Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 35 stu tíu ára lögð fyrir Alþingi n g verða >g austan sem eru það stórir, að þeir geta haldið uppi fjölbreyttu atvinnu-, mennta- og menningarlífi. Þá hefur komið í ljós [...] að nýlegir, vel upp- byggðir fjallvegir geta í mörgum til- fellum tryggt góðar heilsárssam- göngur og þótt vetrarþjónusta sé þar sívaxandi er kostnaður viðráðanleg- ur.“ Tillögur Vegagerðarinnar í skýrslunni miðast þannig við að áfram verði haldið á þeirri braut að byggja upp heilsársfjallvegi þar sem þess sé kostur og fresta um sinn gerð jarðganga á þeim stöðum, með- an enn sé verið að byggja upp hið al- menna vegakerfi landsins. Þannig er til dæmis lagt til að veg- ur milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar verði lagður í jarðgöngum, þar sem mjög erfítt er talið vera að byggja upp veg og tryggja vetrarþjónustu á Hrafnseyrarheiði, en hins vegar er það talið gerlegt á Dynjandisheiði. Þá kemur fram í skýrslunni að meg- inröksemd fyrir tillögu um jarðgöng milli Siglufjarðar og Ólafsjarðar sé sú að með því tengist Siglufjörður byggðum við Eyjafjörð á þann hátt að Eyjafjarðarsvæðið í heild verði öflugra mótvægi við höfuðborgar- svæðið. „Göng milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar þétta byggðina á Mið-Austurlandi og koma í stað hættulegs vegarkafla um Vattarnes, sem að öðrum kosti þarf að byggja upp á næstu árum,“ segir ennfrem- ur. Þá kemur fram að öll þessi þrjú verkefni komast næst því að sýna arðsemi með hefðbundnum reikniað- ferðum þar sem um töluverðar stytt- ingar vegalengda er að ræða. Jarðgangaáætlun endurskoðuð á fjögurra ára fresti I skýrslunni kemur fram að jarð- göng milli Siglufjarðar og Ólafsfjarð- ar myndu stytta leiðina milli kaup- staðanna um 45 km sé miðað við veginn um Lágheiðina. Vegalengdin milli kaupstaðanna yrði með öðrum orðum um 15 km. „Heildarkostnaður við þessa vegtengingu, þ.e. 10,2 km löng einbreið jarðgöng, 500 m langa vegskála og 4 km af nýjum vegum, er áætlaður um 4,3 milljarðar króna. Borið saman við nýjan veg um Lág- heiði er framkvæmdin talin geta skil- að tæplega 7% arðsemi og er þá mið- að við töluvert mikla umferðar- aukningu, mun meiri en á upp- byggðum Lágheiðarvegi. Með tví- breiðum jarðgöngum er heildar- kostnaður áætlaður um 5,3 millj- arðar,“ segir í skýrslunni. Jarðgöng milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar myndu stytta vega- lengdina milli þéttbýlisstaðanna um 30 km og verða um 22 km. Heildar- kostnaður með tvíbreiðum göngum, 150 m löngum forskálum og 7,5 km nýjum vegum utan ganga er áætlað- ur um 3 milljarðar. Þegar kostnaður við umræddar framkvæmdir á þessu svæði hefur verið borinn saman við endurbyggingu núverandi vegs milli staðanna og leggja á hann bundið slitlag reynist arðsemin vera um 4 til 8%. Þá kemur fram í skýrslunni að gert sé ráð fyrir því að jarðgöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar yrðu um 5,1 km að lengd en það myndi stytta leiðina milli staðanna um 25 km, þ.e. vegalengdina úr Arn- arfirði að Dýrafjarðarbrú. Kostnaður við þessar framkvæmdir er áætlaður um 2,3 milljarðar miðað við einbreið göng, tvo 100 m langa forskála og tæpa 7 km af nýjum vegum að göng- unum. Vinnuhópur Vegagerðarinnar sem áður var greint frá leggur til í skýrslunni að