Morgunblaðið - 18.02.2000, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakurhf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AFSKIPTIESB AF
INN ANRÍKISMÁLUM
STJÓRNARMYNDUNIN í Austurríki með aðild Frels-
isflokks Jörgs Haiders kallaði fram harkaleg viðbrögð
pólitískrar forustu Evrópusambandsins. Ráðherraráð sam-
bandsins hótaði að einangra Austurríki og rjúfa samstarf
við landið, sem er aðili að þessu evrópska ríkjabandalagi.
Framkvæmdastjórnin í Brussel fór rólegar í sakirnar, þar
sem hún hefur vafalaust gert sér grein fyrir þeim erfiðleik-
um, sem sambandið stæði frammi fyrir kæmi hótun ráð-
herraráðsins til framkvæmda gagnvart einu aðildarríkinu.
Framferði þeirra pólitísku leiðtoga, sem skipa ráðherra-
ráð ESB, rekja sumir til ákalls austurrískra flokksbræðra
þeirra, sem voru að missa völdin. Hefur íhlutunin vafalaust
skaðað Evrópusambandið til framtíðar, því sjónir manna
hafa í kjölfarið beinzt að yfirþjóðlegu valdi þess. Um þetta
var fjallað í Reykjavíkurbréfi sl. sunnudag og þar sagði
m.a.: „Með því að hafa afskipti af stjórnarmyndun og póli-
tískri þróun í einu aðildarríkjanna hefur Evrópusambandið
beitt sér með áður óþekktum hætti. Sambandið kemur nú
fram sem pólitískt afl og beitir kröftum sínum inn á við. í
þessu efni er rétt að hafa í huga, að það voru jafnaðarmenn í
ESB, sem einkum knúðu fram viðbrögðin innan sambands-
ins við stjórnarmynduninni í Austurríki. Skriðþunga sam-
bandsins var síðan beitt í pólitískum tilgangi gegn einu að-
ildarríkjanna.
Hér ræðir því um þáttaskil á vettvangi ESB og atburð,
sem kann að hafa áhrif á fjölmörgum sviðum.“ Nokkru síð-
ar segir í Reykjavíkurbréfinu:
„I umræðum um þessi innanríkismál Austurríkis hefur
ýmsum þótt afskipti Brussel vísbending um það sem gæti
gerst í litlum fullvalda ríkjum sem hefðu ekki sama bol-
magn og gamalt stórveldi eins og Austurríki og ekki fráleitt
að til að mynda íslendingar gæfu því gaum. Það mætti líka
hugleiða þau orð Halldórs Laxness í Skáldatíma þar sem
hann ekki síst gerir upp við bitra reynslu sem samfylgdar-
maður marxismans, að á Janusar-höfðinu eru tvö andlit,
andlit nasismans og andlit marxismans. Evrópusambandið
hefur aldrei gert athugasemd við það, að þetta gamla andlit
marxismans blasi við þjóðunum. En í þeim efnum er víða
pottur brotinn. Það væri líka niðurlægjandi og óviðunandi,
t.a.m. fyrir litla þjóð, að eiga yfír höfði sér sífelldar athuga-
semdir um innanríkismál ef sá gállinn væri á skriffinnsku-
kerfinu í aðalstöðvum þessa annars að mörgu leyti merka
sambands.“
Davíð Oddsson, forsætisráðherra, vék að viðbrögðum
Evrópusambandsins við stjórnarmynduninni í Austurríki í
ræðu sinni, sem hann flutti á Viðskiptaþingi Verzlunarráðs
Islands í fyrradag. Forsætisráðherra sagði m.a.:
„Um þessar mundir er þó ekkert sem þrýstir á aðild ís-
lands, enda hneigist sambandið nú í þveröfuga átt við okkar
hagsmuni. Embættismannakerfi Evrópusambandsins og
sú reglusetning sambandsins sem ekki tengist viðskiptum
og innri markaðinum verður sífellt fyrirferðarmeiri í aðild-
arríkjunum. Æ víðfeðmara verður hið pólitíska inngrip
sambandsins í þætti sem fram til þessa hafa verið hluti lýð-
