Morgunblaðið - 17.03.2000, Blaðsíða 72
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Stuttmyndin „Stranded“ frumsýnd! kvöld
Strandag'lópur
með heimþrá
Leikarinn Barry Cassin í hlutverki sínu.
-'-’FYRIR svokallað landnám, þegar
Ingólfur Arnarson varpaði öndvegis-
súlum sínum í hafið og elti þær ú
Reykjavíkurstrendur, er talið að hér
hafi búið írskir munkar sem kölluðust
Papar. Það væri þess vegna kannski
réttari heimild að hafa styttu af
manni í munkakufli á Amarhóli, þar
sem þeir komu hingað fyrstir! En
tíminn hefur afmáð alla vitneskju um
líf þeirra hér þannig að lítið er vitað
um hvað þeir voru að bralla hér á
klakanum.
I kvöld verður frumsýnd á Islandi
stuttmyndin „Stranded" sem íjallar
' um dvöl írsku Papana hér á landi.
Myndin verður sýnd í þetta eina
skipti í Háskólabíói á undan frumsýn-
ingu írsku kvikmyndarinnar „Sweety
Barett", en þess má geta að Friðrik
Þór Friðriksson er einn framleiðenda
þeirrar myndar.
Persónulegur skáldskapur
„Stuttmyndin er byggð á leikriti
sem ég skrifaði, sem heitir Papamir
og var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið
1997,“ segir Brian FitzGibbon, hand-
ritshöfundur stuttmyndarinnar. En
það var bróðir hans, Ian FitzGibbon,
sem leikstýrði. „Þetta er ekki heim-
ildarmynd heldur persónulegur
skáldskapur um þrjá írska einsetu-
menn á Islandi á miðöldum og hug-
mvndir þeirra um lífið og trúna. Það
verða árekstrar í sögunni þegar einn
munkurinn fær heimþrá. En þeir
hafa heitið því að fara aldrei aftur til
baka, dvöl þeirra er einskonar fórn.“
Leikritið sem stuttmyndin er
byggð á tók tæpan klukkutíma í flutn-
ingi en myndin er aðeins 24 mínútur
að lengd. „í myndinni styðjumst við
meira við myndræna þætti. Auk þess
höfðum við aðeins fjármagn til að
gera mjög stutta mynd.“ En reyndist
það ekkert erfitt verk að klippa verk-
ið svona niður? „Jú, til að byrja með.
En það var líka mjög spennandi og
áhugavert að gera það.“ Vegna gífur-
legs fjárskorts reyndist ógerlegt að
taka myndina upp hér á landi. „Hún
var tekin á írlandi, þvi miður. Bróðir
minn reyndi að finna mjög svipað
landslag; hann komst næst því í ná-
grenni Dublinar. Hann hafði aldrei
komið til Islands, svo ég sagði honum
bara að það mætti ekki sjást í tré. Svo
studdist hann við ljósmyndir sem ég
sendi honum.“
Brian FitzGibbon verður greini-
lega tíðhugsað til forfeðra sinna því
hann hefur nýlega lokið við handrit í
fullri lengd um Papana dularfullu á
Islandi fyrii- Friðrik Þór Friðriksson.
Það verk segir aðra sögu en stutt-
myndin gerir. Ríkissjónvarpið hyggst
sýna stuttmyndina síðar á þessu ári.
' A + + +
HASKOLABIO frumsýHÍr írsk/íslensku kvikmyndina Sweety Barret eða Ljúflingur með
Brendan Gleeson, Liam Cunningham og Dylan Murphy í aðalhlutverkum.
Hetjudáð ljúflings
Frumsýning
SWEETY Barrett (Brendan
Gleeson) missir starf sitt við
farandfjöleikahús og fer að
leita sér að nýrri vinnu í bænum
Dockery. Hann er einfaldur og auð-
trúa maður og verður því tilvalinn
bráð fyrir nokkra spillta íbúa bæjar-
ins þar sem smyglarar undir hand-
leiðslu forsprakkans grimma Mannix
Bone (Liam Cunningham) ráða ríkj-
um. Sweety eignast vin sem er hinn
sex ára gamli Conor (Dylan Murphy)
en á næturnar er hann óafvitandi
notaður til að sinna skítverkum Bon-
es og félaga.
Þegar faðir Conors (Andy Serkis)
er látinn laus úr fangelsi og ætlar sér
að hefna sín á Bone verður Sweety
fómarlamb aðstæðna og flækist í
hættulegan vef klækja og illsku-
bragða. En einmitt þegar virðist sem
svo að Bone muni komast upp með
ódæðin fær Sweety uppreisn æru
sem gerir hann að mikilli hetju í
bænum.
