Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 72

Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 72
72 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Sýningin „hvít“ opnar í Nýlistasafninu Morgunblaðið/Jim Smart Ingólfur Arnarson, Hilmar Bjamason, Andreas Karl Schulze og Robin van Harreveld. Knöpp og margræð verk Sýningin Húsið andar opnuð í Gula húsinu. NÝLISTASAFNIÐ opnar sýninguna „hvít“ á laugar- daginn kl. 16, þar sem fjór- ir mínímalistar sýna verk sín. Sýn- ingin er sú fyrsta af þremur sem Nýlistasafnið stendur fyrir í tilefni af Reykjavík - menningarborg 000. Ingólfur Arnarson er umsjónar- maður sýningarinnar en hann hefur á síðustu árum einbeitt sér að gerð blýantsteikninga. Á sýningunni sýn- ir hann óhlutbundnar teikningar, gerðar úr neti fínna, lífrænna lína þar sem eitt lag þekur annað. Ing- ólfur hefur fengið til liðs við sig þrjá ólíka listamenn; Hilmar Bjarnason, sem sýnir myndbönd og hljóðverk unnin á tölvu, Þjóðverjann Andreas Karl Schulze, sem hefur virkni lita að megin viðfangsefni, og Hollend- inginn Robin van Harreveld, sem á síðustu árum hefur einbeitt sér að gerð svart/hvítra ljósmynda úr hans nánasta umhverfi. Með sýningunni „hvít“ segist Ingólfur vilja stofna til samsýningar með virkni; gefa mynd af list ein- staklinga auk þess að skila heildar- áhrifum og áhrifum víxlverkunar milli ólíkra verka. „Hvítir veggir eru í senn umgjörð og hluti verk- anna,“ segii’ Ingólfur. „Ég vildi velja með mér listamenn sem vinna með ólíka miðla, en eiga það sam- merkt að gera í senn knöpp og margræð verk. Verk sem eru sjálf- gefin, skiljanleg og krefjast ekki orðskýringa. Verk okkar allra eiga það sammerkt að vera á ystu mörk- um óhlutbundinnar myndlistar." Sýningin „hvít“ stendur til 16. apni. Nýlistasafnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18. LAUGARDAG verður opn- uð sýning í Gula húsinu svokallaða, sem er húseignin á mótum Frakkastígs og Lindargötu en fyrir röskum fimm vikum yfir- tóku ungir myndlistarmenn húsið og hafa haldið uppi öflugri liststarfsemi þar síðan. Markmið þein-a er að nýta það pláss sem er til staðar og er ónotað til að halda uppi öflugri list- starfsemi í landinu, oft er þörf en nú er nauðsyn. Carl Anders Skoglund og Goddur (Guðmund- ur Oddur) verða með í Húsinu frá 18. mars til 31. mars en þar er opið alla daga frá kl. 15- 18. Opnun sýningar- innar er á laugardags- kvöldið næstkom- andi klukkan 21. Carl Anders er mörgum Islendingum að góðu kunn- ur þar sem hann dvaldist hér sem gestanemi við Myndlista- og handíðaskólann' sáluga. En hann er nú að ljúka meistaraprófsgráðu við Konstfack í Stokkhólmi. Nú er Goddur „lomo ambassador“ á ís- landi en í kringum þessa þekktu rússnesku myndavél hefur myndast alþjóðleg hreyfmg sem hefur sendi- ráð í öllum helstu borgum heimsins. Gustur og Sigurrós verða meðal þeirra sem koma fram og hugsan- legt er að fleiri gestum verði boðin þátttaka í sýningunni en það kemur ekki í ljós fyrr en á laugardagskvöld- Núið er eini möguleik- inn til þess að skapa ið. Sýningin er kölluð Húsið andar. „Vitsmunir skapa ekki - en það er kannski ágætt að láta þá fylgjast með til álengdar - vitsmuni notum við til þess að greina, rökræða, vega og meta það sem orðið er,“ segir Guðmundur Oddur, kennari, hönnuður og mynd- listarmaður, og hann heldur áfram: „Sá sem gerir eitthvað í list sem skiptir einhverju máli er gjörsam- lega meðvitundarlaus um mikilvægi þess sem er að gerast, aðeins tíminn leiðir í Ijós hvort þetta skiptir máli. Núið, inspírerað „NU“ er eini mögu- leikinn til þess að skapa. Síaðar sýn- ingar þar sem safinn er úr og eftir- stendur listin sem steinrunninn minnisvarði eru góð áminning um þetta. „Húsið andar“ er sýning sem er hluti af bylgju sem berst um heimsbyggðina um nauðsyn andans í umhverfi þar sem menn eru að tapa sér í andlausri hátækni og dýrum efnum og telja sér trú um að raun- veruleg verðmæti felist þar. Margir halda líka að gullgerðai-menn mið- alda hafi ver- ið að reyna að „búa til“ gull, en þeir voru ekki að því, þeir voru að reyna að koma andan- um í efnið og þar er hið raunverulega gull. Angi af þessari nýju gullgerðarlist er nýi stíllinn sem Bibbi kynntist í Hollandi og var núna til sýnis í fyrsta sinn á Islandi í galleríi Nema hvað, þar er ekki vottur af vitsmunum í listinni hans - en það er ekki þar með sagt að hún sé andlaus heldur þvert á móti. Angi af þessari gullgerðarlist er líka Lomo-bylgjan en hún myndar kjarnann í sýning- unni sem verður opnuð nú á laugar- daginn undir yfirskriftinni Húsið andar. Hún samanstendur af þess- um nýja anda. Lomo-liðar munu sýna þarna einnig ásamt okkur Carli,“ segir Guðmundur Oddur að lokum. Allir eru velkomnir á opnunina klukkan 21 á fimmtudaginn til þess að sjá allt þetta gull! KRINGLUKAST UNLIMITED Laugavegi 95, Kringlunni Vero Moda tilboð: Fresh bolur 1.490 290 Rega buxur 1.930 990 Swiss peysa 2.290 1.290 Vision toppur 3.630 1.490 Sunny peysa 2.790 1.690 Vision pils 3.630 1.990 o.fl. tilboð Jack & Jones tilboð: Crossover töskur 2.930 1.990 Simo peysa 4.930 2.990 Rador buxur 4.930 2.990 Inno peysa 3.930 2.990 Gatt skyrta 3.930 2.990 o.fl. tilboð Nýtt kortatímabil Opið sunnudag í Kringlunni vegi 97, Kringli

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.