Morgunblaðið - 16.03.2000, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
_____________UMRÆÐAN___
Um tilfinningalegt
ofbeldi og þunglyndi
VIÐ á íslandi hreykj-
um okkur yflrleitt ekki
af miklum tilfinninga-
hita og tæplega er hægt
að saka okkur um til-
finningasemi. Hefðin
hefur verið^að tengja
útrás mikilla tilflnninga
við útlendinga eins og
Itali og okkur finnst
það oft bara fyndið.
Ameríkanar eiga mest-
an heiðurinn af tilfinn-
ingaseminni sem okkur
finnst auðvitað mjög
væmin og óviðeigandi.
Við íslendingar bítum á
jaxlinn og bölvum í
hljóði og um leið beitum
við gjarnan hvert annað tilfinninga-
legu ofbeldi.
Þunglyndi má oft rekja til ýmis-
konar ofbeldis og þá ekki síst tilfinn-
ingalegs og sá sem er þunglyndur
verður gjarnan mjög næmur fyrii-
þessu ofbeldi. Hver kannast ekki við
„Það má bara ekkert segja við
hann....“ Að vísu fylgir þunglyndi oft
hugsanavillui- og ranghugmyndir um
t.d. tilfinningar annarra í sinn garð,
en það verður ekki til umfjöllunar
hér.
Manneskja í þunglyndi er yfirleitt
ekki mjög aðlaðandi. Hún er þung,
reið og/eða sár og bitur. Hún talar
gjarnan á neikvæðum nótum, þegir,
grætur eða öskrar á sína nánustu.
Það þarf oft lítið til að koma henni úr
jafnvægi og þeir sem næstir henni
standa vita ekki hvernig þeir eiga að
bregðast við, verða hræddir og óör-
uggir og segja einhveija vitleysu, eða
forða sér. Aðstandend-
ur þess sem er haldinn
þunglyndi geta ekki
læknað hann með fram-
komu sinni en þeir geta
veitt tilfinningalegan
stuðning. Eftirfarandi
er ekki uppskrift að þvi
hvemig eigi að koma
fram við þann sem hald-
inn er þunglyndi heldur
miklu fremur um það
hvemig við sýnum líðan
annarra virðingu og til-
lit, óháð því hvort við-
komandi er þunglyndur
eða ekki. Hugsum okk-
ur einfalda tjáningu til-
finninga eins og: „Mér
líður svo illa.“ Eftirfarandi em nokk-
ur dæmi um það hvernig við virðum
ekki líðan þess sem talar: „Og er það
mér að kenna?“ „Það getur ekki ver-
ið, þú sem hefur það svo gott.“ „Það
er bara af því þú vilt láta þér líða illa.“
„Það era nú margir sem hafa það verr
en þú.“ „Hættu að væla og reyndu að
taka þig saman í andhtinu!“ „Mér hef-
ur nú oft liðið verr en þetta.“ „Já, það
er nú svona, manni líður ekki alltaf
vel, það er nú bara gangur lífsins, það
geta ekki alltaf verið jólin ha, fólki líð-
ur nú oft illa svona í skammdeginu..."
Þessi viðbrögð miða að því að gera
lítið úr líðaninni, taka hana frá við-
komandi með því að telja honum trú
um að hann hafi ekki rétt til að láta
sér líða svona eða hreinlega að þetta
sé einhver misskilningur hjá honum,
honum líði alls ekki svona eins og
hann segir. Þegar við bregðumst
svona við eram við ekki til staðar fyr-
Tilfinningar
Aðstandendur þess sem
er haldinn þunglyndi
geta ekki læknað hann
með framkomu sinni,
segir Ásta Kristrún
Ólafsdóttir, en þeir
geta veitt tilfinninga-
legan stuðning.
h’ viðkomandi, við hlustum ekki og
heyrum ekki. Astæðan er oftast sú að
við kunnum það ekki eða höfum ekki
þrek til þess af því okkur líður sjálf-
um svo illa. Oftar en ekki geram við
þetta í góðri meiningu og tráum því
að við séum að gera viðkomandi eitt-
hvað gott.
