Morgunblaðið - 16.03.2000, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
f
FRÉTTIR
Frummat á arðsemi þess að byggja járnbraut milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar
STEINGRÍMUR Ólafsson iðn-
rekstrarfræðingur kemst að því í
frummati sínu á arðsemi þess að
byggja járnbraut milli Reykjavíkur
og Keflavíkurflugvallar, að margt
bendi til þess að slík framkvæmd
geti orðið hagkvæm. Steingrímur
kynnti niðurstöður sínar á þriðju-
dag á opnum fundi Landverndar
sem haldinn var í samstarfi við um-
hverfisráðuneytið, Landsvirkjun og
Staðardagskrá 21.
1 upphafi skýrslu sinnar segir
hann að samfélagsgerðin á suðvest-
urhorni landsins valdi því að vert sé
að meta arðsemi hugmyndarinnar.
Flestir íbúar landsins búi á þessu
tiltölulega afmarkaða svæði og eini
alþjóðaflugvöllur landsins sé þar, í
60 kílómetra fjarlægð frá höfuð-
borginni. Vegna þeirrar griðai’legu
umferðar þai’ á milli, ásamt sívax-
andi áhrifum umhverfissjónarmiða,
segir hann afar mikilvægt að kanna
hugmyndina ítarlega.
Steingrímur segir að gera megi
ráð fyrir því að umferð um Reykja-
nesbraut aukist töluvert á næstu ár-
um auk þess sem fjöldi farþega um
Leifsstöð fari sívaxandi. Samkvæmt
áætlun vinnuhóps á vegum sam-
gönguráðuneytisins muni fjöldi er-
lendra ferðamanna aukast um 6% á
ári og einnig sé búist við síauknum
fjölda áningarfarþega, sem gætu
haft áhuga á því að skreppa til
Reykjavíkur ef fljótur og öruggur
ferðamáti væri í boði.
Ferðin frá Reykjavík til Kefla-
víkur tæki 20 til 25 mínútur
Hugmyndin er sú að teinai-nir
lægju frá Mjóddinni í Reykjavík,
upp fyrir Vífilsstaði og Asfjall, það-
an niður að álverinu í Straumsvík og
meðfram þjóðveginum til Leifs-
stöðvar. Teinarnir lægju þaðan nið-
ur í Reykjanesbæ og aftur upp að
stofnæðinni. Um yrði að ræða ein-
falt teinastæði með afreinum svo
lestir gætu mæst. Lengd sporsins
yrði um 65 km og ferðin frá Reykja-
vík til Keflavíkurflugvallar ætti að
geta tekið 20 til 25 mínútur, en ferð-
in niður í Reykjanesbæ um 30 mín-
útur.
Arðsemismat Steingríms byggir á
upplýsingum um stærð markaðarins
og þróun hans hvað varðar fólks-,
eldsneytis- og vöruflutninga. Gengið
er út frá því að stofnkostnaður yrði
um sex milljarðar króna og er sú
tala framreiknuð áætlun sem verk-
fræðinemar í Háskóla íslands gerðu
árið 1996. Rekstrarkostnaður er
áætlaður 550 milljónir á ári og
tekjur 1200 milljónir. Reiknað er
með því að farþegaflutningar verði
arðbærir og vöru- og eldsneytis-
flutningar óarðbærir, en að fram-
kvæmdin sem heild yrði arðbær.
Hægt að flytja innanlandsflug
frá Reykjavík til Keflavíkur
Steingrímur segir að fram-
kvæmdin gæti opnað ýmsa mögu-
leika bæði í samgöngumálum og at-
Morgunblaðið/Golli
Steingrímur Ólafsson kynnir niðurstöður sínar á þriðjudag: Afar mikilvægt að kanna hugmyndina ítarlega.
Margt bendir til
þess að framkvæmd-
in yrði hagkvæm
Er lagning járnbrautar á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflug-
vallar virkilega raunhæfur kostur? Birna Anna Björnsdóttir
hlýddi á Steingrím Qlafsson iðnrekstrarfræðing kynna frummat
sitt á arðsemi framkvæmdarinnar á opnum fundi á þriðjudag.
vinnumálum. Til dæmis yrði hægt
að flytja innanlandsflug frá Reykja-
víkurflugvelli til Keflavíkurflugvall-
ar án þess að lengja ferðalag þeirra
sem ættu leið til og frá höfuðborgar-
innar verulega. Hann segir að þegar
hugmyndin um aðflytja innanlands-
flugið sé reifuð vefjist einkum
tvennt iyrir fólki, annars vegar auk-
ið umferðarálag á Reykjanesbraut
og hins vegar óhagræði fyrir far-
þega, en ljóst sé að ef af lagningu
jámbrautar yrði, myndi umferðará-
lag á Reykjanesbraut ekki aukast
og óhagræðið yrði hverfandi þar
sem einungis 20 til 25 mínútur tæki
að fara milli flugvallar og Reykja-
víkur. Ef af flutningum yrði myndi
sparast heilmikill kostnaður því
ekki þyrfti að ráðast í frekari fram-
kvæmdir við Reykjavíkurflugvöll,
auk þess sem verðmæti núverandi
flugvallarstæðis sem byggingarland
fyrir borgina væri mjög mikið.
Hugmynd um legu járnbrautar
milli Reykjavíkur og
Keflavíkurflugvallar
: Keflavík
óífeifsstöðil. jXiL Njarðvík
Keflavíkur- x
flugvöllur 1
Hafnirrf
'Qrlndayíþ^rf
' i?
Ktííúvík
Reykjanestá
Mosfellsbpr
..
