Morgunblaðið - 15.04.2000, Síða 1
90. TBL. 88. ÁRG.
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Dúman staðfestir START-2 samninginn um fækkun kjarnavopna
Sagt greiða fyrir frekari
kjarnorkuafvopnun
Moskvu. Reuters.
DÚMAN, neðri deild rússneska þingsins, stað-
festi STAKT-2 samninginn um fækkun kjarna-
vopna í gær, sjö árum eftir að hann var undir-
ritaður og tveimur dögum fyrir fyrstu ferð
Vladímírs Pútíns, starfandi forseta Rússlands,
til Vesturlanda. Pútín fagnaði staðfestingunni
og sagði að nú væri það undir Bandaríkjastjórn
komið hvernig framvindan yrði í afvopnunar-
málum. Bandarísk stjórnvöld sögðu ákvörðun
dúmunnar sögulegt skref fram á við og greiða
fyrir viðræðum um frekari kjarnorkuafvopnun.
Gennadí Zjúganov, leiðtogi rússneskra komm-
únista, lýsti hins vegar staðfestingu samnings-
ins sem „sögulegu axarskafti".
Afvopnunarsamningurinn var samþykktur
með 288 atkvæðum gegn 131 og fjórir þing-
menn sátu hjá.
Staðfesting START-2 samningsins er til
marks um sterka stöðu Pútíns á þinginu og álit-
in gott veganesti fyrir forsetann þegar hann fer
til Bretlands á morgun í fyrstu ferð sína til
Vesturlanda frá því hann tók við forsetaem-
bættinu af Borís Jeltsín um áramótin. Jeltsín
hafði reynt í sex ár að fá dúmuna til að stað-
festa samninginn en honum tókst það ekki
vegna andstöðu kommúnista og bandamanna
þeirra.
„Boltinn er nú hjá Bandaríkjastjórn"
Pútín fór í þinghúsið til að skora á þingmenn-
ina að samþykkja samninginn. „Viðsemjendur
okkar þurfa nú að taka næstu skrefin,“ sagði
hann eftir atkvæðagreiðsluna. „Boltinn er nú
hjá Bandaríkjastjórn. Við erum nú í góðri að-
stöðu til að halda afvopnunarviðræðunum
áfram og auka öryggi heimsins."
Pútín skírskotaði til viðræðna um nýjan af-
vopnunarsamning, START-3, og tillögu Banda-
ríkjastjórnar um breytingar á samningnum
sem takmarkar varnir gegn langdrægum eld-
flaugum (ABM). Rússar segja að ABM-samn-
ingurinn sé undirstaða þeirra afvopnunarsamn-
inga sem gerðir hafa verið á síðustu 25 árum og
að þeir kunni að þurfá að smíða ný kjarnavopn,
verði honum breytt. Þegar dúman staðfesti
START-2 samþykkti hún einnig frumvörp sem
heimila forsetanum að rifta öllum afvopnunar-
samningum Rússa ef Bandaríkjamenn virða
ekki ABM-samninginn.
„Stórt skref fram á við“
Madeleine Albright, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fagnaði staðfestingu dúmunnar
á START-2 samningnum. „Þetta er stórt skref
fram á við. Við hlökkum til að ræða næstu
skref í afvopnunarviðræðum okkar og önnur
mál þegar ígor Ivanov, utanríkisráðherra
Rússlands, kemur til Washington síðar í mán-
uðinum.“
Samkvæmt START-2 samningnum eiga
Bandaríkin og Rússland að fækka kjarnaoddum
sínum úr 6.000 í 3.500 fyrir árið 2007. Banda-
ríkjaþing staðfesti samninginn árið 1996.
Zimbabwe
------------
Askorun
stjórnarinn-
ar hunsuð
Harare. Reuters, AP.
LANDTÖKUMENN í Zimbabwe
réðust inn á að minnsta kosti fimm
bújarðir hvítra bænda í gær þrátt
fyrir áskorun ríkisstjórnar landsins
um að þeir færu af hundruðum jarða
sem þeir hafa lagt undir sig.
Ekkert benti til þess að lögreglan
hygðist láta til skarar skríða gegn
landtökumönnunum þótt dómstóll
hefði úrskurðað að jarðanámið væri
ólöglegt. Leiðtogi landtökumann-
anna sagði að þeir myndu virða úr-
skurð dómstólsins að vettugi.
Robert Mugabe, forseti Zimba-
bwe, kvaðst ekki ætla að falla frá
þeirri stefnu sinni að úthluta blökku-
mönnum bújörðum hvítra bænda.
Hann sagði þó að enginn bændanna
yrði landlaus. Stjórnin hygðist „ná“
jörðum sem eru næst byggðum
blökkumanna og hvítir bændur sem
ættu fleiri en eina jörð fengju að
halda einni jörð hver. Þeir sem
myndu missa einu bújörð sína ættu
að fá aðra jörð annars staðar.
