Morgunblaðið - 18.02.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 31
LISTIR
Kammersveit Reykjavíkur leikur verk eftir Henryk Górecki
Ymist hægferðug og
fallega hljómandi eða
kröftug og áleitin
Morgunblaðið/Sverrir
Þóra Kristín Johansen leikur einleik á sembal á tónleikum með
Kammersveit Reykjavíkur í Langholtskirkju á sunnudagskvöld.
Afdrifarík kynni af
sembal Schroeders
KAMMERSVEIT Reykjavíkur
leikur verk eftir pólska tónskáldið
Henryk Górecki á tónleikum í
Langholtskirkju á sunnudagskvöld
kl. 20.30. Á efnisskránni eru fjögur
verk: Þrjú lög í gömlum stíl fyrir
strengjasveit, frá árinu 1963, Kon-
sert op. 40 fyrir sembal og
strengjasveit, frá 1980, Góða nótt
op. 63 fyrir altflautu, píanó, sópran
og tam-tam, frá 1990, og Lítil sál-
umessa op. 66 fyrir píanó og 13
hljóðfæri, frál993.
Þóra Kristín Johansen leikur
einleik í sembalkonsertinum og
einsöngvari í Góða nótt er Marta
Guðrún Halldórsdóttir. Stjórnandi
á tónleikunum er Bernharður
Wilkinson. Rut Ingólfsdóttir, fiðlu-
leikari og listrænn stjórnandi
Kammersveitar Reykjavíkur, segir
að með þessum tónleikum vilji
Kammersveit Reykjavíkur gefa
áheyrendum tækifæri til að kynn-
Djass á Kaffi
Nauthól
SÖNGKONAN Þóra Gréta og
Andrés Þór gítarleikari leika
þekktar djassperlur á Kaffi
Nauthól í Nauthólsvík á laugar-
dagskvöldið kl. 20:30.
Sýningum lýkur
Gallerí Fold
Samsýningunni Margt
smátt, 31 listamaður í baksal
Gallerís Foldar lýkur á sunnu-
dag. Galleríið er opið laugardag
og sunnudag kl. 10-17.
Hallgrímskirkja
Sýningu Leifs Breiðfjörð á 17
vatnslita- og pastelmyndum
lýkur fimmtudaginn 24. febrúar
ast verkum Góreckis. Henni vitan-
lega hafi verk eftir hann ekki
heyrst hér á landi áður utan einu
sinni, þegar Sinfóníuhljómsveit Is-
lands flutti Sorgarsinfóníu hans
fyrir nokkrum árum. Það var ein-
mitt hún sem gerði Górecki heims-
frægan á sínum tíma. Hann hafði
þá stundað tónsmíðar í áratugi en
verk hans voru lítt þekkt nema í
þröngum hópi. Árið 1993 skaust
Sorgarsinfónían svo upp í efstu
sæti vinsældalista í Bretlandi og
seldist í hundruðum þúsunda eint-
aka.
Hefur haldið sig
Qarri sviðsljósinu
Górecki hafði þegið boð Kamm-
ersveitarinnar að koma til Islands
og vera viðstaddur tónleikana en
að sögn Rutar getur því miður ekki
orðið af því vegna veikinda hans að
undanförnu. Tónskáldið hefur um
ævina haldið sig fjarri sviðsljósinu,
bæði vegna heilsufars síns og mik-
illar þarfar fyrir einveru. Górecki
er fæddur árið 1933 í borginni Kat-
ovice, þar sem hann býr enn, en
hann er auk þess langdvölum uppi
í fjöllunum þar sem hann á hús og
semur tónlist sína í ró og næði.
Rut kveðst vona að tónleikarnir
gefi gott sýnishorn af tónsmíðum
Góreckis, enda eru þrjátíu ár á
milli elsta verksins sem þar verður
leikið og hins yngsta.
„Górecki hefur sinn mjög svo
sérstaka stíl. Segja má að tónlist
hans sé mjög pólsk og á vissan
hátt austur-evrópsk. Maður getur
fundið miklar þjáningar í gegnum
tónlistina en þessi maður hefur ör-
ugglega þurft að þjást mjög mikið í
lífinu. Ýmist eru verkin hægferðug
og mjög fallega hljómandi, eða
mjög kröftug og allt að því áleitin.
Og þar í flokki er sembalkonsert-
inn, sem Þóra Kristín leikur," segir
Rut.
Forsala aðgöngumiða er í Máli
og menningu á Laugavegi. Tónleik-
arnir eru helgaðir minningu Lárus-
ar Sveinssonar trompetleikara en
hann var einn af stofnendum Kam-
mersveitar Reykjavíkur.
