Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 53

Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 + Sigurbjörn Guðbrandsson fæddist á Spágils- stöðum í Laxárdal í Dölum 12. desember 1913. Hann andaðist á Hrafnistu í Reykja- vík 6. mars síðastlið- inn. Foreldrar Sigur- björns voru Guðbrandur Jónsson, bóndi á Spágilsstöð- um, f. 30.8. 1873, d. 9.9.1944, og Sigríður Margrét Sigur- björnsdóttir kona hans, f. 7.2. 1876, d. 14.3. 1946. Systkini Sigurbjöms era: Sigrún (1900-1968), Guð- mundur (1901-1932), Markús (1902-1966), Ása (1903-1972), Hinrik (1905-1940), Guðríður (f. 1906), Jón (1907-1931), Krist- mundur (1909-1999), Guðrún (f. 1912) og Sigurður (1915-1932). Auk hins stóra hóps eigin barna ólu þau Guðbrandur og Sigríður upp Láru Marteinsdóttur Wiken (f. 1918) og að miklu leyti Báru Við lát Sigurbjöms frænda míns vakna í huga mér ljúfar minningar frá meira en sextíu ára samleið. Þær fyrstu tengjast sumardvöl hjá afa og ömmu á Spágilsstöðum. Sigurbjöm var yngstur þeirra Spágilsstaða- systkina, sem þá voru heima, og ég minnist þess enn hversu vel hann tók þessum unga frænda sínum úr Reykjavík, sem kominn var til fóst- urs hjá systur hans og mági í Búðar- dal. Ef að mér steðjuðu hættur á refilstigum sveitalífsins, ímyndaðar eða raunverulegar, þá var það segin saga að Bjössi frændi var óðar kom- inn á vettvang að hjálpa mér. Þegar ég komst í mestu vandræði með nautin á bænum, þar sem ég hafði verið sendur til að sækja hest, þá varð það mér til happs að Sigur- björn hafði fylgst með mér af túninu heima og kom í loftköstum að lið- sinna hinum unga hestasveini. Nú skal fram tekið, að nautin á bænum voru alla jafna gæf, en þennan fagra sumardag varð óvænt breyting á hegðun þeirra. Það kom sér vel, bæði í þetta skipti og oftar, að Sig- urbjörn var langt fram eftir ævi afar léttur á fæti. Hann var fremur hár maður vexti og ekki voru aukakílóin honum til trafala, hvorki þá né síðar. Sigurbjörn var vel verki farinn og ég held ég megi fullyrða að öll störf sem fyrir komu utanhúss á stóru sveitaheimili hafí leikið í höndum hans. Hann var ötull og fylginn sér að hverju sem hann gekk og þótti af- burða sláttumaður, meðan sá háttur var á hafður. Síðar urðu Sigurbjöm og bræður hans með þeim fyrstu þar um slóðir til að temja hesta til að fara með sláttuvélar. Sigurbjörn var natinn við skepnur og þótti glöggur fjármaður, en þó fór ekkert á milli mála, að hestarnir vora hans upp- áhald. í sveitinni átti hann ávallt góða reiðhesta og raunar einnig eft- ir að hann fluttist til Reykjavíkur, en hér héldu hann og Salbjörg hesta um margra ára skeið. Sigurbjörn hafði bjarta og fagra rödd sem naut sín vel í söng og einn- ig við frásögn í mæltu máli. Meðan hann var fyrir vestan söng hann í kirkjukór Hjarðarholtskirkju og tók einnig þátt í öðru söngstarfi þar í héraði. Eftir að hann kom suður söng hann í ýmsum kórum, m.a. kirkjukór Óháða fríkirkjusafnaðar- ins. Sigurbjöm var gæddur góðri frásagnargáfu og hafði sérstakt lag á að segja skemmtilega frá atburð- um í sveitalífínu. Síðasta sagan sem hann sagði mér var af ferð hans og Guðmundar bróður hans í leit að lambá, sem villst hafði að heiman. Ána fundu þeir frammi á Ljárskóga- fjalli og nýborið lamb hennar. Guð- mundur, sem var eldri, bjóst til að koma ánni heim, en Sigurbjöm fékk það hlutverk að sjá um lambið. Mun hann hafa farið heim á leið á undan Guðmundi, sem ætlaði sér lengri tíma. Sigurbjörn kom þreyttur að Þórðardóttur (f. 1924). Sigurbjörn vann að búi foreldra sinna á Spágilsstöðum meðan þau lifðu en eftir það í nokkur ár að búi Markúsar bróður síns þar á bæ, jafnframt því sem hann stundaði ýmsa vinnu sem til féll í héraði. Nokkru fyrir miðjan aldur fluttist Sigurbjörn alfarinn til Reykjavíkur. Þar starfaði hann um árabil að trésmíðavinnu hjá ýms- um fyrirtækjum í Reykjavík og Garðabæ, en síðan á annan áratug