/ífihstaöir
HEIOMÓRK
Hann segir að einnig mætti kanna
hvort að hluti af þeirri upp- og út-
skipun sem fram fer í Reykjavík og
Hafnarfirði gæti farið fram í
Reykjanesbæ eða Grindavíkurhöfn
og járnbrautin yrði þá notuð til að
koma vörum til og frá þessum stöð-
um.
Tilkoma lestar drægi úr út-
blæstri gróðurhúsalofttegunda
Steingn'mur ítrekaði að þetta
væri aðeins frumathugun og að fjöl-
mörgu þyrfti að huga við gerð ítar-
legri úttektar. Hann brýndi nauð-
syn þess að skoða málið í mjög stóru
samhengi og sagði það tengjast
heildarstefnumótun sveitarfélag-
anna í skipulagsmálum. Spurningin
væri hvort ýta ætti undir einkabíla-
notkun eða almenningssamgöngur
og að framkvæmd þessi myndi
tengjast uppbyggingu almennings-
samgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Hún myndi breyta forsendum
skipulagsmála höfuðborgarsvæðis-
ins, hafa áhrif á byggðaþróun og
stuðla að uppbyggingu byggðar
meðfram línustæðinu sem gæti jafn-
vel gert svæðið frá Mosfellsbæ að
Reykjanesbæ að einu atvinnusvæði.
I skýrslunni bendir Steingrímur
einnig á að járnbrautarlest sem
gengur fyrir rafmagni sé umhverfis-
vænt farartæki og að tilkoma henn-
ar myndi draga úr notkun mengandi
farartækja og þar með útblæstri
gróðurhúsaloftegunda. Einnig yrðu
minni líkur á umhverfisslysum ef
lest yrði notuð við eldsneytisflutn-
inga í stað bíla. Hann nefnir einnig í
þessu sambandi að heimsmarkaðs-
verð á olíu faiá sífellt hækkandi,
samhliða þvi sem olíubirgðir fari
þverrandi og því sé nauðsynlegt að
huga að öðrum orkugjöfum þegar
litið sé til framtíðar.
Áætlaður stofnkostnaður sagð-
ur óraunhæfur
I umræðum að lokinni framsögu
Steingríms gagmýndi Arni John-
sen, formaður Samgöngunefndar
Alþingis, skýrsluna og sagði hug-
myndir hennar mjög óraunhæfar.
Það væri út í hött að áætla að stofn-
kostnaður yrði aðeins sex milljarðar
og benti hann á kostnað við lagn-
ingu járnbrautarteina í nágranna-
löndum máli sínu til stuðnings.
Hann sagði einnig setja strik í
reikninginn, hvað arðsemi varðar,
að það væri klár og almennur vilji
íslendinga að aka um á einkabílum
og að því yrði erfitt að breyta. Einn-
ig gagnrýndi hann hugmyndir um
að flytja innanlandsflug frá Reykja-
víkurflugvelli og sagði að hann væri
lykill landsbyggðarinnar að höfuð-
borg sinni.
Steingrímur ítrekaði þá að þetta
væri aðeins frumathugun og innlegg
í þessa umræðu. Niðurstaða sín
væri fyrst og fremst sú að mikils-
vert sé að skoða nánar hvort lagn-
ing þessarar járnbrautar sé virki-
lega raunhæfur kostur.
N ýr skemmti-
ferðabátur til
Stykkishólms
Stykkishólmur. Morgunblaðið.
NÝTT skemmtiferðaskip sigldi
inn í höfnina í Stykkishólmi í
miklu hvassviðri s.l. mánudag eft-
ir langa og erfiða siglingu frá
Noregi.
Það er ferðaþjónustufyrirtækið
Sæferðir ehf. sem keypti bátinn
frá Noregi. Báturinn er tvíbytna,
smíðaður árið 1979. Hann er 26,4
metrar á lengd og 9,3 metra
breiður og er 188 tonn. í bátnum
eru tvær MTU-vélar, 1,300 ha
hvor vél, og gengur báturinn 27
mflur á klukkustund. Skipið hefír
hlotið nafnið Særún. Það mun
annast skemmtisiglingar um
Breiðafjarðareyjar. Verulegar
tafír urðu á heimsiglingu vegna
veðurs og þurfti að hafa viðdvöl í
Bergen, Hjaltlandseyjum, Færeyj-
um og Bolungarvík. Reyndi því
mikið á skipið á siglingunni og
var áhöfnin ánægð með hvernig
það reyndist.
Miklar endurbætur verða nú
gerðar á bátnum eftir heimkomu
og hefur verið samið við Skipavík
í Stykkishólmi um að annast þær
að mestu. Brú skipsins verður
hækkuð, skipið lengd um einn
metra og aðstaða fyrir ferðafólk
ofan dekks bætt til mikilla muna.
Veitingasalur og eldhús verða
innréttuð upp á nýtt og verður þá
hægt að taka á móti stórum hóp-
um í mat á meðan siglt er um
Breiðafjörð.
Skipið fer strax í slipp og er
áætlað að það verði tilbúið til
Nýja skemmtiferðaskipið Særún
komið til heimahafnar. Sæferðir
ehf., eigandi bátsins á fyrir
Brimrúnu og munu bæði skipin
þjónusta ferðamenn í sumar.
siglinga um miðjan maí. Sæferðir
ehf. eiga fyrir annað svipað skip,
tvíbytnu, og mun gera þau bæði
út í sumar til skemmtisiglinga um
Breiðafjörð og til hvalaskoðunar.
Áhöfnin sem sigldi Særúnu til Stykkishólms var fegin þegar fast
land var undir fótum. Hún fékk slæmt veður á heimleiðinni og
reyndist skipið vel. Á myndinni eru Þórarinn Siggeirsson, Kolbeinn
Björnsson, Pétur Ágústsson og Siggeir Pétursson.