Morgunblaðið - 15.04.2000, Page 4
4 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Litadýrð einkennir verk listamannsins.
Glerlist í minningu frú Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur
Undraverk með
litadýrð glersins
í
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, opnaði síðdegis í gær
sýningu á verkum bandaríska gler-
listamannsins Dale Chihuly í Vest-
ursal Kjarvalsstaða. Sýningin er
haldin í minningu eiginkonu hans
heitinnar, frú Guðrúnar Katrínar
Þorbergsdóttur.
Forsetinn fagnaði í ávarpi sínu
mikilhæfum listamanni og merki-
legum áfanga í glerlistasögu á ís-
landi. Chihuly væri í fremstu röð
þeirra snillinga sem skapað hafa
undraverk með litadýrð glersins. „
verkum hans sjáum við töfraheim.
Likt og Picasso breytti málverkinu
og Mozart tónlistinni er Chihuly að
breyta glerlistinni. Áhrifa hans
gætir víða um heim.“
Ólafur Ragnar sagði þá ákvörðun
að halda sýninguna í minningu
Guðrúnar Katrínar hafa snortið
fjölskylduna afar djúpt. „Sá heiður
að sýningin skuli vera hingað kom-
in er okkur kærari en orð fá lýst.“
Þakkaði hann Eiríki Þorlákssyni,
forstöðumanni Listasafns Reykja-
víkur, sérstaklega hans þátt í und-
irbúningi sýningarinnar.
I máli forsetans kom fram að
Guðrún Katrín hefði verið unnandi
glerlistar og oft hafi verk af þeim
toga orðið fyrir valinu þegar þau
hjónin gáfu erlendum þjóðhöfðingj-
um góðar gjafir.
Hann sagði þau fyrst hafa séð
verk Chihulys á heimili vinafólks á
Indlandi og það hafi oft verið Guð-
rúnu Katrínu tilhlökkunarefni, í
baráttunni við erfið veikindi, að
atwllm? knapp
Morgunblaðið/Ásdís
Sýningarstjórinn, Jennifer P. Lewis, og Ólafur Ragnar Grímsson forseti
íslands virða fyrir sér eitt verka Chihulys.
eiga þess kost að sækja heim vinnu-
stofu listamannsins í Seattle. „Sú
ósk rættist ekki.“
Ólafur Ragnar sagði þau hjónin
margsinnis hafa glaðst á sýningum
á Kjarvalsstöðum og það hefði orð-
ið Guðrúnu Katrínu einkar kært að
fagna verkum Chihulys í húsinu.
Bað hann gesti að lokum að fagna í
hennar anda, njóta verkanna með
þeirri Iífsgleði sem einkenndi Guð-
rúnu Katrinu Þorbergsdóttur.
Eiríkur Þorláksson ávarpaði sýn-
ingargesti einnig. Sagði hann mik-
inn feng í sýningunni enda væri
Chihuly einn merkasti núlifandi
listamaður sem vinnur í gler.
BÓK 30%
Hvert kvöld var hún
ofurölvi og þó vissu
fæstir af drykkjunni.
Hispurslaus frásögn
af tuttugu ára
slítandi ástarsambandi
við áfengið.
Eiríkur þakkaði tveimur mönn-
um öðrum fremur að tekist hefði að
fá sýninguna til landsins. „Af þess-
ari sýningu hefði aldrei orðið hefði
ekki komið til vinátta tveggja
manna, George Russell í Seattle í
Bandarikjunum og Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Islands."
Yfírskrift sýningarinnar er
Chihuly á íslandi - Form úr eldi.
Hún stendur til 18. maí.
Ekki talinn
ábyrgur fyrir
alvarlegu slysi
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
sýknudóm Héraðsdóms Reykjavík-
ur yfir lögreglumanni í Lögregl-
unni í Reykjavík, sem ók lögreglu-
bifreið sinni gegn rauðu ljósi og
lenti í hörðum árekstri við einka-
bifreið á gatnamótum Egilsgötu og
Snorrabrautar hinn 24. febrúar
1999 með þeim afleiðingum að
ökumaður einkabifreiðarinnar
slasaðist lífshættulega.
Lögreglumanninum var m.a.
gefið að sök í ákæru ríkissaksókn-
ara að hafa ekið lögreglubifreið-
inni í neyðarakstri með forgangs-
ijós án nægilegrar aðgæslu og of
hratt miðað við aðstæður á blaut-
um vegi í myrkri. Lögreglubifreið-
in skall á vinstri hlið einkabifreið-
arinnar sem ekið var á grænu ljósi
inn á gatnamótin með fyrrgreind-
um afleiðingum auk þess sem eig-
inkona ökumannsins hlaut rif-
beinsbrot.
I dómi Hæstaréttar kemur fram
að ekki hafi þótt útilokað að bilun-
ar hefði gætt í hemlum lögreglu-
bifreiðarinnar þegar slysið varð og
að lögreglumanninum hefði tekist
að komast hjá árekstrinum ef þeir
hefðu virkað með eðlilegum hætti.
Fyrir héraðsdómi báru fjórir lög-
reglumenn að þeir hefðu orðið var-
ir við hemlabilun í bifreiðinni ým-
ist fyrir slysið eða eftir það. Þótti
verða að skýra þann vafa sem lék
á um orsakir slyssins lögreglu-
manninum í hag og var hann því
sýknaður af ákæru ríkissaksókn-
Ríkisskattstjóri að fengnu áliti um-
boðsmanns Alþingis
Skoða beiðni um
skattaleiðrétt-
ingu opnum huga
INDRIÐI H. Þorláksson ríkis-
skattstjóri segir að embætti sitt
muni skoða mál sjálfstætt starfandi
verkfræðings, sem synjað var um
beiðni um leiðréttingu á opinberum
gjöldum, opnum huga eftir tilmæli
umboðsmanns Alþingis þar að lút-
andi. Umboðsmaður Alþingis taldi
ríkisskattstjóra ekki hafa farið að
lögum er hann hafnaði beiðni verk-
fræðingsins 23. desember 1997 og
beindi því þeim tilmælum til em-
bættisins að umrædd ákvörðun yrði
endurskoðuð, óskaði verkfræðing-
urinn þess.
