Morgunblaðið - 16.03.2000, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frettastofur útvarps og
sjónvarps saman í eina deild
STOFNA á eina sameiginlega deild
fréttastofa útvarps og sjónvarps í
skipuriti Ríkisútvarpsins þegar
sjónvarpið flytur starfsemi sína í út-
varpshúsið í Efstaleiti og eiga breyt-
ingamar að vera komnar til fram-
kvæmda ekki síðar en 1. september
n.k. Samvinna fréttastofanna verður
stóraukin og íréttaþjónusta svæðis-
stöðva RÚV, textavarpið, netrit-
stjóm og íþróttadeildir útvarps og
sjónvarps verða einnig innan hinnar
nýju deildar RÚV.
Þetta eru tillögur starfshóps á
vegum Rfldsútvarpsins sem skilaði
niðurstöðum sínum sl. mánudag.
Voru tillögumar kynntar á fundi með
starfsmönnum fréttastofanna á
þriðjudag og í útvarpsráði. Markús
Óm Antonsson útvarpsstjóri segir að
þessar breytingar verði til umræðu
innan stofnunarinnar á næstunni og
segist hann vona að hafist verði
handa við að koma á þeim breyting-
um sem starfshópurinn gerir tillögu
um.
Forstöðumaður ráðinn yfír
starfsemi deildarinnar
Þrátt fyrir aukna samvinnu og
samnýtingu er ekki gert ráð fyrir að
fréttastofur útvarps og sjónvarps
verði lagðar niður heldur starfi
áfram sem tiltölulega sjálfstæðar
einingar innan hinnar nýju deildar.
Verða fréttastjórar yfir daglegri
starfsemi þeirra en gerð er tillaga
um að ráðinn verði forstöðumaður
yfir deildina sem fær það hlutverk að
stjóma starfsemi hennar og skipu-
leggja og útfæra þessar breytingar í
samvinnu og samráði við starfshóp-
inn, sem unnið hefur að undirbúningi
málsins.
„Markmiðið er að efla hlut Ríkis-
útvarpsins í fréttamiðlun til lands-
manna, auka gæði þeirrar þjónustu
og samræma aðgerðir sem hafa verið
hingað til aðskildar á vegum frétta-
stofu sjónvarps og útvarpsins hins
vegar. Með flutningi sjónvarpsins í
útvarpshúsið skapast tækifæri til
þess að breyta þessu skipulagi og
efla samstarf á milli fréttastofanna
og fréttamanna í því augnamiði að
styrkja stöðu Ríkisútvarpsins í fram-
tíðinni á fjölmiðlamarkaði," segir út-
varpsstjóri.
Sameiginleg fréttaöflun
„Fyrstu aðgerðir felast í því að
fréttaöflun svæðisstöðva og frétta-
ritara verði sameiginleg fyrir báða
miðlana. Ennfremur ritstjóm fyrir
þingið og stjómmálafréttir en þetta
hvorttveggja hefur nú þegar komist
að veralegu leyti í framkvæmd.
Einnig er gert ráð fyrir samvinnu um
fréttaöflunarferðir þegar menn era
sendir út af örkinni innanlands og ut-
an,“ segir Markús Örn.
„Breytingarnar eiga að leiða til
betri fréttaöflunar og styrkja hæfni
fréttastofanna til þess að fást við
málefni með aukinni sérhæfingu,
þannig að þeir fréttamenn, sem hafa
sérþekkingu á tilteknum sviðum, geti
nýst báðum fréttamiðlunum. Von-
andi leiðir þetta líka til bættrar ím-
yndar og betri og samræmdari áferð-
ar á heildar-fréttaframboðinu hjá
okkur. Eg bind miklar vonir við þess-
ar breytingar," segir Markús Öm.
Bogi Ágústsson, fréttastjóri sjón-
varpsins, er formaður starfshópsins
en auk hans era í nefndinni fram-
kvæmdastjórar útvarps og sjónvarps
og fulltrúar beggja fréttastofanna.
Hláka
framundan
VEÐURSTOFA íslands spáir hláku
á næstu dögum, en í nótt og í morgun
var gert ráð fyrir allt að 10 stiga hita.
Hlýindin má rekja til þess að hlýtt
loft berst til landsins með lægðum
sunnan úr höfum.
í dag er gert ráð fyrir ögn kóln-
andi veðri en á föstudag og laugar-
dag verður hiti væntanlega yfir
frostmarki. Frá sunnudegi og fram á
þriðjudag er síðan aftur gert ráð fyr-
fr hlýju og vætusömu veðri.