Ef þú vilt sýna virðingu og vera til-
finningalegur stuðningur íyrir ein-
hvern sem er þér kær, þá eru hér
nokkrar hugmyndir að viðbrögðum
við sömu tjáningu „Mér líður svo illa.“
„Það var leitt að heyra ...“ „Er eitt-
hvað sem ég get gert fyrir þig?“
„Hvað er það sem hrjáir þig?“ „Viltu
tala... ég skal hlusta." „Mig langai’ að
hjálpa þér ..." „Viltu faðmlag?“ Hug-
myndir að lausnum koma síðar ef við-
komandi kærir sig um.
Það er krefjandi að vera til staðar
fyrir vin eða ættingja sem líður illa.
Það er ekki alltaf auðvelt að vita hvað
er rétt eða viðeigandi að segja og oft
Ríkisvíxlar í markflnklaim
Utboð fimmtudaginn 16. mars
Fimmtudaginn 16. mars kl. 11:00 mun fara fram útboð á ríkisvíxlum hjá Lánasýslu
ríkisins. Að þessu sinni verður boðið upp á 3ja, 5 og 11 mánaða ríkisvíxla en að
öðru leyti eru skilmálar útboðsins í helsm atriðum þeir sömu og í síðustu útboðum.
I boði verða eftirfarandi flokkar ríkisvíxla í markflokkum:
Núverandi Áætlað hámark
Flokkur Gjalddagi Lánstími staða* tekinna tilboða
RF00-0620 20.júní 2000 3 múnuðir 750 3.000.-
RV00-0817 17. ágúst 2000 5 mónuðir 0 1.500,-
RV01-0219 19.febrúar 2001 11 múnuðir 0 1.500,-
*Milljónir króna
Söhifyrirkomulag:
Rikisvíxlamir verða seldir með tilboðs-
fyrirkomulagi. Öllum er heimilt að bjóða í
ríkisvíxla að því tilskyldu að lágmarksfjárhæð
tilboðsins sé ekki lægri en 20 milljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum,
fjárfestingalánasjóðum, verðbréfafyrirtækjum,
verðbréfasjóðum, lífeyrissjóðum og
tryggingafélögum er heimilt að gera tilboð í
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
www.lanasysla.is • utbod@lanasysla.is
meðalverð samþykktra tilboða að lágmarki
S00.000 krónur. Öll tilboð í ríkisvíxla þurfa að
hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 11:00,
fimmtudaginn 16. mars 2000. Útboðsskilmálar,
önnur tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar
eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í
síma S62 4070.
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 45
- [j= — . ‘fti
verður okkur fótaskortur á tungunni.
Það getur veitt okkur meira öryggi
við slíkar aðstæður ef við skoðum
hvað býr að baki orða okkar, hvaða
skilaboð við eram að senda; hveiju er
ég að reyna að koma til leiðar? Hvað
er ég að segja vini mínum? Er ég að
gera lítið úr tilfinningum hans? Er ég
að fá hann til að breyta líðan sinni?
Ekki er síður nauðsynlegt að huga að
því hvernig okkur sjálfum líður en líð-
an okkar hefur heilmikið um það að
segja hvemig við upplifum vanlíðan
annarra og hvemig við höndlum sár-
ar tilfinningar. Því betur sem okkur
líður því færari eram við til að veita
öðrum stuðning.
Peysurnar fást
í Glugganum
Glugginn
Laugavegi 60. Sími 551 2854
Höfundur er ráðgjafi fyrir
óvirka alkóhólista, aðstandendur
og uppkomin börn.
Gleraugnaverslunin Sjónarhóll
www.sjonarholl.is ótraln%9tti|boa
afsláttur af öllum gólfefnum
Gólf-og veggflísar
í iniklu úrvali
Flísar frá
995 kr./m2
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Heimasíðu-
gerð
Ndmskeiðið byrjar 2L mars og stendur til Ljúnt
Kennt er áþiiðjudogum og fimmtudögum frá 13.00 -17:00.
Námskeiðið er 80 klukkustundir eða 120 kennslustundir.
I lonmm og mvndvinnsla t
Freelinnd 8 & Pliotoshop s
3ö kbt. j
HTML Forritnn
. J
Heimnsiditgerd i Frontprtge
roklst. j
Hi evf imvndii í Flctsh 4
20 klst. J
_______________________________J
Upplyslngcu og inmlttm i sinnim
544 4500 og 555 4980
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hólahraunl 2 - 220 Hafriarflrðl - Sfml: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hlíðasmára 9- 200 Kópavogl - Sfmi: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tðlvupóstfang: skoli@ntv.ls - Helmaslða: www.ntv.is