Morgunblaðið - 16.03.2000, Page 18

Morgunblaðið - 16.03.2000, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir Góð þátttaka er á námskeiði um neyðarvarnir í Hveragerði. N ey ðarvarnanám- skeið í Hveragerði Hveragerði - Nú stendur yfír í Hveragerði neyðarvarnanámskeið á vegum Rauða kross deildar Hvera- gerðis. Þátttaka er mjög góð því yfir tuttugu manns sitja námskeiðið. A námskeiðinu er fjallað um hvern- ig staðið er að því að opna fjöldahjálp- arstöð og hvert hlutverk Rauða kross-deilda er í fjöldahjálp og félags- legu hjálparstarfi innan Almanna- varna. Nýjustu dæmin sanna að ekki veitir af að vera viðbúin og kunna til verka í slíku starfí. Rauða kross-deild Hveragerðis vinnur nú að því að koma neyðarvöm- um sínum í gott horf. Hlutverk allra Rauða kross-deilda í neyðarvömum er að aðstoða fólk sem þarf að yfir- gefa heimili sín eða verður vegalaust á hættutímum. Astæður hjálpar- beiðna geta verið ýmsar; brottflutn- ingur vegna yfírvofandi hættu, nátt- úruhamfarir, hópslys, eyðilegging á húsnæði - eða veður og færð eins og öllum er enn í fersku minni. Það er ekki aðeins fólk úr Rauða kross-deildinni sem situr námskeiðið heldur er þar einnig fólk frá öðmm hjálparliðum; hjálparsveit, almanna- vamanefnd, slökkviliði og fleirum. Ríkir mikil ánægja með þetta fram- tak því allt þetta fólk starfar hlið við hlið innan almannavamakerfisins þegar á reynir. Ovæntur skjalafundur í kvennaskólanum á Blöndudsi Átta fjórð- ungar af smjöri í skólagjöld Blönduósi - Héraðsskjalasafni Aust- ur-Húnavatnssýslu bórust óvæntir hlutir á dögunum. Skjöl, meðal ann- ars frá því um 1882, sem tilheyrðu Kvennaskóla Húnvetninga sem fyrst var starfræktur á Ytri-Ey á Skagaströnd, komu í leitirnar. Skjölin, sem voru í tveimur skjalapökkum, fundust á háalofti Kvennaskólans á Blönduósi, lofti sem kallað er „vefnaðarloftið". Elstu skjölin voru snyrtilega vafin saman og var bundið utan um þau með silkibandi. Þórhildur ísberg, sem hefur umsjón með safninu ásamt eiginmanni sínum Jóni Is- berg fyrrum sýslumanni, sagði í samtali við Morgunblaðið að skjölin hefði fundið Aðalbjörg Ingvarsdótt- ir sem lengi var skólastjóri við Kvennaskólann á Blönduósi. Margt forvitnilegt er að finna í þessum skjölum og var Þórhildur sérstak- lega ánægð með litla skruddu sem hafði að geyma bókaskrá skólans. Og sem dæmi um efni skjalanna fylgir hér með fylgiskjal nr. 11 með reikningum Kvennaskólans á Ytri- Ey skólaárið 1893/1894 undirritað af Elínu Briem skólastýru. „Að Þor- lákur Þorláksson á Vesturhópshól- um hafi í meðgjöf með Björgu dótt- ur sinni, borgað 8 fjórðunga af smjöri veturinn 1892 - 93, viður- kennist hér með.“ Þorlákur þessi sem hér um ræðir er faðir Jóns Þor- lákssonar fyrrum forsætisráðherra og dóttir hans sem hér um ræðir var Björg Karitas Þorláksson Blöndal, sem fyrst íslenskra kvenna útskrifaðist sem doktor úr Svarta- skóla í París. Héraðsskjalasafn A- Hún hefur komið sér upp heimasíðu og er slóðin simnet.is/skjalasafn. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Frú Þórhildur Isberg Skjala- vörður Héraðsskjasafns A- Hún með skjölin sem fundust fyrir skömmu á vefnaðarlofti Kvennaskólans á Blönduósi. i Ekki allir á eitt sáttir við kj ör dæmabreytinguna Valinn Völs- ungur ársins Húsavík-Friðgeir Bergsteinsson var valinn Völsungur ársins 1999 en þennan heiður hlýtur sá sem skarað hefur fram úr í starfi fyrir félagið og verið öðrum til fyrirmyndar. Á myndinni tekur hann við viður- kenningu frá Ingólfi Freyssyni, for- manni Völsungs. Við sama tækifæri fékk Sigurbjörg Hjartardóttir styrk úr afreksmannasjóði HSÞ sem veittur er efnilegum íþróttamönn- um og sagði Ingólfur við það tæki- færi að hún væri að þessum styrk Morgunblaðið/Silli verðug því þótt árafjöldinn væri ekki mikill hefði hún lengi skarað fram úr félögum sínum og nefndi að hún hefði tvisvar sinnum verið kos- in Iþróttamaður Húsavíkur. Borgarnesi - Samtök sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi, Fjórðungs- samband Vestfirðinga og Samtök sveitarfélaga í Norðurlandskjördæmi vestra boðuðu fyrir skemmstu til sameigilegs íúndar með alþingis- mönnum og sveitarstjórnarmönnum kjördæmanna í Borgamesi. Um- ræðuefni fundarins var áhrif nýrrar kjördæmaskipunar. Gunnar Sigurðs- son, formaður SSV, setti fundinn. Fundarstjórar voru Elín R. Líndal og Pétur Ottesen. Ritari fundarins var Hrefna B. Jónsdóttir. Kynning á starf! lands- hlutasamtakanna Fulltrúar landshlutasamtakanna, Ásgeir Þór Jónsson FV, Ágúst Þór Bragason SSNV og Guðjón Ingvi Stefánsson SSV fóru yfír störf sam- takanna í gegnum tíðina. Fram kom í máli þeirra að þau hafa beitt sér fyrir mörgum framfaramálum sem skipt hafa sköpum fyrir fjórðungana. Má nefna í því sambandi samgöngumál, skólaskrifstofur, framhaldsskólamál og eflingu tækifæra til menntunar, sorpmál og margt fleira. Einnig hafa landshlutasamtökin verið öflugur málsvari sinna svæða, bæði við al- þingismenn og samstarfi landshluta- samtaka á landsvísu. í lok sjöunda áratugar voru stofn- uð landshlutasamtök sveitarfélaga á grundvelli kjördæmaskipunar og hef- ur samstarf sveitarfélaga og hags- munagæsla á þeirra vegum verið magvíslegt síðan í góðu samstarfi við alþingismenn kjördæmanna. I nokkr- um málaflokkum reka sveitarfélögin sameiginlega öfluga þjónustu á kjör- dæmagrundvelli og í nokkrum tilfell- um er slíkt samstarf lögbundið. Ásgeir Þór sagði sveitarstjórnar- fólk á Vestfjörðum óneitanlega hræð- ast að Vestfirðir yrðu jaðarsvæði í hinu nýja kjördæmi vegna landfræði- legrar legu svæðisins. Bættar samgöngur væru því mikil- vægur þáttur. Guðjón Ingvi ræddi um þá breytingu sem orðið hefur á hlutverki samtakanna frá upphafi, en þá voru sveitarfélögin miklu fleiri og margvísleg ráðgjöf og aðstoð sem þurfti að veita þeim. Ásgeir og Ágúst Þór voru sammála um að hlutverk landshlutasamtakanna væri mikil- vægt, en Guðjón Ingvi sagðist láta öðrum það eftir að móta framtíðina þar sem hann myndi senn láta af störfum sem framkvæmdastjóri SSV. Einar Kr. Guðfinnsson alþingismaður sagði m.a. að ekki væri búið að ákveða með hvaða hætti kjördæmaskipanin yrði. Hann sagðist hafa áhyggjur af stöðu þingmanna í nýju kjördæmun- um. I dag er samstarf kjósenda og þingmanna mikið vegna smæðar kjördæmanna. Hann liti á það sem skemmtilegan og mikilvægan þátt að vera í nánu sambandi við kjósendur. Nú myndu einingamar stækka það mikið og þingmönnum fækka svo nánast yrði útilokað að halda jafn góðum tengslum við kjósendur og nú er. Hann sagðist hafa átt sæti í byggðanefnd á vegum forsætisráð- herra. Gat hann tillagna sem unnið hefur verið að. Þar er gert ráð fyrir að