Morgunblaðið - 16.03.2000, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 16.03.2000, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir Leikarar Ungmennafélagsins Dagrenningar að lokinni frumsýningu. Frumsýn- ing á Is- landsklukk- unni Reykholt. Morgunblaðið. MIKIÐ líf var á frumsýningu í Brautartungu sl. laugardagskvöld þegar persónur íslandsklukkunnar eftir Halldór Laxness stigu þar á fjalir. Leikdeild Ungmennafélagsins Dagrenningar hefur sett upp þetta verk í leikstjóm Höllu Margrétar Jóhannesdóttur og þurfti að virkja um helming fastra ibúa dalsins í framkvæmdina. Mjög myndarlega er að allri umgjörð uppfærslunnar staðið og hefur vegleg leikskrá ver- ið gefin út af þessu tilefni. Undir- tektir áhorfenda vom mjög góðar á frumsýningu og hafa sex sýningar þegar verið auglýstar til viðbótar. I hléi mátti hlýða á titillag leikrits- ins, „Hvenær drepur maður mann“, leikið af bandi. Hildur Jósteinsdótt- ir, sem leikur Snæfríði Islandssól, syngur lagið við gítarleik Bjama Guðmundssonar, aðstoðarrektors Landbúnaðarháskólans á Hvann- eyri, sem samdi bæði lag og texta. Ást í standi og ástandi LEIKLIST Leikfclag Mosfells- sveitar sýnir í Bæj- arleikliúsinn, Mos- f e 11 s b æ. STRÍÐ f FRIÐI Höfundur Birgir J. Sigurðsson. Leikstjóri Jón Stefán Kristjánsson. Sunnudaginn 12. mars. TITIL þessa verks má túlka þannig að þrátt fyrir yfirlýst stríð í veröldinni hafi ríkt friður á íslandi á hemámsárunum. Allt breyttist þó með hersetunni og kynni Islend- inga af Bretunum og síðar Banda- ríkjamönnum höfðu afgerandi áhrif á samfélagið, bæði þá og ætíð síðar. Yfirlýstur tilgangur þessa verks er að sýna mannlífið í Mossfells- sveit á hernámsárunum en höfund- urinn slær þó þann varnagla í leik- skrá að atburðarás og persónur séu skáldskapur og gætu hafa gerst hvar sem er á landi „þar sem herinn hafði viðkomu". Sagan í verkinu er sú að gömul kona rifjar upp þegar hún fór ung í vinnumennsku í Mosfellssveit og kynntist þar breskum hermanni en áður en þau náðu að bindast eigin- orði var hann kallaður burt og er gefið í skyn að hann hafi fallið á víg- stöðvunum. Hún sat eftir barnshaf- andi og frétti aldrei neitt um afdrif hans. Bygging verksins er skýr og það er vel sett saman, færslur í tíma eru Ijósar og frásagnaraðferð- in blátt áfram. Sem frumraun höf- undar á sviði leikritagerðar er heildarsvipurinn vel heppnaður. Inn í þessa sögu fléttast svo sam- skipti stúlkunnar Guðrúnar við feðgana Hallbjörn og Björn sem eru durtslegir íslenskir sveitamenn, skítugir og orðljótir með afbrigð- um, andstætt hinum snyrtilegum, kurteisu bresku soldátum. Er af- staða höfundar í þessu efni næsta einkennileg og allt að því einstreng- ingsleg. Þrátt fyrir þá viðurkenndu stað- reynd að leikið efni snúist oftast um samskipti fólks verður þetta leikrit ekki til annars en hamra á gömlum klisjum sem skapast hafa um sam- skipti íslenskra kvenna við her- námsliðið. Engan nýjan fróðleik er að finna í verkinu, hvorki um her- setuna í Mosfellssveit né annars staðai’, og enn síður um raunveru- legt inntak samskipta íslendinga við hernámsliðið. Allar kvenpersón- ur verksins virðast hafa það markmið að koma sér í mjúkinn við hernámsliðið og sífellt er hamrað á því hversu ógeðfelldir hinir íslensku karlmenn eru. Fulltrúar þeirra í verkinu styðja þessa skoðun. Hér er birt nokkuð einfölduð mynd af flóknu samfélagslegu fyrirbæri sem bætir engu við en ýtir fremur undir hefðbundnar hugmyndir. Leikstjórinn hefur unnið úr þess- um efniviði eftir föngum og gert úr líflega sýningu með sínu fólki þar sem saman fer hugvitssamleg leik- mynd og skemmtileg notkun tón- listar