Morgunblaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Norex gæti leitt til samruna norrænu kauphallanna
Finnska kauphöllin enn
hikandi um þátttöku
Helsinki. Morgunblaðið.
Lárus Jónsson við tökur á Spáni fyrir Marbella Film Factory.
Saga film stofnar dótt-
urfyrirtæki á Spáni
SAMRUNI norrænna kauphalla
gæti orðið framhaldið á Norex, sam-
starfí kauphallarinnar í Stokkhólmi
og Kaupmannahöfn, sem Ósló og
Reykjavík verða með í síðar á árinu,
að sögn danska blaðsins B0rsen.
Eins og er miðast Norex við sameig-
inlegar reglur og samræmt kaup-
kerfí, en hugmyndir um samruna
eru einnig á kreiki. Finnska kaup-
höllin, sem hingað til hefur heldur
kosið að þróa samstarf við kauphöll-
ina í Frankfurt, fylgist með nor-
rænu þróuninni. Opinberlega er þvl
haldið á lofti þar að það þjóni betur
fínnskum hagsmunum, en hikið staf-
ar einnig af stærðarmun kauphall-
arinnar í Helsinki og Stokkhólmi.
I Barsen er haft eftir Hans Ejv-
ind Hansen stjórnarformanni
Köbenhavns Fondsbors að vísast
muni danska kauphöllin vera til um
mörg ókomin ár, en ekki sem sjálf-
stæð eining, heldur sem hluti af
samstarfi annarra kauphalla og
kaupkerfa, eða sem hluti af samein-
aðri norrænni kauphöll. Sem hlið-
stæðu benti hann á samstarf kaup-
halla í Brussel, Amsterdam og
París, sem væru á leið að stofna
sameiginlegt eignarhaldsfélag,
Euronext. Ekki væri óhugsandi að
Norex þróaðist í sömu átt.
Hugmyndin um samruna er þó
ekki alveg raunsæ, því í raun væri
um að ræða að sænska kauphöllin
yfírtæki þá dönsku, því fyrirtækið,
sem á sænsku kauphöllina, OM
Gruppen, er miklu stærra en Fonds-
borsen. Veltan í dönsku kauphöll-
inni á síðasta ári var 168 milljónir
danskra króna, um 1,68 milljarðar
íslenskra króna og hagnaðurinn
nam 6,5 milljónum danskra króna.
Velta OM Gruppen einungis á fyrsta
ársfjórðungi í ár var hins vegar 695
milljónir sænskra króna, um 6,3
milljarðar íslenskra króna og hagn-
aðurinn 251 milljón sænskra króna,
en væntingarnar eru enn meiri í ár.
Fondsbprsen reiknar með hagnaði
upp á 15 milljónir danskra króna í
ár.
Búist við frekari
evrópskum hræringum
Ejvind Hansen undirstrikaði að
þó stefnan væri nú á þróun Norex
og hugsanlegan samruna í kjölfar
þess væri samnorræn kauphöll ekki
takmarkið, heldur aðeins liður í þró-
un evrópska kauphallarsamstarfs-
ins, sem einnig stefndi í samruna og
yfirtökur til að skapa sterkt
evrópskt kauphallasvið. Það er að
sama skapi ljóst að OM Gruppen
býst við frekari evrópskum hrær-
ingum á þessu sviði, bæði samruna
og samræmdari þjónustu við bæði
verðbréfasala og fjárfesta. Heima
fyrir hefur OM Gruppen látið í það
skína að hugleitt sé að loka kl. 22 á
kvöldin til að gera viðskipti kleif í
Stokkhólmi, jafnhliða opnunartíma
kauphallarinnar í New York.
Samkvæmt fínnskum heimildum
Morgunblaðsins eru engar áþreifan-
legar hreyfíngar innan fínnsku
kauphallarinnar að þokast nær Nor-
ex. Astæðan er ekki vantrú á nor-
rænu samstarfi á þessu sviði, heldur
hafa finnsk stórfyrirtæki eins og
Nokia, Sonera og Stora Enso þrýst
á um fínnska þátttöku í evrópsku
samstarfi umfram hið norræna.
Samstarfið við kauphöllina í Frank-
furt hefur því orðið ofan á, fremur
en þátttaka í Norex, sem keppi við
evrópska kerfið. Finnsk stórfyrir-
tæki eru almennt einnig skráð í
kauphöllinni í Stokkhólmi.
Finnskar vangaveltur
um stærðarmun
Að baki þessu liggja einnig
fínnskar vangaveltur um stærðar-
mun fínnsku og sænsku kauphallar-
innar. Fyrir 3-4 árum var markaðs-
verðmæti fyrirtækja, sem skráð
voru í sænsku kauphöllinni 2-3 sinn-
um meira en fyrirtækja á finnska
markaðnum, en nú er verðmætið
hins vegar orðið ámóta mikið. Hins
vegar er veltan á sænska markaðn-
um eftir sem áður þre- eða fjórföld á
við veltuna á fínnska markaðnum.
Finnum er í mun að halda í sjálf-
stæðan markað sinn, sem starfaði
náið með evrópska markaðnum,
fremur en að ganga inn í samstarf,
þar sem sænska kauphöllin hlyti
vegna stærðar sinnar að vera
þungamiðjan. Þeim er þekkja til
rígsins, sem löngum hefur verið
milli Finna og Svía, mun vísast ekki
koma þessi afstaða Finnanna á
óvart.