þingmenn hafi aðstoðarfólk á launum úti í kjördæminu. Það yrði óumflýjan- legt að kosta einhverju til til að halda sem mestu sambandi við kjósendur. Ýmsir óánægðir með breytinguna I almennum umræðum um lqör- dæmabreytinguna kom m.a. fram að landshlutasamtökin ættu að vera áfram í núverandi mynd. Árangurs- ríkasta byggðastefnan væri að færa sem flest verkefni heim í byggðarlög- in. Sveitarfélögin þyrftu hins vegar að stækka og eflast til þess að vera betur í stakk búin að takast á við þær breyt- ingar sem eru í vændum varðandi breytta kjördæmaskipan og til að Húsavík - Kiwanisklúbburinn Skjálfandi á Húsavík heiðrar ár hvert þá íþróttamenn sem skarað hafa fram úr á liðnu ári. Þetta árið er íþróttamaður Húsavíkur Ás- mundur Gfslason, knattspyrnu- maður Völsunga, en hann er einnig góður liðsmaður í handknattleik. takast á við aukin verkefni. Hnýta bæri þó vel hnúta í fjármálalegu tiLLiti áður en tekið er við fleiri verkefnum yfir til sveitarfélaganna. Ekki voru allir á eitt sáttir við kjör- dæmabreytinguna. Sögðu sumir að þeir hefðu ekki hitt nokkum mann sem væri ánægður með hana. Þing- menn yrðu allt of fáir, kjördæmið erf- itt í landfræðilegu tilliti og tengsl þeirra við kjósendur myndu að engu verða. Lýsti Hjálmar Jónsson alþingis- maður ástandinu á þennan veg: Settumst við og settum niður á blað samstarf allt sem þörf er á að móta, og með því styrkja, auka og efla það sem enginn telur þó að sé til bóta. Horfa fram á veginn Hins vegar var niðurstaða fundar- ins sú að taka því sem að höndum bæri. Horfa fram á veginn og vera með í því að móta stefnuna. Það yrði ekki aftur snúið og að vinna á móti þessu fyrirkomulagi yrði einungis til þess að kjördæmið yrði undir í bar- áttunni. I lok fundarins var þeim tilmælum beint til landshlutasamtakanna að at- huga með það að tilnefna sex fulltrúa í nefnd, tvo frá hverjum samtökum. Fengi nefndin það hlutverk að gera tillögur um samstarf landshlutasam- takanna í nýju kjördæmi. Þess má geta að Ásmundur leikur nú með Þór á Akureyri. Þau sem komu næst í tilnefningunni voru Sigurbjörg Iljartardóttir og Pálmi Rafn Pálmason og eru þremenn- ingarnir sem viðurkenningar hlutu á myndinni. Frá vinstri: Pálmi Rafn, Ásmundur og Sigurbjörg. FASTEIGNA MIÐLUN Síöumúla 11,2. hœb • 108 Reykjavík Sími: 575 8500 • Fax: 575 8505 Veffang: www.fastmidl.is Netfang: sverrir@fastmidl.is Sverrír JZrtetfámeon Iðgg. fasteígmealí OPIÐ FRÁ KLUKKAN 9.00 - 18.00 Atvinnuhúsnæbi | SKRIFSTOFUR - IÐNAÐUR Til sölu í lyftuhúsi 624 fm mjög vel innréttuð skrifstofuhæð. Leigjandi er Reykjavíkur-Akademían. Leigutekjur er kr. 650.000 pr. mánuð. Einnig er til sölu á sömu hæð 445 fm hæð sem losnað getur á næstu vikum. Uppl. gefa Þór og Sverrir. VESTURBÆR - RIS Til sölu 601 fm rishæð með mikilli lofthæð. Þar eru innréttaðar í dag tvær íbúðir í leigu og stórir salir. Lyfta er í húsinu. Þetta er eign sem gefur mjög mikla möguleika. Uppl. á skrifstofu gefur Þór. ■ VESTURBÆR - ATVINNUHÚSNÆÐI Til sölu ca. 1.100 fm atvinnuhúsnæði á þremur hæðum. Húsnæðinu er skipt í nokkrar einingar sem þarfnast standsetningar (hluti er í leigu) ásamt möguleka á að byggja ofan á húsið ca 350 fm. Þetta er eign sem gefur mjög mikla möguleika fyrir kaupsýslumenn. Iþróttamaður Húsavíkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.