Morgunblaðið - 14.03.2000, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 21
Viðskiptahallinn 42,8
milljarðar á síðasta ári
SAMKVÆMT bráðabirgðaupp-
gjöri Seðlabanka Islands var við-
skiptahallinn 42,8 milljarðar króna
á árinu 1999 samanborið við 40,1
milljarðs króna halla árið áður. I
tilkynningu frá bankanum segir að
aukinn halli í viðskiptum við út-
lönd stafi af lakari jöfnuði þjón-
ustuviðskipta og auknum vaxta-
greiðslum af erlendum skuldum,
en hallinn á vöruviðskiptum varð
2,6 milljörðum króna minni en árið
áður. Eftir sem áður var hann
stærsti þáttur viðskiptahallans og
nam 22,4 milljörðum króna á árinu
1999.
I heild var fjármagnsjöfnuður
við útlönd jákvæður um 58,1 millj-
arð króna. I tilkynningu bankans
kemur fram að fjármagnsinn-
streymi stafi að mestu leyti af er-
lendum lántökum lánastofnana og
atvinnufyrirtækja en umtalsvert
fjárútstreymi hafi verið vegna
fjárfestinga í erlendum verðbréf-
um og aukinna innlána í útlöndum.
Bein fjárfesting íslendinga er-
lendis var um 5 milljarðar króna,
sem var álíka fjárhæð og árið áð-
ur, en bein fjárfesting erlendra að-
ila hér á landi varð heldur minni á
árinu 1999 eða um 6,5 milljarðar
króna. Gjaldeyrisforði Seðlabank-
ans jókst um 5,3 milljarða króna
og nam um 35,8 milljörðum króna í
árslok.
í spá Þjóðhagsstofnunar í des-
ember sl. var gert ráð fyrir að við-
skiptahallinn 1999 yrði 38 milljarð-
ar króna. Að teknu tilliti til
breyttra uppgjörsaðferða varð út-
koman áþekk spánni, vöruskipta-
hallinn varð heldur minni en þjón-
ustuhallinn meiri en búist var við.
124 milljarðar í
erlendum verðbréfum
Hækkun á markaðsvirði er-
lendra hlutabréfa var mikil á síð-
ustu tveimur árum; nær 20% 1998
og 30% 1999. Talið er að í árslok
1999 hafi Islendingar átt jafnvirði
124 milljarða króna í erlendum
verðbréfum á markaðsvirði. Þar af
voru um 87% í hlutabréfum og
hlutdeildarskírteinum verðbréfa-
sjóða. Hrein erlend staða þjóðar-
búsins var neikvæð um 314 millj-
arða króna í árslok 1999
samanborið við 285 milljarða
króna 1998. Hún hafði því versnað
um 29 milljarða króna, sem er
mun minna en viðskiptahallinn gaf
tilefni til, segir í tilkynningu
Seðlabankans.
Þar segir að skýringar á þessum
mun séu nokkrar en þyngst vegi
hækkun á markaðsvirði erlendra
verðbréfa í eigu Islendinga auk
gengishækkunar íslensku krón-
unnar. Einnig kunni stór skekkju-
liður greiðslujafnaðar, sem var
neikvæður um 15,3 milljarða
króna, að benda til þess að fjár-
festing innlendra aðila í útlöndum
hafi verið meiri en tekist hefur að
mæla með reglulegri gagnaöflun
Seðlabankans.
JT
VENTURE ICELAND
________Hverniq getur íslenskt
_________hugbúnaðarfyrirtæki_______________
vaxið á aíþjóða markaði?
Morgunverðarfundur
miðvikudaginn 15. mars kl. 8.00-9.30
f Versölum - Hallveigarstíg 1
Fyrirlesarar:
Þorsteinn Guðbrandsson, forstöðumaður Alþjóðasviðs
Landsteina International
Annie Brooking, framkvæmdastjóri, Shooting Star Ltd.
Shooting Star er breskt ráðgjafafyrirtæki, sem sérhæfir sig í
ráðgjöf við nýsköpunarfyrirtæki í upplýsingatækni.
Fundarstjóri:
Helga Valfells, Útflutningsráði íslands.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Útflutningsráðs íslands
í síma 511 4000 eða með tölvupósti icetrade@icetrade.is
OTFLUTNINOSHAÐ ISl.ANDS
NÝSKÖPUNARSJOÐUR
Umskipti í
rekstri Myllunn-
ar-Brauðs hf.
HAGNAÐUR af rekstri Myllunnar-
Brauðs hf. á síðasta ári nam 62 millj-
ónum króna. Er þetta mikill við-
snúningur frá árinu 1998 en þá nam
tap af rekstri tæpum 17 milljónum
króna.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
var 64 milljónir 1999, en var 38 millj-
ónir árið á undan.
