
ur, sem fólk hefur haft Netið, því
meiri tími fer í það en af einstökum
athöfnum er það tölvupósturinn, sem
er tímafrekastur. Netið virðist líka
ýta undir, að fólk flytji vinnuna að
hluta inn á heimilið án þess, að nokk-
uð dragi úr þeim tíma, sem það er á
hinum eiginlega vinnustað.
-----------------
Skattheimtu-
menn krefj-
ast vopnaðr-
ar verndar
The Daily Telegraph.
KÍNVERSKIR skattheimtumenn
hafa nú óskað eftir vernd vopnaðra
lögreglumanna eftir að 20 skatt-
heimtumenn hafa verið drepnir af
fólki sem reynir að komast hjá því
að greiða skatta sína.
A vegum kínversku skattheimt-
unnar standa nú yfir viðræður um
að ráða til starfa vopnaða lögreglu-
þjóna sem einnig gætu aðstoðað við
skattheimtuna sjálfa með því að
ógna þeim sem reynast ófúsir að láta
fé sitt af hendi. Kínverjar skulda nú
hundruð milljarða króna í ógreidda
skatta og hafa rúmlega 20 skatt-
heimtumenn verið drepnir síðan
1993. Þá hafa hundruð þeirra særst í
árásum í sveitum landsins, að sögn
Jin Renqing, ráðherra skattamála.
Nokkrir háttsettir starfsmenn
skattheimtunnar draga þó gagnsemi
vopnaðra skattheimtumanna í efa.
„Jafnvel lögreglan kemur ekki til
aðstoðar þegar hópur ófriðarseggja
neitar að greiða skatta sína,“ var
haft eftir einum skattstjóranna.
Frásagnir sem þessar eru sjald-
gæf staðfesting kínverska ríkisins á
því ofbeldi sem lengi vel hefur ein-
kennt skattheimtu í dreifbýlli
byggðum landsins. Bændur og
verkamenn neita gjarnan að greiða
skatta sem eru oft á tíðum fyrirskip-
aðir eftir hentisemi misheiðarlegra
skattstjóra viðkomandi byggðar.
Kastari
1.895 kr.
r\cisiciri
Halogenljós
4.().")0 kr.
Eldhúsljós
2.395 kr.
Ljósakróna
9.995 kr.
Garðljós
5.995 kr.
Eldhúsljós
1.995 kr.
Þú finnur ljósið sem þú leitar að í ljósadeild Húsasmiðjunnar
Skráðu þig
í vefklúbbinn
www.husa.is
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Kennslustund í hönnun
Óvenjuskemmtileg og djörf hönnun sem svo sannarlega hefur
slegið í gegn í Evrópu. Multipla var valinn bfll ársins í Danmörku
M.a er hann eini bíllinn til sýnis á Nýlistasafninu í New York sem
dæmi um frábæra hönnun. Sex sæti, gott aögengi og yfirdrifið
pláss fyrir alla. Undrabíll sem þú verður að skoða og prófa til að
trúa. Multipla Fiat er hinn fullkomni fjölskyldubíll.
Fiat Multipla Verð kr. 1.630.000
*ABS hemlalæsivörn
*4 loftpúöar
*6 sæti
‘Rafstýrö hæðarstilling framsætis
*6 x þriggja punkta belti
*160w hljómflutningstæki
‘Fjarstýrðarsamlæsingar
*Grindarbyggður
'Upphitaðirog rafdrifnirspeglar
*8 ára gegnumtæringarábyrgö
straktor
.■n
Opiö á laugardögum 13-17