Morgunblaðið - 17.03.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. MARS 2000 51*
UMRÆÐAN
Evrópusambandið -
markmið og uppbygging
EVRÓPUHRAÐ-
LESTIN heldur áíram
að stækka og styrkj-
ast. Formlegar aðild-
arviðræður eru hafnar
við tíu ríki í Mið- og
Austur-Evrópu og
Danir ætla að halda
þjóðaratkvæðagreiðslu
um EMU hinn 28. sept.
í The Wall Street
Joumal Europe 10.
þ.m. er haft eftir Poul
Nyrup Rasmussen,
forsætisráðherra
Dana, að „[ejnginn
stjórnarliða sé í vafa Úlfar
um að það sé best fyrir Hauksson
Danmörku að taka upp
evruna“. Svo einfalt sé það. I sama
blaði segir að ákvörðun Dana muni
setja þrýsting á Svía. í Bretlandi er
baráttan miili pundsins og evrunnar
hafin. Hague, formaður Ihaldsflokks-
ins, notar slagorð á borð við „björg-
um pundinu" á meðan Blair, leiðtogi
Verkamannaflokksins, talar um
hagsmuni bresks efnahagslífs og al-
mennings. Hann telur engu skipta
hvort Bretar ganga með pund eða
evru í vasanum. Málið er hvað fæst
fyrir myntina. Þarna takast á gamal-
dags viðhorf og nútíma sjónarmið -
einföld lygi gegn flóknum sannleik.
Lykilstofnanir ESB eru ráðherra-
ráðið, framkvæmdastjórnin, Evrópu-
þingið og Evrópudómstóllinn.
Ráðherraráðið
Ráðið hefur æðsta ákvörðunar-
valdið í ESB. í ráðinu situr einn ráð-
herra frá hverju ríki og fer það eftir
málaflokkum hver það er. Mikilvæg-
asta hlutverk ráðsins er að setja lög
sambandsins í málum er rúmast inn-
an sáttmála þess. Lagasetningin er
þó ekki alfarið í höndum ráðsins. I
flestum málaflokkum innri markað-
arins eru ákvarðanir teknar með
samákvörðun ráðs og þings. Þetta
þýðir að þingið hefur neitunarvald
um nýja löggjöf. Felli það sig ekki við
lög sem ráðið samþykkir er sett á
stofn sáttanefnd og gegnir fram-
kvæmdastjómin mikilvægu hlut-
verki í slíkum tilfellum. Náist ekki
sættir nær löggjöfin ekki fram að
ganga.
Ráðherrarnir sem sitja í ráðinu
eru fulltrúar ríkisstjórna ríkjanna og
segja má að þeir þjóni tveimur herr-
um. Þeir taka ákvarðanir er varða
sambandið en gæta jafnframt hags-
muna síns ríkis. í ráðinu er ríkt tillit
tekið til hagsmuna
hvers ríkis. Atkvæða-
gi-eiðsla er sjaldgæf en
þegar hún á sér stað er í
nær öllum tilvikum um
veginn meirihluta (yfir
71% atkvæða) eða sam-
hljóma samþykki allra
aðildaiTÍkja að ræða
Framkvæmda-
stjórnin
Framkvæmdastjóm-
in er skipuð tuttugu full-
tmum sem valdir era af
ríkisstjórnum ríkjanna
til fimm ára í senn að
fengnu samþykki þings-
ins. Framkvæmda-
stjómin tekur þátt í löggjafarstarfi
ESB og leggur lagaframvörp fyrir
ráðið. Hún hefur mikilvægu eftirlits-
hlutverki að gegna og fylgist með því
að samþykktir séu framkvæmdar og
eftir þeim farið. Framkvæmda-
stjórnin hefur almenna hagsmuni
ESB að leiðarljósi og á náið samráð
við fulltrúa aðildarríkjanna þegar
hún undirbýr reglugerðir.
Kosið er til þings fimmta hvert ár
af íbúum ríkjanna. Það hefur eftirlit
með störfum framkvæmdastjómar
og ráðs sem er skylt að gefa þinginu
skýrslur og svara fyrirspumum þess.