og lýsingar. Sviðsetning sýn- ingarinnar og hreyfingar leikenda eru vel unnar svo blær sýningarinn- ar verður góður og frammistaða leikenda er ágæt innan þein'a marka sem verkið setur þeim. Vaka Agústsdóttir sýnir okkur saklausa unga stúlku sem hrífst af breska hermanninum Donald (Hjalti Krist- jánsson) og var samleikur þeirra Vöku og Hjalta einlægur og falleg- ur. Gunnar Halldór Gunnarsson og Úlfur Ormsson leika feðgana Hall- björn og Björn og draga ekki af sér. Blótsyrði í texta misstu alveg marks og urðu þreytandi áður en lauk. Dóra Wild átti góðan sprett í hlutverki hinnar léttlyndu Villu og lék af öryggi og kómískri innlifun. Kvartettinn var skemmtileg við- bót við annars ágæta sýningu og er rétt að draga ekki úr því að sýning- in er áhorfendavæn og má hafa af henni nokkuð góða skemmtun. Hávar Sigurjónsson Þingflokkur Samfylkingarinnar á ferð um Norðurland eystra Dagana fimmtudaginn 16. og föstudaginn 17. mars verða þingmenn Samfylkingar- ^ innar á Ferð um Norðurland eystra Á fímmtudag l<l. 20.30 er opinn þingflokksfundur á Hótel Húsavík. Allt stuðningsfólk velkomið. Á föstudag verða fyrirtæki og stofnanir heimsótt. Farið verður í Islensk- an harðvið og Heilbrigðis- stofnunina fyrir hádegi. Á Akureyri verður m.a. farið í Verkmenntaskólann, Heilsu- gæsluna, Háskólann á Akureyri og fjölmiðlar heimsóftir. Fundur með stuðningsfólki Samfylkingarinnar í Deiglunni, Akureyri, kl. 19.30 á föstudagskvöldið. Þingflokkur Samfylkingarinnar. Hvert þó í heitasta LEIKLIST P j ii I b r a ii t a s k ó I i n n í Breiðholti f Loft- k a s t a 1 a n u in BAT OUT OF HELL Söngleikur utan um tónlist Meat- loaf og Jim Steinman. Höfundur og leikstjóri: Guðmundur Rúnar Krist- jánsson. Tónlistarstjóri: Matthías Matthíasson. Dansar: Astrós Gunn- arsdóttir. Mánudagskvöldið 13. mars. ÞETTA er greinilega málið í dag, taka gamla tónlist, skrifa ein- falda sögu kringum efni textanna, breyta þeim síðan smávegis og að- laga að efnisþræðinum. Fyrst var það „Thriller" Verslunarskólans og núna „Hin heljuheimta leðurblaka“ kórdrengsins og og fitubollunnar Meatloaf. Og aftur gengur dæmið upp. Fyrirfram hefði ég í hvorugt skiptið trúað því. Bæði verkin hefðu samt átt að fá önnur nöfn. Fyrir utan það hvað ensk nöfn eru kjánaleg á jafn rammíslenskum leikritum eru þau bæði efnislega út í hött, þökk sé frelsi því sem handritshöfundarnir taka sér báðir frá innihaldi söngv- anna. Blakan snýst reyndar um „kosm- íska“ krafta himna og heljar. Þegar ofurtöffarinn Barði deyr og mætir skapara sínum virðist hans bíða hin verri vist. Þótt hann sé dálítið van- þroskaður er hann samt ekki vit- laus og tekst honum að benda Drottni á formgalla í kristindómn- um og fær skilorðsbundinn dóm. Ef honum tekst að koma óframfærn- um nafna sínum og fyrrum unnustu sinni saman og iðrast synda sinna í leiðinni er hann hólpinn. Þetta reynist vitaskuld þrautin þyngri, en honum tekst þó að koma auga á villu síns fyrri vegar og sannast þá hið lúterska viðkvæði, maðurinn frelsast fyrir náð og allt fellur í löð- ina ljúfu fyrir tilstilli Drottins. Eins og Thriller minnti á „Pilt og stúlku" ber Blakan einnig sín sérís- lensku einkenni. Skrattinn er til að mynda jafnlítill bógur og hann hef- ur verið í huga Islendinga frá því séra Sæmundur í Odda var á dög- um. Þá vai' Guð fönguleg stúlka eins og ku vera í lagi að trúa nú- tildags. Sýningin er bráðskemmtileg. Guðmundur Rúnar skrifar kraft- mikil og fyndin samtöl og rekur lið sitt áfram af fítonskrafti, reyndar fóru leikararnir stundum fram úr sér og keyrðu á veggi. Samt var mesta furða hvað þeim tókst að halda sér á flugi. Tónlistin