Morgunblaðið - 16.03.2000, Qupperneq 68
68 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Skjalaskápar
$
Traustir - vandaðir og á góðu verði!
OLAFUR GISLASON & CO HF., SUNDABORG 3, SIMI 568 4800.
EG SKRIFSTOFUBÚNAÐUR, ÁRMÚLA 20, SÍMI 533 5900.
mLUNDUR
FASTE IONASAIA
Sri.nuLfir.mt. 10- 108 RetrLjavíL
Sí-mi: 533 1616 lJax: 533 1617
Sólheimar 4-5 herbergja í lyftublokk.
Stór 4ra til 5 herbergja íbúð á 9. hæð í vinsælu lyftuhúsi. Þrjú til
fjögur svefnherbergi (E-íbúð).
Hol, góð stofa, suðvestursvalir frá stofu er gott útsýni yfir borg-
ina. Fjögur herbergi, möguleiki á að stækka stofuna. Uppgert
eldhús með nýlegum innréttingum og borðkrók. Baðherbergi
flísalagt með kari. Lítil geymsla frá holi og í anddyri. Gólfefni:
Parket á holi og stofu, dúkur á öðru. í kjallara er sérgeymsla og
tvö þvottahús með tækjum. Snyrtileg sameign. Húsvörður. Ný-
lega endunýjaður lyftbúnaður. Nýtt gler og gluggar. V. 14,5 m.
Miðtún 3ja herbergja
Björt og sérlega rúmgóð 3ja herbergja kjallaraíbúð í fallegu tví-
til þríbýlishúsi, kjallari, hæð og ris. Forstofa með fatahengi, hol,
, góð stofa.Tvö mjög rúmgóð herbergi. Gott eldhús með endur-
nýjuðum innréttingum og borðkrók. Baðherbergi með kari. Frá
holi er geymsla. Sameiginlegt þvottahús frá forstofu, hver með
sína vél. Gólfefni: Eikarparket og dúkur. V. 9,3 m.
Lögmannafélae
íslands
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Lögmannafélags íslands 2000 verður haldinn
í Ársal á Hótel Sögu föstudaginn 17. mars nk. kl. 14:00.
D A G S K R Á:
1. Adalfundarstörf samkvæmt 8. gr. samþykkta
fyrir Lögmannafélag íslands.
2. Tillaga stjórnar um hækkun árgjalds til
Lögmannafélags íslands.
3. Afgreiðsla nýs frumvarps um Codex Ethicus
Lögmannafélags íslands.
v 4. Önnur mál.
Að ioknum aðalfundi LMFÍ verður haldinn aðalfundur
félagsdeildar LMFÍ.
D A G S K R Á:
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 6. gr. reglna um
félagsdeild LMFÍ.
2. Tillaga stjórnar um lækkun árgjalds til félags-
deildar LMFÍ.
3. Önnur mál.
Stjórn Lögmannafélags íslands.
Fréttagetraun á Netinu ^mbl.is
/\LLTAf= eiTTHVAO rJÝTt
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
FÍB lúxus-
tryggingar
ÉG er nýbúin að kaupa mér
bifreið og valdi þann kost að
tryggja hana hjá FÍB. Þeg-
ar ég fékk svo send heim öll
tryggingarskjölin og fór að
lesa þetta yfir, kom ég fljótt
auga á að inni i félgasgjsald-
inu, sem er 3400 kr. á ári var
ýmis þjónusta innifalin, svo
sem að senda mér aðstoð ef
dekk springur, ef bíllinn
yrði rafmagnslaus og ég
þyrfti að fá start og það
mætti lengi telja upp margs
konar aðra þjónustu, sem
yrði of langt mál að telja
upp hér. Ég lenti svo í því
sunnudaginn 12. mars sL, að
ég var á leið frá heimili mínu
í Mosfellsbæ og til Reykja-
víkur, að það sprakk á bíln-
um. Ég hringdi strax í þjón-
ustu síma FIB og fékk fljóta
og góða aðstoð við að skipta
um dekk og ekki nóg með
það, því það hafði lekið loft
úr varadekkinu. Maðurinn
fór með það á næstu bensín-
stöðog pumpaði lofti í dekk-
ið. Ég sat hin rólegasta á
meðan í heitum bílnum og
hlustaði á músík og þegar
hann kom til baka, veifaði
ég féiagsskírteininu mínu,
þakkaði aðstoðina sem var
mér að kostnaðarlausu og
ók mína leið. Að endingu
þakka ég góða þjónustu.
