Morgunblaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 15. APRÍ L 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fyrrverandi gjaldkeri CDU fyrir rannsóknarnefnd þýzka þingsins
Vitnisburður Schaubles
og Baumeister stangast á
Berlín. Morgunblaðið
SÉRSKIPUÐ nefnd þýzka þingsins, sem
rannsakar nú hvort tengsl hafí verið á milli
leynilegra greiðslna í flokkssjóði kristilegra
demókrata (CDU) og vissra ákvarðana ríkis-
stjórnar Helmuts Kohls, er eftir yfírheyrslur
gærdagsins yfír Brigitte Baumeister, fyirver-
andi gjaldkera flokksins, engu nær um það
hvernig það bar að, að vopnasölumaðurinn Karl-
heinz Schreiber lét 100.000 marka fjárframlag,
andvirði 3,7 milljóna króna, af hendi rakna til
CDU haustið 1994.
Baumeister ítrekaði í vitnisburði sínum í gær
fyrri frásögn sína af málinu, sem stangast á við
frásögn Wolfgangs Schaubles, fyrrverandi
flokksformanns, en hann bar vitni fyrir rann-
sóknamefndinni í fyrradag.
Að sögn Baumeister fékk hún hinn 11. októ-
ber 1994 umslag beint úr hendi Schreibers, sem
hún hafi síðan látið Scháuble fá. Fallið var í
fyrrakvöld frá því í bili að stefna bæði Scháuble
og Baumeister saman fyrir nefndina, en vegna
þess að eiðsvarinn vitnisburður þeirra stangast á
eiga þau nú hugsanlega yfir höfði sér meinsær-
isákæru af hálfu þingnefndarinnar.
Lögmaður Baumeister, Kristina Pilaci-Borg-
greve greiíynja, var í gærkvöld óvænt kölluð
sem vitni fyrir nefndina, eftir að það spurðist að
hún hefði einnig setið fjáröflunarkvöldverðarboð
það, sem eftir frásögn Scháubles var vettvangur
fyrstu viðkynningar hans við Schreiber. Scháu-
ble segir Schreiber hafa látið sig fá féð að lokn-
um þessum kvöldverði, sem var hinn 22. septem-
ber 1994, og hann hefði síðan fært Baumeister
það.
Baumeister bar að hún hefði hinn 11. október
1994 fengið umslag frá Schreiber, stílað á Scháu-
ble, sem hún hefði hinn 16. október fært Scháu-
ble í Bonn. Schreiber hafi þá aðeins gefíð í skyn,
að það væru peningar í umslaginu. Sagði Bau-
meister að fáeinum dögum síðar hafí Scháuble
boðað sig á skrifstofu sína í Bonn og fært henni
annað umslag, sem að hans sögn innihélt pen-
inga frá Schreiber. Hún hafi síðar látið Scháuble
fá kvittun fyrir móttökunni, að hans beiðni. Hún
hafi sama dag látið umslagið í hendur Jiirgens
Schomack, skrifstofustjóra síns. Hann hafi fund-
ið 100.000 mörk í því og lagt í öryggishólf en síð-
an fært endurskoðanda flokksins, Horst Wey-
rauch, féð þegar komið var fram á árið 1995.
Viðurkennir lögbrot
Baumeister viðurkenndi að framlagið hefði
ekki verið fært til bókar eins og reglur kvæðu á
um. Sig minni að Schreiber hafi beðið hana um
það. Að minnsta kosti hafi engin lögformleg
framlagskvittun verið gefin út. Schreiber, sem
nú býr í Kanada og á yfir höfði sér að verða
framseldur til Þýzkalands til að koma þar fyrir
rétt í skattsvika- og mútumáli, hefur opinberlega
stutt frásögn Baumeister.
Fjár-
lasraupp-
gjöri
frestað
Berlín. Morgunblaðið.
EVRÓPUÞINGIÐ ákvað í gær
að slá á frest til 15. maí nk. að
leggja blessun sína yfir fjár-
lagauppgjör Evrópusambands-
ins (ESB) fyrir árið 1998.
