Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ
46 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
ATVI N N U AU G LÝ S I N GAR
ÍSAFJARÐARBÆR
Viltu taka þátt í mótun
áhugaverðrar starísemi með
nýjum fozmerkjum?
Skóla- og fjölskylduskrifstofa ísafjarðarbæjar/yfirmaður
Auglýst er eftir yfirmanni skóla- og fjölskylduskrifstofu ísafjarðarbæjar sem
er ný staða. Til þessa hefur ísafjarðarbær verið með starfsemi á sérstöku
fræðslusviði með skólafulltrúa og á sérstöku félagsmálasviði með félags-
málastjóra. Þá hefur sérfræðiþjónusta skólanna verið á höndum sérstaks
byggðasamlags flestra sveitarfélaga á Vestfjörðum, Skólaskrifstofu Vest-
fjarða. Öll þessi starfsemi verður nú sameinuð á einni skrifstofu sem verður
6—8 manna vinnustaður. Þjónusta skóla- og fjölskylduskrifstofu verður
veitt þeim sveitarfélögum, er þess óska, gegn þjónustusamningi.
Megin viðfangsefni yfirmanns skóla- og fjölskylduskrifstofu eru að hafa
yfirumsjón með félags-, fræðslu-, æskulýðs- og íþróttamálum á vegum
bæjarfélagsins. Hann deilir verkefnum meðal sinna undirmanna þegar það
á við og samræmir störf þeirra. Starfsemi skrifstofunnar skiptist annars
vegar í félagsmálaþjónustu og hins vegar í yfirumsjón og þjónustu vegna
fræðslumála. Horft er til samnýtingar starfskrafta og samstarfs þeirra eins
mikið og mögulegt er. Hlutverk yfirmanns felst aðallega í stjórnun og skipu-
lagningu og í mótun starfsemi skrifstofunnar í upphafi.
Leitað er eftir háskólamenntuðum einstaklingi með reynslu eða nám í stjórn-
un, góða skipulagshæfileika og menntun í skóla- eða félagsmálum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri, í síma
456 3722. Umsóknarfrestur er til og með 20. mars nk. Umsóknir skulu sendar
til ísafjarðarbæjar og merktar „skóla- og fjölskylduskrifstofa."
(ísafjarðarbæ búa um 4.500 manns. Sveitarfélagið er í fjórum byggðakjörnum: ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri
auk búsetu í sveitum. Góð þjónusta er veitt f sveitarfélaginu á öllum sviðum. Gott skíðasvæði er á ísafirði hvort sem
farið er á svig- eða gönguskíði. Aðstaða til hvers konar íþróttaiðkunar er víðast hvar innan seilingar. Náttúrufegurðin
er einstök og mannlíf gott. í ísafjarðarbæ er gott að búa í fjölskylduvænu umhverfi.
Málarar
Óskum eftir málurum í inni- og útimálun.
Múrarar
Óskum eftir múrurum í viðhaldsvinnu.
Verkamenn
Óskum eftir verkamönnum í
steypuviðgerðir.
Einnig óskum við eftir aðstoðarmönn-
um, málara og múrara.
Viltu læra
framtíðariðngrein?
• Traust fyrirtæki.
• Góður starfsandi.
• Góð laun í boði fyrir góðan
starfskraft.
*• • Unnið eftir afkastahvetjandi
launakerfi.
Upplýsingar í síma 587 5100 milli
kl. 8—16 alla virka daga.
jyiu
Mál
^ingarþJÍÍíustán HÖFN HF.
FUIMOIR/ MANIMFAGIMAÐUR
Flugmenn
Munið aðalfund Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna á Grand Hótel Reykjavík
kl. 20.00 í kvöld.
Stjórn FÍA.
Flugmenn
- flugáhugamenn
Marsfundurinn um flugöryggismál
verður haldinn á Hótel Loftleiðum í
kvöld, fimmtudagskvöldið 16. mars,
kl. 20.00.
Dagskrá:
Arngrímur Jóhannsson flytur erindi um
helstu orsakirslysa í einkaflugi.
