Morgunblaðið - 17.03.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 25
VIÐSKIPTI
Hlutafé Guðmundar
Runólfssonar aukið
50 milljónir
boðnar út
STJÓRN Guðmundar Runólfsson-
ar hf. hefur ákveðið að hefja sölu
nýs hlutafjár til hluthafa félagsins
að fjárhæð 50 milljónir króna að
nafnverði. Tilgangur útboðsins er
að afla fjár vegna kaupa félagsins
á varanlegum aflahéimildum og
skipum. Sala til forgangsréttar-
hafa hefst 28. mars og stendur til
11. apríl 2000. Gengi til forgangs-
réttarhafa verður 6,20. Almennt
sölutímabil er frá 14. apríl til 17.
apríl 2000. Þó kann sölutímabil að
styttast komi til þess að hlutaféð
seljist upp fyrir þann tíma. Sölu-
gengi í almennri sölu verður 6,70.
Utboðslýsingu verður hægt að
nálgast hjá Landsbanka íslands og
hjá Guðmundi Runólfssyni frá og
með 24. mars.
I útboðslýsingunni kemur fram
að samkvæmt rekstraráætlun yfir-
standandi árs er gert ráð fyrir að
rekstrartekjur félagsins aukist um
34%, úr 669 m.kr. í 889 m.kr. Gert
er ráð fyrir að rekstrargjöld auk-
ist um 14%, úr 514 m.kr. í 585
m.kr. Vegna þeirra kaupa sem fé-
lagið fór í í lok síðasta árs á skip-
um og varanlegum aflaheimildum
munu afskriftir hækka verulega og
er áætlaðað að þær verði um 133
m.kr. á yfírstandandi ári en námu
á síðasta ári 57 m.kr. Fjármagns-
kostnaður mun aukast verulega í
kjölfar kaupanna og gerir áætlun
ráð fyrir að hann hækki úr 19
m.kr. í 100 m.kr. Áætlun gerir ráð
fyrir að hagnaður af reglulegri
starfsemi hækki úr 78,6 m.kr. í
81,1 m.kr.
--------------
Hagnaður
Skoda eykst
um 17,8%
AFP.
Hagnaður tékkneska bílaframleið-
andans Skoda Auto, sem er dóttur-
fyrirtæki Volkswagen, nam 2,6
milljörðum koruna, jafnvirði 5,4
milljarða króna, á síðasta ári. Er
þetta 17,8% aukning frá fyrra ári
og velta félagsins jókst um 4,5%, í
110,4 milljarða koruna. Er fyrir-
tækið stærsta útflutningsfyrirtæki í
Tékklandi.
Alls seldi Skoda 385.333 bíla á
síðasta ári og er það 6% aukning
frá fyrra ári. Salan í Þýskalandi og
öðrum löndum í Vestur-Evrópu
jókst verulega en dróst hins vegar
saman í Tékklandi. Skoda áformar
að selja um 440 þúsund bfla á þessu
ári.
Mars 2000 2. tbl. 17. árg. krónur 699, -m. vsk
Guöný Kristrún
Gubjónsdóttir 21 órs
Ólafur Ragnar Grímsson
I LEIT AÐ ÞJ0Ð SINNI
DAVÍÐ 0DDSS0N OG
AUSTURBÆJARSKÓU
Andrea Róberts o
tala út um ástina,
Friðrik Weisshappe
arneignir og barátt
Þórhallur Ölver og bróSi,
ibmda ► Nærföt norðan
ara Vilbergsdóttir > Sumartískan * !
► Egill Helgason * Bloðug sciga dömu
\
HMBMHHBnL
■ ! %
0