Morgunblaðið - 15.04.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 2000 53
MARGMIÐLUN
LEIKIR
Rayraan tvö var nýlega gefinn út
fyrir Dreamcast. Rayman er lítill
fjólublár karl með engan háls, upp-
handleggi né lappir. Margir muna
eflaust eftir honum frá fyrstu PC-
tölvunni sem þeir keyptu en þar var
tvívíddar útgáfa af Rayman nánast
staðall. Nú hefur Ubi Soft gefið út
nýjustu útgáfu Rayman, The Great
Escape, fyrir Dreamcast tölvuna.
Minniskort er nauðsyn.
RAYMAN tvö er ævintýraleikur
sem gerir sitt besta til að ná
sannri ævintýrastemmningu og
höfða til sem flestra aldurshópa.
Spilendur taka sér hlutverk
Raymans og taka við þar sem
fyrsti leikurinn skildi við. Globox
hefur komist inn í fangelsisskip
sjóræningjanna sem fönguðu
Rayman í enda fyrri leiksins og
tekist að bjarga Rayman. Hann
verður nú að hindra kaptein
Razorbeard og hervélmenni hans
í því að eyðileggja heiminn. Sögu-
þráðurinn er kannski ekki með
því flóknasta eða frumlegasta
sem sést hefur en leikurinn bætir
það algjörlega upp með athyglis-
verðum verkefnum strax frá byrj-
un og skemmtilegum karakter-
um.
Borð Rayman tvö eru flott og
afar vel gerð. Dreamcast-vélin
hægir aldrei á sér og sjást hvergi
neinar villur, leikurinn er reynd-
ar hönnunarlega séð stórt spark í
rassinn á þeim sem hafa haldið
því fram að leikjahönnun sé ekki
Höfðað til
ævintýraþrár
list; ef einhver er ekki sammála
því ráðleggur greinarhöfundur
honum að kaupa Monkey Island 3
fyrir PC og Rayman tvö fyrir
Dreamcast.
Grafík leiksins er ótrúlega flott
og líklega ein sú flottasta sem
sést hefur á Dreamcast til þessa;
hið ótrúlega umhverfi leiksins,
þar sem allt er glóandi og á
hreyfíngu, kemur afar vel út og
hjálpar spilendum að lifa sig
virkilega inn í leikinn.
Hljóðrás er ótrúlega flott og
passar fullkomlega við ævintýra-
legt umhverfið. 011 dýr hafa sitt
eigið tungumál sem þau tala sín á
milli og ekkert tungumál er eins;
hönnuðum leiksins hefur tekist að
búa til húmor með engum orðum,
sem fáir geta státað af.
Stjórn Rayman tvö er frábær. I
PC-útgáfunni var aðalvandamálið
að þurfa að spila með lyklaborð-
inu en Dreamcast-fjarstýringin
nær verkinu afar vel, engar
kvartanir þar.
Rayman tvö er leikur sem höfð-
ar til ævintýraþrárinnar í okkur
öllum, sama hver aldurinn er. At-
hyglisverður og skemmtilegur
söguþráður sér til þess að þeir
sem setjast niður til að spila
þennan leik standa ekki upp aftur
fyrr en margir tímar eru liðnir
(staðreyndin að það er ekki hægt
að vista leikinn nema á milli
borða á reyndar þar nokkurn hlut
að máli).
Ingvi Matthías Árnason
Bakdyr
í boði
Microsoft
UNDANFARIÐ hafa fréttir verið
tíðar af göllum á nethugbúnaði
Microsoft og menn dregið öryggi
þeirra mjög í efa. Það var svo til að
gefa öllum slíkum vangaveltum byr
undir báða vængi þegar kom í ljós
að hrekkur forritara fyrirtækisins
hefði óvart komi bakdyrum fyrir á
vefsetri með Microsoft vefþjóni.
í þeim grúa skráa sem fylgir með
FrontPage-viðbótum Microsoft er
ein skrá sem heitir dvwssr.dll. Sé -
litið inn í skrána með ritþór kemur
þar línan Iseineew era sreenigne
epacsteN, eða Netscape engineers
are weenies!, verkfræðingar
Netscape eru aular! Að sögn örygg-
isráðgjafa gerir vitneskja um tilvist
þessarar setningar óprúttnum auð-
veldara að brjótast inn í vélar.
