Morgunblaðið - 18.02.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 33
LISTIR
Emil Þór Guðmundsson skoðar myndir Ljósmyndarafélagsins.
Sýning á ljósmynd-
um í Gerðarsafni
SÝNING Ljósmyndarafélags íslands
og Blaðaljósmyndarafélags íslands
verður opnuð á morgun, laugardag,
kl. 15 í Gerðarsafni, Listasafni Kópa-
vogs, og stendur til 19. mars. Sýn-
ingin er jafnframt samkeppni blaða-
Ijósmyndara um bestu fréttamyndir
ársins. Samkeppnin skiptist í fjóra
aðalflokka, fréttir, fþróttir, manna-
myndir og opinn flokk. Undir opna
flokkinn falla landslagsmyndir,
tískuljósmyndir, skoplegar myndir,
myndraðir og myndir úr daglega líf-
inu.
Liðlega 500 myndir bárust í sam-
keppni blaðaljósmyndara og úr þeim
valdi dómnefnd 128 myndir sem eru
á sýningu blaðaljósmyndara.
Sú nýbreytni einkennir sýning-
arnar tvær að flestar myndanna eru
unnar í stafrænu formi og prentaðar
á stafræna stóra prentara. Myndim-
ar á sýningu Ljósmyndarafélagsins
eru allar unnar stórar, allt frá því að
vera lxlm og þaðan af stærri. Mynd-
imar bera með sér hversu víðfeðmt
myndefni Ijósmyndaramir velja sér,
allt frá andlitsmyndum á myndstofu
til háspennuvirkja á hálendinu.
Auk þessara tveggja sýninga er
sérstök sýning á verkum Vigfúsar
Sigurgeirssonar ljósmyndara. Þar
gefur að líta ýmsar svipmyndir frá
liðnum tímum og er sýningin haldin
í aldarminningu Vigfúsar.
Morgunblaðið/Golli
Jóhann Torfason, Krislján
Logason og Birgir Snæbjörn
Birgisson skoða myndirnar á
sýningu blaðaljósmyndara.
Fyrirlestrar o g
námskeið í LHÍ
HJÁ Listaháskóla íslands eru
framundan tveir fyrirlestrar og þrjú
námskeið. Skúlína Kjartansdóttir
myndlistarmaður flytur fyrirlestur
á Laugarnesvegi 91, stofu 24, mánu-
daginn 21. febrúar kl. 12.30. Skúlína
vinnur við rýmishönnun hjá tölvu-
M-2000
Föstudagur 18. febrúar:
Óvæntir bólfélagar - fyrsta
stefnumót. Hótel Borg kl:
21.00.
Fyrsta stefnumót Óvæntra
bólfélaga skartar ögrandi
sammna listamanna úr ólík-
um listgreinum; Megasi og
Gjörningaklúbbnum (The
Icelandic Love Corporation);
Helvitis slagverkssinfóníunni
undir stjórn Mattíasar Hem-
stock og Telefóníu kvöldsins
undir stjórn Andrew
McKenzie. Plötusnúður
stefnumótsins er dr. Gunni.
Óvæntir bólfélagar munu
skjóta upp kollinum í hverj-
um mánuði það sem eftir lifir
menningarársins.
Miðasala: Forsala hjá Tólf
tónum og við inngang. Miða-
verð kr. 1000.
leikjaframleiðendum í Liverpool og
fjallar fyrirlesturinn um störf henn-
ar þar.
Liivia Leshkin tískuhönnuður frá
Eistlandi flytur fyrirlestur miðviku-
daginn 23. febrúar í Skipholti 1,
stofu 113, kl. 12.30.
Leshkin fjallar um tískuhönnun
og það hvernig tískuhönnuður þarf
að bregðast við þörfum mismunandi
samsettra hópa viðskiptavina.
Námskeið
Borgarsýn nefnist fyrirlestraröð
um „útsýni" í myndlist. Með tilliti til
listasögunnar verður fjallað um
borgarlandslag í víðu samhengi.
Kennari er Einar Garibaldi Eiríks-
son myndlistarmaður. Kennt verður
í stofu 113, Skipholti 1, inngangur B
og hefst námskeiðið annan mánu-
dag, 28. febrúar.