-------------
Launí Vinnu-
skólanum
hækka um 8
krónur
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu stjómar Vinnuskólans um að
hækka laun unglinga sem starfa hjá
Vinnuskólanum í sumar. Tímakaupið
hækkar um 8 krónur, en það sam-
svarar 2,4-3,5% hækkun.
Tímakaupl4 ára unglinga verður
226 kr„ 15 ára unglinga 255 kr. og
tímakaup 16 ára unglinga 339 kr.
Tillagan var samþykkt með tveim-
ur atkvæðum fulltrúa R-listans í
stjóm Vinnuskólans, en fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins sat hjá.
3 | H *r I - áu... — MÉ é
4 ■!
B íHpsfc2- w*i ite.
i|» í j f ,J f | \ 'j |
f ; |{ « : " í i i mg&X'&u i IwIHBS-Lík Vil l ; r*fSljGF | V) ’mp'. '■ M Efl
. ^BT 81 k&t MB
Ný verslun á tveimur hæðum opnaði í Lækjargötu í gær. Morgunblaðið/Arm Sæberg
Ný verslun opnuð í miðbænum
TOPSHOP-verslun var opnuð í gær í nýju húsnæði í
Lækjargötu þar sem Nýja bíó stóð áður. Verslunin er á
tveimur hæðum en á efri hæðinni er nettengt kaffihús.
Baugur mun sjá um rekstur verslunarinnar en fyrir-
tækið hefur fengið rekstrarleyfí fyrir TopShop á öllum
Norðurlöndum og hyggst opna fleiri verslanir á næst-
unni. Sigrún Andersen er framkvæmdastjóri.
„Þetta er fyrsta sérhannaða verslunin sem opnuð er í
miðbæ Reykjavíkur í langan tíma og er í nýju og glæsi-
legpi húsi sem fyllir skemmtilega upp í götumyndina í
Lækjargötu," sagði Sigrún.
TopShop, sem er bresk vei-slunarkeðja sem leggur
áherslu á hátískufatnað fyrir konur og karla á aldr-
inum 15 til 35 ára, er hluti af fyrirtækinu Arcadia
Group sem er annað stærsta fyrirtækið á þessu sviði í
landinu.
Arkitekt hússins er Guðni Pálsson hjá A1 Arki-
tektum en Smáralind byggði húsið.
Landssíminn býður 40 heimilum upp á nettengingu 1 gegnum breiðbandið
Margfalt hrað-
virkara en ISDN
LANDSSÍMINN hefur boðið 40
heimilum á höfuðborgarsvæðinu upp
á nettenginu í gegnum breiðbandið,
en um er að ræða tengingu sem býð-
ur upp á rúmlega tiu sinnum hrað-
virkari gagnaflutning en ISDN-teng-
ing. Þetta kom fram í samtali
Morgunblaðsins við Ólaf Þ. Stephen-
sen, forstöðumann upplýsinga- og
kynningarmála Landssímans.
„Þetta er tilraunaverkefni sem við
eram að koma af stað, “ sagði Ólafur.
„Búnaðurinn sem notaður er í þetta
hefur hingað til verið of dýr og óhent-
ugur, en nú er það að breytast og því
erum við að prafa þetta. Við reiknum
með að sá fyrsti tengist inn á inter-
netþjónustuna á morgun [í dag].“
Ólafur sagði að breiðbandið, sem
er ljósleiðarakerfi sem um helmingur
heimila á höfuðborgarsvæðinu á kost
á að tengjast, hefði gífurlega flutn-
ingsgetu og að í tilraunaverkefninu
væri bara verið að nýta brot af henni.
í verkefninu yrði heimilum boðið upp
á tengingu með 700 kb gagnaflutn-
ingshráða á sekúndu, en til saman-
burðar má geta þess að flutningsgeta
ISDN-tengingar er 64 kb á sekúndu.
Ólafur sagði að breiðbandið væri
hannað með gagnvirkni í huga, þ.e.
til að taka á móti og senda gögn, en
að hingað til hefði sá möguleiki ekki
verið nýttur og breiðbandið aðeins
notað fyrir útsendingar á sjónvarps-
efni.
Ólafur sagði að settur hefði verið
upp búnaður í 8 götuskápa í Grafar-
vogi og Kópavogi og 240 heimilum
boðið að taka þátt í verkefninu. Hann
sagði að viðbrögð hefðu verið mjög
góð, um 65 manns hefðu viljað vera
með og þar af hefðu 40verið valdir til
að taka þátt. Að sögn Ólafs var heim-
ilunum síðan útvegaður sérstakur
búnaður. Breiðbandsmótald, sem
tengist breiðbandstenglinum og
snúra úr mótaldinu í tölvuna og sér-
stakt netkort í hana.