Þingið fjallar um lagaframvörp og
hefur neitunarvald þar sem samá-
kvörðunar er krafist. Þingið sam-
þykkir ný aðildarríki og nýja fram-
kvæmdastjórn og getur jafnframt
sett hana af í heild sinni með 2/3 at-
kvæða. Þá verður þingið að sam-
þykkja fjárlög ESB.
Evrópudóinstóllinn
Dómstóllinn sér um að lögum ESB
sé fylgt og að þau séu ekki túlkuð eða
þeim beitt mismunandi í ríkjunum.
Dómarar era sextán talsins, einn frá
hverju landi og einn til, og verða öll
ríkin að samþykkja skipun dómara.
Reynslan sýnir að dómstóllinn dæm-
ir frekar eftir markmiðum sáttmál-
ans en orðanna hljóðan og er úr-
skurður endanlegur.
Auk þessara lykilstofnana má
nefna leiðtogaráðið, skipað af leiðtog-
um þjóðanna, sem mótar hina pólit-
ísku stefnu, og nefndir sem tryggja
áhrif sveitarstjóma og hagsmuna-
samtaka á störf ESB með beinum
hætti.
Ráðið heldur reglulega opna fundi
og löggjöf þess er birt opinberlega
sem og hvernig ríkin greiddu at-
Ef ísland verður ekki
samkeppnishæft varð-
andi lífskjör í framtíð-
inni, segir Úlfar Hauks-
son, mun vel þjálfað
og menntað íslenskt
vinnuafl leita annað.
kvæði. Fundir þingsins era opnh'
sem og fundir margra þingnefnda.
Hjá framkvæmdastjórninni era öll
skjöl opinber nema annað hafi verið
ákveðið.
Valddreifing
Samkvæmt greiningu Lijpharts
(Patterns of Democracy, 1999) er
framkvæmdavaldið á hendi fram-
kvæmdastjórnarínnar og fram-
kvæmdastjórarnir gegna hlutverki
ráðherra. Þeir era tilnefndir af lýð-
ræðislega kjörnum ríkisstjómum og
samþykkth’ af lýðræðislega kjörnu
þingi líkt og t.d. í Bandaríkjunum þar
sem forsetinn skipar ráðherra í ríkis-
stjórn. Ráðið, skipað lýðræðislega
kjörnum fulltrúum ríkjanna, gegnh’
hlutverki efri málstofu löggjafans og
þingið, kosið beinni hlutfallskosningu
í í-íkjunum, neðri málstofu löggjaf-
ans. í ríkjum sem hafa deildaskiptan
löggjafa er neðri deildin valdameiri,
en í ESB er þessu öfugt farið. Dóm-
stóllinn, skipaður dómurum frá öllum
aðildarríkjum, getur úrskurðað lög
löggjafans ólög og hefur sáttmála
ESB til hliðsjónar.
GildiESB
ESB er sjálfviljugt samstarf full-
valda lýðræðisríkja sem hafa það að
markmiði að standa vörð um lýðræði,
mannréttindi og frelsi einstaklings-
ins. Markmiðið er að bæta lífskjör al-
mennings og spoma gegn þjóðemis-
hyggju sem Adenauer, fyrsti
kanslari Þýskalands eftir stríð, kall-
aði réttilega „krabbamein Evrópu“.
Með hliðsjón af markmiðum og
uppbyggingu ESB er með ólíkindum
að til séu menn sem telja ESB „í
meginatriðum hliðstætt smáklíku-
ræði Kremlverja" líkt og Hannes
Jónsson gerir hér í blaðinu 10. þ.m.
Samlíkingin á milli fjölflokkalýðræð-
is ESB og Kreml undir ógnarstjóm
kommúnisma gefur ekki tilefni til
málefnalegrar umræðu.
Evrópuhraðlestin
eða uxakerran
Evrópusamvinnan mun þróast
áfram og hillir undir stækkun evra-
svæðisins, sem mun auka viðskipta-
kostnað íslendinga. Samkeppnisskil-
yrði íslenskra fyrirtækja munu
versna og neytendur borga brúsann í
hærra vöruverði og lakari lífskjöram.
