Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Mótmæla gjaldtöku af notkun hraðbanka
Skrifa ávísanir
upp á tólf aura
London. Morgunblaðið.
VIÐSKIPTAMANNAHOPUR
banka hefur tekið sig saman um
að skrifa fimm ávísanir, hverja
upp á eitt pens, dagsetta 1. apríl
og er ætlunin að valda bönkunum
fyrirhöfn og kostnaði, því það
kostar banka rösklega 20 pens að
afgreiða hverja ávísun. Þetta er
hugsað sem mótmæli við ákvörð-
un bankanna um gjaldtöku af
notkun hraðbanka og hefur hóp-
urinn skorað á almpnning að
koma til liðs við sig. Avísanirnar
fimm eiga menn að stíla á kunn-
ingja sína, sem innleysa þær svo í
banka mánudaginn 3. apríl.
Stephen Byers, viðskipta- og
iðnaðarráðherra hefur átt fund
með forráðamönnum bankanna
um hraðbankagjöldin, en sam-
þykkt bankanna gekk út á pund í
gjald af viðskiptavinum annarra
banka til viðbótar við hálft annað
pund í refsigjald á eigin við-
skiptamenn, sem nota annarra
hraðbanka. Þannig kynnu menn
að þurfa að borga allt að hálfu
þriðja pundi fyrir að nota hrað-
banka. Eftir fundinn með ráð-
herranum stefna flestir bankanna
eftir sem áður að því að taka
gjöld af þeim viðskiptavinum
annarra banka, sem nota hrað-
banka þeirra, en bankamenn lof-
uðu að ræða á næsta fundi um
hraðbankamál, hvort þeir haldi
einnig til streitu refsigjöldum af
eigin viðskiptavinum, sem nota
annarra hraðbanka. Sumir bank-
ar, þar á meðal skozku bankarnir
og Samvinnubankinn, hafa til-
kynnt að þeir hyggist ekki leggja
nein gjöld á hraðbankanotkun.
Ríkisstjórnin hefur hótað
bönkunum aðgerðum, ef þeir
haldi sig við þessa gjaldtöku og
ber fyrir sig niðurstöður sér-
stakrar rannsóknar sem segja
kostnað bankanna af hverri
hraðbankaaðgerð vera á bilinu
15-30 pens.
Þeim sem kaupa inn í stór-
mörkuðum og nota kort stendur
til boða að fá til baka í reiðufé,
allt að 20 pund, hverju sinni. For-
ráðamenn stórmarkaða segja við-
skiptavini nýta sér þessa þjón-
ustu í auknum mæli enda þarf
ekkert að borga fyrir hana.
The Daily Telegraph hefur eft-
ir Steve Syder, forgöngumanni
tólfauraávísananna, að hraðbank-
ar spari bönkunum stórfé í launa-
kostnaði, en hins vegar virðist
græðgi þeirra engin takmörk
sett. Spyr hann svo, hvort vænta
megi þess að bankarnir fari að
taka gjald af fólki, sem leggur
þar inn fé. Skopteiknarar blað-
anna hafa farið á kostum í hrað-
bankamálinu. Meðal annars birt-
ist teikning, þar sem skilaboðin
til viðskiptavinarins voru þessi á
hraðbankaskjánum: Borgaðu tíu
pund, ef þú vilt sjá kortið þitt aft-
ur!
Danskir
dagar í
Fjarðar-
kaupum
I gær, miðvikudag, hófust
danskir dagar í Fjarðarkaup-
um.
Af því tilefni verður mikið
um vörukynningar á dönsk-
um matvörum og einnig tölu-
vert um tilboð. Veittur er til
dæmis 25% afsláttur af svína-
læri, svínahnakka, beikoni og
svínarifjasteik og 25% af-
sláttur af frosnum kjúklingi.
Á Dönskum dögum verður
smurbrauðsjómfrú í verslun-
inni sem kynnir danskt smur-
brauð. AJlir viðskiptavinir
Fjarðarkaupa lenda í potti
með nafnið sitt og í lok
danskra daga verður dregið
um ferð til Danmerkur fyrir
fjóra.
Danskir dagar standa fram
til laugardagsins 25. mars.
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 21
SuteetandSour,
fíoganJosh,Tdtka
; .tfdsw Uasalaog
" cantonese,400g
Hvítíauks
BWfirtra
Brauðrasp, 5 oz
ongins/
SUttíes,lSSg
Mx4stkipk
Lœkjargötu, Siglufirði
Álaugarvegi, Höfn
Miðbæ, Akranesi
Hagamel, Reykjavík Ólafsbraut, Ólafsvík Bréíóumork, Hveraqerði
Selfabraut, Reykjavík Crundargötu, Crundarfirði Hólmgarði, Keflavífc
mwmatmmmmms