Morgunblaðið - 17.03.2000, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 17.03.2000, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 69 v ÍDAG BRIDS Uinsjón (iuóniundur l'áll Ariuirson NORÐUR vandar sig í sögn- um og dregur upp mynd af einspilinu í spaða fyrir félaga sinn. Suður fæst ekki til að spila neitt annað en grand: Suður gefur; allir á hættu. Sveitakeppni. Norður * 2 v D642 ♦ K7532 ♦ ÁKD Suður A ÁKD7 v G75 ♦ Á64 A 653 Vestur Norður Austur Suður - - - llauf Pass 1 tígull Pass lgrand Pass 2 hjörtu Pass 2grönd Pass 3 lauf Pass 3grönd Pass Pass Pass Utspil vesturs er spaðafjarki. Hvernig er best að spila? Þetta er einfalt spil ef tígull- inn kemur 3-2, svo það er rétt að gera ráð fyrir verri legu. Suður tekur fyrsta slaginn og byrjar á því að dúkka tígul. Væntanlega spilar vörnin spaða áfram, sem er tekinn og nú cr lykilspilamennskan sú, að spila aftur litlum tígli frá báðum höndum. í>ar gæti yf- irslagur farið í súginn en ef legan er eitthvað í þessa veru: Norður «2 ¥ D642 ♦ K7532 ♦ ÁKD Vestur Austur 4> G94 * 108653 * K93 ¥ Á108 ♦ DG98 ♦ 10 * 1082 * G974 Suður 4 ÁKD7 ¥ G75 ♦ Á64 + 653 • ■.er þetta eina örugga leiðin til vinnings. Sagnhafi fríar slag á tígul en geymir um leið innkomu á síðasta spaðann. Ef tígulásinn er tekinn of snemma getur vörnin spilað við blindan það sem eftir er og útilokað sagnhafa frá níunda siagnum heima. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnað- arlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/ eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Arnað heilla ára afmæli. Sjötíu ára verður í dag föstudaginn 17. mars, Þóra Ása Guðjohnsen, Logafold 68, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Sigurþór Mar- geirsson. Þau taka á móti gestum á heimili sínu á morgun, laugardaginn 18. mars, eftir kl. 16. ÁRA afmæli. Fimm- tug verður sunnu- daginn 19. mars, Berghildur Reynisdóttir, formaður Verkalýðsfélags Borgar- ness. Berghildur býður vin- um og vandamönnum að gleðjast með sér í Félagsbæ, Borgarnesi, laugardags- kvöldið 18. mars frá kl. 20. SKAK IJinsjóii llelgi Áss Grétarsson STERKASTA skákkona Moldavíu, Almira Skri- pchenko (2444), hafði hvítt í þessari stöðu gegn pólska stór- meistaranum Bartasc Socko (2556) á opna al- þjóðlega mótinu í Cappelle la Gran- de. Eins og sjá má hefur byrjun- artaflmennska hvíts í frönsku vörninni gjör- samlega mistek- ist og færði Pól- veijinn sér það vel í nyt. 18...Bg5! 19.Bb5+ Ef hvítur þiggur biskupinn með 19. Bxg5 verður stutt í enda- lokin eftir 19...Dxc3+. Einn- ig er hvíta staðan vonlaus eftir 19.Dh7 De5! 19....axb5 20. Bxg5 Dxc3+ 21.Ke2 Bg4+ 22.Í3 Ha6! 23.Dh7 exf3+ og hvítur gafst upp. COSPER Það er ótrúlegt hvað allt hefur hækkað. Held- urðu að rúgbrauðið sé ekki komið í 120 krónur? UOÐABROT Fjallið Skjaldbreiður Fanna skautar faldi háum fjallið, allra hæða val, hrauna veitir bárum bláum breiðan fram um heiðardal. Löngu hefur logi reiður lokið steypu þessa við. Ógnaskjöldur bungubreiður ber með sóma réttnefnið. Ríð ég háan Skjaldbreið skoða. Skín á tinda morgunsól, glöðum fágar röðulroða reiðarslóðir, dal og hól. Beint er í norður fjallið fríða. - Fákur eykur hófaskell. - Sér á leiti Lambahlíða og litlu sunnar Hlöðufell. Heiðarbúar, glöðum gesti greiðið för um eyðifjöll. Einn ég treð með hundi og hesti hraun, og týnd er lestin öll. Mjög þarf nú að mörgu hyggja, - mikið er um dýrðir hér, - enda skal ég úti liggja. Engin vættur grandar mér. Jónas Hallgrímsson STJÖRIVUSPA cftir Franees Urake FISKAR Afmælisbarn dagsins: Þú átt auðvelt með að laga þig að umhverfmu ogferða- lögeru ofarlega