Anna Þóra Karlsdóttir mynd-
listarmaður kennir á námskeiði sem
nefnist Flókagerð sem hefst 3. mars
nk. Ýmsir möguleikar tækninnar
verða kynntir og þátttakendur
koma með hugmyndir sem þeir hafa
áhuga á að útfæra. Kennt verður í
stofu 112, Skipholti, inngangur B.
Á námskeiði sem nefnist Módel-
teikning verður lögð er áhersla á
stöðu, hlutfoll og líkamsuppbygg-
ingu. Kennari er Hafdís Ólafsdóttir
myndlistarmaður. Námskeiðið hefst
6. mars. Kennt verður í stofu 411,
Skipholti 1, inngangur B.
Smámyndasýniiig’
Morgunblaðið/Golli
Frá samsýningu listamanna í Galleríi Fold.
Gallerí Fold
ÝMSIR LISTAMENN
Sýningin er opin frá 10 til 18
virka daga, frá 10 til 17 laugar-
daga og frá 14 til 17 sunnudaga.
Til 20. febrúar.
SMÁMYNDIR era nú til sýnis í
Galleríi Fold og er þar um að ræða
verk eftir ekki færri en þrjátíu og
einn listamann, alls níutíu og níu
myndir. Þannig var til sýningar-
innar stofnað að öllum var boðið að
senda inn verk. Alls bárust um 200
verk frá tæplega fimmtíu lista-
mönnum og úr þeim var valið það
sem nú má skoða í sýningarsaln-
um. Eins og von er til er sýningin
fjölbreytt, aðferðir ólíkar og við-
fangsefnið af ýmsum toga, jafn-
framt því sem gæðin eru auðvitað
misjöfn þegar svo vítt svið er kann-
að. Listamennirnir koma líka víðs
vegar að. Innan um er fólk sem á
að baki langan feril og er löngu
orðið þekkt af list sinni, en á sýn-
ingunni má líka sjá verk margra
sem fáir kannast líklega við.
Af þessari sýningu má sjá að
ótrúlega margir eru að fást við list-
sköpun í landinu auk þeirra sem
mest ber á og sýna reglulega í gall-
eríum og söfnum. Þessi viðleitni er
listinni í landinu afar mikilvæg því
líkt og í öðrum greinum gengur
það ekki að aðeins örfáir sinni
starfinu ef listin á að blómstra og
búa að áhugasömum og kunnugum
njótendum. Listin býr að kröftugri
„grasrót" - svo beitt sé klisjunni -
og mikilli breidd í sköpun. Þó er að
sjálfsögðu líka nauðsynlegt að
nálgast þessa miklu breidd með
gagnrýnu hugarfari og gera mikl-
ar kröfur til þeirra sem vilja sýna
verk sín og kynna.
Gallerí Fold gegnir mikilvægu
hlutverki í listalífi Reykjavíkur
enda er það langstærsta listhúsið í
borginni. Sýningarsalir þar hafa
nýlega verið stækkaðir um helm-
ing svo rýmra er um verkin og
kostur gefst á að greina betur á
milli listtegunda og -manna. Þarna
er að finna mikið úrval verka eftir
afar stóran hóp fólks, allt frá
þekktum málurum af eldri kynslóð
til ungra og óþekktra listamanna;
allt frá olíumálverkum að leirker-
um og -krúsum. Þó einbeitir gall-
eríið sér að því sem kalla mætti
„hefðbundna" eða „aðgengilega"
list og sýnir ekki verk sem kenna
má við nýrri stefnur í listinni eða
avant-garde list.
Verkin á smámyndasýningunni
endurspegla þessar áherslur í
rekstri gallerísins og gera ekki of
miklar kröfur til áhorfandans.
Nær allar myndirnar á sýningunni
eru hins vegar vandlega útfærðar
og af greinilegri tilfinningu. Sýn-
ingin er falleg og verkin líka en þar
sem aðeins eru sýnd tvö til fjögur
verk eftir hvern listamann er ekki
gott að meta frekar framlag hvers
og eins.
Jón Proppé
af öllum úlpum föstudag, laugardag og sunnudag
Frábært úrval