Morgunblaðið - 16.03.2000, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 15
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Unglingaráð HK
Skorað á bæinn að
byggja knattspyrnuhús
Kópavogur
UNGLINGARÁÐ knatt-
spyrnudeildar HK í Kópa-
vogi hefur samþykkt ályktun
til bæjaryfirvalda í Kópavogi
um að skoða kosti þess að
byggja knattspyrnuhús í
bænum og hefja undirbúning
þess hið fyrsta.
„Hugmyndir um byggingu
knattspyrnuhúss í samvinnu
við önnur sveitarfélög eru
góðra gjalda verðar, en
myndu ekki nýtast yngri ald-
ursflokkum sem stunda
knattspyrnu sem skyldi þar
sem sækja þarf æfingar út
fyrir bæjarmörkin," segir í
ályktuninni en sveitarfélögin
sunnan Reykjavíkur vinna
nú sameiginlega að könnun á
byggingu sameiginlegs húss,
sem líklega yrði staðsett í
Garðabæ.
„Bygging knattspyrnu-
húss í bænum myndi gjör-
breyta allri aðstöðu til knatt-
spyrnuiðkunar og verða
ómetanleg lyftistöng því öfl-
uga knattspyrnulífi sem fyrir
er í bæjarfélaginu," segir í
ályktun unglingaráðs.
„Kostnaður við byggingu
knattspyrnuhúss er ekki
mikið meiri en af byggingu
venjulegs íþróttahúss og
næg verkefni eru fyrir það í
stóru og ört stækkandi bæj-
arfélagi, auk þess sem með
tilkomu þess yrði meira rými
fyrir ástundun annaiTa
íþróttagreina í þeim íþrótta-
húsum sem fyrir eru. Bygg-
ing knattspyrnuhúss myndi
þannig styrkja allt íþróttalíf í
Kópavogi.“
A ráðstefnu unglingaráðs-
ins síðastliðinn laugardag
var unnið að stefnumörkun í
barna- og unglingastarfi fé-
lagsins í framtíðinni, „meðal
annars með tilliti til þess for-
varnargildis sem óumdeilt er
að þátttaka í skipulögðu
íþróttastarfi hefur,“ segir í
ályktuninni.
Tónlist og
sögur fyr-
ir börnin
KRAKKARNIR á leikskólan-
um Krakkakoti í Bessastaða-
hreppi fengu góða gesti í
gær þegar Guðni Franzson,
klarínettleikari, og Tatu
Kantomaa, harmoníkuleik-
ari, hcimsóttu þau í fþrótta-
húsið.
Heimsóknin var liður í tón-
leikaröð Tónlistarskóla
Bessastaðahrepps og að sögn
Svanbjargar Vilhjálmsdótt-
ur, skólastjóra, kom Guðni
fram í gervi Hermesar, sagði
krökkunum sögur og spilaði
fyrir þau ásamt Tatu. „Við
erum að skemmta krökkun-
um og leyfa þeim að heyra
músík og sögu í bland,“ sagði
Svanbjörg.
Börnin í Krakkakoti fylgdust vel með Guðna og Tatu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Atak verði
gert í snjó-
bræðslu-
kerfum
Reykjavík
BORGARSTJÓRN
Reykjavíkur mun í dag
fjalla um tillögu um að gert
verði átak til að auðvelda
gangandi vegfarendum að
komast leiðar sinnar um
borgina að vetrarlagi.
Kjartan Magnússon borg-
arfulltrúi vill að nefnd verði
sett á fót til að móta heild-
stæða stefnu um uppbygg-
ingu snjóbræðslukerfa við
gangstéttir í borginni.
B orgarstj órnarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins hafa
lagt fram tillögu þessa efn-
is, sem rædd verður í borg-
arstjórn í dag.
Kjartan sagði að hann
vildi að nefndinni yrði falið
að gera úttekt á stöðunni
og leggja fram hugmyndir
um þróun snjóbræðslu-
kerfis í borginni.
„Ég er búinn að fá mjög
margar kvartanir um að
gangstéttir séu illfærar og
veit um gamalt fólk og ör-
yrkja sem þora ekki út úr
húsi. Slys á gangandi veg-
farendum af völdum hálku
hafa verið afar tíð undan-
farið og slík slys hafa oft
mjög alvarlegar afleiðing-
ar. Arið 1990 var farið að
hita upp gangstéttir í mið-
borginni og þar var unnið
eftir áætlun frá 1990-1994
og gekk vel en síðan hefur
ekkert gerst,“ sagði Kjart-
an. „I miðbænum má heita
greiðfært fyrir gangandi
vegfarendur og í Grafar-
holti á nú að hita upp tvær
brattar götur og gangstétt-
ir. Þetta eru sértækar
lausnir en mín hugmynda-
fræði er að það verði mótuð
stefna til langs tíma og
nefndin fái það verkefni að
forgangsraða hvemig stað-
ið verður að verki.“
Kjartan sagði að eðlilegt
gæti verið að standa þannig
að verki að hefjast handa í
eldri hverfum borgarinnar
og í grennd við þjónustuí-
búðir aldraðra og leggja
áherslu á bræðslukerfi að
strætisvagnabiðstöðvum,
verslana- og þjónustumið-
stöðvum.
