Morgunblaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Knatthús ehf., Toyota og Skeljungur fá út-
hlutað um 8 ha lóð í Garðabæ.
Morgunblaðið/Kristinn
Þau Rúdólf Jón Ámason, Gísli Ottósson og Kristín Sesselja Róbertsdóttir, nemendur í
8. bekk í Hagaskóla sögðust vera ánægð með þá nýbreytni að fá að velja námsbraut.
Nemendur í 8. bekk í Hagaskóla velja sér
námsbraut fyrir næsta vetur
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þrír af fimm stofnendum Knattspymufélagsins Hauka, þeir Helgi Vilhjálmsson, Hallgrímur
Steingrímsson og Sófus Bertelsen, ásamt Lúðvíki Geirssyni, formanni félagsins.
um stað og það er stefnt að apríl 2001, á 70 ára afmæl- gestir voru við reisugildið í
því að húsið verði klárað 12. inu,“ sagði Lúðvík. Um 200 gær.
Námið tekur mið
af skipulagi fram-
haldsskolanna
yrðir, smíði, myndmennt
O.S.fl’V.
Flosi sagði að þó allir
verðandi nemendur í 9. bekk
á landinu ættu kost á auknu
vali væri mjög misjafnt
hversu mikið val skólarnir
gætu boðið upp á og sagði
hann að það væri nokkuð
háð stærð skólanna.
Alls ekki snúið að velja
„Stóm skólarnir, sem
hafa a.m.k. þrjá bekki í ár-
gangi, eins og Hagaskóli,
Garðaskóli, Árbæjarskóli og
jafnvel Réttarholtsskóli,
hafa meira svigrúm til að
geta boðið upp á fjölbreytt-
ara val en hinir minni.
Hérna höfum við haft allt
upp í sjö bekki í árgangi og
því hefur valið verið alveg
galopið. Ki-akkarnir núna
gátu t.d. valið líffræði á 7
mismunandi tímum í vik-
unni.“
Þau Gísli Ottósson, Rúd-
olf Jón Arnason og Kristín
Sesselja Róbertsdóttir,
nemendur í 8. bekk í Haga-
skóla, voru öll mjög ánægð
með þá nýbreytni að fá að
velja sér námsbraut og
sögðu að það hefði alls ekki
verið snúið.
Gísli sagðist hafa valið sér
náttúrufræðibraut, aðallega
vegna þess að foreldrar
hans hefðu mælt með því, en
hann sagðist samt hafa
áhuga á líffræði og sagðist
jafnvel stefna á að læra eitt-
hvað tengt henni í framtíð-
inni.
Rúdólf og Kristín sögðust
hinsvegar hafa áhuga á
öðru.
„Ég valdi samfélagsfræði-
braut því ég hef mikinn
áhuga á landafræði," sagði
Rúdólf og Kristín tók undir
með honum og sagðist einn-
ig hafa valið samfélags-
fræðibrautina.
Ungmennin eru öll harðá-
kveðin í að fara í framhalds-
skóla en sögðust ekki hafa
tekið endanlega ákvörðun
um það í hvaða skóla þau
hygðust fara, enda enn góð-
ur tími til stefnu.
Gísli og Kristín nefndu
samt MR sem líklegan kost
en Rúdólf sagðist hafa meiri
áhuga á Verslunarskólanum,
því þar væri boðið upp á
meiri tölvukennslu.
Haukar
halda
reisugildi
Hafnarfjörður
HAUKAR í Hafnarfirði
fögnuðu því í gær að nýtt
íþróttahús félagsins með
tveimur handknattleiksvöll-
um og stæðum fyrir um 2000
áhorfendur er orðið fokhelt
og undir það hillir að starf-
semi félagsins flytjist öll á
íþróttasvæðið á Ásvöllum.
„Það er búið að loka þeim
hluta hússins sem á að taka í
notkun í haust,“ sagði Lúð-
vík Geirsson, formaður
Hauka, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Þetta er stærsta gerð af
húsi með tveimur handknatt-
leiksvöllum í löglegri stærð
og heilmikilli aðstöðu til við-
bótar; félagsaðstöðu, skrif-
stofum, tækjasölum og leik-
fímisölum," sagði Lúðvík.
