Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
-
AKUREYRI
Tvö nótaskip lönduðu loðnu
í Krossanesi í gær
Heildaraflinn rúm-
lega 22 þúsund tonn
NÓTASKIPIÐ Guðmundur Ólafur
ÓF kom með fullfermi af loðnu í
Krossanes í gærmorgun, um 800
tonn, og Sigurður VE kom seinni
partinn í gær með um 1.450 tonn.
Alls hafa því borist rúmlega 22 þús-
und tonn af loðnu í Krossanes á ár-
inu, sem er um helmingi meiri afli
en á sama tíma í fyrra en þá höfðu
11.200 tonn borist þar á land.
Skipin eru sólarhring á leiðinni af
miðunum fyrir vestan land og til
Akureyrar en siglingin er um 200
mílur. Magni Barðason skipverji á
Guðmundi Ólafi sagði að búið væri
að veiða loðnukvóta skipsins og að í
síðustu tveimur veiðiferðum hafi
þeir verið að veiða kvóta annarra.
Hann sagði ráðgert að fara einn
þannig túr til viðbótar áður en yfir
lýkur.
Hilmar Steinarsson verksmiðju-
stjóri í Krossanesi sagði að loðnan
væri góð og hann gerir ráð fyrir að
vertíðin standi yfir í viku til 10 daga
til viðbótar. Undanfarinn hálfan
mánuð er búið að framleiða um 240
tonn af hrognum í Krossanesi í
samstarfi við Utgerðarfélag Akur-
eyringa. I Krossanesi er loðnan
hreinsuð og kreist en frysting og
pökkun fer fram í frystihúsi UA á
Grenivík. Engin hrognataka var í
verksmiðjunni á síðasta ári en
Hilmar sagði þetta mjög góða verð-
mætasköpun. „Það var hins vegar
sumarvertíðin í fyrra sem brást en
þá bárust hingað aðeins 8.700 tonn.“
Ekki kvartað yfir lykt
Starfsemi verksmiðjunnar í
Krossanesi hefur verið nokkuð um-
deild undanfarin misseri og óá-
nægðir bæjarbúar kvartað yfir
ólykt á meðan bræðsla stendur yfir.
Stöðugt er unnið að endurbótum á
Morgunblaðið/Kristján
Magni Barðason og Dagur Guðmundsson skipverjar á Guðmundi Ólafi
ÓF kampakátir um borð í skipi sínu í Krossanesi.
mengunarbúnaði verksmiðjunnar
og sagði Hilmar að ekki hafi verið
um neinar kvartanir að ræða frá
bæjarbúum á yfirstandandi vertíð,
enda hráefnið unnið ferskt.
Krossanes hefur tekið _ við af-
greiðslu á áburði frá Aburðar-
verksmiðjunni, sem áður var í hönd-
um Kaupfélags Eyfirðinga. Fyrsta
áburðarfarminum var landað í
Krossanesi sl. föstudag, samtals um
1.100 tonnum. Vorhugur er kominn
í bændur, sem eru þegar farnir að
sækja sinn áburð. Hilmar sagði að
hugmyndin hafi verið að starfs-
menn fyrirtækisins snéru sér að
áburðinum eftir að loðnuvertíðinni
lyki. Vertíðinni færi senn að ljúka
og þetta væri því ágætis viðbót í
starfsemi fyrirtækisins.
Áhættuþættir heilsubrests til umfjöllunar í Menntaskólanum á Akureyri
Andleg van-
þrif og vímu-
vandi heilsu-
farsvandamál
PÉTUR Pétursson yfirlæknir
Heilsugæslustöðvarinnar á Akur-
eyri sótti Menntaskólann á Akur-
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum.
Bjóðum eitt mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum.
Hafðu samband
- vogir eru okkar fag -
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
eyri heim í fyrradag og flutti þar
fyrirlestur sem hann nefndi
Ahættuþættir heilsubrests - um-
fjöllun fyrir unglinga og ungt fólk.
Pétur fjallaði um heilbrigði, sjúk-
leika og lífshlunnindi og helstu
tegundir heilsuleysis.
Margir hafa sérstakar áhyggjur
af velferð barna og unglinga
frammi fyrir þeim vanda sem
áfengi og önnur fíkniefni valda
þeim. Pétur nefndi m.a. að eitt
helsta heilsufarsvandamálið væri
andleg vanþrif og vímuvandi, eins
og hann orðaði það og að það væri
töluvert algengt í MA eins og öðr-
um skólum. í þessu sambandi hafa
framhaldsskólarnir í bænum, MA
Morgunblaðið/Kristj án
Pétur Pétursson, yfirlæknir heilusgæslustöðvarinnar á Akureyri,
til hægri, ásamt Stefáni Þór Sæmundssyni og Kristínu Sigfúsdóttur.
Fíkniefni á heimili
fulltrúa í áfengis-
og vímuvarnarnefnd
Víkur
sæti úr
nefndinni
Mikið áfall, segir for-
maður nefndarinnar
FULLTRÚI í áfengis- og vímu-
varnarnefnd Akureyrar, sem viður-
kenndi um helgina að eiga fíkniefni
sem fundust á heimili hans, sat ekki
fund nefndarinnar í fjrrradag. Hann
situr í nefndinni fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn og sagði Kristján Þór Jú-
líusson bæjarstjóri að augljóslega
myndi fulltrúinn víkja sæti sínu í
nefndinni, en það yrði staðfest
formlega á fundi bæjarstjórnar í
næstu viku.