Hann sagði að sér sýnd-
ist að það kostaði um 10
m.kr. að koma bræðsluk-
erfi í 1 km gangstéttar-
kafla. Með því að nýta af-
rennsli frá íbúðarhúsum
mætti koma þessu á án
mikils rekstrarkostnaðar.
Slíkt þyrfti að kanna í sam-
ráði við húseigendur.
Kjartan sagðist vilja koma
átaki við endurbætur á
snjóbræðslukerfi inn á fjár-
hagsáætlun borgarinnar
þar sem veitt yrðu árviss
fjárframlög til þessara
mála. „Ég held að á 20 ár-
um ætti að vera hægt að
koma fyrir góðum göngu-
leiðum um alla borg,
kannski ekki við hverja
götu, en þéttu neti sem geri
auðvelt að komast á milli,“
sagði Kjartan.
Borgarstjórn leitar leiða til að efla almenningfssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu
Ein leiðin að einka-
væða rekstur SVR
Reykjavík
EINKAREKSTUR Strætis-
vagna Reykjavíkur er meðal
þeirra atriða sem borgarráð
hefur falið borgarstjóra að
kanna nánar í því skyni að
styrkja almenningssamgöng-
ur og auka hlut þeirra í ferða-
máta íbúa á höfuðborgar-
svæðinu. Einnig er ætlunin að
skoða nánar kosti aukinnar
samvinnu SVR og Almenn-
ingsvagna.
Á höfuðborgarsvæðinu er
hlutur almenningsvagna af
öllum ferðum um 4% á meðan
sama hlutfall í evrópskum
borgum er yfirleitt á bilinu
20-30%. Þetta kemur fram í
skýrslu starfshóps á vegum
borgarstjóra um tiltæka kosti
í rekstri og þjónustu almenn-
ingssamgangna í Reykjavík.
Þá kemur fram að fyrstu nið-
urstöður sérfræðinga, sem
vinna að tillögum fyiir svæð-
isskipulag höfuðborgarsvæð-
isins, sýni að miðað við
óbreytta þróun muni umferð á
svæðinu aukast um allt að
50% á næstu 20 árum. Það
kallar á a.m.k. 40 milljarða
króna fjárfestinga í stofn-
brautakerfinu á því tímabili,
sé miðað við svipað þjónustu-
stig og er í dag.
Ein leiðin að einkavæða
rekstur strætisvagna
Vegna þeirrar þróunar að
almenningssamgöngur hafa
verið í sífelldri vörn gagnvart
aukinni notkun einkabíla und-
anfarin ár, standa sveitar-
stjórnir og ríkisvald frammi
fyrii- þeirri spurningu hvort
tímabært sé að gefa upp á
bátinn baráttuna við einkabíl-
inn og fara í aðgerðir sem
nauðsynlegar eru til að mæta
þeirri niðurstöðu.
Á að líta eingöngu á al-
menningssamgöngur sem fé-
lagslega þjónustu við þá sem
ekki hafa efni á einkabíl, eða
að styrkja þessar samgöngur
á þann hátt að þær verði sam-
keppnisfærari við einkabíl-
inn?
í samþykkt borgarráðs
kemur fram að vilji borgaryf-
ii'valda stendur til þess að
styrkja almenningssamgöng-
ur sem raunhæfan ferðamáta
og auka hlut þeirra í sam-
göngukerfi höfðuborgarsvæð-
isins. Borgarstjóra hefur m.a.
verið falið að beita sér fyrir
því í viðræðum við nágranna-
sveitarfélögin að leitað verði
leiða til að draga úr þeirri
miklu notkun einkabíla sem
spáð er og að almenningssam-
göngur á höfðuborgarsvæð-
inu verði efldar. Ávinningur-
inn af minni notkun einkabfla
er minni mengun, fækkun
slysa og ódýrara viðhald vega.
Ein af þeim leiðum sem
ætlunin er að kanna nánar til
að bæta þjónustuna í almenn-
ingssamgöngum, er að einka-
væða reksturinn með því að
skilja á milli stefnumótunar
og þjónustukaupa annars veg-
ar og reksturs samgöngu-
tækja hins vegar. í skýrslu
starfshópsins segir að þessi
aðferð sé notuð í vaxandi mæli
í nágrannalöndunum, þar sem
horfið hefur verið frá rekstri
strætisvagna á vegum hins
opinbera, en aksturinn boðinn
út. Hér á landi á þetta við um
rekstur Almenningsvagna bs.