Starfsemi féiagsins hefur
til þessa farið fram á nokkr-
um stöðum í Hafnarfirði,
knattspyrna hefur verið æfð
á Ásvöllum, keppt hefur ver-
ið í handknattleik og körfu-
knattleik í íþróttahúsinu við
Strandgötu en félags- og æf-
ingaaðstaða hefur að hluta
til verið í gamla Haukahús-
inu í Haukahrauni.
Haukar fögnuðu 69 ára af-
mæli félagsins þann 12. apríl
sl. „Nú í haust stefnir í það í
fyrsta skipti í sögu félagsins
að öll starfsemin verði á ein-
Fjölskyldumið-
stöð í Vetrarmýri
Garðabær
HUGMYNDIR eru uppi um
að koma upp einhverskonar
fjölskyldumiðstöð í tengslum
við nýtt knattspymuhús sem
ráðgert er að reisa í Vetrar-
mýri í Garðabæ. Þetta kom
fram í samtali Morgunblaðsins
við Kristin Bjömsson, for-
stjóra Skeljungs, en Skeljung-
ur ásamt P. Samúelssyni
(Toyota) og Rnatthúsum ehf.
fékk í síðustu viku leyfi hjá
bæjaryfirvöldum til að vinna
sameiginlega að skipulagi
svæðisins, en um er að ræða
tæplega 8 hektara svæði á
norðausturhorni Vífilsstaða-
vegar og Reykjanesbrautai'.
„Þama gæti verið áhuga-
vert að setja á stofn einhvers-
konar þjónustumiðstöð í ki-ing-
um þetta fyrirhugaða knatt-
spymuhús," sagði Kristinn.
„Þarna gæti t.d. verið mögu-
leiki á að bjóða upp á aðra af-
þreyingu en fer fram í sjálfu
knattspymuhúsinu, en þó eitt-
hvað tengt því, eitthvað tengt
íþróttum, eða hugsanlega úti-
vem, því þetta svæði er nálægt
golfvellinum.“
Sýningarsalur
fyrir Toyota
Kristinn sagði að forsvars-
menn fyrirtækjanna myndu
hittast í næstu viku til að ræða
þessi mál enn frekar og því
væri þetta allt enn á frumstigi.
Hann sagði hinsvegar Ijóst að
ef samstarfið myndi ganga,
væri a.m.k. ráðgei-t að byggja
knattspymuhús á reitnum,
Toyota myndi byggja stórt hús
sem myndi hýsa sýningar- og
söluaðstöðu fyrirtækisins og
Skeljungur myndi reisa bens-
ínstöð og jafnvel stóra Select-
verslun.
„Hugmyndin er síðan að
spila inn á þarfir fjölskyldunn-
ar og bjóða upp á íþrótta- og
tómstundaaðstöðu fyiir hana.
Þama er aðstaða til að fara í
golf og iðka knattspymu, þó
þeir tímar verði náttúrlega
eitthvað fi-áteknir, en spum-
ingin er hvort eitthvað sé hægt
að spinna við þetta og bjóða
upp á líkamsrækt á staðnum
eða eitthvað annað tómstunda-
gaman, innan dyra eða utan.“
Stærsta sýningaraðstaða
höfuðborgarsvæðisins
Að sögn Kristins er þetta
það sem lóðarhafarnir eru að
skoða núna, en hann sagði að
eini fasti punkturinn í þessum
áformum væri að þama yrði
reist knattspymuhús.
,Auðvitað er það líka fastur
punktur að við ætlum að vera
þama með þjónustustöð og
Toyota ætlar að byggja sitt
hús, en lóðin býðm- upp á
miklu, miklu meira en þetta.
Það gæti því verið áhugavert
að kalla fleiri til að þessu máli,
en ég held að þetta muni allt
skýrast mjög fljótlega.“
Kristinn sagði að líklega
yrðu allar byggingamar, þ.e.
knattspymuhúsið, sýningar-
salur Toyota og hús Skeljungs,
tengdar saman þannig að hægt
yrði að ganga á milli þeirra.
„Ég get ekki betur séð en að
ef þetta gengur eftir sé þarna
komin einhver stærsta sýning-
araðstaða á höfuðborgarsvæð-
inu sem er undir þaki á einum
stað. Þarna væri þá t.d. hægt
að bjóða upp á sýningarað-
stöðu fyrir þessar stóra alþjóð-
legu sýningar því þama verður
óhemjuflæmi undir þaki.
Þannig að möguleikamir era
alveg geysilega miklir á þessu
svæði og það liggur mjög vel
við allri umferð og öll aðkoma
þama er mjög greið.