Stephen Bradley leikstýrir og
semur handrit þessar írsku myndar
sem framleidd er af írska kvik-
myndafyrirtækinu Temple Film í
samvinnu við Islensku kvikmynda-
samsteypuna. En með aðalhlutverk í
myndinni fara Brendan Gleeson, Li-
am Cunningham, Lynda Steadman,
Andy Serkis og Dylan Murphy.
Myndin var fyrst frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Toronto árið 1998
og er hún er fyrsta kvikmyndin í
fullri lengd sem Bradley leikstýrir en
hann hafði áður leikstýrt sjónvarps-
þáttum og stuttmyndum. Leikarinn
Brendan Glesson gerði garðinn
frægan í myndinni „The General" en
af nýlegri afrekum má nefna að hann
fer með hlutverk í spennumyndinni
„Mission Impossible 2“ sem væntan-
leg er í kvikmyndahús á næstu miss-
erum. Liam Cunningham sem fer
með hlutverk Bone hefur getið sér
gott orð á leiksviði en af kvikmynda-
afrekum má nefna „War of the Butt-
ons“ og „The Little Princes".
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
Stutt
Hélt ég
væri mynd-
arlegri
► SPÁNVERJI, sem missti sjón-
ina í slysi árið 1957, fékk sjónina
á ný fyrir skemmstu og það í
rauninni fyrir algjöra tilviljun.
Læknar græddu nýja gervi-
hornhimnu í hann og við það fékk
hann sjónina og sá þá í fyrsta sinn
fjögur af níu börnum sínum og öll
22 barnabarnabörnin.
Antonio Sanchez-Migallon, sem
er 78 ára gamall, fór fyrir nokkru
til augnlæknis síns, að því er hann
minnir til að fá augndropa en
kom út frá honum með bókaðan
tíma hjá augnskurðlækni. Fyrir
þremur vikum fór hann síðan í
augnaðgerðina, sem tók rúmar
þrjár klukkustundir, og er al-
sjáandi síðan. „Eg hélt ég væri
myndarlegri," sagði hann þegar
hann hafði skoðað sig í spegli.
„Ég er bæði ófríður og gamall,“
sagði hann í samtali við EI Pais.
Kona hans segir að karlinn hafi
breyst við að fá sjónina á ný, bæði
skap hans og útlit, „mér finnst
hann huggulegri núna en áður,“
segir konan himinlifandi.
Shania stefnir
í metsölu
► PLATA sveitasöngkonunnar
Shania Twain, „Come On Over“
stefnir í að verða mest selda plata
söngkonu hing-
að til. Platan
sat á toppi met-
sölulistans í
Bretlandi fyrir
síðasta ár og
hefur nú selt
yfir 26 milljónir
eintaka um
heim allan.
Hún er þó ekki
enn búin að slá metið sem kanad-
íska söngkonan Alanis Morissette
á með plötunni „Jagged Little
Pill“. Talsmaður Twain sagði: „En
Come On Over er enn að seljast og
það er aðeins tímaspursmál hve-
nær hún verður komin á toppinn."
Hanks
og jólin
► LEIKARINN Tom Hanks mun
fara með aðalhltuverk í nýrri
barnamynd, The Polar Express
sem gerð verður eftir frægri bók
Chris Van Allsburg. Myndin er
um lítinn dreng sem er á einhvern
óskiljanlegan hátt þeytt til norð-
urpólsins af eimreið þar sem hann
hittir sjálfan jólasveininn.
Myndin verður frumsýnd jólin
2001 í Bandaríkjunum.
Bókin um
Beckham
► FÓTBOLTAKAPPINN David
Beckham sem er giftur krydd-
stúlkunni Victoriu Adams hefur
gefið samþykki
sitt fyrir útgáfu
ævisögu sinnar.
Sagt er að samn-
ingurinn sem
hann hafi gert
hljóði upp á
nokkrar milljónir
en bókin mun
væntanlega
koma í verslanir í
október og gæti því orðið vinsæl í
jólapakkana. Bókin mun bera nafn-
ið My World og þar mun David
segja frá sínum hjartansmálum,
hvernig hann tekst á við frægðina
og að einbeita sér að fótboltanum.
„Eg er ánægður með að bókin
kemur út á þessum tímapunkti því
hún mun fanga ákveðið tímabil á
ferli mínum og 1 einkalííí," sagði
David.