Ákveðið skref hefur
þegar verið stigið
Ef farin yrði þessi leið
myndi SVR breytast úr
rekstrarfyrirtæki í stjórn-
sýslueiningu sem annaðist
stefnumótun, eftirlit og ráð-
gjöf um útfærslu og fram-
kvæmd þeirrar almennings-
vagnaþjónustu sem borgin
ákveður að veita hverju sinni.
Þá er áætlað að markaðsstarf
yi-ði á hendi SVR, þó að mögu-
legt yrði að kanna nánar það
fyrirkomulag að þjónustuaðili
annaðist einnig þann þátt.
Öll veitt þjónusta yrði á
höndum rekstraraðila, þ.e.
akstur, rekstur skiptistöðva
og biðskýla o.s.frv. eða ann-
arra sjálfstæðra aðila skv.
sérstökum samningi þar um.
Nú þegar hefur verið stigið
ákveðið skref í þess átt með
því að tveir verktakar annast
þjónustu á tveimur leiðum
SVR, og þá er þjónusta á einni
af fjórum skiptistöðvum alfar-
ið í höndum verktaka í dag og
að hluta til á annarri. Jafn-
framt því hefur uppsetning og
rekstur um þriðjungs biðskýl-
anna verið færður til AFA
JCDecaux íslands hf. með
sérstökum samningi.
Starfshópurinn tekur fram
að rétt sé að hafa í huga að á
síðstu 3-5 árum hafi skapast
gjörbreyttar aðstæður í kjöl-
far eflingar á fjármagnsmark-
aði og að nýjar áherslur í
bankastarfsemi skapi nú
möguleika á einfaldri yfir-
færslu núverandi tækjabún-
aðar SVR til annars rekstrar-
aðila. Endurmetið stofnfé
eigna SVR var samkvæmt
reikningum fyrirtækisins um
2 milljarðar króna í árslok
1998.
Einkarekstur strætisvagna
myndi hafa í för með sér að
borgarsjóður losnaði undan
núverandi fjárbindingu í
tækjum og mannvirkjun SVR
og áhætta vegna eignarhalds
á fasteignum og annarra fjár-
hagslegra þátta myndi
minnka. Þá er talið að færi
myndi gefast á markvissari
úrvinnslu með sérstakri
stjómsýslueiningu sem sinnti
eingöngu stefnumótun,
stjórnunar- og eftirlitsþætti,
en í dag er það sami aðili sem
sinnir bæði stefnumótun og
rekstri. Staða borgarsjóðs/
SVR gagnvart sjálfstæðum
rekstraraðila gæfi því betra
færi á markvissara gæðaeftir-
liti.
Breytingar gætu orðið
þyngri í vöfum
Útboð aksturs til sjálf-
stæðra verktaka ætti að leiða
til samkeppni og laða þar með
fram bestu fáanlegu verð á
þeirri þjónustu sem veita á
hverju sinni. Kostnaður yrði
sýnilegri og aukin kostnaðar-
vitund, auk þess sem betri yf-
irsýn fengist yfir kostnað
vegna einstakra ákvarðana
um breytingar á leiðakerfi og
þjónustustigi.
Útboð á rekstri Strætis-
vagna Reykjavíkur myndi
samkvæmt áliti starfshóps
borgarstjóra leiða til veru-
legrar eflingar á rekstri hóp-
ferðabifreiða og gæti þannig
flýtt umtalsvert fyrir upp-
byggingu sterkra fyrirtækja
sem samhliða því að sinna
akstri fyrir SVR myndu
gegna lykilhlutverki í eflingu
þjónustu við ferðageirann.
Þeir gallar sem helstir eru
taldir á einkarekstri strætis-
vagna eru einkum þeir að
breytingar á þjónustu og
leiðakerfi gætu í einhverjum
tilfellum orðið þyngri í vöfum,
þegar slíkt þyrfti að gerast
með samningum við verktaka.
Þá yrðu meginbreytingar á
leiðakerfinu bundnar við lok
hvers útboðstímabils, s.s. á
4-5 ára fresti, en þess á milli
yrði meiri binding og þrengra
um lagfæringar og leiðrétt-
ingar heldur en að núverandi
fyrirkomulag gefur kost á.
í skýrslu starfshópsins er
talið að hægt sé að bregðast
við og draga úr vægi þessara
neikvæðu þátta við útboðs- og
samningsgerð, en þó megi
ætla að alltaf verði ákveðið
samhengi á milli þess verðs
sem giæiða þurfi og þess
sveigjanleika sem hafður
verður til breytinga á samn-
ingstímanum.