Edda
Sankti Jósepsspítali-
handlækningadeild
FRÁBÆRT sjúkrahús. Ég
hef legið á fleiri sjúkrahús-
um, en þetta tekur öllum
fram. 011 umönnun hjá þeim
er til fyrirmyndar, hvort
sem læknar, hjúkrunarfólk
eða annað starfsfólk á í hlut.
Það er valinn maður í
hverju starfi. Það mættu
vera fleiri svona minni
sjúkrahús. Vonandi sjá yfir-
völd sóma sinn í því, að láta
Sankti Jósepsspítala halda
áfram að starfa og dafna.
G.I.
Maður líttu þér nær
SU orrahríð forsætisráð-
herra Davíðs Oddssonar
gegn Garðari Sverrissyni
formanni Oryrkjabandalag-
sins, er satt að segja merld-
leg. Hann sakar manninn
um að líkja sér við nasista
og fasista, auk annarrar lít-
ilsvirðingar og sýnist vera
bæði sár og fullur vandlæt-
ingar þess vegna. Ef minni
mitt bregst ekki, líkti for-
sætisráðherra á fundi á Ak-
ureyri, þar sem var troðfull-
ur salur af áheyrendum,
borgarstjóra Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur við Pol
Pot. Það væri nú gaman ef
einhver getur staðfest það
sem hér er sagt. Ef það
reynist ekki rétt vera og
rangminni mitt, er forsætis-
ráðherra beðinn innilegrar
afsökunar á þessum skrif-
um, en ef rétt reynist, er
sjálfsagt að hann líti sér
nær, áður en hann stekkur
upp á nef sér.
Hildur, 120734-4749
Hvar er góðærið
umrædda?
GIFT, fimm barna móðir,
með fjögur böm á sínu
framfæri, hafði samband við
Velvakanda og vildi lýsa eft-
ir góðærinu umrædda.
Maðurinn hennar nær ekki
100 þúsund krónum í laun á
mánuði. Hún er 76% öryrki
með um 40. þúsund krónur
útborgaðar ó mánuði. Við
búum í 100 fermetra íbúð.
Launin duga ekki nema í
hálfan mánuð og fáum við
skrifað hjá okkur úti í búð.
Ég er fædd inn í Sjálfsstæð-
isflokkinn og hef alltaf kosið
hann, en nú ætla ég sko að
hugsa mig um. Launbilið er
orðið allt of mikið hjá fólki.
Það má ekkert koma upp á,
því það á engan afgang. Þeir
lægst launuðu bera alltaf
byrðarnar. Það Hggur við að
maður taki sig upp og flytji
til útlanda. Hvar er góðærið
umrædda, sem alltaf er ver-
ið að tala um, ég hef ekki
orðið vör við það.
Laufey
Tapað/fundið
Grá, smáköflótt
karlmannshúfa
tekin í misgripum
SA sem tók í misgripum
gráa smáköflótta karlmann-
shúfu á Góugleði í Asgarði
föstudagskvöldið 10. mars
sl., merkt Oskar innan í
kollinum, er vinsamlegast
beðinn að skila henni á
skrifstofu Asgarðs.
Lyklar fundust
LYKLAR fundust við Aust-
urberg í Breiðholti fyrir
skömmu. Upplýsingar gef-
ur Reynir í síma 561-1795.
Morgunblaðið/Ómar
í klifurgrindinni í Hljómskálagarðinum.
Víkverji skrifar...