Metlækkun á
gengi banda-
rískra hlutabréfa
New York. Reuters, AFP.
METLÆKKUN varð á gengi
hlutabréfa á bandarískum fjár-
málamarkaði í gær er tilkynnt var,
að verðbólga í mars sl. hefði verið
sú mesta í fimm ár. Vegna þess er
búist við enn einni vaxtahækkun
fljótlega.
Vísitala neysluvöruverðs hækk-
aði um 0,7% í mars og grunnvísital-
an, sem mælir ekki breytingar á
verði matvæla og orku, hækkaði
um 0,4%. Eru þessar hækkanir
meiri en búist hafði verið við.
Mesta gengislækkun
á einum degi
Nasdaq-vísitalan, sem mælir
gengi tæknifyrirtækja, lækkaði í
gær um 9,67% og hefur þá fallið
um 34,2% frá 10. mars. Dow Jones-
iðnaðarvísitalan lækkaði um 5,66%
og hefur fallið um tæp 9% frá því á
þriðjudag.
Gengislækkunin í gær er sú
mesta sem orðið hefur á einum
degi á bandaríska hlutabréfamark-
aðnum.
Óttast mikla vaxtahækkun
Bandaríski seðlabankinn hefur
hækkað vexti fimm sinnum frá því
á miðju síðasta ári og um fjórðung
úr prósentustigi í hvert sinn.
Næsta vaxtaákvörðun verður tekin
16. maí og óttast er, að þá verði
vaxtahækkunin meiri en áður.
Fréttirnar af aukinni verðbólgu í
Bandaríkjunum ollu því, að gengi
hlutabréfa á frönskum markaði
lækkaði um 2,25%, á þýska mark-
aðinum um 3,14% og í London um
2,81%.
Bandaríkjastjórn óskar eftir dómsúrskurði í máli Kúbudrengsins
Elian verði afhentur
Washington. Reuters, AFP.
BANDARÍSKA dómsmálaráðu-
neytið bað í gær áfrýjunardómstól
um að fyrirskipa ættingjum kúb-
verska drengsins Elians Gonzalez í
Miami að láta hann af hendi.
Markmiðið með beiðninni er að
senda drenginn til föður síns sem
dvelur nú í Bandaríkjunum meðan
fjallað er um forræðisdeiluna.
Ráðuneytið hafði skipað ættingjum
drengsins að afhenda hann banda-
ríska innflytjendaeftirlitinu en þeir
virtu þau fyrirmæli að vettugi.
Carole Florman, talsmaður
dómsmálaráðuneytisins, sagði að
lögfræðingar þess hefðu einnig ósk-
að eftir því að áfrýjunardómstóllinn
hafnaði beiðni ættingja drengsins
um að hann yrði kyrrsettur í
Bandaríkjunum þar til réttarhöld-
um í máli hans lyki. Hann bætti við
að ef dómstóllinn fyrirskipaði að
drengurinn yrði afhentur banda-
rískum yfírvöldum væri dómsmála-
ráðuneytið tilbúið að gefa út fyrir-
mæli um að Elian færi ekki frá
Bandaríkjunum meðan réttað væri
í máli hans.
Florman sagði að faðir drengs-
ins, Juan Miguel Gonzalez, hefði
fallist á þessar ráðstafanir.
Elian, sem er sex ára, hefur búið
hjá ættingjum sínum í Miami frá
því í nóvember þegar hann fannst á
hjólbarðaslöngu undan strönd Flór-
ída. Móðir Elians, sem var skilin við
föður hans, og tíu aðrir flóttamenn
frá Kúbu, drukknuðu þegar bátur
þeirra sökk á leiðinni til Flórída.
Kosninga krafist í Belgrad
RIJMLEGA 100.000 manns komu
saman í miðborg Belgrad í gær
þegar leiðtogar stærstu stjórn-
arandstöðuflokka Júgóslavíu
tóku þar höndum saman í bar-
áttunni gegn Slobodan Milosevic
forseta og kröfðust þess að hann
boðaði strax til þing- og forseta-
kosninga. Stjórnarandstöðuleið-
togarnir efndu til fundarins til
að sýna að þeir hefðu bundið
enda á sundrungina sem ein-
kennt hefur stjórnarandstöðuna
og torveldað baráttuna gegn
Milosevic.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að
þetta væri einn fjölmennasti
mótmælafundur sem haldinn
hefur verið í Belgrad en efuðust
um að hann yrði til þess að Mil-
osevic boðaði til kosninga.
Samkvæmt nýlegri skoðana-
könnun eru nú tveir þriðju
Serba óánægðir með stefnu Mil-
osevic og aðeins 19% ánægð.
35% aðspurðra sögðu að koma
ætti stjórn Milosevic frá í kosn-
ingum en aðeins 9% sögðust vilja
að henni yrði steypt með mót-
mælaaðgerðum.
MORGUNBLAÐK) 15. APRÍL 2000