Kvikmyndasýning.
Flugbjörgunarsvertirnar í Reykjavík,
Flugmálafélag íslands,
Flugmálastjórn,
Öryggisnefnd FÍA.
VEIÐIMÁLASTOFNUN
Veiðinýting • Lífríki í ám og vötnum • Rannsóknir • Ráðgjöf
Ársfundur
Veiðimálastofnunar 2000
haldinn í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs,
föstudaginn 17. mars 2000.
Fundarstjóri: Vífill Oddsson, formaður
stjórnar Veiðimálastofnunar.
Dagskrá:
Kl. 13.00 Fundur settur.
Kl. 13.05 SkólakórSnælandsskóla í Kópa-
vogi syngur nokkur lög.
Kl. 13.20 Ávarp ráðherra landbúnaðarmála.
Guðni Ágústsson.
Kl. 13.35 Afhending verðlauna fyrir merkjaskil
í happdrætti Veiðimálastofnunar.
Kl. 13.50 Yfirlit um starfsemi Veiðimála-
stofnunar. Sigurður Guðjónsson.
Kl. 14.10 Veiðin 1999 og veiðihorfursumarið
2000. Guðni Guðbergsson.
Kl. 14.20 Veiðinýting í íslenskum laxveiðiám.
Hvers ber að gæta?
Þórólfur Antonsson.
Kl. 14.50 Umræður og fyrirspurnir.
Kl. 15.10 Kaffihlé.
Kl. 15.30 Ræktun kræklinga á sjávarjörðum
við ísland. Valdimar Ingi Gunnars-
son.
Kl. 15.50 Umræður og fyrirspurnir.
Kl. 16.00 Fundarslit. Vífill Oddsson.
Allt áhugafólk er velkomið á fundinn.
Hönnuðir og verktakar
Munið ráðstefnu um reyklosun í
Norræna húsinu föstudaginn 17. mars.
Fundur hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
• Jón Viðar Matthíasson, varabrunamálastjóri,
flytur erindi.
• Peter Schoten frá Colt talar um reyklosun
og samtengju við sprinklerkerfi.
• Ib Clausen talar um reyklosun tengdri dag-
legri loftræstun.
• Gordon Brede kynnirThyssen Bausysteme
þakeiningar.
íslenska verslunarfélagið.
KEIMIMSL A
Ungbarnanudd
Námskeið í ungbarnanuddi hefjast á ný.
Líkamssnerting er öllum lífsnauðsynleg, en þó
sérstaklega fyrstu mánuði lífsins. Ungbarnanudd
er ein besta leiðin til að veita barni nánd eftir
fæðingu. Uppl. og skráning í síma 899 0451.
TILBOÐ / ÚTBQÐ
Öryggisþjónusta
Sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík auglýsir
eftir öryggisþjónustu. Ástæða þykir til að
bandarísk sendiráð þurfi sérstakar ráðstafanir
til að vernda líf, halda uppi reglu og takmarka
aðgang að nágrenni og húsnæði, hindra
glæpsamlegar árásir gagnvart starfsmönnum,
aðstandendum þeirra og eignum; og hryðju-
verk eða skemmdarverk gagnvart bandarískum
eignum.
Verktaki skal leggja til stjórnunar-, umsjónar-
og vinnuafl til að inna af hendi allt sem samn-
ingur þessi gerir kröfur um. Áætlaðar vinnu-
stundir í gæslu árlega eru 19.860. Samnings-
tímabil er eitt ár, en möguleiki er á endurnýjun
samnings árlega í fjögur ár til viðbótar.
Allir ábyrgðir aðilar mega gera tilboð og verða
þau skoðuð. Áætlað er að útboðsgögn verði
afhent á veraldarvefnum. Hægt verður að nálg-
ast þau þegar þau eru tilbúin á netfangi
http://www.statebuy.gov/home.htm.
Upplýsingar í sendiráðinu, Laufásvegi 21,
sími 562 9100#286.
e-mailadd: einarsdottirax@state.gov.