jarðgangagerð á ísl- andi sé gerð til tíu ára hverju sinni og endurskoðuð á fjögurra ára fresti. Miðað við það ætti að ákveða eftir fjögur ár í hvaða verkefni ætti að ráðast næst þ.e. þegar lokið hefur verið við þau þrjú verkefni sem hér hafa verið til umræðu. Vegagerðin gerir í skýrslunni tillögu um að þau verði á Vestfjörðum. Þar á eftir verði síðan ráðist í jarðgangagerð á Aust- fjörðum. Samkvæmt þessu koma jarðgöng varla til álita milli Staðar- sveitar og Kolgi’afarfjarðar, í Bröttu- brekku, Klettshálsi og fleiri stöðum fyrr en eftir 30 ár í fyrsta lagi. Vegtenging til Eyja ekki á dagskrá á næstunni A fundinum var einnig kynnt for- könnun Vegagerðainnnar um veg- tengingu milli Vestmannaeyja og lands en sú könnun var einnig gerð að tillögu Alþingis sem samþykkt var vorið 1998. í niðurstöðum forkönn- unarinnar kemur fram að aðrar lausnir en jarðgöng milli lands og Eyja komi ekki til álita vegna kostn- aðar en samkvæmt grófu kostnaðar- mati kosta jarðgöng milli lands og Eyja um 20 til 35 milljarða króna, svokölluð botngöng milli lands og Eyja um 110 til 140 milljarða og svo- nefnd flotgöng um 120 til 150 millj- arða. í skýrslunni eru tvær jarðganga- leiðir skoðaðar milli lands og Eyja. Önnur er í föstu bergi alla leið, þ.e. frá Eyjafjöllum og er um 26 km löng en hin leiðin er mun styttri eða um 18 km. Sú hefst við Kross í Landeyj- um en þar éru laus og opin jarðlög 40 til 50 metra þykk ofan á föstu bergi. í könnuninn kemur þó fram að báðar leiðirnar liggi um eldvirk svæði og einnig að óvissa sé um jarð- lög og eiginleika þeirra til jarð- gangagerðar. „Náttúrufarslegar ástæður valda því að áhætta við vinnslu og rekstur ganganna verður að teljast mikil miðað við þá þekk- ingu sem nú er fyrir hendi. Þekking- in er hins vegar takmörkuð og því er í raun ekki unnt að meta áhættuna svo að gagni verði,“ segir í könnun- inni. Þar kemur einnig fram að arð- semi fæst ekki af framkvæmdinni miðað við hefðbundna arðsemis- reikninga og lýsir Vegagerðin yfir þeirri skoðun sinni að ekki eigi að leggja í slíka fjárfestingu að sinni miðað við þá áhættu sem talin er vera á svæðinu. „Ef vilji er til að halda þessu máli áfram er brýnast að auka þekkingu á svæðinu til að festa hendur á áhættuni eftir því sem unnt er.“ Á fundinum kom fram í máli ráð- herra að hann teldi alls ekki að jarð- göng til Eyja væru með þessu af- skrifuð en benti á að til þess að af þeim geti orðið þyrftu nánari rann- sóknir að fara fram. Þær rannsóknir þyrftu þó að fara fram í samvinnu við stofnanir sem væru að vinna að jarðfræðirannsóknum í landinu. Einn helsti talsmaður vegtenging- ar milli lands og Eyja er Árni John- sen, formaður samgöngunefndar Al- þingis, en hann sagði aðspurður að niðurstöður könnunarinnar væru engin vonbrigði fyrir hann. Hann sagði hins vegar í þessu sambandi að það væri eðlilegt að farið væri var- lega þessum athugunum þar sem ýmsir óvissuþættir væru til staðar. Hann bendir þó á að komið hafi fram í skýrslunni að með nútímatækni ætti að vera hægt að gera göng milli lands og Eyja. „Ég tel þó rétt að það verði einnig skoðaðir aðrir möguleik- ar og mun ég beita mér fyrir því að það verði gerð úttekt á möguleikum ferjuaðstöðu á Bakkafjöru gegnt Eyjum og gerðar verði líkanaprófan- ir og aðrar skoðanir á því,“ sagði Árni Johnsen að síðustu. AP