Kolbeinn Kristinsson, forstjóri
Myllunnar-Brauðs, segir skýringuna
á bættri afkomu fyrirtækisins vera
hagræðingu samfara samruna þess
og Samsölubakarís hf. „Hagræðing-
in er að koma í ljós ári seinna en við
áttum von á vegna aðgerða sam-
keppnisyfirvalda gegn samrunanum.
Arangurinn er sérlega ánægjulegur
í ljósi þess að engar hækkanir urðu á
vörum fyrirtækisins á síðasta ári.“
Að sögn Kolbeins jókst innflutn-
ingur á brauði og kökum til íslands á
síðasta ári og segir hann að markað-
urinn sé að stækka.
Á síðasta ári keypti Myllan-Brauð
hf. 30% hlut í bakaríi í Boston. Kol-
beinn segir að árangur þess fyrir-
tækis sé ekki enn farinn að sjást í af-
komu Myllunnar-Brauðs en vonast
sé til þess að hann verði góður. „Það
fyrirtæki hefur alla tlð skilað hagn-
aði og við ætlum að vinna að vexti
þess. Starfsfólkið hér mun starfa í
mjög nánum tengslum við starfsfólk
bakarísins í Boston. Á þann hátt
verður reynsla okkar hér nýtt þar
úti.“
Tilbúnir að sækja ,
um skráningu á VÞÍ
Um horfur í rekstri Myllunnar-
Brauðs á þessu ári segir Kolbeinn að
stækkunarmöguleikar hérlendis séu
ekki miklir. „Við vonumst eftir því
að ná svipaðri afkomu í rekstrinum á
þessu ári og á árinu 1999.“ Aðspurð-
ur hvort félagið hyggist sækja um
skráningu á Verðbréfaþingi íslands
segist Kolbeinn álíta að það sé til-
búið til þess, enda hafi stefna félags-
ins verið í 2-3 ár að fara á markað.
„Málið snýst hins vegar um það
hvort það sé nógu stórt til að sækja
um skráningu. Markaðurinn verður
sjálfur að meta hvort sú stund sé
komin.“
Á aðalfundi Myllunnar-Brauðs í
síðustu viku var samþykkt að greiða
hluthöfum 10% arð. Engin breyting
varð á skipan stjórnar en í henni
sitja Benedikt Jóhannesson, formað-
ur, Jón A. Kristinsson, Anna K.
Kristinsdóttir, Sverrir Sverrisson og
Bergur Þórisson.
GM og Fiat
í eina sæng
BILARISARNIR General Mot-
ors (GM) og Fiat SpA hafa náð
samkomulagi sem gerir ráð fyrir
því að hvort fyrirtæki um sig öðl-
ist eignarhlutdeild í hinu. Kveður
samkomulagið á um það að GM
eignast 20% hlut í bílaframleiðslu-
hluta Fiat, í skiptum fyrir 5,1%
hlut sem Fiat eignast í GM. Verð-
mæti þess hlutar nemur u.þ.b. 176
milljörðum króna. Þetta var til-
kynnt á blaðamannafundi sem
fyrirtækin héldu í Tórínó á Ítalíu í
gær.
Bílaframleiðendurnir sögðu þar
að þeir ætluðu að á þriðja ári sam-
starfsins myndi sparnaðurinn af
því nema tæpum 90 milljörðum
króna árlega, en gert væri ráð fyr-
ir að sá sparnaður yrði tæpir 150
milljarðar króna eftir 5 ár. Sparn-
aður sem af samstarfinu hlýst
mun verða á sviði niðurskurðar
kostnaðar, samnýtingu véla og
bílgrinda, auk samnýtingar í fjár-
málaþjónustu fyrirtækjanna.
Fyrirtækin sömdu einnig um
forkaupsrétt GM að hinum 80%
hlutanna í bflaframleiðsluhluta
Fiat. Báðir aðilarnir lögðu áherslu
á að fyrirtækin yrðu rekin óháð
hvort öðru. Forráðamenn Fiat
sögðu ennfremur að samkomulag-
ið næði ekki til annarra sviða fyr-
irtækisins, þ.m.t. framleiðslu
Ferrari og Maserati.
Samkomulagið er að sögn aðil-
anna háð samþykki samkeppnis-
yfirvalda í Bandaríkjunum og hjá
Evrópusambandinu.
Gleraugnabúðin
llagkaup Skoifunni Sími 563 5125
Nýkaup Kringlunni Simi 553 5125