Framkvæmdastjórnin hefði að
mati þingsins ekki enn upplýst
með fullnægjandi hætti nokkur
atriði varðandi fyrri ásakanir
um svik og spillingu.
Spillingarásakanir, bornar
fram af Evrópuþinginu, urðu í
marz í fýrra framkvæmda-
stjórn Jacques Santers að falli.
Sú stjómkerfiskreppa ESB
sem náði hámarki með afsögn
framkvæmdastjómarinnar fór
af stað með því að Evrópuþing-
ið neitaði að samþykkja fjár-
lagauppjörið.
Hugsanlegt að Clinton verði ákærður
eftir að hann lætur af embætti
Ætlar ekki að
biðja eftirmann-
inn um náðun
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í fyrradag að hann myndi
ekki fara fram á náðun hjá eftirmanni
sínum, færi svo að hann yrði ákærður
fyrir meinsæri eftir að hann léti af
embætti. Gerði hann einnig hneyksl-
ismálin, sem hann hefur lent í, að um-
talsefni og varði sjálfan sig af hörku.
Meðal annars kvaðst hann enn bíða
eftir því að fréttamenn skýrðu frá því
að Whitewater-málið hefði verið
„uppspuni og tilbúningur frá rótum“.
Clinton lét ummælin falla á fundi í
Washington með um 500 manns en
hann var haldinn í tilefni af ráðstefnu
bandarískra dagblaðaritstjóra. Að
því er fram kemur í The Washington
Post spurði einn ritstjóranna Clinton
hvort hann myndi biðja eftirmann
sinn um náðun, færi svo að Robert W.
Ray, sem tók við af Kenneth W. Starr
sem óháður rannsakandi í málum
Clintons, ákærði hann um meinsæri
eftir að hann léti af embætti.
Clinton kvaðst ekki myndu gera
það og hann sagðist tilbúinn til að
koma fyrir hvaða rétt sem væri.
Kvaðst hann einnig vera að bíða eftir
því að það væri viðurkennt, t.d. af
fréttamönnum, að Whitewater-málið
hefði verið „uppspuni og tilbúningur
frá upphafi“. Sagði hann ennfremur
að það væri fátt „óháð“ við rannsókn
Rays og gaf í skyn að hún væri af
pólitískum rótum runnin.
Gerði Lewinsky-málið út um
„byltingu" Gingrich?
Clinton sagði um Lewinsky-
hneykslið að hann hefði „goldið þau
mistök dýru verði“. Hann kvaðst ekki
skammast sín fyrir að hafa verið
ákærður með embættismissi fyrir
augum. Það hefði verið ákvörðun
andstæðinga hans. Lewinsky-málið
hefði hins vegar átt sinn þátt í að sér
hefði tekist að kveða niður „byltingu"
Newt Gingrich, leiðtoga repúblikana
í fulltrúadeildinni. Hefði hún náð
fram að ganga væri staða lands og
þjóðar önnur og verri en hún er.
Gingrich sagði af sér þingmennsku
er repúblikanar misstu fimm sæti í
fulltrúadeildinni í kosningunum 1998
þegar málaferlin gegn Clinton voru í
algleymingi.
Hendir gaman að
hneykslismálunum
Fundur Eystrasaltsráðsins í Kolding
Að undanförnu hefur Clinton vikið
nokkrum sinnum að málaferlunum
gegn sér í gamansömum tóni en það
hefði verið óhugsandi fyrir ári. I síð-
ustu viku sagði hann í Louisiana að
umdeildur stjómmálamaður þar í
ríkinu hefði sýnt og sannað að það
væri unnt að hafa alla fjölmiðla á móti
sér en verða samt æ vinsælli meðal
kjósenda. „Mér datt í hug að láta á
þetta reyna, en vissulega fór það dá-
lítið úr böndunum," sagði Clinton.
AP
Nýársgleði í Bangladesh
Þúsundir manna fóru um stræti og torg í Dhaka, höfuð- í gær að þarlendum sið. í skrúðgöngunum bar mest á
borg Bangladesh, í gær til að fagna nýju ári en það hófst glæsilegum fuglum og brúðum úr pappír.