Skráin er á Microsoft IIS
vefþjónum sem eru með FrontPage
98-viðbótum. I fréttum netmiðla
kemur fram að Microsoft hafi stað-
fest að textann í skránni megi nota
sem einskonar bakdyr að viðkom-
andi setri. I Wall Street Journal
kemur og fram að fyrirtækið muni
senda frá sér sérstaka yfirlýsingu
um þetta mál innan skamms og
bjóða um leið upp á endurbætur.
Þetta vandamál er ekki til staðar
í Windows 2000-vefþjónum með
FrontPage 2000-viðbótum.
I
I
I
I
I
I
Fyrir stuttu var skotleikurinn Syp-
hon Filter 2 gefinn út fyrir Play
Station. Leikurinn er framhald
Syphon Filter sem kom út fyrir ári.
SÖGUÞRÁÐUR Syphon Filter,
sem var aldrei neitt til að klappa
fyiir, hefur lítið sem ekkert breyst
milli leikja. Gabriel Logan stendur
enn í baráttu við risafyrirtæki sem
hóta heiminum með Syphon Filter
vírusnum. Liang Xing, félagi Log-
ans, er nú sýkt af vírusnum og
Gabriel verður að gera allt sem
hann getur til að bjarga henni.
Vandamálið er það að vírusinn á
að vera sá hættulegasti í heimi en
Lian er ennþá lifandi eftir að
margar vikur líða í leiknum!
Verkefni leiksins eru ótrúlega
fjölbreytt og ættu að höfða til
allra. I einu af fyrstu borðunum
þarf spilandinn meðal annars að
drepa hershöfðingja án þess að að-
stoðarmaður hans, sem stendur
við hlið hans, fatti það. Þessu hef-
ur Eidetic lítið breytt frá fyrsta
leiknum en markmiðið er að fá
spilandann til að finnast að hann
"verði" að klára annað verkefni.
_ Stjóm leiksins er ekki sú besta.
Ágætt er að stjórna Gabriel en
hann hleypur ennþá eins og hann
sé með bleyju. Þegar miða þarf
nákvæmlega, einhvað sem er
nauðsynlegt í flestum borðum þar
sem leyndar er krafist, verður allt-
af að líta frá til að skipta um byssu
þegar skotfærin em búin. Þetta
getur orðið afar þreytandi í stöð-
um þar sem margir óvinir era í
kringum Gabriel og verður oftast
til þessa að spilandinn tapar tölu-
verðri orku á meðan hann miðar á
ný.
Einn takki sér um að miða í átt
að óvinum og velur þá einn sér-
staklega. Þetta er ágætt þegar
spilandinn er með sprengiefni þar
sem litlu máli skiptir hvar hann
hittir. Þegar venjulegar byssur
eru aftur á móti í spilinu er
ógjörningur að hitta þó spilandinn
standi beint við hliðina á óvini.
Besta aðferðin til að drepa óvin er
að miða sjálfur með fyrrgreindum
göllum.
Grafík leiksins er prýðisgóð og
þó vél hans hafi ekki breyst mikið
milli leikja lítur allt mun betur út,
sérstaklega allar sprengingar og
rákir eftir eldflaugar svo nokkuð
sé nefnt. Mikil vinna hefur verið
lögð í jafnt óvini sem bandamenn
þó enginn sé með almennilegt and-
lit.
Hljóð leiksins er með ágætum,
tónlistin er afar flott í sumum
borðunum og ýtir vel undir and-
rúmsloft leiksinns, grúví techno
með framtíðar og house ívafi ræð-
ur þar ríkjum.
Leikurinn hægir nokkuð oft á
sér, einhvað sem Eidetic hefði átt
að laga áður en leikurinn kom út.
Þetta er í raun sama vandamálið
og í Syphon Filter eitt en ef þrír
era á skjánum á sama tíma, sér-
staklega ef þeir eru að skjóta,
hægir leikurinn afar mikið á sér,
galli sem erfitt er að þola.