Verkfræðingurinn óskaði eftir
leiðréttingu á opinberum gjöldum
sínum fyrir gjaldaárin 1985 til 1992
í kjölfar dóms Hæstaréttar 19. des-
ember 1996, þar sem fallist var á að
sjálfstætt starfandi mönnum væri
heimilt að draga frá rekstrartekj-
um sínum framlag í lífeyrissjóð af
eigin vinnu vegna þess hluta sem
almennt greiðist af vinnuveitanda.
Eigi að síður hafnaði ríkisskatt-
stjóri erindi hans um leiðréttinguna
með vísan til þeirrar ákvörðunar
embættisins að binda almennar
leiðréttingar á skattskilum sjálf-
stætt starfandi manna við lífeyris-
sjóðsframlög ársins 1992 og yngri
ára.
Ákvörðun um að hafna beiðni
verkfræðingsins var tekin hjá em-
bætti ríkisskattstjóra, áður en
Indriði H. Þorláksson tók við emb-
ættinu." Hann segir að æskilegast
væri að hafa ákveðin lagaákvæði i
gildi um tilvik af þessu tagi. „Það
getur alltaf hent að dómstóll komist
að annam niðurstöðu um tiltekm
efni en skattayfirvöld,“ segir hann.
„Að sjálfsögðu munum við skoða
þetta mál opnum huga því okkar
hlutverk er að hafa skattamálin í
samræmi við það sem lög kveða á
um og góð stjórnsýsla kallar á.“
4>
FORLAGIÐ
Laugavegi 18 • Sfmi S15 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
Nýtt símkerfi blaðadreif-
ingar Morgunblaðsins
ÁSKRIFTARDEILD Morgun-
blaðsins hefur tekið í notkun gagn-
virkt símkerfi sem er ætlað að veita
betri stjórn á tímasetningu blað-
burðar.
Ski-áning í kerfið er gerð með
tónvalssíma og gerir kerfið áskrift-
ardeildinni kleift að íylgjast með
hvar blaðið er statt í dreifingarferl-
inu á hverjum stað fyrir sig. Tekur
skráningin aðeins örfáar sekúndur í
hvert skipti og er gjaldfrjáls fyrir
notendur kerfisins.
Örn Þórisson áskriftarstjóri seg-
ir kerfið, sem er að erlendri fyrir-
mynd, byggjast upp á því að allir
sem vinni að dreifingu blaðisins
skrái hvenær þeir hefji verk sitt og
hvenær þeir Ijúki því. Á þann hátt
hafi áskriftardeildin góða yfirsýn
yfir tímasetningu á dreifingu blaðs-
ins og geti brugðist við komi eitt-
hvað upp á.
„Ferlið byijar hjá bflstjórunum,
þeir keyra blaðið á áfangastað á
nóttunni og skrá sig inn í kerfið þeg-
ar þeir leggja af stað. Um leið geta
blaðberamir hringt inn og fylgst
með því hvort bfllinn er farinn af
stað eða ekki, hvort einhver seinkun
sé í framleiðslukerfinu og þannig
eiga þeir auðvelt með að fylgjast
með hvenær blaðið kemur til
þeirra,“ segir Örn.
Þegar blaðberinn leggur af stað
skráir hann sig inn og eins þegar
hann hefur lokið við að bera út blað-
ið. Örn segir að keifið áminni blað-
bera sjálfvirkt, með símhringingu,
hafi þeir ekki skráð sig inn í kerfið
fyrir klukkan hálfsjö. „Þar erum við
fyrst og fremst að reyna að tryggja
það að áskrifendur fái blaðið fyrir
klukkan sjö eins og við lofum,“ segir
Öm
Steftit að því að áskrifendur
fái beinan aðgang að kerfínu
Öm segir þetta mikinn mun fyrir
vinnu áskriftardeildarinnar og bæti
þjónustu hennar til áskrifenda.
„Þetta hjálpar okkur að svara
áskrifanda nokkuð nákvæmlega ef
hann hringir á morgnana og bíður
eftir blaðinu sínu.“
Örn segir að kerfi þetta geti skipt
gríðarlega miklu máli, til dæmis ef
bilun kemur upp í prentsmiðjunni.
„Þá eigum við auðveldara með að
okkur á því á hve löngum tíma við
getum klárað að bera út blaðið a
ákveðnum svæðum og komið upp-
lýsingum um stöðuna miklu betur
til blaðberanna. Þetta nýja kerfilýs-
ir engu vantrausti á blaðbera, síður
en svo. Fjöldi blaðbera vinnur sitt
starf samviskusamlega og vel. Fyrir
þá er símkerfið nýtt hjálpar- og ör-
yggistæki. Margir blaðberai- hafa
hringt til að lýsa ánægju sinni meo
þessa nýjung og jafnvel óskað eftir
að færa áminningarhringingu sína
og nota hana til að láta vekja sig.“
Öm segir stefnt að því að áskrit-
endur fái beinan aðgang að kerfínu
bæði í síma og á Netinu og geti
þannig fylgst með komutíma blaðs-
ms.