á þínum vin- sæidalista. Hrútur (21. mars -19. apríl) Gættu heilsu þinnar. Ekkert er þér jafndýrmætt og hún. Leggðu það á þig, sem þarf til þess að þú sért í sem beztu formi, andlega sem líkamlega. Naut (20. apríl - 20. maí) jMt Það getur reynzt erfitt að byrgja allar tilfinningar hið innra með sér. Segðu það sem þér finnst um menn og mál- eftu og þér líður betur á eftir. Tvíburar (21. maí - 20. júní) AA Það verður ekki bæði haldið og sleppt. Þú þarft að koma sjálfum þér á það stig að ver- aldlegir hlutir hafi ekki helj- artak á þér. Þeir eru ekki allt. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Leggðu þig allan fram um að ná því marki, sem þú hefur sett þér. Láttu ekkert annað komast að á meðan,því þá er hætt við að allt fari úr bönd- unum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) M Þú þarft að koma þér upp þykkari skráp gagnvart öðr- um. Það er aldrei hægt að gera svo öllum líki og því mega menn alltaf eiga von á andmælum. Meyja (23. ágúst-22. sept.) ®SL Það væri reynandi að leyfa öðrum að leggja betur hönd að verki, því verkefnið er svo risavaxið, að það er ekki á þínu færi að klára það einn. Vog (23. sept. - 22. október) 4* 4» Gættu þess að sýna ekki of hörð viðbrögð við orðum eða athöfnum annaira. Stundum er nóg að yppta öxlum og halda áfram með það sem skiptir máli. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Reyndu að brjóta upp þitt daglega munstur og skapa þér tilbreytingu. Þótt ekki væri nema að fara aðra leið í vinnuna en þú ert vanur. Allt slíkt telur. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það er gaman að skiptast á skoðunum við menn sem hafa þekkingu á þínu áhugamáli. Vertu hvergi banginn við að segja þitt, en hlustaðu líka. Steingeit (22. des. -19. janúar) Láttu sem ekkert sé, þótt ein- hverjir vilji gagnrýna störf þín að ákveðnu máli. Þú gerð- ir rétt og það mun koma í Ijós, þegar moldviðrinu slotar. Vatnsberi (20. jan.r -18. febr.) Þú ættir nú að setjast niður og skoða sjálfan þig í bak og fyrir. Ef þú ert óánægður með eitthvað skaltu leita þér hjálpar, hvar sem hana er að finna. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Augu þeirra, sem eru í kring um þig, eru að opnast fyrir þeim hæfdeikum sem þú ert gæddur. Leyfðu þeim að njóta sín og láttu feimnina lönd og leið. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vlsindalegra staðreynda. SJALFSSTYRKING MEÐ SJÁLFSDÁLEIÐSIAJ Hringdu núna GJAFAVÖRUR VORUM AÐ FÁ NÝJAR VÖRUSENDINGAR BRÚÐARGJAFIR- BRÚÐHJÓNAGLÖS - AFMÆLISGJAFIR FERMINGARGJAFIR- KERTALUKTIR- KERTASTJAKA RCR KRISTALL - GJAFIR FYRIR HERBANA VERIÐ VELKOMIN Opið virka daga kl. 10-18 ^fagurkerinn Opið laugardaga kl. 10-16 GJAFAVÖRUVERSLUN, LAUGAVEGI 41 - SÍMI 511 1470 tilbodsverð kr. 12.890 Fullt af nýju garni! Dollymix - Dandy - Candy - Ziggy - Smarty o.fl. Garnið í dúkkufötin komið MdnacjuCÍ Glæsibæ. síi Glæsibæ, sími 581 2966. Námskeið/einkatímar sími 694 5494 Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða uppbyggingu á öllum sviðum. Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur íj^ /Imerískir lúxus nuddpottar Acrylpottur í rauðviðargrind. Innb. hitunar- og hreinsikerfi. Vatns- og loftnudd. Engar leiðslur nema rafm. 16 amp. Einangrunarlok með læsingum. Sjálfv. hitastillir. áður kr. 16.890 ÚRVALIÐ ER HJÁ OKKUR S I M I 553 3366 G L Æ S I B Æ Víð seljum ekki ódýra potta, við seljum potta ódýrt! VESTAN ehf. Auðbrekku E3, Kópavogi. sími 554 5171. farsími 898 4154 Ný námskeið hefjast 2S. mars og 12. apríl INNRÖMMUNCO FÁKAFENI 11 • S: 553 1788
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.