Fyrir tvo spilara er Syphon Filt-
er frábær leikur og þó erfitt sé að
hitta hver annan er "deathmatch"
valmöguleiki leiksins afar vel gerð-
ur með sérsmíðuðum borðum og
nóg af vopnum fyrir alla sem eiga
yngri bróðir og tvær fjarstýringar.
Syphon Filter var frábær leikur
sem var sérstakur vegna þess að%
hann var byltingarkenndur í hönn-
un og smíði. Syphon Filter 2 er
bara meira af því sama, ómissandi
fyrir þá sem elskuðu fyrri leikinn
og alveg þess virði að kíkja á fyrir
hina, sérstaklega þá sem fíla laum-
upokaleiki.
Ingvi Matthías Árnason
LEIKIR
Meira af þ ví sama
Reuters
Þeir Metallica-vinir James Hetfield og Kirk Hammett á Hróarskelduhá-
tíðinni fyrir rúmu ári.
Metallica í mál
við Napster
UNDANFARNA mánuði hafa
ýmsir hamast að Napster-hugbún-
aðinum, en hann auðveldar mönn-
um til muim að skiptast á tónlist á
MP3-sniði. Útgáfufyrirtæki og eig-
endur höfundarréttar hafa reynt
sem mest þeir mega að stöðva út-
breiðslu forritsins vegna meintra
brota á höfundarrétti, og skólar og
netþjónustur hafa margar bannað
notkun fomtsins enda margfaldar
það álag á nettengingar. Ovinum
Napster bættist óvæntur liðsauki á
dögunum þegar rokksveitin Met-
allica höfðaði mál á hendur Nap-
ster og fleiri aðila.
Metallica höfðaði fyrir hérað-
sdómstóli í Kaliforníu mál á hend-
ur Napster og Háskóla
Suður-Kaliforníu, Yale-háskóla og
háskólanum í Indiana. Napster er
lögsótt fyrir framleiðslu á hugbún-
aði sem auðveldi ólöglega dreifingu
tónlistar og hvetji beinlínis til þess
og skólamir fyrir að láta það af-
skiptalaust að nemendur séu að
dreifa ólöglegum varningi um
tölvunet þeirra. Skammt er síðan
þessir skólar hrintu af stað átaki til
að hindra slíka dreifingu og tveir
þeirra bönnuðu notkun á Napster
á skólanetinu, en allt kom fyrir
ekki.
I yfirlýsingu segir trymbillinn
Lars Ulrich, sem er óopinber leið-
togi sveitarinnar, að hún leggi jafn-
an hart að sér við listsköpun sína
og sú listsköpun taki til allra þátta
útgáfu verka hennar, tónlistar,
texta, umslags og umbúða. Það sé
hljómsveitarmönnum því mikill
þymir í augum að fyrirtæki og ein-
staklingar séu að dreifa verkum
hennar í öðrum búningi en hún hafi
kosið sjálf og komi engin greiðsla
fyrir.
Ekki fyrsta málið
Napster-menn segjast lítið geta
sagt um þetta einstaka mál, enda
hafi þeim ekki verið birt stefnan,
þeir hafi aðeins lesið um hana í
fjölmiðlum. Þeirra málsvöm bygg-
ist aftur á móti á því að þeir geti
ekki borið ábyrgð á því hvernig
menn beita hugbúnaði þeiiTa frek-
ar en hægt sé að sækja byssufram-
leiðendur til saka fyrir glæpi sem
framdir eru með söluvamingi
þeirra.
Höfundar- og flutningsréttar-
samtök vestan hafs hafa áður reynt
að höfða mál til að hindra út-
breiðslu MP3-skjala og þannig tap-
aði RIAA máli gegn Diamond jað-
artækjaframleiðandanum sem
snerist um Rio MP3-spilara Diam-
ond. í því máli komst dómari að
þeim niðurstöðu að lög frá 1992
sem fjalla um heimaupptökur nái
ekki yfir stafrænar upptökur á
tónlist í tölvum og tölvubúnaði.