Morgunblaðið - 17.03.2000, Blaðsíða 63
3
1
I
1
MORGUNBLAÐIÐ
PÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
FRÉTTIR
Sigurlið 11 áraogyngri íkeppninni 1999.
ALVÖRU
TONLEIKAR
Nemendasýning og
liðakeppni á Broadway
NEMENDASÝNING Dansskóla
Jóns Péturs og Köru verður haldin
á Brodway, Hótel íslandi, sunnu-
daginn 19. mars nk. Þar munu allir
nemendur í barna- og unglingahóp-
um skólans ásamt nokkrum fullorð-
inshópum koma fram með sýnis-
horn af þvi sem þeir hafa lært í
vetur.
Húsið opnað kl. 13 og hefst sýn-
ingin kl. 14.
Strax að lokinni sýningu kl. 15
hefst liðakeppni milli dansskóla og
hefur nokkrum dansskólum verið
boðið til 'leiks. Þar munu flest af
sterkustu danspörum íslands, sem
mörg hver hafa verið að gera það
gott á erlendri grundu, eigast við á
dansgólfmu. Keppt verður í tveim-
ur aldursflokkum, 11 ára og yngri
og 12-15 ára. Hvert lið er myndað
af fjórum danspörum, tveimur sem
dansa suður-amerísku dansana og
tveimur sem dansa standard-dans-
ana. Fimm dómarar munu dæma
keppnina.
Miðar á sýninguna og keppnina
verða seldir á Hótel Islandi 19.
mars og hefst miðasala kl. 13. Fritt
er fyrir 11 ára og yngri en aðgangs-
eyrir fyrir 12 ára og eldri er kr. 500.
SUSHI
Iþróttamaður
ársins í Hveragerði
Hveragerði. Morgunblaðið.
VAL íþróttamanns ársins
hjá íþróttafélaginu Hamri,
Hveragerði, fór fram á að-
alfundi félagsins nýverið.
Pétur Ingvarsson körfu-
knattleiksmaður hlaut við-
urkenninguna að þessu
sinni.
,Úr einstökum deildum
voi'u eftirtaldir tilnefndir:
Sjöfn Friðriksdóttir,
badminton, Sigrún Krist-
jánsdóttir, blak, Hlín
Guðnadóttir, flmleikar,
Hlynur Kárason, fótbolti,
Anna Guðrún Sveinsdóttir,
frjálsar íþróttir, og Pétur
Ingvarsson, körfuknatt-
leikur.
Úr þessum hópi afreks-
manna var Pétur Ingvars-
son, þjálfari og leikmaður
úrvalsdeildarliðs Hamars í
körfuknattleik, valinn
íþróttamaður ársins. Pétur
hefur þjálfað meistara-
fiokkslið Hamars í tvö ár
og undir hans stjórn hefur
liðið náð þeim frábæra árangri að
vinna sigur i 1. deild 1999 og komast
síðan í 8 liða úrslit í Epson-deildinni
í ár. Á aðalfundinum kom fram að
mikil gróska er í íþróttalífi Hver-
gerðinga.
Stærstu framkvæmdir félagsins á
Morgunblaðið/Aldls
Pétur Ingvarsson, íþróttamaður ársins í
Hveragerði, ásamt Hlyni Kárasyni, Sig-
rúnu Kristjánsdóttur, Sjöfn Friðriksdótt-
ur, Onnu Guðrúnu Steindórsdóttur og Hlín
Guðnadóttur.
síðasta ári lutu að íþróttasvæði við
Dynskóga er bæta mun til mikilla
muna aðstöðu til iðkunar knatt-
spyrnu og frjálsra íþrótta. Fram-
kvæmdir við svæðið munu væntan-
lega klárast í vor. Formaður
Hamars er Þorvaldur Snorrason.
Vinningshafarnir eru: Hafdís Ingadóttir, Haraldur Hjartarson, Hulda
Erlingsdóttir, Lilja Guðjónsdóttir, Magnús Helgason, Ólafur N. Elíasson,
Sigurður Karlsson og Valéria Kretovicová. Auk þeirra unnu Kristín
Björk Gunnarsdóttir og Magnús Heiðarr Björgvinsson til verðlauna.
Vinningshafar í Wap-
leik Búnaðarbankans
Á DÖGUNUM stóð Búnaðarbanki
Islands hf. fyrir Wap-leik á Inter-
netinu fyrir notendur Heimilis-
banka Búnaðarbankans á Netinu.
Nú hafa tíu Heimilisbankanotendur
verið dregnir út í Wap-leik Búnað-
arbankans. Þeir fengu Nokia 7110
WAP-sfma. Síminn-GSM gaf að
auki öllum vinningshöfum síma-
kort.
'
....~W~
SAMVINNUSJÖÐS ÍSLANDS HF.
Moratemp High-Lux hentar sérlega vel
í eldhúsum þar sem koma þarf háum
ílátum undir kranann.
Mora - Sænsk gæðavara
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is
Nú færð þú Sushi bakka
hjá okkur á miðvikudögum
og föstudögum.
Bæði blandaður fiskur og
hrísgrjónarúllur
náttúrulega!
heilsuhúsiö
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 17. grein
samþykkta félagsins
2. Breytingar á samþykktum félagsins
3. Samþykki aðalfundar á samruna-
áætlun Samvinnusjóðs íslands hf.
og Fjárvangs hf.
4. Heimild til að kaupa eigin hlutabréf
og taka að veði
5. Önnur mál, löglega upp borin
Aðalfundur Samvinnusjóðs
fslands hf. verður haldinn
mánudaginn 27. mars 2000
kl. 15:00 á Grand Hótel við
Sigtún í Reykjavík.
Stjórn Samvinnusjóðs fslands hf.
Gögn sem lögð verða fyrir fundinn liggja
frammi á skrifstofu félagsins að Sigtúni 42,
Reykjavík, frá og með 20. mars nk.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða
afhent á fundarstað.