ítalskir hermenn standa vörð við brú er skilur að borgarhluta Serba og Albana í bænum Kosovska Mitrovica. Solana segir mikilvægt að Evrópusambandið geti í framtíðinni gripið til aðgerða á borð við þær í Kosovo upp á eigin spýtur. Sterkari, skuld- bundnari og ábyrgari Evrópa European Viewpoint. eftir Javier Solana ASÍÐASTA ári hefur Evrópu- sambandið tekið sögulegar ákvarðanir um stefnu þess í öryggis- og vamarmálum. Þetta eru mikilvægar ákvarðanir fyrir Bandaríkin og bandamenn Evrópu sem eru ekki aðilar að sambandinu. Þessar ákvarðanir heimila hinum evrópsku meðlimum bandalagsins að leggja meira til málanna innan NATO svo og í aðgerðum sem er stjórnað af NATO. Einnig er heimilað að þessi að- ilar taki frumkvæðið í aðgerðum sem ekki taka til allra bandamanna. Þessi stefnumörkun mun hafa mjög jákvæð áhrif á öryggismál beggja vegna Atl- antshafsins um leið og þær koma til framkvæmda. Hugmyndin um evrópskt öryggi og vamarmálastefnu er ekíci ný af nálinni. Hún hefur verið á dagskrá frá því í síð- ari heimsstyijöldinni. Raunveruleiki kalda stríðsins hafði hins vegar í för með sér að öryggismál Evrópu voru best tryggð í samvinnu við Bandaríkin. NATO reyndist eina stofnunin sem gat fengist við hvoru tveggja; að tryggja samstöðu milli ríkja beggja vegna Atl- antshafsins og skipuleggja öflugar vamir fyrir frjálsa og lýðræðislega Evrópu. Allar tilraunii- til að byggja upp sér- stakar evrópskar varnir hafa síðan ver- ið mótaðar í nánu samstarfí við NATO og með hvatningu frá meðlimum þess. Ef þróunin hefúr verið of hægfara hef- ur það oftar en ekki stafað af of veikri Evrópu en ekki of sterkri Ameríku. Það era einkum tveir þættir sem hjálpa okkur að skilja hvers vegna þessar breytingar eiga sér stað. í fyrsta lagi hefur upplausn Sovétríkj- anna leitt til róttækra breytinga á hemaðarlegu umhverfi í Evrópu. Hættan af stórfelldum árásum, hefð- bundnum eða óhefðbundnum, á aðild- arríki NATO blasa ekki lengur við. Þess í stað þurfum við að takast á við margvíslegar hættur sem ógna stöðug- leikanum í Evrópu, án þess þó að ógna tilvist viðkomandi samfélaga. Innan hins nýja hemaðarlega um- hverfis munu félagar okkar handan Atlantshafsins ekld endilega sækjast eftir afskiptum af svæðisbundnum eij- um í álfunni. Þær aðstæður munu koma upp að þeir muni vera ánægðir yfir því að Evrópa geti átt framkvæðið eftir að viðeigandi pólitískt samráð hef- ur átt sér stað. Síðara atriðið varðar samþættingu Evrópu og mótun sameiginlegra hags- muna innan hennar. Af þessu leiðir að aðilar Evróupsambandsins munu vilja koma sér upp nauðsynlegum tækjum til að standa vörð um þessa hagsmuni. Evrópusambandið heftir nú þegar yfir að ráða öflugum leiðum tíi halda uppi trúverðugri alþjóðlegri utanríkisstefnu í diplómatískum, hagfræðilegum og viðskiptalegum efnum. Það vill nú styrkja þessar leiðir enn frekar ef nauðsynlegt reynist að beita hervaldi þar sem veigamiklir hagsmunir era í húfi. Að þessu leyti hefur deilan í Kosovo vakið evrópska ráðamenn og almenningsálitið upp af svefni. Hún hefúr afhjúp- að vankantana á evrópsk- um hemaðarmætti hvort sem litíð er til einstakra ríkja eða Evrópu í heild. Þrátt fyrir nægjanlegan fjölda vopnaðara sveita geta Evrópumenn ein- ungis kallað til örlítið brot af þeim mætti sem nauðsynlegur er til að skipuleggja