Morgunblaðið - 16.03.2000, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 73
------------------------*
FÓLK í FRÉTTUM
Rýmisupplifun
á alheimsvísu
LISTAMAÐURINN Egill
Sæbjörnsson útskrifaðist úr fjöl-
tæknideild Myndlista- og handíða-
skólans 1997. Hann dvelur nú í Viln-
ius, höfuðborg Litháa, í vinnustofu
sem Nordic Institut of Contempor-
aryArtá.
Blaðamaður hringdi í hann austur
eftir og spurði hann hvað hann væri
að vinna við þessa dagana.
„Eg hef mest verið að vinna við
ljósmyndir og tölvur og reyndar að
mála líka af því að ég er ekki með
tölvu. Það neyðir mann til að fara
nýjar brautir sem er mjög gott. Ég
er búinn að „experimenta" alveg á
fullu,“ segir Egill og hlær.
„Ég vinn með „Quick Time Virtual
Reality“-tækni þar sem ég nota ljós-
myndir til að líkja eftir þrívíðu rými.
Þetta eru Panorama-myndir sem ná
360 gráðum svo maður þarf að snúa í
hring í tölvunni."
- Hvað myndarðu þá helst?
„Ég mynda svæði sem eru ekki
sérstaklega einkennandi, einsog
húsasund því þau eru eins á Islandi
og í Litháen, og þetta á að vera rým-
isupplifun á alheimsvísu. Ég skrapp
til Riga í Lettlandi og tók jþar nokk-
uð af svipuðum myndum. Ég varð að
fara þangað því ég er að undirbúa
efni fyrir sýningar í sumar og það
eru engar Macintosh-tölvur í Vilnius.
Þetta er ótrúlegt.“
- Hvernig er annars listalMð í
Vilnius?
„Hér er eitt nútíma listasafn þar
sem verk áhugaverða listamanna eru
sýnd eins og Elke Krystufek frá
Austurríki og Andy Warhol. En það
eru ekki mörg gallerí hér. í listahá-
skólanum er nefnilega engin nútíma
listadeild, nema það er kennd
myndbandavinnsla og ljósmyndun.
Og þegar þeir eru afturhaldssamir f
skólanum þá hlýtur það að hafa mikil
áhrif. En það eru listamenn hér
sem sveima um í aljóðlega lista-
heiminum og fást við svipaða hluti og
listamenn Ameríku og Évrópu. Aðr-
ir eru bara að mála myndir af klök-
um, drullu og trjám. Hér er allt mjög
gamalt og öll stemmningin. Þeir eru
að nútímavæðast en það tekur allt
sinn tíma.“
- Spennandi staður fyrir lista-
mann?
„Já, fyrir þá sem geta alltaf verið
fjarstýrðir, Sumir verða að vera í
sambandi við listaheiminn en sjálf-
um finnst mér mjög gott að vera
fjarstýrður og ég tala við alla í gegn-
um tölvupóstinn,"
segir Egill og hlær. „Mér finnst
það frábært."
- Var ekki allt annað að vera í
Berlín?
Úr myndbandinu „The Intemat-
ional Rock n’ Roll Summer of
Egill Sæbjömsson" þar sem Eg-
ill er að breytast í skrýmslið
Eddie sem er þekkt af plötuum-
slögum Iron Maiden.
„Jú, en ég reyndi að vera alltaf í
búðinni minni og bara þremur göt-
um. En það tókst ekki alveg og ég
hitti fullt af fólki, sýndi á mörgum
sýningum og það er mjög mikið að
gerast þar. Miklu, miklu meira lif-
andi borg sem er rosalega mikið í
mótun þar sem ekkert er í föstum
skorðum. Það eru ekki bara ungir
galleríeigendur sem taka inn unga
listamenn og þetta er allt mjög opið.
Hér í Vilnius er þetta allt mjög
skrýtið.“
- Hvemig myndirðu flokka Usta-
h'íið á Islandi miðað við í Berlín og
Vilnius?
„Á íslandi vantar aðila sem hefur
brennandi áhuga á að koma íslensk-
um listamönnum á framfæri og
hagnast á því, því markaðurinn er til
staðar. Nikolaj Walner vann sig með
faxtæki, tölvu og áhuganum í upp í
það að verða einn mikilvægasti gall-
erírekandi í Danmörku og hefur
komið mörgum ungum listamönnum
mjög langt. Það er fullt af fínum
listamönnum á Islandi sem ættu að
vera meira í sviðsljósinu eins og Þor-
valdur Þorsteinsson og fleiri.“
- Hvert heldurðu núna?
„Ég er að fara að sýna í Grass í
Austurríki, svo fer ég í þýskan smá-
bæ í Worpswede í Barkenhoff Stift-
ung og verð þar í listamannsstofu í
sex mánuði. Svo fer ég til Óðisnvéa í
Danmörku að halda sýningu í nem-
endagalleríinu þar. Það er fullt í
gangi hjá mér.“
- En ætlarðu að koma heim og
sýna afraksturinn?
„Ég er svona „ping pong“ milli ís-
lands og annarra landa. Mér hefurSr
fundist gott að fara til útlanda og
koma aftur til íslands. Ég kem heim
um jólin og svo er ég að koma heim
að halda sýningu í One o One, í júní,
held ég,“ segir Egill að lokum.
Nana Petzet sýnir í galleríi One o One
Safn og ekki safn
Morgunblaðið/Golli
Nana Petzet opnar sýningu í gallerí One o One.
GALLERÍ One o One opnar á
laugardaginn kl. 17 sýninguna
„Ekka frænka“ eftir listakonu að
nafni Nana Petzet.
„Ég sýni hluti sem gömul
frænka mín sem dó fyrir tveimur
árum átti,“ útskýrir Nana. „Fjöl-
skylda mín sá um að þrífa út úr
húsinu hennar í Austurríki og
ákveða hverju yrði hent og hvað
varðveitt. En ég tók flesta munina
og sýni þá og þetta eru diskar og
föt og það er búið að gera við allt.“
Nana hefur í fimm ár safnað
alls konar vöruumbúðum, s.s
rusli, endurunnum hlutum gerð-
um úr plastpokum og dósum og
svo viðgerðum hlutum. Hún á orð-
ið heilmikið safn, áreiðanlega þús-
und hluti að eigin sögn.
„I sýningunni „Ekka frænka“
sýni ég einnig myndir af því þegar
við tókum til í húsinu og hvernig
allt breyttist. Þetta er lítil hug-
leiðing um hvernig fólk geymir
hluti í lengri tíma og passar upp á
þá og þegar fólkið deyr er hlutun-
um hent, þeir eru skyndilega
einskis virði. Ég skrifaði texta
sem hefur verið þýddur á íslensku
þar sem ég tala á „safnamáli“ um
mikilvægi þess að varðveita ýmsa
Gott er að hengja flöskur sem
búið er að skola til þerris og
skrauts.
IVQólkurfemur fyrir gluggana
er skemmtileg lausn.
hluti sem er önnur hlið á þessu
samfélagi þar sem öllu er hent,“
segir Nana Petzet sem er þekkt
fyrir að tala um endurvinnslu
Þjóðverja á sérstakan og húmor-
ískan hátt.