sem húsvörður hjá Iðnaðarbank- anum í Lækjargötu, uns hann lét af því starfi fyrir aldurs sakir. Eftirlifandi sambýliskona Sig- urbjöras er Salbjörg Halldórs- dóttir, f. 16. apríl 1910. Utför Sigurbjörns verður gerð frá Áskirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Vígholtsstöðum með lambið í fang- inu, en þar bjuggu þá Björn Magn- ússon og kona hans Hólmfríður Benediktsdóttir, síðar í Skógsmúla og að Þorbergsstöðum. Að Vígholts- stöðum var honum veittur góður beini og Björn bóndi sýndi honum það drengskaparbragð að fylgja honum heim í hlað á Spágilsstöðum og hélt á lambinu þessa leið sem eft- ir var. Svona var samhjálpin í sveit- inni á þessum löngu liðna tíma og svona vom sögurnar hann Bjössa; þær vora jafnan til þess fallnar að halda á lofti því sem jákvætt var og fagurt. Af ártölum í Dalamannabók séra Jóns Guðnasonar má ætla að Sigurbjöm hafi verið 10 til 11 ára gamall, þegar þessi saga gerðist. Sigurbjörn þótti mjög lagtækur og var því eftirsóttur að sinna hvers konar smíðaverkefnum, bæði heima og heiman. Hann var í eðli sínu mjög greiðvikinn og oft hvarflar að mér að mörgum þessara verkefna hafi hann sinnt fyrir lítið endurgjald um- fram þá gleði sem það veitti honum að geta lagt samferðamönnum sín- um lið. Eftir að Sigurbjörn fluttist suður var oft leitað til hans, þegar smáfólkið þurfti að láta laga leik- föngin sín. Hjá ættfólki hans leynist því margur gripurinn, sem varð betri en nýr eftir að Bjössi frændi hafði farið um hann höndum. Á efri árum lagði Sigurbjöm fyrir sig bókband og á því sviði naut með- fædd handlagni hans sín vel. Það treysti tengsl mín og kynni við frænda minn að um miðbik æv- innar dvaldi hann oft um lengri eða skemmri tíma á heimili fósturfor- eldra minna, Guðríðar Guðbrands- dóttur og Þorsteins Jóhannssonar, bæði vestur í Búðardal og einnig hér syðra. Frá árinu 1971 var Sigurbjöm í sambýli við Salbjörgu Halldórsdótt- ur, sem var ekkja eftir Markús bróður hans. Salbjörg er mikil dugnaðar- og myndarkona og bjó hún Sigurbirni fallegt og hlýlegt heimili, þar sem honum leið vel. Við Inga þökkum að leiðarlokum gest- risni og hlýjar móttökur á heimili þeirra í Skerjafirði og síðar á Vest- urgötu. Þar var löngum rætt um liðna atburði í Dölum vestur óg til að styðja frásögnina var stundum grip- ið úr hillunni albúm með myndum af horfnum góðhestum húsráðenda. Síðustu tvö árin var Sigurbjöm vist- maður að Hrafnistu í Reykjavík en eitt ár þar á undan á Dvalarheimili aldraðra að Reykhólum. Hafi það góða fólk heila þökk, sem létti hon- um baráttuna þessi síðustu ár. Þegar fölskva sló á skammtíma- minnið, varð frænda mínum kærast umræðuefni, þegar talað var um löngu liðna atburði í Dölum. Ég trúi því að andi hans sé nú svifinn á vit þeirra ljúfu sumardaga, sem tengj- ast fyrstu endurminningum mínum um hann. Ég sé fyrir mér Spágils- staðatúnið baðað í sól og við hesta- steininn stendur gæðingurinn Óðinn og bíður eiganda síns. Salbjörgu og eftirlifandi systrum hins látna, Guðríði og Guðrúnu, sendum við Inga innilegustu samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu Sigurbjörns Guðbrandssonar. Sigurður Markússon. Þegar ég var ung að aldri var ég send suður að Leiðólfsstöðum í Lax- árdal en þar vora hlaðnir geymar sem notaðir voru til að halda útvarpi gangandi. Þetta væri varla í frásögur fær- andi nema hvað þessi ferð mín teng- ist manninum sem ég nú ætla að minnast nokkram orðum. Mér var sagt að koma við á Spágilsstöðum og fá fylgd yfir Laxá ef mikið væri í ánni. Ég fylgdi þeirri fyrirsögn. Mér var boðið í bæinn þar sem húsbænd- ur vora Guðbrandur og Sigríður, hjón sem áttu ellefu böm eins og stendur í umgangsvísunni sem kveðin var um þau og bömin. Hinni, Maggi, Mundi, Jonni, Kiddi, Bjössi, Sigurður, Rúna, Ása, Guja, Gunna, Guðbrandur og Sigríður. Sigurbjörn var sambýlismaður systur minnar, Salbjargar