RÁS 1 er tvímælalaust útvarp
hins hugsandi manns. Þar er
haldið uppi metnaðarfullri dagskrá
sem er, þegar best tekst upp, bæði
skemmtileg og fræðandi. Fyrir
skömmu var á dagskrá stöðvarinnar
þáttur þar sem fjallað var um Dill-
onshús, en það hús stendur nú á Ár-
bæjarsafni. Húsið reisti enski lá-
varðurinn Dillon, en síðar rak Sire
Ottesen, ástkona hans, þar veitinga-
sölu í mörg ár um miðja síðustu öld.
Jónas Hallgrímsson skáld leigði hjá
frú Ottesen einn vetur. I útvarps-
þættinum var þessi saga rakin og
sagt frá bréfi sem Jónas skrifaði
Stefáni Gunnlaugssyni bæjarfógeta
á þeim tíma þegar skáldið var kostg-
angari í Dillonshúsi. Bréf þetta er í
meira lagi sérkennilegt og gefur
nýja mynd af hinu rómantíska þjóð-
skáldi. I bréfinu kvartar Jónas yfir
ásókn konu nokkurrar, sem hann
kallar „pútu“, sem hann segir að hafi
ofsótt sig í þrjú ár. Jónas segir að
það sé óhæfa að bæjarfógeti skuli
hafa látið þessar ofsóknir viðgangast
í svo langan tíma og hvetur hann til
að draga „pútuna" fyrir rétt. Jónas
segir að konan hafi legið við glugga
hjá sér og svo þreyttur er skáldið á
henni að hann segist ekki geta úti-
lokað að hann, í bræði sinni, leggi á
hana hendur eða hendi í hana grjóti.
í bréfinu, sem hægt er að líta á sem
kæru, er líklega að fmna fyrstu kæru
íslensks karlmanns á hendur konu
fyrir kynferðislega áreitni.
XXX
ÍKVERJI átti leið upp í Borgar-
fjörð um helgina og fór að sjálf-
sögðu um Hvalfjarðargöng. Veður
var vont á leiðinni. T.d. var blindbyl-
ur við Akrafjall. Víkverji var því feg-
inn að geta farið göngin og sloppið
við að aka Hvalfjörð. Að þessu leyt-
inu hafa Hvalfjarðargöng ótvírætt
aukið öryggi vegfarenda og þannig
dregið úr slysahættu. Nauðsynlegt
er að hafa þetta í huga þegar rætt er
um slysahættu í göngunum vegna
áreksturs eða elds.
Þegar framkvæmdir við Hval-
fjarðargöng voru að hefjast urðu
margir til að gagnrýna gangagerð-
ina. Gengu sumir svo langt að hvetja
almenning til að rísa upp og mót-
mæla þessu glapræði, eins og það
var kallað. Verkfræðingar lögðu
fram upplýsingar þar sem því var
haldið fram að þarna stefndi í verk-
fræðilegt slys. Sumpart var þessi
gagnrýni byggð á því að ríkið gekkst
í ábyrgð fyrir ófyrirséðum skakka-
föllum sem hugsanlega kæmu upp á
framkvæmdatímanum. Ekki mun
reyna á þessa ábyrgð. Þvert á móti
eru hofur á að ríkið eignist göngin
5-7 árum fyrr en gert var ráð fyrir í
áætlunum. Svartsýnismennirnir
reyndust því hafa algerlega rangt
fyrir sér. Raunar má segja að þeir
bjartsýnu hafi einnig misreiknað sig
því að framkvæmdir gengu mun bet-
ur en reiknað var með og umferð um
göngin er miklu meiri en áætlað var.
xxx
1"* FRÉTTUM í síðustu viku var
sagt frá því að Guðjón Þórðarson,
þjálfari Stoke, hefði „keypt son
sinn“. Víkverja fannst þetta dálítið
sérkennilegt orðalag, en það sem við
var átt var að Guðjón hafði gert
samning við knattspyrnuliðið Genk í
Belgíu um að Bjarni Guðjónsson
gengi til liðs við Stoke og spilaði með
því í vetur. Á fótboltamáli heitir
þetta að „kaupa“ leikmann.