Ef ísland verður ekki samkeppnis-
hæft varðandi lífskjör í framtíðinni
mun vel þjálfað og menntað íslenskt
vinnuafl leita annað. Stundin er að
renna upp. Islendingar þurfa að gera
það upp við sig hvort þeir ætla að
taka sér far með Evrópuhraðlestinni
inn í nýja öld eða hvort þeir ætla að
hossast á uxakerrunni. Þetta er flók-
inn sannleikur sem þarf að ræða, svo
almenningur standi ekki berskjald-
aður frammi fyrir hinni einföldu lygi.
Höfundur nemur stjórnsýslufræði
við Kaþólska háskólann íLeuven,
Belgíu.
NATURA
98% Aloe Vera Super GeL
Jason tryggir náttúruleg
gœði /
• er sérstaklega kælandi og græðandi
• eftir bruna og önnur meiðsli
inniheldur Spiralina meí
dregur úr kláða í þurri öj
er fitulaust
náttúrulegu collageni
iginni húð
51
AUar vorur (ró lason cru i
mllfúrumni/m umMHim
tvcm httRí cr ad enJuvinna.
• er gott á víðkvæma húð barna
• er í náttúruvænum umbúðum
• er sérstaklega gott eftir rakstur
Fæst I sérverslunum og apótekum um land allt.
AlU GLYSINGAR
TILBOÐ / ÚTBOO
VERKFRÆÐIÞJÓNUSTAN EHF
Útboð
Verkfræðiþjónustan ehf., fyrir hönd húsfélags-
ins Háholt 5—7, óskar eftir tilboðum í málun
og viðgerðir. Helstu magntölur eru:
Málun veggja 1.300 m2
Málun þakkants 124 m
Gluggar 111 stk.
Sprunguviðgerðir 30 m.
Útboðsgögn verða afhent þann 20. mars eftir
kl. 9.00 á Verkfræðiþjónustunni efh., Garða-
torgi 7, 2. hæð (turn), Garðabæ, gegn 10.000
kr. skilatryggingu. Tilboð verða síðan opnuð
á sama staða þann 28. mars kl 14.00 að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
AKUREYRARBÆR
Útboð
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri, fyrir hönd
bæjarsjóðs Akureyrar, óskar hér með eftir til-
boðum í gatnagerð og lagnir í áfanga II A í
Nesjahverfi. Tilboðið nærtil gerðar 245 lengd-
armetra af götum ásamt tilheyrandi holræsa-
og vatnslögnum.
Helstu magntölur eru:
Uppúrtelí úr götum 910 m3
Lagnaskurðir 260 m
Lengd fráveitulagna 540 m
Lengd vatnslagna 240 m
Fylling 3.500 m3
Skiladagur verksins er 9. júní 2000.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu tæknideild-
ar Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri,
frá og með þriðjudeginum 14. mars 2000 á
kr 3.000. Opnun tilboða fer fram á sama stað
fimmtudaginn 30. mars 2000 kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri.
KENN5LA
Stangaveiðimenn athugið
Nýtt námskeið í fluguköstum, það síðasta í vetur,
hefstsunnudaginn 19. mars. íTBR-húsinu,
Gnoðarvogi 1, kl. 20.00.
Kennt verður 19. og 26. mars, 2., 9. og 16. apríl.
Við leggjum til stangir. Takið með ykkur inniskó
(íþróttaskó). Mætið tímanlega.
Skráning á staðnum gegn greiðslu.
KKR, SVFR og SVFH.
TIL SÖLU
Kaffihús
Til sölu er rekstur kaffihúss í miðborginni.
Um er að ræða mjög sérstakan rekstur með
mikla möguleika.
Einungis fjársterkir aðilar koma til greina.
Áhugasamir sendi tilboð til auglýsingadeildar
Mbl., merkt: „K — 9403", fyrir 24. mars nk.