var óað- finnanleg, klisjuskotið remburokk Steinmans og „Kjöthleifsins“ lék í höndum hljómsveitarinnar og börk- um leikhópsins. Fremst meðal jafn- ingja á því sviði var Þórdís Elva Þorvaldsdóttir í hlutverki stúlk- unnar sem þeir nafnar elska. Hún hafði líka greinilega fengið að vera stikkfrí í gassaganginum og mynd- aði jarðtengingu fyrir sýninguna í heild. Barðarnir voru aldeilis ágætlega komnir hjá Sigursteini Stefánssyni og Eiríki Steini Bogasyni. Eiríkur komst aðdáanlega langt í „slapp- stikkinu" sem leikstjórinn hafði lagt á hann og það gustar af Sig- ursteini sem töffaranum framliðna. Steindór Gunnar Steindórsson var Kommi, töffari af rembulegustu sort. Hann gerði vel, dansatriðið hans var dásamlegt og stóð upp úr fremur andlausri kóreógrafíunni. Eðvald Atli Birgisson gerði sér fullan mat úr vel heppnuðum „ein- línu“-texta afans. Guð var bæði yf- irnáttúruleg og spaugsöm hjá Söru Bjarneyju Jónsdóttur og Valur Gunnarsson var bráðfyndinn sem andskotinn misheppnaði. Það kom ekkert að sök þótt hlutverkinu væri nánast ofaukið og hefði enga þýðingu í framvindunni, Valur nýtti vel tækifæri sín til að gera þetta að skemmtilegum skrattakolli. Leikmynd var ágætlega af hendi leyst, en undarleg var tregða leik- stjórans við að leyfa leikurum að nota dyrnar sem voru úti um allt á henni. Innkomuleiðirnar til hlið- anna sem hann notaði mun meira voru vandræðalega þröngar. Söng- leikur með framliðnum mótorhjóla- töffui-um, Guði almáttugum og hin- um fallna engli ætti ekki að kalla á neitt átakanlega mikið raunsæi í innkomum. Hvað um það, stórskemmtilegur rokksöngleikur hefur bæst við magran sjóð okkar af slíkum verk- um. „Bat out of Hell“ er hörkusýn- ing og handritið alls ekki einnota. Hvað á svo að gera að ári? Má maður biðja um óskalög? Þorgeir Tryggvason V ortónleikar í Salnum SKÓLAHLJÓMSVEIT Kópavogs heldur vortónleika í Salnum í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Hljómsveitin skiptist í þrjár sveitir eftir getu og aldri og koma þær allar fram á þessum tónleik- um. Einnig eru starfandi slag- verkshópur og brass-kvintett við sveitina. Yngsta sveitin, A-sveitin, leikur nokkur íslensk lög ásamt „We will rock you“ eftir félagana í hljóm- sveitinni Queen og Silver Scepter sem er stuttur forleikur eftir John Kinyon. Lögin sem B-sveitin leikur eru flest af léttara taginu, dægurlög á borð við „YMCA“ og „Rock Around The Clock“ skipa þar stór- an sess. Sú sveit spilar einnig tón- verk eftir David Wells, sem nefnist „North Kent Festival" og er samið sérstaklega fyrir barnalúðrasveit- ir. Elsta sveitin leikur m.a. syrpu úr söngleiknum Phantom of the Opera, Tyrkneskan mars eftir Beethoven, Fanfare & Toccata eft- ir Ed Huckeby, ásamt einum af stóru mörsunum, Florentiner mars eftir Julius Fucik. I Skólahljómsveit Kópavogs eru nú um 140 hljóðfæraleikarar. Þeir yngstu eru 9 ára og þeir elstu að nálgast tvítugt. Ýmislegt er á döf- inni hjá Skólahljómsveit Kópavogs. Um næstu helgi fer B-sveitin í æfingabúðir til að æfa fyrir tón- leikana, C-sveitin fer í tónleikaferð í lok mars og Lúðrasveitin Snær frá Ólafsvík kemur í heimsókn í byrjun apríl. Einnig er ráðgerð tónleikaferð til Selfoss, en gagn- kvæmar heimsóknir skólahljóm- sveitanna í Kópavogi og á Selfossi hafa verið reglubundnar undanfar- in sex ár. Nú er verið að útsetja sálma eft- ir Hjálmar H. Ragnarsson fyrir hljómsveitina, sem fluttir verða á kristnitökuhátíðinni á Þingvöllum í sumar ásamt fjölmennum barna- kór. Við Skólahljómsveitina eru nú starfandi sex kennarar auk stjórnandans, Össurar Geirssonar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.