Morgunblaðið - 15.04.2000, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Einníg mikil lækkun á
notuðum sleðum
// Akureyri, Dalsbraut 1, sími 462 2840
// Kópavogi, Smiðjuvegi 4, sími 577 5040
Hugmyndir um
byggingu hótels
í biðstöðu
PASKATILBOÐ
Há örfáum sleðum \>
> 846.000
> 799.000
> 799.000
Flugleiðahótel sóttu um lóð
í miðbæ Akureyrar
Andrésar Andarleikarnir á skíðum haldnir í 25. sinn
Uppl. í sfmum 861 7766/
Höfum einnig Forester 862 1043.
KARLAKÓR Akureyrar-Geysir
bryddar upp á nýjungum í starfinu
á þessu vori. Auk hefðbundinna
tónleika í lok maímánaðar stendur
kórinn fyrir bítlakvöldi á Oddvit-
anum á Akureyri síðasta vetrar-
dag, 19. apríl, og skírdag/sumar-
daginn fyrsta, 20. apríl, kl. 21.00.
Liðlega helmingur kórsins tekur
þátt í því að endurvekja bítla-
stemmninguna frá 7. áratugnum
Polaris 600 Touríng
Polarís 700 SKS
Polaris RIVIK
1,078.800
1.057,500
1 057.500
Kristinn Björnsson fslandsmeistari í svigi heiðrar
þátttakendur á Andrésar Andarleikunum og
í gærmorgun fór hann sem undanfari
í leikjabraut þeirra yngstu.
Veðrið setti sitt strik í reikninginn hjá þátttakendum
á Andrésar Andarleikunum í Hh'ðaríjalli í gærmorg-
un, en þessi ungi þátttakandi lét það ekki á sig fá og
renndi sér fimlega í gegnum leikjaþrautina.
Nýr Subaru
Þátttakendur tilbúnir í slaginn.
Morgunblaðið/Kristj án
Hávaðarok í
Hlíðarfjalli
HÁVAÐAROK setti mark sitt á
fyrsta keppnisdag Andrésar And-
arleikanna á skíðum sem var í gær,
föstudag, en leikarnir eru nú haldnir
í 25. sinn.
„Það er skemmst frá því að segja
að hér er drulluveður," sagði ívar
Sigmundsson, forstöðumaður Skíða-
staða, í samtali vð Morgunblaðið
eftir hádegið gær. Þá voru á bilinu 7
til 9 vindstig á skíðasvæðinu og enn
hvassara í vindhviðum. Loka varð
stólalyftunni af þessum sökum og þá
var stromplyftan, sú efsta í Hlíðar-
fjalli einnig lokuð eftir hádegi. „Hér
er biðstaða, en við vonum að það
lægi í kvöld eða nótt,“ sagði ívar.
Um 790 börn á aldrinum 7-12 ára
taka þátt í leikunum að þessu sinni
og er þetta næstmesti fjöldi kepp-
enda frá því leikamir voru fyrst
haldnir fyrir 25 árum. Börnin koma
hvaðanæva af landinu auk þess sem
9 keppendur koma frá Kulusuk í
Grænlandi. Keppt er í alpagreinum
og göngu.
Fremsti skíðamaður landsins,
Kristinn Björnsson, setti leikana
formlega á fimmtudagskvöld, en
hann hóf sinn frækilega skíðaferil
með þátttöku í Andrésar Andarleik-
unum.
Bítlakvöld á Akureyri
og er útsetning laga The Beatles
sem næst frumútgáfunni og gerð
af stjórnandanum, Roar Kvam.
Með kómum koma fram söngvar-
amir Pálmi Gunnarsson og Helena
Eyjólfsdóttir og einnig kemur
fram fjölskipuð hljómsveit þekktra
hlj ómlistarmanna.
Ekki er að efa að gamlir sem og
nýrri aðdáendur Bítlanna munu
fagna þéssu framtaki, og lög
þeirra Paul McCartney og John
Lennon munu vekja upp gamlar
endurminningar.
Kirkjustarf
AKURE YR ARKIRKJ A: Ferming-
armessur kl. 10.30 og 13.30 á morg-
un, Pálmasunnudag. Morgunsöngur
kl. 9 á þriðjudag í kirkjunni.
Mömmumorgunn í Safnaðarheimili
frákl. lOtil 12.
GLERÁRKIRKJA: Fermingar-
messur kl. 10.30 og 13.30 á morgun,
Pálmasunnudag. Barnamessa verð-
ur í Lögmannshlíðarkirkju á morg-
un og verður lagt af stað frá Gler-
árkirkju kl. 11 um morguninn.
Foreldrar eru hvattir til að mæta
með börnunum.
Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl.
18.10 á þriðjudag. Hádegissamvera
frá kl. 12 til 13 á miðvikudag, orgel-
leikur, fyrirbænir og sakramenti,
léttur hádegisverður á vægu verði á
eftir.
DALVÍKURKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli í Dalvíkurkirkju sunnu-
daginn 16.apríl. Hittumst við heilsu-
gæslustöðina kl. 11:00 og göngum
fylktu liði til kirkju.
Foreldrar hvattir til að mæta
með börnum sínum.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli á morgun, sunnudag kl.