SAGA film hf. hefur fært út
kvíarnar og stofnað dótturfyrir-
tæki á Suður-Spáni ásamt
spænska kvikmyndafyrirtækinu
Quasar S.A. í Madrid, Marbella
Film Factory. Fyrirtækið er stað-
sett í smábænum Marbella í And-
alúsíu.
í tilkynningu frá Saga film
kemur fram að Marbella Film
Factory sé þjónustufyrirtæki fyrir
kvikmyndaiðnaðinn og þá einkum
fyrir sjónvarpsauglýsingagerð.
Tökusvæðið sé Suður-Spánn, Gí-
braltar, Suður-Portúgal og norð-
urhluti Afríku. Hjá hinu nýja fyr-
irtæki starfa íslenskir og erlendir
leikstjórar.
„Náttúran hefur mikið að segja-
um hvar einstök verkefni eru
kvikmynduð. Hið nýstofnaða fyr-
irtæki mun bjóða upp á fjöl-
breytta staðarval, má segja að
nyrsti hluti þess sé jöklar, svartir
sandar, hverir og náttúra íslands,
en syðsti hluti þess sé eyðimerkur
Norður-Afríku,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Stofnun þessa fyrirtækis hefur
átt sér nokkurn aðdraganda. Mik-
il samvinna hefur verið milli
Quasar S.A. og Saga Film að und-
anförnu, og hafa leikstjórar og
sérhæft starfsfólk frá Saga Film
unnið við gerð auglýsingamynda
á Spáni og í Bandaríkjunum í
samvinnu við Quasar Films, sem
siðan hefur leitt til stofnunar
þessa fyrirtækis. Marbella Film
Factory hefur nú þegar unnið
verkefni fyrir breska markaðinn
og standa tökur yfir á auglýsinga-
kvikmynd fyrir vínframleiðanda.
Stjórn Marbella Film Factory
skipa þau Jón Þór Hannesson og
Alicia Crespo.
VÞI gefur
út Fact
Book
VERÐBRÉFAÞING íslands hefur
gefið út Fact Book 2000 sem hefur að
geyma upplýsingar á ensku um
Verðbréfaþing og starfsemi þess,
ásamt upplýsingum um markaðinn á
síðasta ári.
Þetta er í fyrsta skipti sem Verð-
bréfaþing gefur út slíka bók og verð-
ur henni dreift til erlendra kaup-
halla, þingaðila, skráðra félaga og
fleiri. Erlendar kauphallir gefa út
Fact-bækur í upphafí hvers árs og
verður þetta því árleg útgáfa hjá
VÞÍ. Bókin er þegar komin á heima-
síðu þingsins.
Þjóðhátíðarnefnd ÍBV 2000 auglýsir eftir tillögu að
þjóðhátíðarlagi í ár.
Tillögum að þjóðhátíðarlagi skal skilað á kassettu
eða diski undir dulnefni eigi síðar en 1. maí 2000.
Einnig skal fylgja með í lokuðu umslagi
dulnefni, rétt nafn höfundar.
rÞjóðhálíflarnefnd ÍBV
c/o Ólafur Týr Guöjónsson
Túngötu 18
900 Vestmannaeyjum
, merktu
* *
Borgaðu með VISA
þu gætir hitt
á töfrastund!
Danskt-
íslenskt
verslunar-
ráð stofnað
DANSKT-íslenskt verslunarráð
verður stofnað í Borsen í Kaup-
mannahöfn þann 27. apríl næstkom-
andi og geta fyrirtæki og einstakling-
ar í ríkjunum tveimur gerst félags-
menn og hafa fjölmai’gir nú þegar
skráð sig sem stofnfélaga, að því er
frarn kemur í íréttatilkynningu frá
Verslunarráði íslands. Að stofnun
ráðsins standa Verslunarráð, sendi-
ráð Islands í Kaupmannahöfn og
sendiráð Danmerkur í Reykjavík.
Þetta er í sjöunda sinn sem Versl-
unarráð íslands kemur að stofnun
slíks millilandaverslunarráðs, en fyrir
eru verslunairáð milli íslands og
Bandarílganna, Bretlands, Frakk-
lands, Spánar, Svíþjóðar og Þýska-
lands.
Markmið Dansk-íslenska verslun-
arráðsins verður að styi’kja enn fí-ek-
ar viðskiptatengsl landanna sem eiga
sér aldalanga sögu. Til að ná þessu
markmiði mun ráðið m.a. standa fyrir
fundum og ráðstefnum um málefni
sem tengjast viðskiptum landanna,
sinna hagsmunagæslu gagnvart
stjómvöldum og veita beina þjónustu
samkvæmt nánari ákvörðun stjómar.
Stofnfundurinn verður í Bprsen kl.
15:30 fimmtudaginn 27. apríl og
ræðumenn fundarins verða Geir H.
Haarde, fjármálaráðherra íslands, og
Marianne Jelved, efnahagsmála-
ráðherra Danmerkur, sem mun fjalla
um evmna og afstöðu Dana í þeim
efnum.
Tanaka
UMGERÐISKLIPPUR
V
Garðyrkjumenn landsins
nota Tanaka klippur
VETRARSOL
Hamraborg 1-3, norðanmegin
S. 564 1864 J