ræðislegs ákvörðunarferlis aðildarríkjanna, t.a.m. í skatta-
og velferðarmálum. Smærri ríki sambandsins hafa sífellt
minni áhrif á sín mál og manna færri lykilstöður á vegum
þess. Hin fljótfærnislegu viðbrögð ráðherraráðs Evrópu-
sambandsins við kosningum og stjórnarmyndun í Austur-
ríki kristalla vel þessi síauknu afskipti og hafa fært þau á
nýtt og áður óþekkt plan. Meginskýringarnar sem utanrík-
isráðherrar Þýskalands og Bretlands gáfu á þeirri aðgerð
voru ekki hin ógeðfelldu pólitísku sjónarmið formanns ann-
ars stjórnarflokksins í kynþáttamálum, heldur var áhersl-
an á að sá væri andvígur stækkun Evrópusambandsins og
auknu samrunaferli. Því væri ekki hægt að samþykkja í
Brussel að flokkur hans tæki þátt í ríkisstjórn í Austur-
ríki.“
Það skýtur nokkuð skökku við, að einmitt nú voru birtar
niðurstöður úr könnun, sem gerð var í desembermánuði sl.,
um afstöðu íslendinga til þess, að ríkisstjórnin hefji við-
ræður án skuldbindinga við Evrópusambandið. Samkvæmt
henni telur 51% landsmanna sig því sammála eða mjög
sammála. Hins vegar skiptast landsmenn í tvo jafna hópa í
afstöðunni til aðildarumsóknar, 32% í hvorum.
Hvort afskipti ráðherraráðs ESB af innanríkismálum í
Austurríki hefðu haft áhrif í niðurstöðu slíkrar skoðana-
könnunar skal ósagt látið. Hins vegar má fullyrða, að flestir
Islendingar tækju því illa ef forusta Evrópusambandsins
reyndi að hlutast til um íslenzk innanríkismál, t.a.m. sjáv-
arútvegsmál. í því ljósi ber að skoða ummæli forsætisráð-
herra.
Ný ,j ar ðgangaáætlun Vegagerðarinnar til næ
Næstu jarðgö
fyrir norðan c
Samgönguráðherra
kynnti jarðgangaáætlun
Vegagerðarinnar og for-
könnun hennar á veg-
tengingu milli lands og
Eyja í gær. Arna
Schram skýrir frá blaða-
mannafundi ráðherra og
skýrslunum tveimur og
áætlunum um að næst
verði byggð jarðgöng
fyrir norðan og austan.
SAMGÖNGURÁÐHERRA,
Sturla Böðvarsson, kynnti
í gær langtímaáætlanir
Vegagerðarinnar um gerð
jarðganga á íslandi og tók
fram við það tækifæri að hann legði
til að jarðgangagerð milli Siglufjarð-
ar og Ólafsfjarðar annars vegar og
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
hins vegar njóti forgangs og yrði
boðin út í einum pakka að lokinni
frekari rannsókn og öðrum undir-
búningi á svæðunum. Fram kom á
kynningarfundinum að miðað væri
við að rannsóknir á svæðunum gætu
hafíst á þessu ári en talið væri að
þær gætu staðið yfir næstu tvö árin
á eftir. Að því búnu tæki sjálf jarð-
gangagerðin við og talið að hún gæti
staðið yfir í samtals um sex ár þ.e.
um 4 ár fyrir norðan og um 2 ár fyr-
ir austan miðað við að göngin verði
unnin frá báðum endum. „Ljóst er að
mikil hagkvæmni næst út úr því að
bjóða út svo stóran pakka sem nær
yfir langt tímabil og þess vegna mun
ég gera tillögu um að þessi fyrr-
nefndu tvö verkefni verði boðin út í
einu lagi,“ sagði samgönguráðherra
en tók fram að það væri háð því
hvernig rannsóknum miðaði á hvoru
verkefninu yrði byrjað. „Framvinda
stóriðjuframkvæmda á Austurlandi
getur einnig haft áhrif á það á hvor-
um staðnum verður byrjað,“ bætti
ráðherra við og lagði mikla áherslu á
þessi síðustu orð sín.
