Morgunblaðið - 16.03.2000, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 27
Búistviðað
BMW selji Rover
Óttast að tug-þúsundir missi vinnuna
Frankfurt, London. AFP.
SVO virðist sem þýsku bflasmiðjurn-
ar BMW hafi tekið ákvörðun um að
selja breska bifreiðaframleiðandann
Rover en verulegt tap hefur verið á
rekstri fyrirtækisins í sex ár. Breska
stjórnin lagði í gær áherslu á mikil-
vægi Rovers í bresku efnahagslífi og
bresk verkalýðsfélög hafa farið fram
á fund með yfirstjórn BMW. Óttast
þau, að þúsundir manna muni missa
vinnuna komi til sölu.
Stjóm BMW kemur saman til
fundar í dag og búist er við, að þá
verði ráðin örlög Rovers eða „enska
sjúklingsins" eins og fyrirtækið hef-
ur verið kallað í Þýskalandi. Er að
vænta formlegrar tilkynningar um
málið á morgun.
Sérfræðingar telja víst, að BMW
muni selja megnið af Rover, sem hef-
ur verið þungur baggi á BMW frá yf-
irtökunni 1994. Þýsku blöðin Hand-
elsblatt og Suddeutsche Zeitung
sögðu í gær, að BMW hygðist selja
Rover að langmestu leyti og síðar-
nefnda blaðið sagði, að BMW væri í
sambandi við hugsanlegan kaupanda
og yrði verksmiðjunum í Longbridge
og Oxford lokað. Yrði framleiðslan
einskorðuð við smíði á Land Rover-
og Mini-bílunum, en hún hefur skilað
hagnaði.
BMW keypti Rover 1994 fyrir 94
milljarða ísl. kr. og hefur síðan fjár-
fest í fyrirtækinu fyrir hundruð
milljarða kr. Samt hefur ávallt verið
tap á fyrirtækinu og nefna sérfræð-
ingar ýmislegt til í því sambandi:
Hátt gengi pundsins; litla framleiðni;
fremur gamaldags bfla og lélega
markaðssetningu. Þá er BMW sjálft
sakað um ónógt stjómunareftirlit.
í Bretlandi veldur þetta mál mikl-
um áhyggjum og hafa stjómvöld
verið í sambandi við stjórn BMW og
lagt áherslu á mikilvægi fyrirtækis-
ins í bresku efnahagslífi. Talsmenn
breskra verkalýðsfélaga segja, að
verði rekstri Rovers hætt muni
16.000 manns missa vinnuna og að
auki allt að 50.000 manns í fyrirtækj-
um, sem þjónusta bifreiðaiðnaðinn.
Talsmaður íhaldsflokksins sagði í
gær, að það væri að nokkm leyti
stjórn Verkamannaflokksins að
kenna hvemig komið væri þar sem
henni hefði ekki tekist að fá sam-
þykki Evrópusambandsins við fjár-
frekum björgunaraðgerðum við
verksmiðjuna í Longbridge.
vv w w . 1 3 n d s b a n k i. i s
www.landsbref.is
i
*
munt þú
geta gert
framtíðin bíðuntftir þér
1 ANDSBRii
Landsbankans
mmmm
i itryitvbók LaruUbankiins; 7,2% viðbótarlifeyrissp.ifnaftui
Ij.iivorslutciktmiipn I andsbrcla; 2,2 - viðbótaililcytivspainaðui
Klcnski lifcyrissjóðunnn: ?„?% viObótuilifeyfissparnaður
Islcnskt lílcyiiss|óöufinn; H>' • loqbmulið láijmatksióijiaUi
I ilís lifcynssólmin .’.2'Vu viðbólailitcynssjiatnaðui
Fjölbreytt val i
lífeyrissparnaöi
Landsbankinn
: m t v ,> r ; / i
u| v ~ /%jrM
' fe fip.
. •. .7 ■ k á Ws Lf 'Ái f
‘S | nf; ; 1
jr ’ - jj****,. ■ iÉ&k4 Erjjf | jT 1 /j §4 / | r * i I i h |
'p$. . V i ^ - | |
K'. .
UL
ftuttuvnf »80 8000
ÍH'ln banki
CROSS
8INCE 1848
Penni
með
fjortíð