Heilbrigðismálin voru
ofarlega á baugi
EYSTRASALTSRÁÐIÐ fundaði í
Kolding í Danmörku nú í vikunni en
ráðið er hugsað sem sameiginlegur
vettvangur fyrir Eystrasaltsríkin,
Norðurlönd, Þýskaland, Pólland og
Rússland og þau mál, sem tengjast
svæðinu sérstaklega. Davíð Odds-
son, forsætisráðherra Islands, sem
sat fundinn, sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta samstarf
gæti gagnast Islendingum á ýmsan
hátt þótt ísland væri strangt tiltekið
ekki hluti af svæðinu.
„Meginmarkmiðið með fundum
Eystrasaltsráðsins er að ná saman
forystumönnum ríkja á þessu
svæði,“ segir Davíð og nefndi í því
sambandi þá „norrænu vídd“ innan
Evrópusambandsins, ESB, sem
varð Gerhard Schröder, kanslara
Þýskalands, að umtalsefni í lok
fundarins.
Heilbrigðismál voru ofarlega á
baugi að þessu sinni, en að sögn
Davíðs hefur náðst góður árangur af
fyrri fundum ráðsins. Hann nefnir
sem dæmi að slíkir fundir hafi leitt
til átaks til að stemma
stigu við vaxandi glæp-
um og hafi m.a. skilað
sér í samræmdum að-
gerðum lögreglu- og
tollyfirvalda. „Það hef-
ur skilað heilmiklum
árangri," segir Davíð
og kveður menn að
þessu sinni hafa ákveð-
ið að beina athyglinni
að vissum þáttum heil-
brigðismála. „Einkum
þeim sem snúast um
smitsjúkdóma sem
menn höfðu áður talið
sig ráða við, samanber
útbreiðslu berkla í
Austur-Evrópu.“
Norðmenn munu hafa forystu um
framgang þessa málaflokks og segir
Davíð að til standi að stofna starfs-
hóp undir þeirra stjórn sem fái það
hlutverk að leita úrlausna. „Það er
gert ráð fyrir að þessi starfshópur
verði skipaður fulltrúum frá mörg-
um ríkjanna og hann muni vinna
hratt,“ segir Davíð og
kveður íslendinga
koma þar við sögu, en
ekki liggi fyrir hvenær
hópurinn eigi að skila
niðurstöðum sínum.
Stækkunarferli
ESB til umræðu
Stjómmál dagsins
voru einnig til umræðu
á fundinum og segir
Davíð ástandið í Rúss-
landi og aðgerðir
Rússa í Tsjetsjníu hafa
verið þar ræddar þótt
ekki hafí verið borin
upp ályktun um málið.
Þá hafi stækkunarferli Evrópu-
sambandsins einnig verið á dagskrá
því Pólland sem og Eystrasaltsríkin
hafa æskt aðildar að sambandinu og
sat Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, fundinn að
þessu sinni.
Davíð fundaði einnig einslega með
Jens Stoltenberg, nýskipuðum for-
Davfð Oddson
sætisráðherra Noregs, Irenu Deg-
utiene, forsætisráðherra Litháens,
og Schröder, kanslara Þýskalands.
„Ég átti mjög góðan fund með
Schröder þar sem við fórum yfir þau
mál sem efst em á baugi og jafn-
framt þau, sem við höfum sérstakan
áhuga á,“ segir Davíð og nefnir af-
stöðu íslands til Kyoto-samningsins
sem og aukna þátttöku ESB í varn-
ar- og öryggismálum. Að sögn Da-
víðs er nú reynt að tryggja að aukin
þátttaka Évrópusambandsins í
vamar- og öryggismálum, sem ís-
land hefur stutt, verði ekki til þess
að veikja uppbyggingu innan NA-
TO.
Hann segir allmörg ríki eiga aðild
að NATO en ekki ESB og öfugt og
sum ESB-ríkjanna hafi til að mynda
ekki hug á að ganga í NATO. Davíð
segir að stefnt hafi í nokkurt óefni í
þessum efnum en hann trúi því að
hallkvæm lausn sé nú í sjónmáli.
„Við vonumst til að ná þessari niður-
stöðu og ég skildi þýska kanslarann
þannig að hann hefði skilning á því.“