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem
Þóra Kristín Johansen semballeik-
ari kemur fram á tónleikum á Is-
landi, enda hefur hún dvalið í Hol-
landi í 28 ár, fyrst við nám og síðar
störf í hinum ýmsu tónlistarhópum;
dúóum, tríóum og kvartettum, en
hún hefur auk þess fengist við
kennslu. Á allra síðustu árum hefur
hún fært út kvíamar og sameinað
krafta tónlistar- og myndlistar und-
ir merkjum margmiðlunartækni en
nýverið gaf hún út níu DVD-diska
með verkum níu myndlistarmanna
og tónlist níu tónskálda í flutningi
Bifrons-hópsins. Afraksturinn má
sjá og heyra í Nýlistasafninu laugar-
daginn 26. febrúar nk.
Þóra sleit bamsskónum á Reyni-
melnum í Reykjavik og hóf ung nám
í píanóleik, fyrst hjá Hermínu S.
Kristjánsson og seinna hjá Jóni Nor-
dal. Fljótlega eftir að hún lauk
burtfararprófi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík hélt hún til fram-
haldsnáms í píanóleik í Amsterdam.
Þegar hún hafði numið þar píanó-
leik i eitt ár skipti hún yfir í sembal
og byijaði alveg upp á nýtt. „Svo
varð ég ástfangin og ílengdist," seg-
ir hún.
Fór ekki í fleiri
pianótíma eftir það
Hún rifjar upp hvernig hugur
hennar snerist frá píaninu að sem-
balnum á einum degi. „Það var eig-
inlega alveg óvart. Ég var beðin um
að spila Bach-sónötu með fiðluleik-
ara. Kennarinn hennar var Jaap
Schroeder, barokkfíðluleikari sem
er mörgum íslendingum að góðu
kunnur. Hann vildi endilega láta
okkur spila á uppmnaleg hljóðfæri,
svo við fórum heim til hans þar sem
hann var með sembal og æfðum þar.
Þar með var ekki aftur snúið - ég
innritaði mig í sembaldeildina dag-
inn eftir og fór ekki í fleiri píanó-
tíma eftir það,“ segir Þóra.
Alveg ný reynsla
Hún segir sembalkonsert Góreck-
is afar skemmtilegt verk en þekkti
ekkert til tónskáldsins né verka þess
áður. „Mér finnst líka mjög gaman
að spila með svona góðu tónlistar-
fólki og skemmtilegum stjómanda,"
segir Þóra og hælir Bemharði Wilk-
inson á hvert reipi. Svo upplýsir hún
að þrátt fyrir langan tónlistarferil
sé þetta f fyrsta sinn sem hún spili
undir stjóm hljómsveitarstjóra, þar
sem hún hafi jú alla tíð leikið með
minni hópum. „Svo þetta er alveg ný
reynsla," segir hún og viðurkennir
að hún sé ennþá með dálítinn fiðr-
ing. „Reyndar hef ég einu sinni ver-
ið beðin um að spila með hljómsveit í
Amsterdam, á synthesizer, en ég var
rekin vegna þess að ég kom alltaf
vitlaust inn, skildi ekki slagið,“ segir
Þóra hlæjandi, „annars var það allt í
lagi - þetta var svo leiðinlegt verk.“
DflGflR
14.-19. febrúar
E3
iJi
bók/ðta. /túdei\t\
Stúdentaheimiiinu við Hringbraut • Sími 5700 777
TOLVUBOKH
25-70
% *3ss&-*
afsláttur af öllum t‘’lvste$‘ur!
erlendum tölvubókum
Nú eru hinir árlegu tölvubókadagar BóksöLu stúdenta 1 fullum gangi.
Mörg þúsund bókatitlar!
Ef þú átt ekki heimangengt er www.boksala.is
einföLd og örugg leið til að nálgast bækurnar.
Einnig má nátgast þær á www.visir.is.
Nú er leikur einn að versla á Netinu
Eftir gagngorar ondurbætur gotum við fullyrt
að netverslun Bóksölu stúdenta só ein sú
fullkomnasta á landinu.
Nýtt viðmót og nýjar lausnir svara auknum
kröfum notenda um aðgengi og öryggi og
síðast en ekki síst lágt vöruverð.
Blrgðastaða
Þeir sem versla é vefnum sjá strax hvort varan er til (
versluninni eða hvort þarf að útvega hana f rá útgefanda.
ðryool
Bóksalan notar SSL dulkóðunarkerfið, hið sama og
bankar og sparisjóðir nota.
bó«/»AViadcfvU.
'á'-
<vsp^
PÓSTURINN
bók/fcla. /túdeivtk. @
visir.is
D
Ertu í tímaþröng?
„F0R BUSY PE0PLE" eru handbækur fyrir
þá sem hafa lítinn tíma en þurfa að læra
hlutina hratt og örugglega. Við bjóðum
eftirtaldar bækur á einstöku verði:
The Internet, Access 2000, Excel 2000,
Word 2000, Office 2000,
og FrontPage 2000.