og viðhalda þeim í því skyni að bregð- ast við þeim ógnum við öryggi sem við horfumst nú í augu við og munum gera í framtíðinni. Leiðtogar Evrópusambandsins ákváðu á fundi sínum í Helsinki í des- ember að þessu yrði að breyta. Þeir ákváðu að Evrópusambandið yrði að auka styrk sinn svo það gæti bragðist við hættuástandi með áhrifaríkari hætti hvort sem væri á sviði hemaðar eða á öðrum sviðum. Þannig var ákveð- ið að árið 2003 yrðu ríki ESB að vera tilbúin að kalla út 60 þúsund manna herlið til að bregðast við á hættustund. Markmiðið er að ESB, ásamt öðrum ríkjum og samtökum sem geta gert til- kall til hlutverks á þessu sviði, leggi meira til alþjóðlegs friðar og öryggis í því skyni að viðhalda og styrkja öryggi Evrópu. Mai’kmiðið er ekki að skapa fjölþjóðlegan evrópskan her. Og það er ekki heldur stefnan að byggja upp nýtt hernaðarbandalag í Evrópu sem keppti við NATO eða kæmi í þess stað. Hér er heldur ekki verið að hervæða Evrópusambandið eða beina sjónum þess frá meginmarkmiðinu; samruna Evrópu. Hér er um að ræða jákvæða viðleitni í því skyni að styrkja ábyrgð og skuldbindingu Evrópusambands- ins. Auk þess að styrkja hernaðarmátt Evrópusambandsins hefur það ákveðið að efla getu þess til að bregðast við hættuástandi. Leiðtogar Evrópusam- bandsins hafa ákveðið að sambandið samhæfi getu sína til að bregðast við á áhættutímum. Eins og nýleg reynsla hefur leitt í Ijós krefst þetta mun meira' en hernaðarlegra afskipta. Til að ná árangri á þessu sviði skiptir sköpum að geta beitt öllum þeim tækjum sem til staðar era: aðstoð á sviði hagstjórnar og tækni; borgaralega lögreglu og tæki til að byggja upp stofnanir; hvatningu á sviði viðskipta eða viðskiptaþinganir og þannig mætti áfram telja. Þessi tæki gætu þvingað deiluaðila að samningaborðinu og hjálpað til að byggja upp hagkerfi og endurreisa samfélög átakasvæða. Evrópusambandið býr yfir einstökum leiðum til að veita slíka alþjóðlega aðstoð. Leiðtogar Evrópu- sambandsins hafa einnig ákveðið að þetta verkefni verður að vinna í náinni samvinnu við NATO og fyrir opnum tjöldum. Þeir vora einnig ákveðnir í að þau Evrópuríki sem ekki eiga aðild að Evrópusambandinu ættu að vera ná- tengd verkefninu. Með því að stykja hemaðarmáttinn í sameiningu, myndu aðildarríki ESB, sem aðilar eða sam- starfsaðilar NATO, sem og bandalags- ríkin í Norður-Ameríku, styrkja al- þjóðlegan mátt Atlantshafsbanda- lagsins til að gegna hlutverki sínu og renna styrkari stoðum undir öryggi Evrópu. Þetta var ástæða þess að þeir fyrstu sem fögnuðu þeirri stefnu sem mörkuð var í Helsinki voru ráðherrar NATO- ríkjanna á fundi í Brassel hinn 15. des- ember sl. Sú skuldbinding að styrkja möguleika Evrópu til aðgerða mun leiða til meira jafnvægis í samskiptum þjóða beggja vegna Atlantshafsins. Sem talsmaður Evrópusambandins í utanríkis- og öryggismálum og sem fyrrverandi framkvæmdastjóri NATO er ég ákveðinn í að þær ákvarðanir sem teknar voru í Helsinki muni vera mikilvægt framlag tíl að styrkja*' Evrópu og til að styrkja Atlantshafs- bandalagið. Það er Evrópu í hag að vel takist til. Það er einnig Bandaríkjunum íhag. Höfundur er talsmaður Evrópu- sambandsins í utanrikis- og öryggis■ málum og framkvæmdastjóri Vestur-Evrópusambandsins. Javier Solana
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.