Halldórs- dóttur, eftir að hún missti mann sinn, Markús Guðbrandsson, sem var bróðir Sigurbjörns. Fyrstu árin bjuggu þau á Hörpu- götu 6 í Skerjafirði en fluttust þaðan að Vesturgötu 7. í Skerjafirðinum unnu þau Salbjörg og Sigurbjörn hörðum höndum við að betrambæta húsið og lóðina. Þau lögðu hellur út í litla geymsluhúsið í garðinum, stungu upp stóran kartöflugarð á lóðinni og blómabeð við húsið. Allt var vöndulega gert og list- rænt sem Sigurbjörn tók sér fyrir hendur. Sigurbjörn starfaði í banka í Lækjargötunni og vann oft um næt- ur og labbaði oftast nær á milli enda grannur maður og frár á fæti. Svo leið að þeim tíma að Sigur- björn hætti að vinna. Þá keyptu þau Salbjörg sér íbúð á Vesturgötu 7. Það var lítil og snotur íbúð með flestum þægindum sem völ er á. Þangað kom til þeirra margt af fólki sem leið átti um Vesturgötuna. Sig- urbjörn hafði góðan frásagnarhæfi- leika. Hefur hann sjálfsagt lært mikið af föður sínum, sem sagt var að kennt hefði börnum sínum það heilræði „að spyrja, hlusta og muna“. Salbjörg var rausnarkona sem átti vel við Sigurbjörn. Þeirra sambúð var farsæl og góð meðan beggja heilsa leyfði. Sigurbjöm Guðbrandsson er kvaddur með virðingu og þakklæti. Jensína Halldórsdúttir. Bróðir minn, GUÐMUNDUR JÖRGEN SIGURÐSSON frá Bjarnahúsi, Stokkseyri, lést á dvalarheimilinu Fellsenda aðfaranótt 12. mars. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju laugardaginn 18. mars kl.14.00. Jarðsett verður á Stokkseyri. Fyrir hönd aðstandenda. Gyða Sigurðardóttir. SIG URBJÖRN GUÐBRANDSSON + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN ÁRNASON skóiastjóri, Skeiðarvogi 125, Reykjavík, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku- daginn 8. mars síðstliðinn, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í dag, fimmtudaginn 16. mars kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Orgelsjóð Langholtskirkju. Þórhíldur Halldórsdóttir, Halldór Jónsson, Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir, Trausti Leifsson, 1 afabörn og langafabarn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT GUÐLAUG BOGADÓTTIR, Skálarhlíð, Siglufirði, áður til heimilis á Hólavegi 38, sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Siglufirði föstudaginn 10. mars sl., verður jarðsungin frá daginn 18. mars kl. 14.00. Theódór Þráinn Bogason, Birna Berg, Sigurlína Káradóttir, Hreinn Júlíusson, Hjördís Káradóttir, Stefán Björnsson, Höskuidur Rafn Kárason, Sigurleif Guðfinnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. WBUm.—.. , v ri-JM Siglufjarðarkirkju laugar- + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, INGVELDUR MARKÚSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Klapparstíg 9, Reykjavík, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði í dag, fimmtudaginn 16. mars, kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Heimahlynningu Krabba- meinsfélagsins. Stefán T Hjaltalín, Sigurbjörg M. Stefánsdóttir, Guðmundur M. Sigurðsson, Ingibjörg St. Hjaltalín, Jóhannes Sv. Halldórsson, Sigurður J. Stefánsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ftr + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTINN MARKÚSSON frá Dísukoti, Þykkvabæ, verður jarðsunginn frá Þykkvabæjarkirkju föstudaginn 17. mars kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vil- ________ ja minnast hans, er bent á Safnaðarmiðstöð Hvítasunnumanna í lækjarkoti, Fljótshlíð. Kirkju- Guðrún Hafliðadóttir, börn, tengdabörn, barnabörn '' J og barnabarnabarn. + Okkar ástkæra, SESSELJA HRÓBJARTSDÓTTIR frá Söndu, Stokkseyri, verður jarðsett frá Stokkseyrarkirkju laugar- daginn 18. mars kl. 14.00. Jón Áskell Jónsson, Guðbjörg Kristinsdóttir, Gunnar Valur Jónsson, Sigríður Kristín Jónsdóttir, Ragnhildur Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ......

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.