11, bænastund kl. 16.30, almenn
samkoma kl. 17 og unglingasam-
koma kl. 20. Heimilasamband kl. 15
á mánudag, hjálparflokkur fyrir
konur á miðvikudag kl. 20.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Brauðsbrotning kl. 20 í kvöld, laug-
ardag. Sunnudagaskóli fjölskyld-
unnar á morgun, sunnudag kl.
11.30, kennsla úr orði Guðs fyrir
alla aldurshópa. Léttur málsverður
að samkomu lokinni. Almenn vakn-
ingarsamkoma kl. 16.30 sama dag.
G. Theodór Birgisson safnaðarhirð-
ir predikar á báðum samkomum.
Fyrirbænaþjónusta og barnapöss-
un.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag kl. 18 og á morgun,
sunnudag kl. 11 í kirkjunni við Eyr-
arlandsveg 26.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta verður í Möðruvalla-
kirkju annað kvöld, Pálmasunnudag
og hefst hún kl. 21. Sr. Guðmundur
Guðmundsson héraðsprestur syng-
ur messu og predikar.
LJÓSAVATNSPRESTAKALL:
Hátíðarmessa í Ljósavatnskirkju
kl. 14 á morgun, Pálmasunnudag.
Aðalsafnaðarfundur eftir messu.
MÖÐRUV ALL APRESTAKALL:
Messa verður í Bægisárkirkju á
morgun, Pálmasunnudag kl. 11.
SJÓNARHÆÐ: Lokafundur
sunnudagaskólans og barnafund-
anna verður á Sjónarhæð, Hafnar-
stræti 63 í dag, laugardag kl. 13. Al-
menn samkoma verður kl. 17 á
morgun, pálmasunnudag.
Legacy Nýr • Nýr
Einstakt tækifæri.
Subaru Legacy m/öllu.
Vél 2500.
Leðurinnrétting.
Tölvustýrð miðstöð m/loftkælingu o.fl.
Verð 2.550.000.
Verð áður kr. nú kr.
jjjjh.
Þroskahjálp á Norðurlandi
_ eystra
ÞROSKAHJÁLP
Á NORDURLANDI EYSTRA —..—... ..—... —.....
Aðalfundur Þroskahjálpar á Norðuriandi eystra
verður haldinn á Hótel KEA
fimmtudaginn 27. apríl kl. 20:00.
Venjuleg aðalfundarstörf, kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Stiómin.
FLUGLEIÐAHÓTEL sóttu um
lóð í miðbæ Akureyrar í byrjun árs
en félagið hefur lýst yfir áhuga á að
byggja 50-100 herbergja hótel í
bænum. Kostnaður við slíka fram-
kvæmd er áætlaður á bilinu 350-700
milljónir króna. Kári Kárason
framkvæmdastjóri Flugleiðahótela
sagðist hafa fengið viðbrögð frá
bæjaryfirvöldum við umsókn fé-
lagsins en hins vegar sé málið í
ákveðinni biðstöðu og að framhald-
ið sé óljóst.
„Við höfum áður lýst yfir áhuga á
að skoða þessa hugmynd í sam-
hengi við hugsanlegt menningar-
hús. Það er valkostur númer eitt og
við ætlum okkur að hafa þolinmæði
Aglowfundur
AGLOW, kristileg samtök
kvenna, halda fund í félagsmið-
stöðinni Víðilundi 22 á Akur-
eyri á mánudagskvöld, 17. apríl
og hefst hann kl. 20.
Katrín Harðardóttir flytur
ræðu kvöldsins. Einnig er á
dagskrá söngur, lofgjörð og
fyrirbænaþjónusta og þá er
kaffihlaðborð. Þátttökugjald er
450 krónur.
til að sjá hvernig það mál þróast. Ef
hins vegar kemur til þess að það
dragist mjög á langinn, eins og
maður á alveg von á að gerist, mun-
um við skoða aðra kosti.
Kári sagði að margir aðilar á Ak-
ureyri hafi haft við þá samband
vegna hugsanlegra framkvæmda og
væru ýmsar hugmyndir í gangi.
Komi til þess að ráðist verði í bygg-
ingu menningarhúss á Akureyri,
hefur verið horft til svæðsins aust-
an Glerárgötu og sunnan Strand-
götu en það er einmitt sá staður
sem Flugleiðahótel horfa einnig til.
Kári sagði að þótt málið væri í
ákveðinni biðstöðu væri verið að
skoða og útfæra ýmsa möguleika.
„Við sitjum ekkert með hendur í
skauti. Hins vegar er alveg ljóst að
tenging við hugsanlegt menningar-
hús gefur mönnum færi á að hugsa
aðeins stærra. Ef við ætluðum að
fara af stað og byggja einir og sér
einhvers staðar, myndum við frekar
gera það í áföngum en með menn-
ingarhúsi yrði trúlega farið strax
alla leið.
Flugleiðahótel, sem er dótturfé-
lag Flugleiða, er stærsta hótelfyrir-
tæki landsins, með 22 hótel í rekstri
yfir sumartímann og þar af 7 heils-
árshótel. Félagið er ekki með rekst-
ur heilsárshótels á Akureyri.