Morgunblaðið - 17.03.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 29
Deilt um nýja skýrslu um meint brot Afríkuríkja á viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna
Samcinuðu þjóðunum. AP, AFP.
Sögð selja UNITA
vopn fyrir demanta
NEFND á vegum Sameinuðu
þjóðanna hefur birt skýrslu þar
sem forsetar tveggja Afríkuríkja
eru sakaðir um að hafa brotið við-
skiptabann á uppreisnarhreyfíng-
una UNITA í Angóla með því að
útvega henni vopn og eldsneyti í
skiptum fyrir demanta. Afríkurík-
in tvö og nokkur önnur ríki, sem
eru gagnrýnd í skýrslunni, hafa
mótmælt henni harðlega, segja
hana hlutdræga og byggða á veik-
um sönnunargögnum, en höfundar
skýrslunnar vísa gagnrýninni á
bug.
Tíu óháðir sérfræðingar sömdu
skýrsluna og formaður nefndar um
framkvæmd refsiaðgerðanna,
Robert Fowler, sendiherra Kan-
ada, lagði hana fram á fundi ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna í
vikunni. Fowler hvatti öryggisráð-
ið til að samþykkja skýrsluna og
tillögur sérfræðinganna, m.a. um
að sett yrði þriggja ára vopnasölu-
bann á þau ríki sem hafí útvegað
UNITA vopn.
Fowler sagði að niðurstaða
skýrslunnar ætti ekki að koma ör-
yggisráðinu á óvart þar sem öll að-
ildarríki þess hefðu vitað að refsi-
aðgerðirnar gegn UNITA væru
virtar að vettugi. „Einstaklingar,
ríkisstjórnir og fyrirtæki hafa haft
refsiaðgerðirnar að engu í tæp sjö
ár,“ sagði hann.
Fowler kvaðst ekki vera hissa á
viðbrögðum ríkjanna, sem eru
gagnrýnd í skýrslunni, og sagði að
þau vildu „koma óorði á rannsókn-
ina“. Hann bætti við að mörg ríki
hefðu ekki framfylgt viðskipta-
banninu af hörku fyrr en sérfræð-
ingarnir „fóru til um þrjátíu ríkja
og spurðu óþægilegra spurninga".
Seldi demanta fyrir
290 milljarða
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti árið 1993 að setja bann
við því að UNITA-hreyfíngunni
yrðu seld vopn, hergögn og elds-
neyti eftir að leiðtogi hennar, Jon-
as Savimbi, neitaði að viðurkenna
ósigur sinn fyrir Jose dos Santos,
forseta Angóla, í kosningum sem
fram fóru árið áður og hóf borg-
arastyrjöldina að nýju. Refsiað-
gerðirnar voru hertar ári síðar og
þá var meðal annars bannað að
kaupa demanta af uppreisnar-
hreyfingunni.
I skýrslunni er áætlað að UN-
ITA hafi selt demanta fyrir allt að
4 milljarða dala, andvirði 290 millj-
arða króna, frá árinu 1992.
Sagðir hafa samið við
Savimbi
í skýrslunni er tíundað hvernig
uppreisnarhreyfingin hefur útveg-
að sér vopn frá Austur-Evrópu,
aðallega Búlgaríu, og fengið þau
send frá Afríkuríkjum í skiptum
fyrir demanta.
Skýrsluhöfundarnir saka forseta
Burkina Faso og Togo um að hafa
samið um þessi viðskipti við Sav-
imbi. Afríkuríkin Gabon og
Rúanda eru einnig sögð viðriðin
brot á viðskiptabanninu. Þá eru
stjórnvöld í Belgíu gagnrýnd í
skýrslunni og höfundar hennar
segja að eftirlitið með demanta-
markaðnum í Antwerpen hafi verið
svo slæmt að hægt hafi verið að
kaupa demanta af UNITA nánast
hindrunarlaust.
Ásökunum nefndarinnar
vísað á bug
Öll ríkin sem gagnrýnd eru í
skýrslunni vísa ásökunum sérfræð-
inganefndarinnar á bug. Sendi-
herra Belgíu hjá Sameinuðu þjóð-
unum gagnrýndi skýrsluhöfundana
fyrir að geta þess ekki að belgísk
stjórnvöld gerðu nýlega ráðstafan-
ir til þess að herða eftirlitið með
demantaviðskiptunum. Sérfræð-
inganefndin kvaðst hins vegar hafa
fengið þær upplýsingar of seint.
Búlgörsk stjórnvöld sögðust
ekki hafa brotið viðskiptabannið
og gagnrýndu skýrsluhöfundana
fyrir að bendla Búlgaríu sérstak-
lega við málið á grundvelli upp-
lýsinga sem þau hefðu veitt um
vopnaflutninga frá landinu. í
skýrslunni væri ekkert minnst á
önnur ríki sem veittu ekki slíkar
upplýsingar og kynnu að hafa
brotið viðskiptabannið.
Sendiherra Togo hjá Sameinuðu
þjóðunum sagði að ásakanirnar um
að forseti landsins hefði samið við
Savimbi væru byggðar „sögusögn-
um og slúðri". Sendiherra Burkina
Faso sagði að ásakanirnar á hend-
ur forseta landsins væru byggðar
á staðhæfingum eins vitnis, fyrr-
verandi aðstoðarmanns Savimbis
sem sagði skilið við uppreisnar-
hreyfinguna.
Fowler sagði hins vegar að vitn-
isburður fyrrverandi liðsmanna
UNITA hefði aðeins verið notaður
til að staðfesta upplýsingar sem
sérfræðingarnir hefðu fengið frá
öðrum.
„Hvað varðar sönnunarskylduna
gerði sérfræðinganefndin meiri
kröfur en dómstólar flestra ríkja,“
sagði Fowler.
Deilt um refsiaðgerðir
Bretar og Kanadamenn hafa
beitt sér fyrir því að öryggisráðið
refsi þeim ríkjum sem brutu við-
skiptabannið og segja að trúverð-
ugleiki ráðsins sé í veði.
Viðbrögð nokkurra ríkja voru
hins vegar varfærnisleg og þau
létu í ljósi efasemdir um að ásak-
anirnar hefðu verið sannaðar.
Frakkar, sem eru í nánum tengsl-
um við umrædd Afríkuríki sögðu
að rannsaka þyrfti ásakanirnar
betur þar sem þær væru mjög al-
varlegar og ýmislegt væri enn
óljóst í málinu.