Kristín Sigfúsdóttir, formaður áf-
engis- og vímuvarnarnefndar Akur-
eyrar, sagði um mikið áfall að ræða.
„Það er alltaf áfall þegar í Ijós kem-
ur að einhver sem maður hefur unn-
ið með og þekkir tengist á einhvern
hátt fíkniefnamálum, en þetta stað-
festir að í þessum efnum eru engin
landamæri," sagði Kristín. „Ég er
eldri en tvævetur og vissulega hef-
ur maður margt séð og reynt.“
Ki-istín sagði vitanlega bagalegt
þegar fólk sem ætti að vera öðrum
til eftirbreytni brygðist í því hlut-
verki sínu. „Það er ekki hægt að
segja annað en að þetta sé mikið áf-
all, en það er ekki síður, og í raun
meira áfall að mínu mati að ungt
fólk, nýkomið út úr grunnskóla,
skuli vera að kaupa og neyta fíkni-
efna. Við höfum lagt ofurkapp á að
sporna við fíkniefnaneyslu í grunn-
skólum, en svo virðist sem fíkni-
efnaneysla færist sífellt neðar í
aldri. Þessi fíkniefnaheimur er
skipulagður eins og hernaður, við
erum í andspyrnuhreyfingunni og
svo virðist sem menn geti laumað
sér inn í þá hreyfingu," sagði Krist-
ín.
og VMA tekið upp samstarf um
átak til heilbrigðara lífs ungmenna.
Menningardagarnir Ratatoskur
2000 standa yfir í MA þessa dag-
ana en þar er um að ræða hálfopna
listadaga, sem síðustu ár hafa stað-
ið í viku eftir að skólatíma lýkur en
fléttast nú inn í skólatímann.
Menningardagarnir standa yfir í
tvo daga að þessu sinni og taka
kennarar skólans þátt í þeim með
nemdendum sínum.
Tvö umferðaróhöpp í Eyjafírði
Bflbeltin björguðu
HARÐUR árekstur varð á Dalvík
seinni partinn í fyrradag, er þar
skullu saman lítill pallbíll og fólks-
bfll. Ökumennirnir voru einir í bíl-
unum og sluppu þeir án teljandi
meiðsla en þeir voru báðir í bílbelt-
um. Fólksbíllinn er talinn ónýtur og
var dreginn af vettvangi með krana-
bíl og pallbfllinn skemmdist nokkuð.
Óhappið varð syðst í bænum en
ökumaður pallbílsins sem var á leið
inn í bæinn, missti stjórn á bíl sín-
um í snjóskafli með þeim afleiðing-
um að hann skall á fólksbílnum sem
var ekiðí gagnstæða átt.
Þá valt jeppabifreið á toppinn í
Ólafsfirði í hádeginu í fyrradag.
Ökumaður og tveir farþegar sem
allir voru í bílbeltum sluppu
ómeiddir en bíllinn skemmdist
nokkuð. Jeppinn var rétt að koma
inn í bæinn er óhappið varð en öku-
maðurinn missti vald á honum í
snjóskafli og valt hann á toppinn á
veginum, að sögn lögreglunnar í Ól-
afsfirði.
Felag viðskipta- og hagfræðinga
og PricewaterhouseCoopers
Ráðstefna um sam-
einingu fyrirtækja
FÉLAG viðskipta- og hagfræð-
inga á Norðurlandi í samstarfi við
PricewaterhouseCoopers efnir til
ráðstefnu á Akureyri á föstudag,
17. mars, frá kl. 14 til 17. Yfir-
skrift hennar er „Sameiningar
fyrirtækja - auðveld sókn eða of-
metnar væntingar".
Framsögumenn verða Jónatan
S. Svavarsson, rekstrarráðgjafi
hjá PricewaterhouseCoopers,
sem fjallar um hvort sameiningar
hafi staðist væntingar, Ólafur
Marteinsson, framkvæmdastjóri
Þormóðs ramma-Sæbergs, sem
fjallar um reynslu þeirra af um
tug sameininga og hvort íleiri
sameiningartækifæri séu enn til í
sjávarútvegi á Islandi, Daníel
Arnason, framkvæmdastjóri AKO
Plastos, sem segir frá reynslu við
sameiningu og flutning á fyrir-
tæki þeirra til Akureyrar, Jóhann
Magnússon, framkvæmdastjóri
FBA ráðgjafar, sem fjallar um
þátt fjármálafyrirtækja í sam-
runaferli fyrirtækja og Skúli Val-
berg Ólafsson, framkvæmdastjóri
OZ.COM, sem kynnir reynslu af
samstarfi fyrirtækja á tímum
upplýsingatækninnar, þar sem
mjög ólík fyrirtæki vinna náið
saman með sameiginleg markmið.
Pallborðsumræður með þátt-
töku frummælenda og fleiri sér-
fræðinga verða að loknum erind-
um. Ráðstefnan verður haldin á
Fiðlaranum við Skipagötu. Skrán-
ing á ráðstefnuna er hjá Atvinnu-
þróunarfélagi Eyjafjarðar, hjá
Hólmari Svanssyni, sem einnig
veitir nánari upplýsingar.
Bókaðu í síma 570 3030 05 460 7000
Fax 570 3001 * websalesó>airicelamf.is • www.flujfelaj.is
...fljú;ðufrekar
FLUGFELAG ISLANDS