í fyrrgreindri áætlun Vegagerðar-
innar er einnig gert ráð fyrir því að
jarðgöng milli Amarfjarðar og Dýra-
fjarðar verði eitt af næstu verkefn-
um í jarðgangagerð og kom fram á
fundinum að líklegt væri að rann-
sóknir og undirbúningur á því svæði
hæfust á þessu ári en að ekki yrði
farið út í sjálfar framkvæmdirnar
fyrr en lokið hefði verið við fyrr-
nefndu verkefnin tvö, þ.e. jarðganga-
gerð milli Siglufjarðar og Ólafsfjarð-
ar annars vegar og Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar hins vegar. Gert er
ráð fyrir því að garðgangagerðin fyr-
ir vestan taki tvö ár og því er miðað
við að öll þessi þrjú jarðgangaverk-
efni sem hér hafa verið nefnd taki
alls tíu ár sé gengið út frá því að
unnið sé út frá báðum gangaendum.
Kostnaðaráætlun fyrir verkefnin
þrjú er rúmir 9 milljarðar króna
„Það þýðir að jafnaði ríflega 1.100
milljónir á ári, ef miðað er við að öll
göngin verði einbreið. Með tvíbreið-
um göngum í öllum tilfellum yrði
heildarkostnaður um 11 milljarðar
og árlegur kostnaður að meðaltali
tæplega 1.400 milljónir," segir í áætl-
un Vegagerðarinnar en í máli Hreins
Haraldssonar, formanns þeirrar
nefndar sem hafði veg og vanda af
áætlanagerðinni, kom fram að frekar
væri gert ráð fyrir því að göngin fyr-
ir norðan og austan yrði tvíbreið en
Morgunblaðið/Þorkell
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti jarðgangaáætlun
á blaðamannafundi í gær.
TÖOm ff.y.s.1
kámbjjall U"
Jarðgöhg
5,3 km
120-150 mhy.s^
ivarfjörðui
^fjorði
10 km
h
i-u-X esi /. Y, ',
/
göngin fyrir vestan einbreið. Miðað
við það yrði áætlaður samanlagður
kostnaður fyrstnefndu ganganna um
8,3 milljarðar og heildarkostnaður
ganganna þriggja um 10,5 milljarðar
króna.
Þegar samgönguráðherra var innt-
ur eftir því hvernig hann hygðist
fjármagna þessi verkefni tók hann
fram að ekki lægi fyrir áætlun um
fjármögnun verkefnanna en benti þó
á að þau yrðu fjármögnuð sérstak-
lega. Nefndi hann m.a. að tií greina
kæmi að fjármagna þau með þeim
hagnaði sem fengist fýrir sölu ríkis-
eigna. „Það hefur komið fram að rík-
isstjórnin gerir ráð fyrir sölu ríkis-
eigna (á þessu kjörtímabili) til þess
að lækka skuldir annars vegar og til
þess að setja peninga í mikilvæga
mannvirkjagerð hins vegar. Ég á von
á því að þar verði svigrúm sem nýta
megi til samgöngubóta,“ sagði ráð-
herra og lagði áherslu á að ekki væri
ætlunin að setja á sérstaka skatta til
að afla verkefnunum fjár.
Göngin sýna arðsemi
Rótin að því að Vegagerðin hóf
vinnu við umrædda skýrslu er þings-
ályktun sem Alþingi samþykkti í
mars 1999 um að samgönguráðherra
verði falið að vinna langtímaáætlun
um gerð jarðganga á íslandi. í
kjölfarið skipaði vegamálastjóri
vinnuhóp innan Vegagerðarinnar til
að vinna verkefnið en í honum voru
Hreinn Haraldsson, formaður hóps-
ins, sem áður var nefndur, Eymund-
ur Runólfsson og Gísli Eiríksson.
Auk þeirra voru svo skipaðir í stýri-
hóp þeir Helgi Hallgrímsson og Jón
Rögnvaldsson.
Á fundinum kom fram að tillögur
hópsins um langtímaáætlun í jarð-
gangagerð hefðu verið byggðar að
nokkru leyti á nýrri áherslum en
hingað til hefur tíðkast. Þessa er
einnig getið í skýrslunni en þar segir
að áður hafi við forgangsröðun jarð-
gangaframkvæmda verið litið til þess
að vetrareinangrun væri veigamesta
atriðið. „Hér má segja að meiri
áhersla sé lögð á göng sem geta
stækkað og styrkt byggðakjarna,
ekki síst með styttingu vegalengda.
Meginástæður þessarar viðhorfs-
breytingar eru tvær. Einn mikil-
vægra þátta til að sporna við stöð-
ugri fólksfækkun á landsbyggðinni
hlýtur að vera efling byggðakjarna
rn