Morgunblaðið - 17.03.2000, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
fslenskt lambakjöt hugsanlega valið í alþjóðlega kokkakeppni
Gæti leitt til útflutnings
á 1.000 lambaskrokkum
ÍSLAND hefur lagt inri umsókn ura
að íslenskt lambakjöt verði notað í
virtri kokkakeppni sem haldin verð-
ur í Frakklandi á næsta ári. Verði
umsókn íslands samþykkt verða
íluttir út um 1.000 lambaskrokkar til
Frakklands. Baldvin Jónsson, verk-
efnisstjóri Áforms, sem vinnur að því
að kynna íslenskt lambakjöt erlend-
is, segir að verði íslenska kjötið valið
felist í því mjög góð kynning á ís-
lenska lambakjötinu.
Kokkakeppnin heitir Bocuse d’Or
og er meðal virtustu kokkakeppna í
heimi. Keppt verður í tveimur flokk-
um, fiskréttum og kjötréttum. Barri
verður notaður í fiskréttina og
lambakjöt í kjötréttina. Þrjú lönd
hafa lagt inn umsókn um að þeirra
lambakjöt verði valið til þátttöku í
keppninni, en það eru Nýja-Sjáland,
Island og Frakkland. Tekin verður
ákvörðun um hvaða kjöt verður fyrir
valinu á allra næstu dögum, en
ákvörðunin er tekin af alþjóðlegri
stjórn keppninnar.
Baldvin sagði að 22 keppendur
tækju þátt í keppninni og talið væri
að hver kokkur þyrfti 20-50 skrokka
til að æfa sig á fyrir keppnina til að
ná fram réttum bragðgæðum. Sam-
tals væri því verið að tala um 1.000
skrokka. Verðið á þeim væri allgott.
Landbúnaðarráðuneytið hefur
tekið ákvörðun um að styðja þennan
útflutning ef af honum verður.
„Þessi keppni höfðar fyrst og
fremst til matreiðslumeistara sem
vinna hjá mjög virtum veitingahús-
um út um allan heim. Þeir sem fá að
taka þátt í keppninni verða að upp-
fylla skilyrði um hæfileika. Ef ís-
lenska lambakjötið verður valið
gefst gott tækifæri fyrir þessa aðila
til að kynnast kjötinu í eldun og
bragðgæðum þess. Þetta er því gott
tækifæri til að kynna kosti íslenska
lambakjötsins," sagði Baldvin.
Morgunblaðið/Ásdís
Kötturinn fer eigin leiðir
Þokast
áfram í við-
ræðum SA
og RSÍ
NOKKUÐ þokaðist áfram í við-
ræðum Samtaka atvinnulífsins og
Rafiðnaðarsambandsins í gær.
Fundur aðila stóð langt fram á
kvöld í húsakynnum sáttasemjara
og verður fram haldið í dag.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
SA, sagði í gærkvöldi að talsvert
hefði miðað í viðræðunum og skýr-
ast ætti í dag eða um helgina hvort
samkomulag náist. „Hér hafa hug-
myndir og breytingar gengið á
milli aðila,“ sagði Ari í gærkvöldi.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður RSÍ, tók í sama streng, að
nokkuð hefði miðað í viðræðunum.
„Ég er bjartsýnni nú en í morg-
un,“ sagði Guðmundur seint í
gærkvöldi og sagði fræðilega
möguleika á samkomulagi í dag.
Að sögn Guðmundar er enn tek-
ist á um einstaka þætti launaliða,
en einnig smærri útfærsluatriði í
samningstexta.
KÖTTURINN fer sínar eigin leið-
ir, eins og óljúgfróðir menn hafa
löngum vitað. Þessi fallegi kisi
klifraði í trjám á Sauðárkróki í
gær; máske til að kanna fuglalifið
betur ellegar til þess að hvfla lopp-
urnar á ískaldri fönninni sem nóg
er af á Króknum um þessar mund-
ir, rétt eins og annars staðar á
landinu. Stingandi augnaráð hans
er um leið heillandi og háskalegt
og minnir ofurh'tið á skyldleikann
við stærri kattardýr úti í hinum
stóra heimi.
Stúdentaráð
Háskóla Islands
Eiríkur
Jónsson
nýr for-
maður
BREYTING varð á forystu
Stúdentaráðs Háskóla íslands í
gær þegar Eiríkur Jónsson
laganemi tók við formennsku
ráðsins af Finni Beck. Um leið
urðu framkvæmdastjóraskipti;
Haukur Þór Hannesson véla-
verkfræðinemi tók við af Pétri
Maack Þorsteinssyni.
Ný stjóm Stúdentaráðs var
formlega kjörin á skiptafundi
ráðsins sl. miðvikudag en 23.
febrúar sigraði Röskva í kosn-
ingum til ráðsins og hélt þar
með meirihluta tíunda árið í röð.
Valdahlutföllin héldust jafn-
framt óbreytt, Röskva hefur
tólf fulltrúa í ráðinu en Vaka tíu.