Verkefnið stendur fram til 1. júní
og sagði Ólafur að þá yrði reynslan
metin, en hann sagðist fastlega gera
ráð fyrir því að almenningi yrði boðið
upp á þessa þjónustu á árinu og þá
ættu öll internetfyrirtækin að geta
gert það.
Ræktar þú garðinn þinn?
Sameinaðu kosti Heimilislínu og Heimilisbanka
Með því að vera í Heimilislínu og Heimilisbankanum á Netinu tryggir
þú þér mun hærri innlánsvexti, lægri útlánsvexti og sparar kostnað af
færslum, millifærslum og reikningsyfirlitum, auk þess að spara tíma.
Formannsembætti
Samfylkingarinnar
Lúðvík
gefur
ekki kost
ásér
LÚÐVÍK Bergvinsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, sendi frá sér
fréttatilkynningu til fjölmiðla síð-
degis í gær þar sem hann lýsir því yf-
ir að hann hyggist ekki gefa kost á
sér til embættis formanns Samfylk-
ingarinnnar. Frestur til að skila inn
framboði til embættisins rennur út í
kvöld og er útlit fyrir að Össur
Skarphéðinsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, verði einn í kjöri og
þar með fyrsti formaður Samfylk-
ingarinnar.
Lúðvík sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að framboð hans og
Össurar myndi kosta sex vikna harð-
vítuga kosningabaráttu og að hann
mæti það svo að slík barátta væri
ekki góður undanfari að uppbygg-
ingu Samfylkingarinnar sem stjóm-
málaflokks.
I fréttatilkynningu Lúðvíks frá því
í gær segir að háværar raddir hafi
verið uppi innan Samfylkingarinnar
undanfama daga um nauðsyn þess
að endurnýja forystu hreyfingarinn-
ar á stofnfundi hennar í vor. „Síðustu
daga hefur vaxið veralega þrýsting-
ur á mig að gefa kost á mér til emb-
ættis formanns gegn Össur Skarp-
héðinssyni. Eftir vandlega
umhugsun og viðræður við fjölda
fólks hef ég ákveðið að gefa ekki kost
á mér í formannskjörið. Eg tel að
slíkar kosningar þjóni ekki hags-
munum Samfylkingarinnar á þessari
stundu. Framundan er uppbygging
framtíðarhreyfingar íslenskra jafn-
aðarmanna og vonandi mun reynsla
Össurar Skarphéðinssonar nýtast í
því starfi næstu tvö árin.“
Ossur fái tækifæri
næstu tvö árin
Aðspurður segir Lúðvík að hann
hafi alvarlega farið að íhuga framboð
þegar ljóst var að hvorki Guðmund-
ur Ámi Stefánsson né Jóhanna Sig-
urðardóttir, þingmenn Samfylking-
arinnar, gæfu kost á sér í
formannskjörið. Niðurstaðan hafi
hins vegar orðið sú, eins og áður seg-
ir, að bjóða sig ekki fram. „Ég lít svo
á að með þessari niðurstöðu hafi
menn sammælst um að gefa Össuri
Skarphéðinssyni tækifæri næstu tvö
árin,“ segir Lúðvík. Inntur eftir því
hvaðan helstu stuðningsmenn hans í
embættið hafi komið segir Lúðvík að
þeir séu hvaðanæva af landinu en þó
aðallega frá Suðurlandi og Reykja-
nesi. Menn innan Samfylkingarinnar
sem og utan. „Ég ligg þó ekki á því
að stærstur hluti þeirra sem studdi
mig kemur úr Alþýðuflokknum hin-
um forna.“
----------------
Gæsluvarðhald
framlengt
yfir þremur
mönnum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur úrskurðað þrjá sakbominga í
stóra fikniefnamálinu í áframhald-
andi gæsluvarðhald til 26. apríl að
kröfu ríkissaksóknara, sem hefur
tekið málið til ákærameðferðar.
Gæsluvarðhald þeirra var markað
jafnlöngum tíma og þeirra sex, sern
færðir voru fyrir dómara á þriðjudag
og verða því allir gæsluvarðhalds-
fangarnir níu í gæsluvarðhaldi til
miðvikudagsins 26. aprfl.
Ríkissaksóknari tók nýverið við
málinu af lögreglunni í Reykjavík og
ríkislögreglustjóra að lokinni
margra mánaða rannsókn. Málið
kom upp í september 1999 en hafði
verið til rannsóknar frá því í mai
sama ár.
I