Auðvitað er þungamiðjan í
þessu að þessir þrá’ aðilar era
allir að fara þama inn til að
vera hver fyrir sig með sína
þjónustu, en menn era mjög
opnir fyrir því, alla vega eram
við mjög opnir fyrir því að þróa
þetta svæði eitthvað enn frek-
ar og gera þetta að fjölskyldu-
vænum stað.“
Vesturbær
NEMENDUR í 8. bekk í
Hagaskóla fengu í fyrsta
skipti í vetur að velja sér
námsbraut fyrir næsta vet-
ur, en þá verða þeir í 9.
bekk. Þetta aukna val nem-
enda er í samræmi við þá
stefnu menntamálaráðu-
neytisins að leyfa ungu fólki
að einbeita sér ennfrekar að
þeim námsgreinum sem það
hefur áhuga á. Þetta kom
fram í samtali Morgunblaðs-
ins við Flosa Kristjánsson,
aðstoðarskólastjóra Haga-
skóla, en hann sagði að 10.
bekkingar hefðu haft tölu-
vert valfrelsi frá því grunn-
skólalögin frá árinu 1974
hefðu tekið gildi, en að nú
væri í fyrsta skipti verið að
leyfa 9. bekkingum að velja.
„Þetta er að vísu ekki
stórt stökk,“ sagði Flosi.
„Helstu breytingarnar eru
þær að verkmenntagreinar
eru felldar niður sem skylda
og það sem upp á vantar er
frjálst val hjá krökkunum."
Fjórar námsbrautir
í boði
Að sögn Flosa eykur
Hagaskóli reyndar aðeins
við viðmiðunarstundaskrá
ráðuneytisins, en samkvæmt
henni er nemendum skylt að
taka 26 tíma samkvæmt for-
skrift, en fá síðan 10 tíma í
val.
I Hagaskóla var sú leið
farin að búa til fjórar náms-
brautir, þ.e. tungumála-
braut, náttúrufræðibraut,
samfélagsfræðibraut og list-
og verkmenntabraut. Með
því að búa til þessar brautir
er búið að binda um helm-
inginn af vali nemenda en á
móti er búið að búa til
námsbrautir með sérstökum
áherslum, sem taka mið af
skipulagi framhaldsskól-
anna. Nemendur fá síðan
nokkra tíma í val og er það
val alveg frjálst, þannig að
nemandi á tungumálabraut
getur t.d. valið sér enn frek-
ari tungumálakennslu, en
ekkert mælir gegn því að
hann velji sér frekar hann-
Hafnarfjörður með
í Knatthúsum
Hafnarfjörður
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi á fimmtu-
dag að leggja fram 15 m.kr.
stofnframlag til Knatthúsa
ehf., sem hyggst reisa sam-
eiginlegt knattspymuhús
fyrir íþróttafélög í Hafnar-
firði, Garðabæ og Bessa-
staðahreppi í Vetrarmýri í
Garðabæ. Fyrirtækin Skelj-
ungur og P. Samúelsson
kanna nú möguleika á þátt-
töku í verkefninu.
Garðabær og Bessastaða-
hreppur hafa þegar sam-
þykkt þátttöku í Knatthús-
um en Kópavogsbær hefur
ákveðið að verða ekki með.
Á fundi bæjarráðs á
fimmtudag var aðild að fé-
laginu samþykkt með vísan
til samþykktar í rammafjár-
hagsáætlun bæjarins 2001-
2003 og samþykktar íþrótta-
ráðs bæjarins frá 11. þessa
mánaðar en þar segir að
tryggja þurfi að viðunandi
fjöldi æfingatíma fáist í
væntanlegu húsi fyrir
íþróttahreyfinguna í Hafn-
arfírði. Bæjarráð samþykkti
15 m.kr. stofnframlag en að
í framhaldinu verði gerður
samningur um fjölda æf-
ingatíma í væntanlegu
knatthúsi fyrir íþróttahreyf-
inguna í bænum. Bærinn
skuldbindur sig því að svo
stöddu ekki til að tryggja
ákveðnar leigutekjur, líkt og
hin tvö sveitarfélögin hafa
gert. Steinunn Guðnadóttir
bæjarfulltrúi sat hjá við af-
greiðslu málsins þar sem
þarfagreining frá íþrótta-
ráði liggur ekki fyrir.