Stjórnarformaður Olís um Vatneyrarmálið á aðalfundi félagsins í gær
Olíklegt að kerfíð verði
ógilt með lögskýringu
í RÆÐU sinni á aðalfundi Olíuverzlunar íslands
hf. í gær vék Gísli Baldur Garðarsson stjórnar-
formaður að Vatneyrarmálinu sem nú hefur verið
dómtekið í Hæstarétti. „Næsta ólíklegt verður að
telja að sú lögskýring á jafnræðisgrein stjómar-
skrárinnar verði ofan á að hún verði til að ógilda
kerfi sem hefur verið við lýði í nærri tvo áratugi.“
Hann sagði að það yrði dómstólunum til lítils
sóma ef ekki yrði litið til þeirrar staðreyndar að
sá raunveruleiki í þessum málum sem við nú
byggjum við hefði verið í 17 ár og mótað allt þjóð-
lífið.
„Það er mikið hagsmunamál fyrir þjóðarbúið
að ekki verði skertir möguleikar útgerðarfélag-
anna til þess að viðhalda því hagræði sem tekist
hefur að skapa á undanförnum ámm svo útgerðin
megi enn dafna og eflast til sóknar á fjarlæg mið
jafnt sem heimamið," sagði Gísli Baldur.
Engar athugasemdir gerðar við
arðsemi annarra fyrirtækja
I máli stjómarformannsins kom einnig fram að
aðilar innan Verkamannasambandsins sæju sig
knúna til þess að koma höggi á olíufélögin og tala
um ofurgróða. „Það skýtur skökku við þegar
verkamenn taka olíufélögin út úr íslenskri fyrir-
tækjaflóm og gera þau að skotspæni í kjarabar-
áttu sinni.
Engum athugasemdum er hins vegar hreyft
við arðsemi banka og fjármálafyrirtækja sem er
allt að tvisvar til þrisvar sinnum hærri. Eða við
arðsemi fyrirtækja í flutningastarfsemi eða fisk-
vinnslu sem era með talsvert hærri arðsemi, tvöf-
alt eða þrefalt hærri. En það er ekki gagnrýnt."
■ Olíuf élögin/24
Morgunblaðið/Golli
Birna Gísladóttir er tvítug í dag.
Bauð í tvítugsafmælið
fyrir átta árum
„Hallæris-
legt þá en
frábært nú“
BIRNA Gísladóttir fagnar tvítugs-
afmæli sínu í dag og hefur af því til-
efni boðið vinum og ættingjum sín-
um til veislu í Perlunni nú í kvöld.
Það eina sem gestir þurfa að hafa í
farteskinu í kvöld er boðsmiði. Sá er
nú síður en svo hefðbundinn; hann
birtist í raðauglýsingum Morgun-
blaðsins fimmtudaginn 16. júlí 1992,
þegar Birna var aðeins tólf ára
gömul.
Undir yfírskriftinni Afmælisboð
árið 2000 voru þessi skilaboð: „Til
þeirra sem fá eintak af þessu Morg-
unblaði sent til sín í marsmánuði ár-
ið 2000. Ég vil biðja þig að gera mér
þann heiður að mæta í 20 ára af-
mæli mitt hinn 17. mars árið 2000,
sem hefst með fordrykk kl. 17.00 ef
Guð lofar. Nánari dagskrá verður
auglýst eftir nokkur ár.“
Frumlegur og
flottur boðsmiði
Bima er dóttir hjónanna Gísla
Gíslasonar lögmanns og Jóhönnu
Bjömsdóttur. Að sögn Gísla bmgðu
þau áþað ráð að setja auglýsinguna
í Morgunblaðið fyrir átta árum til
að búa til verulega frumlegan og
flottan boðsmiða. „Við höfum oft
gert frumlega boðsmiða, t.d. sent
myndbandsspólur og fleira í þeim
dúr. Þessi auglýsing vakti mikla at-
hygli. Við keyptum strax 50 eintök
af blaðinu og geymdum fram á
þennan dag. Nú hefur þeim verið
dreift til vina og kunningja og þar
með er boðsmiðinn kominn,“ sagði
Gísli.
Reykjavfkurmærin Birna sagði
að sér þætti uppátæki foreldranna
frábært. Hún viðurkenndi hins veg-
ar að á sínum tíma hefði henni þótt
auglýsingin hallærisleg í meira lagi-
„Þetta hefur vakið mikla athygli
og öllum þykir hugmyndin einstak-
lega góð,“ sagði Birna, sem á von á
mikilli stemmningu í Perlunni í
kvöld.
En af hveiju varð sá ágæti staður
fyrir valinu? „Þessi veitingahús eru
sífellt að leggja upp laupana eða
skipta um nöfn. Við vildum því velja
stað sem yrði örugglega enn til eftir
átta ár. Það reyndist rétt hjá okk-
ur,“ sagði Gísli.
BIOBLAÐIÐ
Á FÖSTUDÖGUM
Stjarnan hefur góð tök
á Aftureldingu /B2
Arnar Grétarsson á leið
til Everton /B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is